Morgunblaðið - 12.06.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 41
En hvort sem ég er með eða móti
er margt sem ég ræð ekki við.
Á sjávarútveg var settur kvóti
og sóknin bönnuð á mið.
Áður fyrr menn nálægðar nutu
og nægur var fiskur við land.
En stjómvöld þorpanna bjargræði bmtu
svo byggðimar hrannast í strand.
Hvað er hugsanlegt helst til ráða
að heimta er kannske létt.
I landinu forðum var byggð fyrir báða
burgeisa’ og alþýðustétt.
Því uxu þorpin að sjór var sóttur
og sjálfsagt að allir hefðu þann rétt.
Nú er lamandi þrek og þróttur
en þrifaleg sægreifa stétt.
Striðið er hafið og verkin skal vinna
til vemdar búsetu hér.
Togarar ættu’ að fá miklu minna
og meti það hver sem er.
Smábátar sækja björg í búið
og bæta almennan hag.
Ef til vill sýnist það öfugsnúið
en Island er svona í dag.
Ranglætið víki og kvótinn hverfi
þann kaleik ég vil ekki sjá.
Og síðari kynslóðir aldrei erfi
eitthvað sem má ekki fá.
Að uppræta meinið er öllum til bóta
og endurvakin skal fyrri dyggð.
Þá munum við fapandi friðarins njóta
fijálsir í heimabyggð.
E.S.
Ég hef verið flokksbundinn sjálf-
stæðismaður í hartnær hálfa öld
og trúi því ekki að ríkisstjórn undir
forsæti Davíðs Oddssonar leiðrétti
ekki þessi mál svo lang stærstur
meirihluti þessarar þjóðar geti vel
við unað.
* Þessi grein var rituð á meðan
verkfallið var á Vestfjörðum.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
^ - - -
Kringlunni, sími 568 6688
Í|l - kjarni málsins!
f
í sjálfskiptan - á ferð!
Chrysler Stratus 2.5 LE
er í senn sjálfskiptur og
beinskiptur - þú getur
valið á milli skiptinga eftir aðstæðum og stemningu hverju sinni. Stratusinn er aflmikill,
fjörmikill og viljugur, ríkulega búinn, fallegur, munúðarfullur, öruggur og staðfastur. Þörfum
þínum er fullnægt í Chrysler Stratus, amerískum draumabíl.
Láttu sjá þig með honum!
Chrysler Stratus • 160 hestöfl • 2.420.000 kr.
CHRYSLER STRATUS 2.5 LE. AUKABÚNAÐUR Á MYNO: ÁLFELGUR.