Morgunblaðið - 12.06.1997, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Ný staða kynbótamatsins
Nýir toppar
í öllum flokk-
um stóðhesta
HAGUR Kraflars frá Miðsitju í
kynbótamati Bændasamtak-
anna hefur heldur betur vænk-
ast eftir dómana í vor og er þá
ekki tekin með nýafstaðin hér-
aðssýning kynbótahrossa á
Gaddstaðaflötum. Kraflar
stendur efstur í flokki stóðhesta
með 15 dæmd afkvæmi eða
færri og er með 134 stig og 12
dæmd afkvæmi. Næstur kemur
Hamur frá Þóroddsstöðum með
133 stig, Hljómur frá Brún er
þriðji með 132 stig, bróðir hans
Óður ásamt Páfa frá Kirkjubæ
eru næstir með 131 stig en eng-
inn þessara hesta eiga dæmd
afkvæmi utan Páfi sem er með
fímm afkvæmi. Kraflar er und-
an Hervari og Kröflu frá Sauð-
árkróki.
Þá hressist staða Topps frá
Eyjólfsstöðum einnig, er efstur
stóðhesta með 15 til 49 dæmd
afkvæmi, með 132 stig og 17
dæmd afkvæmi. Baldur frá
Bakka kemur þar næstur með
131 stig og 25 dæmd afkvæmi.
Næstir og jafnir með 124 stig
eru Piltur frá Sperðli (45 af-
kvæmi), Glaður frá Sauðárkróki
(38 afkvæmi) og Atli frá Syðra-
Skörðugili (16 afkvæmi).
Eins við var búist er Orri frá
Þúfu kominn á toppinn í flokki
stóðhesta með fleiri en 50 af-
kvæmi. Er hann með 140 stig
og 53 dæmd afkvæmi og lan-
gefstur. Þokki frá Garði er kom-
inn í annað sæti með 133
stig/74 afkv. Faðir hans Hrafn
frá Holtsmúla er þriðji með
131/401. Stígandi frá Sauðár-
króki er kominn í þriðja sætið
með 129/52 og Ijóst að hann
mun tróna á toppnum í af-
kvæmasýningu á fjórðungsmót-
inu á Kaldármelum.
Næstir koma Gassi frá
Vorsabæ, 129/64, Angi frá
Laugarvatni, 129/64, Kjarval
frá Sauðárkróki, 129/121, Stíg-
ur frá Kjartansstöðum, 128/84,
Snældu-Blesi frá Árgerði,
127/52 og Kolfinnur frá Kjam-
holtum sem virðist á niðurleið,
er með 126/57. Sú breyting
varð á að ein ný hryssa komst
upp á meðal Hólahryssanna sem
hafa einokað efstu sætin undan-
farið. Er þar á ferðinni Gnótt
frá Dallandi sem sýnd var í
Reykjavík fyrir skömmu. Er hún
í öðru sæti með 135 stig á eftir
Þrennu frá Hólum sem er með
136 stig. Næstar koma svo Þóra
með 135, Þíða með 133, Þrá
með 133 og Þröm með 132 en
allar þessar hryssur era frá
Hólum og dætur og dótturdætur
Þráar.
Þessir útreikningar vora
gerðir vegna fjórðungsmótsins
en næst verður ný staða kyn-
bótamatsins gefin út í haust að
afloknum sýningum sumarsins.
Valdimar Kristinsson
FARÐU AÐ
H 3 I M A N
ÓDÝRT FLUG í SUMAR
Fyrir ISIC/G025 Fyrir aðra
London 22.100 24.900
París 22.100 24.900
Berlín 22.100 24.900
Köln 22.100 24.900
Frankfurt 22.100 24.900
Munchen 22.100 24.900
Innifalið: Flugfar báðar leiðir og allur
f lugvallaskattur.
Farðu að heiman - en komdu við
á Ferðaskrifstofu stúdenta.
PAE DUGAR EKKIAD SITJA HEIMA OG LESAI
Em
CC
o
«
Q
2
ö
o
S5
2
«
O
cu
81111:5615656 FAX: 551 9113 heimasIða-. httpJ/www.centrum.is/studtravely
- kjarni málsins!
HESTAR
AÐ LOKINNI úrtökukeppni fyrir síðasta HM stilltu liðsmenn upp fyrir myndatöku og er möguleiki
að tveir þeirra hesta sem eru á þessari mynd verði í liðinu ásamt knöpum. Lengst til hægri er
Vignir Siggeirsson á Þyrli frá Vatnsleysu en Vignir mun freista þess að koma sér og Þyrli í liðið.
Einnig er mögulegt að Sigurbjörn mæti aftur með Odd frá Blönduósi í úrtökuna. Aðrir knapar á
myndinni munu vera með aðra hesta komist þeir á annað borð í liðið.
Keppt um sæti í landsliðinu
Spennan magnast
ÓÐUM styttist í úrtökukeppnina
fyrir heimsmeistaramótið í Noregi
og virðast línur aðeins byrjaðar að
skýrast hvaða hestar og knapar og
munu berjast um þau sjö sæti sem
í boði eru. Ljóst er að mikill áhugi
er fyrir úrtökunni og þar verður
ekkert gefíð eftir þegar á hólminn
er komið. Engin mót hafa boðið upp
á eins magnþrungna spennu eins
og úrtökumótin því möguleikar
manna á sæti I liðinu liggja ekki
alltaf í augum uppi og oftsinnis
gerst að sá sem talinn var eiga litla
möguleika í hálfnaðri keppni hafi
þegar yfir lauk verið inni í liðinu.
Valdimar Kristinsson kynnti sér
hvaða knapar ganga með landliðs-
sæti í maganum og hvaða hestar
era í sigtinu hjá þeim í þessar
keppni þar sem spurt er að leiksiok-
um.
Við hæfi er að byija á þeim sem
kepptu á síðasta HM sem fram fór
í Sviss og tryggðu sér keppnisrétt
á komandi móti með því að vinna
titla. Hér er átt við þá Sigurbjöm
Bárðarson og Sigurður V. Matthías-
son sem geta mætt með þá hesta
sem þeir unnu titlana á. Ljóst er
að Sigurbjöm sem vann gæðinga-
skeiðið á Höfða frá Húsavík mun
ekki nýta sér rétt sinn enda lítið
spennandi að keppa bara í gæðinga-
skeiði á hesti búinn er að gera allt
sem hægt er að gera.
Sigurbjöm kvað ekki afráðið
hvaða hross hann mætti með til
leiks, þar kæmu nokkur til greina
og nefndi hann til sögunnar Gordon
frá Litlu-Ásgeirsá, fimmgangshest
sem hefur fleytt Sigurbimi nokkuð
hátt á ýmsum mótum og oft hærra
en reiknað hafði verið með. Einnig
nefndi hann fjórgangshestana Odd
frá Blönduósi sem reyndar hefur
ekkert sést í keppni á þessu ári og
svo Djákna frá Litla Dunhaga.
Staða Sigurbjöms hefur oft verið
sterkari en hún virðist vera í dag
en enginn skyldi vanmeta þennan
þrautreynda keppnismann sem
kann öðram fremur að nýta sér
allar smugur sem gefast til árang-
urs. Og Siguijbörn er oft hvað
sterkastur þegar sem flest spjótin
standa á honum.
Sigurður skoðar hug sinn
með Huginn
Mun líklegra er að Sigurður V.
Matthíasson muni nýta sér rétt sinn
til að mæta með Huginn frá Kjart-
ansstöðum á HM. Hann hefur
keppnisrétt í tölti, fimmgangi og
skeiði þar sem hann varð stigahæst-
ur keppenda og sigraði auk þess í
fimmgangi. Sagðist Sigurður !ík-
lega fara utan um helgina og keppa
á Huginn. Hann sagði alveg eins
koma til greina að hann tæki þátt
í úrtökunni og myndi að henni lok-
inni taka ákvörðun ef hann hefði
eitthvert val. Hann sagðist stefna
ákveðið með stóðhestinn Glað frá
Hólabaki sem efstur stóð í Gunnars-
holti á dögunum í kynbótasýningu
mótsins.
Logí á lygnum sjó
Af öðram kandídötum fer vel á
að nefna næstann til sögunnar Loga
Laxdal sem hefur nokkuð vænlega
stöðu í baráttunni um skeiðhests-
sætið á vekringnum Sprengi-Hvelli
frá Efstadal, er með besta tíma
ársins í 250 metar skeiði og hefur
átta spretti. í úrtökunni til að fara
einn sprett undir 23 sek. Baráttan
um fimmgangssætið er aftur hulin
dularmóðu og ljóst að margir telja
sig eiga þar erindi upp á pallborðið.
í raun má segja að sætin fyrir fimm-
gangshest í úrtökunni geti orðið tvö
því fimmgangshestar eiga góða
möguleika að ná stigasöfnunarsæt-
inu þar sem reiknuð eru stig úr
þremur greinum.
Margir kallaðir...
Sveinn Jónsson mætir með Bassa
frá Stokkseyri en þeir vöktu mikla
athygli er þeir sigruðu í fimmgangi
hjá Sörla á dögunum og svo
A-flokkinn skömmu seinna. Daníel
Jónsson mætir með Þrist frá
Syðra-Fjalli en þeir sigurðu í fimm-
gangi hjá Fáki nýlega og Trausti
Þór Guðmundsson hyggst koma
með Funa frá Hvítárholti sem lítið
hefur sést í keppni það sem af er
ári og sama giidir um Prins frá
Hörgshóli sem Sigurður Sig-
urðarson mætir með.
Einar Öder Magnússon ætlar að
mæta með hryssuna Evu frá Búðar-
dal en þau sigruðu í fimmgangi hjá
Sleipni. Einar hyggst ainnig bjóða
fram Háfeta frá Hátúni en þeir
hafa þrisvar orðið norðurlanda-
meistarar. Ef til þess kæmi að hann
verður valinn kemur hann inn sem
liðstjóravalinn. Þá hefur Einar tekið
að sér að ríða Þyti frá Hóli ef hann
verður valinn sem kynbótahestur
fyrir íslands hönd. Einnig er stóð-
hesturinn Segull frá Skarði inn í
myndinni að sögn Einars en hann
er með dóm upp á 8,24.
Hljómur boðinn
á 12 milljónir
Hulda Gústafsdóttir mun mæta
með Hljóm frá Brún í úrtökuna en
auk þess verður haft í bakhöndina
að tefla honum einnig fram í kyn-
bótasýningunni. Hann sigraði sem
kunnugt er í A-flokki í gæðinga-
keppni Fáks nýlega og er til alls
líklegur í úrtökunni. Hestur í öðru
sæti gæðingakeppninnar á eftir
Hljómi, Reykur frá Hoftúni fer
hvergi eins og búist hafði verið við
en mun þess í stað sinna kalli nátt-
úrunnar í Borgfirskum högum.
Knapi hans Sveinn Ragnarsson er
hinsvegar að kanna möguleika á
að mæta með annan hest. Þess má
geta að Hljómur hefur verið boðinn
til forkaups eins og reglur kveða á
um hátt metna hesta og er verðið
aðeins krónur tólf milljónir. Fyrr-
verandi liðsstjóri og landsliðsmaður
Sigurður Marínusson verður tvö
hross í úrtöku, Hátíð frá Hóii í
fímmgang og skeið og Spaða frá
Gunnarsholti í tölt og fjórgang.
Vignir Siggeirsson sem var við
þröskuldinn á landsliðinu á Þyrli frá
Vatnsleysu fyrir tveimur áram
hyggst reyna á nýjan leik og hefur
farið utan til að keppa á hestinum
og mun keppa nú um helgina á
stóru móti í Áegidienberg þar sem
helstu kandídatar Þýskalands munu
mæta. Ætti staða Vignis og Þyrils
að skýrast all nokkuð á því móti.
Ljóst er að allir þeir íslendingar sem
eru með hesta erlendis og hyggjast
beijast um þessi lausu liðstjórasæti
verða að standa í þýsku keppendun-
um og helst að sigra þá minnst
einnu sinni til að hljóta náð fyrir
augum einvaldsins.
Nestorinn með að veiyu
Reynir Aðalsteinsson hefur þegar
skráð sig til leiks og má segja um
hann eins og Sigurbjöm að hafi
hann brúklegan hest í höndunum
skyldi enginn afskrifa hann að
óreyndu þótt ekki sé hann að snigl-
ast mikið á mótum með hesta í
keppni. Þá hafa akureyringarnir
Baldvin Ari Guðlaugsson og Hös-
kuldur Jónsson skráð sig til leiks
og mætir Höskuldur með hinn
kunna töltara Þyt frá Krossum og
má ætla að hann verði framarlega
í baráttu fjórgangshestana. Hér
hefur verið stiklað á nöfnum nokk-
urra knapa sem hyggjast taka þátt
í slagnum um hin eftirsóttu sæti í
landsliðinu og búast má við að þeir
séu fleiri sem munu koma við sögu.
Ekki er að efa að spennan verður
mikil þegar í keppnina verður kom-
ið. Skráning stendur enn yfir en
keppnin hefst miðvikudaginn 18.
júní og lýkur fyrri umferð daginn
eftir. Frí verður föstudaginn en
úrtökunni lýkur sunnudaginn 22.
júní og liggur þá ljóst fyrir hvaða
fímm knapar og hestar hafa tryggt
sér sæti. Sigurður einsvaldur hefur
hinsvegar frest fram í miðjan júlí
til að tilkynna hveijir tveir til við-
bótar verði í liðinu. Ekki er ólíklegt
að Sigurður hvetji nafna sinn
Matthíasson til að mæta með Hug-
inn tii leiks og verða þá átta Islend-
ingar meðal keppenda á mótinu ef
hlutirnir fara eithvað á þessa leið.
Valdimar Kristinsson