Morgunblaðið - 12.06.1997, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
k
FRÉTTIR
Morgunbiaðið/Ásdfs LÖMBIN eru enn svo Iítil að þau hverfa SVÍNIN eru fjörmikil þegar þeim er
URTAN Kobba fær koss frá afkvæmi sínu. næstum í grasið. hleypt út á daginn.
Fj ölskyldulífið blómstrar
í Húsdýragarðinum
KÓPURINN, sem urtan Kobba kæpti á
mánudag, dafnar mjög vel, að sögn Þor-
varðar Friðbjörnssonar, yfirdýrahirðis í
Húsdýragarðinum. „Hann gat farið að
synda þegar eftir nokkra klukkutima og
er kominn á spena.“ Sett hefur verið
skilrúm á milli nýfædda kópsins og urt-
unnar Særúnar sem er komin að því að
kæpa. Astæðan er sú að í fyrra stal önn-
ur urtan kóp þeirrar sem varð fyrri til
að kæpa.
„Þegar hún svo kæpti tveim dögum
seinna hafnaði hún sínu afkvæmi," segir
Þorvarður. „Þar af leiðandi þurftum við
að taka kópinn að okkur og ala hann
upp, sem getur verið mjög erfitt. Núna
ætlum við að halda þeim aðskildum þang-
að til báðir eru komnir á spena til að
fyrirbyggja að þetta komi fyrir aftur.“
Laumufarþegi um borð
Lífið leikur við fleiri fjölskyldur í Hús-
dýragarðinum. Minkalæðan Snúlla og
högninn Snjólfur eignuðust fimm hvolpa
í byrjun maí og hryssan Hilda kastar um
næstu mánaðamót. „Við erum einnig með
lánshryssuna Glóu, sem er sumargestur
I\já okkur,“ segir Þorvarður. „Hún tók
með sér laumufarþega, folald sem hún
kastaði í maí, og verður hjá okkur þang-
að til Hilda kastar.“
Hreindýratarfurínn Draupnir ber höf-
uðið hátt þessa dagana. Hann hefur líka
ástæðu til; eignaðist kálfa með tveim kúm
í maí. Simlumar Jóhanna, Snotra og
Guðrún em með honum í girðingu og
einnig veturgamall tarfur sem nefnist
Ófeigur.
Stundum hoppað á gesti
Gyltan Gjóla og gölturinn Darri flatmaga
fram eftir degi innanhúss, enda eru þau
viðkvæm fyrir sólarljósinu. Þau geta líka
leyft sér að vera löt eftir að Gjóla gaut
þrettán grísum í maíbyrjun. „Þau fara
út einu sinni á dag og þá er mikið fjör
í þeim,“ segir Þorvarður. „Þá róta þau
og grafa.“
Huðnurnar Rák, Skálm, Sunna og Fiða
áttu allar kið fyrr í vor með hafrinum
Kjarna. „Heimilislífið gengur mjög vel,“
segir Þorvarður. „Við reynum að setja
þau út á morgnana og haJfa þau úti á
stykkjum allan daginn. Ýtt hefur verið
undir fjölbreytileika með því að setja
greinar og tijáboli inn til þeirra. Stundum
kemur Ieikur í kiðin og þau hoppa á gesti,
en það er ósköp saklaust og engin illska
sem býr að baki.“
Besta vorið í sauðburði
Mest er af sauðfé í garðinum. Helstu tíð-
indin á þeim bæ eru að gimbrin Botna
átti tvo svarta hrúta fyrir viku. Annars
áttu allar gimbrarnar lömb í vor nema
Þruma, sem var geld. „Burður hefur
gengið vel og ekkert komið upp á,“ segir
Þorvarður. „Þetta er besta vorið að því
leyti frá því ég byijaði að vinna héma.
Við höfum ekkert misst og ekkert hefur
veikst heldur." Hann bætir við eftir
augnabliks umhugsun: „Sjö, níu, þrettán."
Hvað kýrnar varðar er fátt fréttnæmt;
enginn burður í nánd. Kýmar nefnast
Gráskinna, Una og Orka. Nautið er koll-
ótt og nefnist Guttormur. „Una er nyólk-
uð á hveijum degi,“ segir Þorvarður.
„Bæði starfsmenn garðsins og skepnur
njóta góðs af. Kálfamir ganga hins vegar
undir Gráskinnu.“
Dýrin óhrædd við mannfólkið
Einnig era í Húsdýragarðinum ýmis smá-
dýr eins og kanínur, naggrisir, hænur,
kalkúnar og dúfur. Hjá dúfunum er varp-
ið í fullum gangi um þessar mundir. Pek-
ingendur, grágæsir og aligæsir em einn-
ig meðal íbúa Húsdýragarðsins og spíg-
spora aligæsirnar með níu unga í hala-
rófu.
Starfsmenn Fjölskyldu- og húsdýra-
garðsins em 18 til 20 yfir vetrartímann
og svo bætast 50 við yfir sumartimann.
Þorvarður segir að dýmnum lyndi ágæt-
lega við mannskepnuna: „Þeim kemur vel
saman. Það er helst að taugaveiklun geri
vart við sig hjá dýranum á vorin þegar
sól er hátt á lofti og mikið húllumhæ og
háreysti í krökkum og öðmm gestum.
En það jafnar sig er líður á sumarið.“
KÁLFURINN fylgir í humátt á eftir móður sinni. HRYSSAN Glóa með folaldi sem hún kastaði í maí.
I
t
>
s
t
I
l
i
t
t
T!L HWlriC'
Ver&ur í>eintyfir Unjinu
föstuj^inn ‘fZ.júník.L
03 við í Tininju geruty okhur vonir utuf ctÖ h«(i
hennnr netvfi UiÖ Esjutinjot fausteftir hjtfejiÖ.
Þeir setvr koHf<*st í snertinau ViÍ fyrirhovrií
(osnet úr frúsmii jmivistinni 03 fá n&setur
í sMuríkinu Ifinsú.
Lr ferÍ<nhu3ur í f*érf
i^inimgim
FÉLAG UM BÆTT MANNlFf
A((<nr núnnri upf>(jnnanr ísí*tn SZS^Sé
1
Hafbeitarstöðin í Hraunsfirði
Hvurslax ehf. tek-
ur við rekstrinum
REKSTRI hafbeitarstöðvarinnar í
Hraunsfirði á Snæfellsnesi verður
haldið áfram af félaginu Hvurslax
ehf. sem leogir hana af frá Lands-
banka íslands sem eignaðist hana
eftir gjaldþrot Silfurlax hf. Rekstur
stöðvarinnar verður þó mun um-
fangsminni því áætlað er að sleppa
aðeins 400 þúsund laxaseiðum árlega
í stað þriggja milljóna seiða.
Landsbankinn er eigandi göngu-
físksins sem nú er í sjónum frá stöð-
inni og eru eigendur Hvurslax ehf.
verktakar hjá bankanum við að taka
á móti þeim fiski í sumar.
Samkvæmt upplýsingum Ingimars
Jóhannssonar hjá landbúnaðarráðu-
neytinu ætla eigendur Hvurslax ehf.
að láta göngufiskinn ganga sjálfvilj-
ugan í gildru en ekki taka hann við
árósinn eins og gert hefur verið.
Sama aðferð er t.d. notuð í hafbeitar-
stöðvunum í Kollafirði og í Lárósi.
„Þetta á að reyna seinna í sumar
og þá verður þessi gildra sett upp,
en hún er til og upphaflega ætlaði
Silfurlax að nýta hana. Þeir fóru síð-
an út í það mikið magn að það var
alveg séð að hún myndi aldrei anna
því,“ sagði Ingimar.
Óánægja hefur verið meðal veiði-
rétthafa og landeigenda við innan-
verðan Breiðafjörð og Hvammsfjörð
með rekstur hafbeitarstöðvarinnar,
en magn af náttúrulegum laxi sem
veiðst hefur í stöðinni hefur farið
vaxandi ár frá ári. Að sögn Ingimars
ætti breytingin á rekstrinum að verða
til þess að koma til móts við sjónar-
mið hagsmunaaðila eins og hægt er.
Leitgerðað 1
öldruðum •
sjófaranda
.
TALSVERÐ leit var gerð í fyrn-
nótt að tæplega hálfáttræðum
manni sem var á báti á Breiðafirði.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kvödd á vettvang, en maðurinn gS
fannst nokkrum mínútum eftir að
hún fór á loft. —
Báturinn fannst strandaður á \
milli eyja og hafði fjarað undan
honum. Ekkert amaði að manninum
og engar skemmdir urðu á bátnum.
Maðurinn hafði siglt á lítilli op-
inni trétriilu frá Stykkishólmi kvöld-
ið áður og hugðist snúa aftur
skömmu eftir miðnætti, en skyggni
var gott á þessum slóðum og veður
ágætt. Hann kom hins vegar ekki f|
til baka á tilsettum tíma og var
haft samband við Landhelgisgæsl-
una eftir að eftirgrennslan hafði "
staðið yfir í nokkrar stundir.