Morgunblaðið - 12.06.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.06.1997, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 130. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Herstjóri 1 Kongó tekur undir vopnahlésyfírlýsingu forsetans Annan segist óttast nýja óöld í Angóla KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í fyrra- dag, að ástæða væri til að óttast, að átökin í Kongó, sem rekja mætti til uppreisnarinnar í Zaire sem áður hét, myndu breiðast út til Angóla. Barist var í Brazzaville, höfuð- borg Kongós, í gær þrátt fyrir, að Pascal Lissouba, forseti landsins, lýsti einhliða yfir vopnahléi í átökun- um við liðsmenn Denis Sassou Ngu- essos, fyrrverandi forseta og her- stjóra í landinu. I gærkvöldi skoraði Sassou Nguessos á stuðningsmenn sína að virða vopnahléð. Friðurinn úti? Bandaríska fréttastofan Associ- ated Press sagði frá ummælum Kofi Annans í gær en hann minnti á, að ekki hefði liðið mánuður frá því upp- reisnarmenn náðu völdum í Zaire, sem nú heitir einnig Kongó, þar til bardagar hefðu brotist út í ná- grannaríkinu Kongó. Nú væru einnig fréttir um vaxandi átök í Angóla og hætta á, að friðurinn milli stjórnarhersins þar og skæruliða Unita-hreyfingarinnar væri úti. Kvaðst Annan hafa óttast dómínóá- hrif af þessu tagi. Gæsluliðar SP í Angóla segja frá miklum bardögum í Lunda Norte- héraði og talsmenn Unita segja, að stjómarherinn sé að reyna að ná því á sitt vald en það er mjög demanta- auðugt. Unita hefur ráðið því síðan borgarastyrjöldin í landinu braust út fyrir tveimur áratugum. Samkvæmt friðarsamningum Unita og Angóla- stjórnar 1994 eiga skæruliðar að láta 70% héraðsins af hendi. Annan sagði, að Jose Eduardo Santos Angólaforseti hefði fullvissað sig um, að stjórnarherinn væri að- eins að herða gæslu á landamærun- um vegna frétta um, að fyrrverandi stjórnarhermenn í Zaire, vopnaðar sveitir hútúmanna og Unita-liðar streymdu til landsins frá Kongó. Sassou Nguessos brást við vopnahlésyfirlýsingu forsetans í ávarpi sem hann fiutti í útvarpi herstjórnarinnar í gærkvöldi. Hvatti hann tO þess að „þaggað yrði niður í vopnunum." Haft er eftir vitnum, að barist hafi verið í mörgum hverfum í gærdag, og lægju tugir eða hundruð líka á götum borgarinnar. Þá hafa flestar verslanir verið rændar. Utlendingar fluttir burt Franskir hermenn hafa flutt 1.778 útlendinga frá Kongó síðan á mánu- dag og búist var við, að 200 yrðu fluttir þaðan í gærkvöldi. Hefm- ver- ið ákveðið að fjölga í herliðinu upp í 1.250 manns. Bandarísk herflugvél flutti 54 útlendinga frá Brazzaville í gær og eru þá 60 Bandaríkjamenn eftir í borginni. Bernard Kolelas, borgarstjóri í Brazzaville, er þriðji herstjórinn í landinu en hann hefur ekki tekið þátt í átökunum og reynt að bera klæði á vopnin. Reuter IBUI í Brazzaville með barn í fangi hefur leitað skjóls undir vegg en yfir honum stendur franskur hermaður albúinn að svara skothríðinni. Dollarinn lækkar London. Reuter. GENGI dollarans lækkaði verulega í gær gagnvart japönsku jeni og hefur ekki verið lægra í sjö mánuði. Er ástæðan meðal annars, að greiðslujöfnuður Japana hefur sjaldan verið hagstæðari en nú og búist er við, að það muni kynda undir aukinni spennu í viðskiptum Japans og Bandaríkjanna. Dollarinn fór niður fyrir 111 japönsk jen í gærmorgun en hækk- aði síðan örlítið aftur og gengi hans gagnvart þýsku marki veiktist einnig. Lawrence Summers, aðstoð- arfjármálaráðherra Bandaríkjanna, kom gengislækkuninni af stað með þeim ummælum, að mikill greiðslu- afgangur Japana af viðskiptum við útlönd gæti skaðað hagvöxt í heim- inum. Japanskur sérfræðingur í gjald- eyrismálum sagði í gær, að frá því í apríl hefði eins konar tímasprengja tifað undir dollaranum. -------------- Nýr fylgi- hnöttur fundinn London. Reuter. JÖRÐIN á sér annan förunaut, auk tunglsins, og er það loftsteinn um fimm km í þvermál. Er sporbraut hans um sólina tengd sporbraut jarðar. Stjarnfræðingar við York-háskóla í Kanada greina frá þessu í nýjasta hefti tímaritsins Nature. Segja þeir, að þótt loftsteinninn sé ekki eigin- legur fylgihnöttur jarðarinnar sé hann eina náttúrufyrirbærið, auk tunglsins, sem vitað sé að fylgi jörð- inni. Braut steinsins sker braut jarðar- innar, en ekki er hætta á árekstri því aðdráttarafl jarðarinnar heldur steininum frá. Grænfrið- ungar taka Rockall London. Reuter. TALSMENN umhverfisfriðunar- samtakanna Greenpeace til- kynntu í gær að liðsmenn þeirra hefðu tekið Rockall-eyju, úti fyrir strönd Skotlands, í mótmælaskyni við olíuleit á svæðinu. Þrír liðs- menn Greenpeace, Ástrali, Breti og Þjóðverji, voru fluttir með þyrlu út í eyna og komu þar fyrir gulu íveruhylki sem þeir skrúfuðu fast í bergið. Haft var eftir einum grænfrið- unganna, sem nefndur var Al: „I hafinu umhverfis Rockall kunna að vera miklar olíulindir, og hafa fjórar þjóðir gert tilkall til nylja á svæðinu, Bretar, Danir, Islending- ar og írar.“ í yfirlýsingu frá Greenpeace segir ennfremur: „Með því að taka Rockall leggjum við hald á hafíð umhverfis handa jörðinni allri og því fólki sem á henni býr. Enginn hefur rétt til að hleypa þessari olíu inn í umhverfí okkar, sem þegar er í hættu.“ Annar fulltrúi samtakanna sagði að vísindalegar forsendur væru fyrir því viðhorfi, að umhverfið Reuter þyldi ekki bruna allrar þeirrar ol- íu sem þegar hefði verið unnin. Irska orkumálaráðuneytið veitti 11 leyfi til olíuleitar á Rock- all-svæðinu 4. júní. Frakkar lýsa vilja til sáttar um EMU Hvika ekki frá skilyrði um atvinnumál París. Reuter. FJÁRMÁLARÁÐHERRA Frakk- lands, Dominique Strauss-Kahn, sagði í gær að Frakkar væntu þess að innan skamms fyndist lausn á deilunni um stöðugleikasáttmála Efnahags- og myntbandalags Evr- ópusambandsríkjanna (EMU). Hann lagði þó áherslu á að Frakk- ar yrðu að fá samþykki fyrir aukinni áherslu á hagvöxt og atvinnumál áð- ur en þeir gætu skrifað undir sátt- málann. „Yið munum áreiðanlega finna lausn. Ef við getum hraðað málinu þá er það auðvitað betra. Það hefur enginn áhuga á að draga mál á lang- inn að ástæðulausu,“ sagði Strauss- Kahn við fréttamenn eftir vikulegan ríkisstjórnarfund í gær. Stjórnmálaskýrendur segja að með þessu hafi franska stjórnin látið í ljósi vilja til aðildar að staðfestingu sáttmálans á leiðtogafundi Evrópu- sambandsins (ESB) í Amsterdam í byrjun næstu viku. Frakkar ætli sér þó greinilega ekki að hvika frá kröf- um sínum um að aðgerðir gegn at- vinnuleysi verði algert forgangsat- riði í Evrópusamstarfi. Aðvörun frá Græningjum Strauss-Kahn sagði við írétta- menn í gær að Frakkar væru ein- faldlega að reyna að tryggja að stað- ið yrði við Maastriehtsáttmálann, frá 1991, þar sem kveðið er á um aukna samræmingu hagstjórnar í Evrópu- löndunum og áhersla lögð á hagvöxt og atvinnumál, í samhengi við ábyrga fjármálastjóm. Flokkur græningja, sem á aðild að nýrri ríkisstjórn Lionels Jospins, forsætisráðherra, varaði Jospin í gærkvöldi við því að skrifa undir stöðugleikasáttmálann í Amsterdam. Sögðu græningjar að sáttmálinn væri gildra sem Frakkar mættu ekki falla í. ■ Kinkel kveðst/22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.