Morgunblaðið - 12.06.1997, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Alfreð Þorsteinssyni
borgarfulltrúa svarað
VEGNA anna við
þinglokin gafst mér
ekki tími til þess að
svara Alfreð Þor-
steinssyni borgarfull-
trúa strax þegar hann
sendi mér tóninn á síð-
um Morgunblaðsins.
Tilefnið var grein sem
ég skrifaði 30. apríl sl.
þar sem ég velti því
fyrir mér hvort
Reykjavíkurborg væri
að bregðast skyldum
sínum sem höfuðborg,
m.a. með kröfugerð á
hendur Landsvirlq'un.
Þeirri spumingu svar-
aði borgarfulltrúinn
ekki. Valdi þess í stað þá leið að
fara með staðlausa stafí og gera
mig að sérstökum andstæðingi
Nesjavallavirkjunar. Borgarfulltrú-
inn telur mig fara með rangt mál
en nefnir samt engin dæmi þess
og leiðréttir ekkert. Lengst gengur
þessi borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins þegar hann segir höfuð-
borgina greiða „landsbyggðar-
skatt“ með því að borgin fái ekki
arð af „eign“ sinni í Landsvirkjun.
Framganga borgarfulltrúans á rit-
vellinum markast auðvitað öll af
því að samviskan er slæm. Hann
veit að í Landsvirkjun
hefur skapast mikil
eign í skjóli einokunar
við orkuvinnslu og raf-
orkusölu. Eignarhlutar
í Landsvirkjun eru not-
aðir sem grundvöllur
til arðgreiðslu en eru
að litlu leyti orðnir til
vegna eigendafram-
laga; hann veit að full-
trúar borgarinnar not-
uðu einstaka stöðu
sína í samningum um
breytt skipulag Lands-
virkjunar og um kaup
Landsvirkjunar á orku
frá Nesjavallavirkjun
til hagsbóta fyrir borg-
ina; hann veit að borgarsjóður á
mikið undir því að fá arð af orku-
sölu Landsvirkjunar og geta skatt-
lagt orkufyrirtæki borgarinnar í
þágu borgarsjóðs; hann veit að sér-
staða borgarinnar og yfirburðir eru
miklir á öllum sviðum og því telur
hann sig geta talað af háum stalli
til okkar þingmanna. Það eykur
ekki veg núverandi stjómenda
höfuðborgarinnar. Það styrkir ekki
Framsóknarflokkinn.
Litlir kjördæmaþingmenn
Borgarfulltrúinn kvartar undan
því að þingmenn Reykjavíkur gæti
ekki hagsmuna borgarinnar heldur
landsins alls. Það kann vel að vera.
Ég verð þess ekki var að hagsmun-
ir borgarinnar hafi verið fyrir borð
bornir, öðru nær. Dæmi um það
mætti mörg nefna en ég læt eitt
nægja. Þegar samið var um yfir-
færslu grunnskólans var samið um
sérstaka meðgjöf til stærri sveitar-
félaga vegna framkvæmda við ein-
setningu grunnskólans. Öllum var
ljóst sem að því máli komu að
þetta var sérstök dúsa úr ríkissjóði
til borgarinnar. Þessi framlög
skapa borginni núna möguleika til
þess að hraða uppbyggingu grunn-
skólanna. Ég tel það ekki sann-
gjarnt að gera lítið úr þætti þing-
manna Reykjavíkur vegna þeirrar
aðgerðar og raunar ekki heldur
félagsmálaráðherra sem um þessar
mundir er sérstakur áhugamaður
um málefni borgarinnar.
Á móti Nesjavallavirkjun
Borgarfulltrúinn segir undirrit-
aðan hafa verið á móti því í stjóm
Landsvirkjunar að Reykvíkingar
virlq'uðu á Nesjavöllum. Það er
rangt. Andstaða mín snerist um
samninginn og orkuverðið, sem
mun enn auka sérstöðu borgarinnar
á sviði orkumála í skjóli Landsvirkj-
unar. Hitaveita Reykjavíkur mun
selja orku frá Nesjavöllum á hag-
stæðu verði til Landsvirkjunar og
tekur enga áhættu sem seljandi
gagnvart sveifiukenndum markaði
stóriðjunnar. Hitaveitan og Raf-
magnsveita Reykjavíkur hafa því
allt á þurru og selja orku inn á
hagkvæmasta dreifíkerfi landsins
sem nær einungis til mesta þéttbýl-
Grein borgarfulltrúans
styrkir þá kenningu,
segir Sturla Böðvars-
son, að valdhafar höf-
uðborgar ógni hagsmun-
um landsbyggðarinnar.
isins og selur raforku með sérstöku
álagi sem rennur í borgarsjóð en
er ekki hluti af kostnaðarverði ork-
unnar. I skjóli hins lága orkuverðs
er borgarsjóðsálagið sett og það
greiða allir húeigendur í borginni
sem nýta raforku og jarðvarma.
Með því er t.d. ríkissjóður sem á
og rekur fy'ölda húseigna í höfuð-
borginni skattlagður sérstaklega
Sturla
Böðvarsson
með borgarsjóðsálaginu sem orku-
fyrirtækin og þar með notendur eru
látin greiða í borgarsjóð. Þannig er
sérstaða borgarinnar á þessu sviði.
Tvískinnungur vegna
Andakílsárvirkjunar
Borgarfulltrúinn heldur áfram
skáldverki sínu um afstöðu mína
til Nesjavallavirkjunar og tengir
rekstri Andakílsárvirkjunar og raf-
orkusölu til Akraness. Undrast
borgarfulltrúinn afstöðu mína til
Nesjavallasamningsins og bendir á
Andakílsárvirkjun til samanburð-
ar. Langt er nú seilst í vandræðum
borgarfulltrúans. í þessum kafla
jafnar borgarfulltrúinn því saman
að Akranessveita eigi og reki
Andakílsárvirkjun og að Hitaveita
Reykjavíkur fái að gera vildar-
samning um orkusölu til Lands-
virkjunar. Allir sjá að um ósam-
bærilega hluti er að ræða. Akra-
nessveita kaupir orku til dreifingar
af Landsvirkjun á fullu .verði svo
sem aðrar dreifiveitur í landinu,
en nýtur ekki kjara á borð við það
sem Reykjavíkurveiturnar munu
njóta vegna orkusölu til Lands-
virkjunar frá Nesjavallavirkjun.
Ég efast um að hagnaður eigenda
Andakílsárvirkjunar geti nokkru
sinni orðið líkur því sem borgin
hagnast á samningunum um eig-
endaframlög og arðgreiðslur frá
Landsvirkjun. Forsendur þess arðs
eru „froðufærslur" sem verða að
eign í bókhaldi Landsvirkjunar og
þar með grundvöllur álitlegrar arð-
greiðslu þegar fram líða stundir.
Nema arðgreiðslumar verði tak-
markaðar og víki fyrir lækkun
orkuverðsins til almennings, eins
og var lofað þegar lögunum um
Landsvirkjun var breytt.
„Það er góður kraftur í honurn og hann er snöggur. Það er þœgilegt að sitja
undir stýri og auðvelt að ná í allt - það hefur greinilega verið hugsað um það
hvemig hlutunum erfyrir komið. Svo er gott útsýni úr honum.
Mérfinnst Balenoinn bara skemmtilegur bíll oggott að keyr’annl“
$
SUZUKI
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSAhf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.
Fáanlegur m. sjálfsk.
Fáanlegur m. sjálfsk.
Lýsing nýs eiganda á þvi af hverju honum
finnst gott að keyra Baleno fólksbíl
Fáanlegur m. ABS og
sjálfskiptingu.