Morgunblaðið - 12.06.1997, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Þetta gengur
ekki lengur
í FRAMHALDI af tillögu Haf-
rannsóknastofnunar um 32.000
tonna aukna veiði úr þorskstofnin-
um og 15.000 tonna aukna veiði
úr rækjustofninum birtist aðsend
grein í Morgunblaðinu 3. júní sl.
Grein þessa ritar einn af dug-
mestu framkvæmdastjórum okkar
íslendinga, Jón Sigurðsson hjá ís-
lenska járnblendifélaginu hf., og
hvetur landann til að láta heyra í
sér og láta það ekki líðast lengur
að stjórnendur landsins bæti hundr-
uðum milljóna við eignir örfárra
fyrirtækja með úthlutun endur-
gjaldslauss kvóta. Jón Sigurðsson
er ekki vanur að vera með neina
hálfvelgju í sínum skrifum um menn
né málefni og er hann bæði vel
menntaður og hefur gífurlega
reynslu bæði innan hins opinbera
stjórnsýslugeira og úti í atvinnulíf-
inu, eins og alþjóð veit.
Jón segir í grein sinni.
„Sú ríkisstjórn, sem
ekki notar það tæki-
færi, sem nú er til að
markaðsvæða afnot af
auðlindinni er í and-
stöðu við 75% þjóðar-
innar. Hún býr til jarð-
veg fyrir uppreisn" (til-
vitnun lýkur). Þessi orð
eru í tíma töluð og á
Jón miklar þakkir skil-
ið fyrir þessa grein og
hvet ég þá sem ekki
hafa lesið hana að gera
það og leggja lóð sitt
á vogarskálamar og
koma í veg fýrir að
þetta óréttlæti nái fram að ganga.
í ágætum leiðara sem Jónas
Haraldsson fréttastjóri
skrifaði í DV mánu-
daginn 2. júní sl. undir
yfirskriftinni „Vond
staða á Vestfjörðum“
langar mig til að
endurbirta niðurlag
leiðarans, en hann var
á þessa leið: „Það kom
fram í fréttaskýringu í
þessu blaði í síðustu
viku að ástæður verk-
fallsins væru að hluta
uppsöfnuð reiði vegna
áhrifa fiskveiðistjórn-
unar og vonleysi vegna
ákvarðana stjómvalda,
afnáms línutvöföldun-
ar og þess, að kvóti var
settur á steinbít. Reiðin og vonleys-
ið mega þó ekki verða til þess að
Ingvar
Jóhannsson
• i
■ A
Hickory stcinar
í gasgrill
vcrb ó&ur 58? kr.
Ver& nú
Masquitesteinar
í gasgrill
verí> Ó5ur 58? kr.
Ver& nú
Kokkahnífur
Trébretti
Gasgrill CB50
verí> ó&ur 9.900 kr.
Verí> nú
Steikarhnífur
198 fcípunktac
Steikargoffoll
Gasgrill
verb ó&ur 18.?00 ki
Ver& nú
373 fcípunktac
Kolagrill á hjólurn
ver& ó&ur 2.695 kr.
Ver& nú
Gasgrill BM412
ver& é&ur 29.900 kr.
Ver& nú
Kolagrill 18'
598 frípunktac
Grillsett úr tré
HAGKAUP
fUrir flölskifldunai
Mikið hugarangur
ríkir á Vestfjörðum um
þessar mundir. Ingvar
Jóhannsson segir
kvæði eftir frænda sinn
lýsa því vel.
menn gefi allt frá sér. Því ríður á
að samningsaðilar setjist niður,
slíðri sverðin og nái viðunandi nið-
urstöðu sem allra fyrst. Ella blæðir
Vestfjörðum út“ (tilvitnun lýkur).
Mig langar svo í lokin að birta
hér kvæði, sem lýsir vel því hugar-
angri sem ríkir í vestfirskum sjávar-
plássum í dag. Kvæðið er eftir
frænda minn, Eðvarð Sturluson,
fyrrum oddvita á Suðureyri, og er
hann einn eftir þar af fimm systk-
ina hópi, hin fjögur eru öll flutt á
suðvesturhornið. Það skal tekið
fram að kvæði þetta fékk ég sent
frá honum löngu fyrir verkfall.
Hugfanginn lít yfir heimabyggð alla
heillandi fjallanna tign.
Hjalandi lækir í fjöruna falla
og prðurinn speglandi lygn.
Sólin skærasta skini
skartandi falleg og heit.
Vekur gróður og vaxandi hlyni
er vermandi þessari sveit.
Um æðar fmn ég orkuna streyma
og ákveðinn strengi þess heit.
Að beijast af einlægri hugsjón hér heima
til heilla fæðingarsveit.
Hér eru ótalin verk að vinna
ef vaxa á æskunnar byggð.
Huga og krafti má farvegi finna
til fullnustu átthagatryggð.
PROTECTION
HYPOALLERGÉNIQUE
www.centrum.is/dermophil
Nilfisk AirCare Filter®
Ekkert nema hreint loft sleppur í
gegnum nýja Nilfisk síukerfið.
Fáðu þér nýja Nilfisk
og þú getur andað léttar!
/FDniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
Bss® flísar
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
■-----------■
SLIM-LINE
dömubuxur
frá gardeur
OÓuntv
tískuverslun
j V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 j