Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 56
•)6 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Leigubílar og
Mexíkómatur
„Þeir hjá Mogganum höfðu orð á því að það
sem boðið var upp á í tveimur síðustu þáttum
væri nokkuð þunnt í maga,“ segir Kristín
Gestsdóttir sem bætir nú um betur og býður
lesendum sínum mexikóskan rétt.
VIÐ hjónin skruppum í viku
námsferð til Bandaríkjanna ásamt
fleirum. Tími var naumur og margt
að sjá en við höfðum einkum áhuga
á að skoða málverkasöfn, en öll
söfn loka kl. 5. Við vorum upptekin
í námi alla morgna til kl. 1 og dvöld-
umst í Fairfax sem er dijúgan spöl
fyrir utan Washingtonborg. Vega-
lengdir eru mjög langar þar vestra
og leigubílar dýrir. Til að spara tíma
lögðum við í þann
kostnað að taka
leigubíl til Was-
hington til að skoða
Picassosýningu í
Þjóðlistasafninu
sem þar var I
gangi. Þessi
leigubílaferð
varð nokkuð
söguleg og
ekki til að flýta
för okkar. Það
sprakk á fyrsta
bílnum og var
ekið á sprungnu
dekkinu á verk-
stæði til að fá
nýtt dekk, ég býð
ekki í dekkið á
eftir. Við áttum
dýrðarstund á safn-
inu og myndir biáa tíma-
bils Picassos hrifu okkur mest.
Leigubílstjórinn hafði lofað að
sækja okkur og aka okkur til baka
en hann lét ekki sjá sig og því var
veifað í bíl á götunni. Gamall svert-
ingi ók bílnum sem virtist lítið
yngri en hann sjálfur og nú hófst
tveggja tíma söguleg ferð. Bílstjór-
inn rataði greinilega ekki þegar
út úr borginni kom. Hann fór þrisv-
ar á bensínstöð til að taka bensín,
fá upplýsingar og fara á klósett
og í síðasta skiptið fékk hann lóðs
með sér til að stjóma ferðinni.
Lóðsinn þóttist fara létt með það,
hann ók með okkur á Iíoliday Inn
hótel í Fairfax en það var bara
ekki rétt hótel. Við fengum mann
á hótelinu til að hringja í okkar
hótel, en þar kannaðist enginn við
okkar nöfn, fyrr en þeir áttuðu sig
á að við værum Isiendingar. Við
yorum nefnilega tékkuð inn sem
Islendingar ásamt hinum hópmeð-
limum en ekki á nafn eins og að
sjálfsögðu er siðvenja á hótelum.
Við létum bílinn fara, vorum búin
að fá nóg og tókum enn einn bílinn
á hótelið okkar. Þessi ferð af safn-
inu tók okkur 2 tíma og alls kost-
uðu þessir þrír leigubílar okkur 96
dollara. Hefðum við tekið lest hefði
það kostað aðeins smápeninga og
tekið mun skemmri tíma. Við vor-
um orðin ansi pirmð eftir ökuferð-
ina heim. Til að létta skapið fómm
við á mexíkóskan veitingastað og
hresstum okkur á Tequila-sunrise,
sem er blanda af tequila, appelsín-
usafa og grandinesafa, en tequila
er snafs þeirra Mexíkana. Á eftir
borðuðum við tortillu með græn-
meti og osti. Hér á íslandi fást
alls konar innfluttar tortillur, sem
eru örþunnar maís- eða hveitikök-
ur, harðar eða mjúkar. Við spömm
mikið við að búa þær tit sjálf, en
hráefni í þær er ódýrt. Líka em
til alls konar fyllingar í tortillurn-
ar. Ég bjó þó til mínar hveititortill-
ur og grænmetisfyllingu sjálf.
Mjúkar hveititortillur.
_________lOOgheilhveiti________
lðOghveiti
'h tsk. salt
2 msk. matarolía
1 'h dl vel heitt vatn úr krananum
1. Setjið
allt í
hrærivél-
arskál og
hnoðið þar
til deigið er
jafnt og
sprangulaust.
Skiptið í 7-8
hluta. Fleljið ör-
þunnt út, skerið
undan diski um 18-20 sm
í þvermál.
2. Bakið tortillumar á þurri
pönnukökupönnu í um 2 mínútur á
hvorri hlið. Þær eiga að vera mjög
ljósar. Setjið jafnóðum í piastpoka
svo að þær haldist mjúkar.
Soðin grænmetissósa.
3 msk. matarolía
2 frekar stórir laukar
2 meðalstórar grænar papríkur
1 heildós niðursoðnir tómatar
2 litlir hvítlauksgeirar
4-5 sm biti chilepipar (eða meira)
'Msk. malað kúmen (má sleppa)
1 tsk. korianderduft eða meira ferskt
koriander
salt milli fíngurgómanna
1 msk. tómatmauk (puré)
1. Afhýðið lauk og skerið frekar
smátt, takið stilk og steina úr papr-
íkum og skerið frekar smátt. Hellið
safanum af tómötunum en skerið
þá sjálfa í litla bita. Takið steina og
æðar innan úr chilepipamum.
2. Setjið matarolíu í pott og setjið
lauk og papríku í hana og sjóðið í 5
mínútur án þess að brúnist. Setjið þá
tómata og chilipipar út í, afhýðið hvít-
lauksgeirana og setjið þá heila út í,
sjóðið þetta áfram við hægan hita í
10 mínútur. Takið þá chilipiparinn og
hvítlauksgeirana úr og fleygið. Bætið
í kúmeni, korianderdufti, salti og tóm-
atmauki. Sjóðið í 1 -2 mínútur.
Rétturinn borinn
fram.
7-8 tortiilur
grænmetissósan
200 g Mozarellaostur
50 g rifínn Parmiganostur (eða
Parmesan)
2 meðalstórar gulrætur
2 avókadoperur
1. Rífíð Mozarellaostinn og skiptið
jafnt á helming tortillunnar, setjið
grænmetismaukið ofan á og síðan
rifinn Parmiganoost. Brettið hinn
helminginn yfír. Hitið í bakaraofni
eða örbylgjuofni.
2. Skafíð eða afhýðið gulrætur (ís-
lenskar þarf bara að þvo). Rífíð gróft
eða skerið í stafi. Takið stein og
hýði af avokado, skerið í rif. Leggið
meðfram tortillunni.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Ónæði vegna
hafnarfram-
kvæmda í
Kópavogi
HRINGT var í Velvakanda
og honum tjáð eftirfar-
andi: „Þessa dagana er
verið að vinna við hafnar-
framkvæmdir í Kópavogi,
sem er hið besta mál. En
það er verið að vinna við
þessar hafnarframkvæmd-
ir allan sólarhringinn og
af þessu getur verið ónæði.
Ég bý reyndar í Amarnesi
en hljóðið berst yfir voginn
þegar veður er stillt og
vaknar maður upp við það
á næturnar. Og það er nú
einu sinni þannig að ef
maður er einu sinni vakn-
aður upp getur reynst erf-
itt að sofna aftur. Mætti
ekki taka tillit til fólks sem
býr í nágrenninu og stilla
hávaðanum í hóf á nætum-
ar?
Svefnlaus á Arnamesi.
Góð þjónusta
hjá Umferðar-
ráði
ANNA hringdi og vildi
hún lýsa yfir ánægju sinni
með þá þjónustu sem
Umferðarráð veitir fólki
sem er að leita sér að
barnabílastólum. Það er
hægt að hringja í
Umferðarráð og þar eru
fólki gefnar allar
upplýsingar um hvaða
stólar séu bestir, t.d miðað
við þyngd, og hvar sé
hægt að kaupa þá.
Lúxusdvöl
fyrir aldraða?
KONA hringdi og vildi
hún lýsa yfir hneykslan
sinni á auglýsingu um
sumardvöl fyrir aldraða á
Löngumýri. Þetta er 10
daga ferð sem kostar
30.000 kr. og er ekkert
innifalið í þessu verði
nema dvölin og maturinn.
Fólk þarf að kosta sjálft
ferðir norður, hafa með
sér sængurfatnað o.fl.
Henni finnst okurverð á
þessari þjónustu og getur
ekki séð að aidrað fólk
sem lifir á ellilífeyri geti
leyft sér þessa lúxusferð.
Tapað/fundið
Úlpa í
óskilum
VIÐ sundlaug Vesturbæj-
ar hefur í um vikutíma leg-
ið í óskilum stúlknaúlpa,
bleik með grænu ívafí, á
aldur 7-9 ára. Úlpan er
núna á Einimel, sími
5524977.
Fjallahjól
í óskilum
FJALLAHJÓL, Pacifíc
26“, fannst í Breiðholti
fyrir mánuði síðan. Uppl.
í síma 557-6791.
Kvenhjól
tapaðist
Rautt gamalt kvenhjól
tapaðist frá Dunhaga fyrir
nokkrum dögum. Þeir sem
hafa orðið varir við hjólið,
vinsamlega látið vita í
síma 551-7527.
(Símsvari)
Dýrahaid
Kettiingar
MJÖG fallegir kassavanir
kettlingar fást gefíns á
gott heimili. Upplýsingar í
síma 565-0641.
Kettlingar
fást gefins
FJÓRIR kettlingar leita
sér að góðum heimilum.
Uppl. í síma 551-8086.
SKAK
llmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
helgarmóti Taflfélags
Reykjavíkur sem fram fór
um síðustu helgi. Stefán
Kristjánsson (1.915) var
með hvítt, en Sigurður
Daði Sigfússon (2.210)
hafði svart og átti leik.
14. — Hxg5! (Ennþá öflug-
ra en 14. — Rh2 15. Khl!
— Rxf3 16. fxg3 — Rxd2
17. Bxd2 — hxg3 með
betra endatafli á svart) 15.
Dxg5 - Rxf2 16. Hxf2 -
Bxf2+ 17. Kfl - Dxg5
18. Rxg5 -
Bg3 (Svartur
hefur unnið
peð og stendur
til vinnings)
19. Rf3 - Hb8
20. b3 - c5
21. Hdl -
Ke7 22. Ke2 -
Be6 23. Kd2 -
g5 24. Hfl -
Hg8 og hvítur
gaf.
Jón Viktor
Gunnarsson
sigraði á mót-
inu með 5 ‘A v.
af 7 möguleg-
um. Lokaskák hans við
Matthías Kjeld fékk óvænt-
an endi. Jón Viktor stóð
höllum fæti, en Matthías
tók í hrók sem hann varð
að leika. Þar með hefði
hann tapað drottningunni
og gafst því umsvifalaust
upp. Öðru sætinu deildu
þeir Jón Garðar Viðarsson,
Einar Hjalti Jensson og
Björgvin Víglundsson með
5 v. 5.-7. Sigurður Daði
Sigfússon, Bergsteinn Ein-
arsson og Matthías Kjeld
4 'h v. Þátttakendur voru
26 talsins. _ Skákstjóri var
Ólafur H. Óiafsson.
Firmakeppnin. Teflt hjá
TR í kvöld kl. 20 í Faxa-
feni 12.
SVARTUR leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
ÉG bjó þetta til í kvöld-
skólanum.
HÚN erþvílík
kjaftakerling. Nú
skal ég segja þér
hvað hún var að
segja mér um hana
Siggu Magg ...
Víkveiji skrifar...
NÝLEGA tók Víkveiji eftir því
að hann hefði þurft sam-
kvæmt gamalli reglugerð að end-
urnýja ökuskírteini sitt. En þar sem
reglugerðarbreyting hefur átt sér
stað frá því er síðast var endurnýj-
að, er það sagt óþarft að endumýja
skírteinið, þar sem Vikveiji á enn
allmörg ár í sjötugt. Samkvæmt
nýju reglugerðinni eru ökuskírteini,
sem fallin eru úr gildi sem sagt í
gildi unz handhafi verður 70 ára,
þótt á því standi að það gildi til
aprílmánaðar 1997.
Hængur er þó á skírteininu.
Ætli menn að aka með það erlend-
is, verður að endurnýja skírteinið,
þar sem erlend lögregluyfirvöld
skilja ekki að á skírteininu standi
að það sé útrunnið en sé engu að
síður í gildi. Vilji íslenzkur ökumað-
ur því fá gilt skírteini erlendis, verð-
ur hann að endurnýja og það kostar
3.000 krónur plús myndatöku, því
að viðkomandi verður að koma með
nýjar myndir.
Nú má allt eins líta á þetta sem
gilt ökuskírteini og það er það sam-
kvæmt nýju reglugerðinni. Það gild-
ir unz handhafí verður 70 ára. Því
má líta svo á að í reitnum „Gildir
til“ sé villa samkvæmt nýju reglu-
gerðinni og því eru full rök fyrir
því að handhafar skírteinisins eigi
fullan rétt á að fá skírteininu breytt
án nokkurra fjárútláta. En lög-
reglustjóraembættið gefur það ekki
eftir, heimtar sinn 3.000 kall, nýjar
myndir o.s.frv. Þarna skýtur nokk-
uð skökku við.
xxx
AÐ ER rétt eins og lögreglu-
stjóraembætið hafi gert
samning við ljósmyndarafélagið eða
eitthvert slíkt fagfélag, að krefjast
ávallt nýrra mynda.
Fyrir nokkrum árum tók sonur
Víkveija bílpróf. Síðan liðu tvö ár
og hann þurfti að fá skírteini sitt
endurnýjað þar sem það var aðeins
gefið út til tveggja ára fyrir ungt
fólk. En við þá endurnýjun, sem
snerist um skírteini sem átti að
gilda til sjötugs, eða langt fram á
miðja næstu öld, kom ekki til mála
annað en viðkomandi léti taka af
sér nýja ljósmynd, hann kynni að
hafa breytzt svo mjög á þeim tveim-
ur árum sem hann hafði haft öku-
réttindi - og nýja skírteinið átti að
gilda til sjötugs?! Er einhver glóra
í þessu. Eftir hálfa öld verður ungi
maðurinn jafnólíkur sér á þessari
mynd og hinni, sem tekin var fyrir
tveimur árum.
Það er alls ekki hægt að rökræða
þetta við starfsfólk skrifstofu lög-
reglustjóra. Um leið og menn benda
því á hversu vitlaust þetta kerfí sé,
viðurkennir fólkið að engin glóra
sé í hugsun á bak við þetta end-
urnýjunarkerfi og það álasar dóms-
málaráðuneytinu fyrir að gefa út
heimskulegar reglugerðir. Það geti
ekkert við því gert þótt ráðuneytið
hugsi aldrei út í framkvæmd reglu-
gerðanna og geti þar af leiðandi
ekkert að því gert, þótt allt stang-
ist hvað á annars horn.