Morgunblaðið - 12.06.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.06.1997, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STRÍÐIÐ er tapað góði, skrifaðu undir . . . Bær Jóns Sigurðssonar opnaður á Hrafnseyri EFTIRLÍKING af bæ þeim sem Jón Sigurðsson forseti ólst upp í sem drengur á Hrafnseyri við Arn- arfjörð verður opnaður 14. júní næstkomandi. Sóknarpresturinn á Þingeyri, séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir, flytur blessunarorð og síðan verður bærinn til sýnis. 17. júní verður árleg skemmtun á Hrafnseyri og bærinn öllum opinn. Þá verður boðið upp á kaffiveitingar. Bærinn er hluti af safni Jóns Sigurðssonar og verða veitingar seldar þar í sumar. Erla Ebba Gunnarsdóttir frá Þingeyri sér um veitingasöluna, en safnverðir verða hjónin Sigríður Steinþórsdóttir og Tómas Jónsson, fyrrum skólastjóri á Þingeyri. Minjasafn verður í bænum Bærinn er byggður eftir teikn- ingum séra Guðlaugs Sveinssonar í Vatnsfirði og upplýsingum um bæinn frá gömlu fólki sem var uppi fyrir um sjötíu árum. Minja- safn verður í bænum og þar verða ýmsir gamlir munir. Rafmagn er í bænum og öll nýjasta tækni í heimilistækjum. Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, verður hátíðarmessa í minning- arkapellu Jóns Sigurðssonar klukk- an 14. Séra Guðrún Edda Gunnars- dóttir sóknarprestur messar og kirkjukór Þingeyrar syngur. Organ- leik annast Sigurður Daníelsson. Klukkan 15 hefst hátíðarsam- koma og flytur Jón Baldvin Hanni- balsson, fyrrverandi ráðherra, ræðu. Kristinn Níelsson leikur á fiðlu og Illugi Gunnarsson á píanó. Þá verður ljóðaupplestur. Norrænt heimilislæknaþing Fjölmennasta ráðstefna heimil- islækna til þessa Sveinn Magnússon Norrænir heimilis- læknar þinga hér á landi 11.-14. júní. Ráðstefnan er á vegum Fé- lags íslenskra heimilislækna og heimilislæknisfræði- deildar Háskóla íslands og eru þátttakendur um 1.200 talsins. Þetta er Qölmenn- asta þing norrænna heim- ilislækna til þessa og Iíklega stærsta læknaráðstefna sem haldin hefur verið hér á landi. Norrænir heimil- islæknar hafa þingað annað hvert ár og síðasta þing þeirra sóttu um 500 manns. Nú slagar upp í að Norð- menn einir nái þeim ijölda. Sveinn Magnússon, ritari heimilislæknaþingsins, var spurður hvað ylli svo góðri þátttöku nú. „Það er land, þjóð og þing. Við unnum mikið kynningar- starf fyrir þingið, sendum meðal annars öllum heimilislæknum á Norðurlöndum, sem eru 17-18 þúsund talsins, póstkort með mynd af hraungosi. Þessi góða kynning á eflaust sinn þátt í mik- illi j)átttöku.“ A þinginu verða kynntar meira en 100 rannsóknir á sviði heilsu- gæslu. Haldin verða 9 málþing, 54 fyrirlestrar og 42 rannsóknir kynntar á sýningarspjöldum. ís- lendingar flytja um 20 erindi á þinginu. Meðal erinda, sem ætla má að almenningur hafi áhuga á, er um- ræða um hvort heilsugæslan sé ávanabindandi. Það er að umræðan um áhættuþætti sé orðin að far- aldri, fólk ánetjist veikindahugtak- inu og heilbrigðiskerfinu og gleymi að taka ábyrgð á eigin heilsu. „Fyrirlesarinn telur að fremur beri að leggja áherslu á lífslöngun- ina og það sem heldur okkur frísk- um en áhættuþættina. Það er margt fleira en læknisfræðin sem hvetur fólk til að leita sér lækn- inga. Vinnumarkaðurinn og fé- lagslegt umhverfi getur rekið fólk til að leita sér lausna á veikindum. Þótt fólk fái pest sem það líklega jafnar sig af á tveimur, þremur dögum, þá vill það að eitthvað sé gert til að haida einkennum í lág- marki. Þessi utanaðkomandi þrýstingur hefur áhrif á það hvernig fólk nálgast veikindin.“ - Fyrrum prófessor í Noregi mun fjalla um sam- skipti heimilislækna og sérfræðinga, en þau hafa einmitt verið til umræðu hér á landi. Er þessi umræða einnig á Norðurlöndum? „Já, þetta er víðast hvar ofar- lega á baugi. Tilhneigingin er sú meðal margra þjóða að lækna fólk á fyrsta stigi læknisþjónustu, í frumheilsugæslunni, án þess að það þurfi að fara á sjúkrahús, eða upp á annað stig heilbrigðisþjón- ustu eins og sérfræðiþjónusta er víða nefnd. Þjóðirnar hafa tekið misjafnlega á því hvemig sér- fræðiþjónusta er nýtt. Menn stýra þessu til dæmis með verðlagningu eða tilvísunum. Þrátt fyrir sinn ríkidóm ræða Norðmenn nú mjög stíft um skipulag heilbrigðiskerfís- ins. Þeir telja að með góðri sam- vinnu á milli fyrsta og annars stigs heilbrigðisþjónustu megi auka af- köst, gæði og fagleg vinnubrögð." - Er tilhneiging hér á landi til að líta ekki á heimilislækna sem sérfræðinga á sínu sviði? „Það eimir enn eftir af því. Heimilislækningar eru heldur ekki ► Sveinn Magnússon er fædd- ur 1948 í Hafnarfirði. Hann lauk prófi í læknisfræði frá Háskóla íslands 1976. Tveimur árum síðar fór hann til sérnáms í Uppsala í Svíþjóð og Iauk sér- fræðinámi í heimilislækningum og lyflækningum. Hann hefur starfað í Garðabæ frá 1983 og er héraðslæknir Reykjaneshér- aðs síðan 1990. Sveinn hefur verið virkur í Læknafélagi Is- lands o g sat í stjórn þess í nokk- ur ár. Hann er kvæntur Krist- ínu Bragadóttur, forstöðu- inanni þjóðdeildar Landsbóka- safns Íslands-Háskólabóka- safns, og eiga þau fjögur börn. mjög gömul sérgrein. Þetta er þó hverfandi. Það má ekki gleyma því að sérnám í heimilislækning- um er ekki skilyrði fyrir því að vinna sem heimilislæknir. Það er þó að verða í reynd og orðin venja að auglýsa eftir sérfræðingum í heimilislækningum til starfa við heilsugæsluna." - Hefur ráðstefna af þessu tagi áhrif út fyrir raðir heimilislækna hér á landi? „Já, ég tel að það styrki lækna- stéttina almennt að sjá svona mikla virkni. Ráðstefnan hefur langan aðdraganda og eflir bæði vísindavinnu og félagslega starf- semi lækna. Það koma ekki allir sínum vísindaverkum að á þing- inu, þrátt fyrir það hvet- ur ráðstefnan menn til dáða og kemur ýmsu af stað.“ - Á þinginu verður meðal annars rætt um fjarlækningar og munu ráðstefnugestir geta fylgst með því þegar læknar hér skoða í eyra sjúklings sem staddur er í Sví- þjóð. Þess er getið að tækni af því tagi geti komið til góða fyrir dreifbýli hér á landi. Er lækn- isþjónusta í dreifbýli yfirleitt vandamál á Norðurlöndum? „Það ríkir alls staðar vilji til að þjóna dreifbýlinu vel. En unga fólk- ið í dag vill ekki starfa eitt og vera alltaf á vakt. Þetta á við um lækna, en ekki síður hjúkrun- arfræðinga og presta. Enn eru hér um 20 einmenningshéruð sem eru mjög óæskileg lausn, við þurfum að útrýma því vinnufyrirkomulagi- Til að halda uppi sem bestri þjón- ustu í dreifbýlinu hafa menn kom- ið á fjarlækningum. Norður-Nor- egur hefur verið framarlega í þeim efnum og ég tel að fjarlækningar geti styrkt heilsugæslu í dreifbýli hér á landi.“ Meiraen 100 rannsóknir kynntar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.