Morgunblaðið - 15.06.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 15.06.1997, Síða 2
2 B SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 MORGUNBL.AÐIÐ IDANSBYLGJUNNI bresku hafa komið upp margar stefnur og eru enn að skjóta upp kollinum, lifa skamma stund og hverfa síðan. Ein sú lífseigasta og vinsælasta í gegnum tíðina kallast triphop, hægfara hanastél sem rekur ættir sínar til bresku borgarinnar Bristol og dró reyndar nafn sitt af henni framan af. Brautryðjandi í þeirri tónlist er breska sveitin Massive Attack, sem sendi frá sér fyrstu skífumar þeirrar gerðar og naut fádæma hylli og virðingar fyrir; plötur Massive Attack eru iðulega taldar með þeim bestu og merkustu sem Massive Attack Blue Lines, sem út kom 1991, með helstu plötum áratugarins og þegar tónlistar- tímarit eru að velja bestu plötur áratugarins eða allra tíma, sem þau gera oft og tíðum, er Blue Lines yfirleitt á blaði og oftar en ekki nálægt toppinum eða á hon- um, líkt og til að mynda í dans- tímaritinu Mixmag á síðasta ári. Daddy G segir að ekki hafi þeim félögum fundist sem þeir væru með sígilda plötu í höndunum þeg- ar þeir hlustuðu á plötuna eftir á. „Við vorum mjög ánægðir með Blue Lines, en kannski vorum við ánægðastir með að vera búnir að vera. Eftir því sem tíminn hef- ur liðið hefur sú plata orðið mér kærari, ekki bara fyrir það að hún var það fyrsta sem við gerðum saman, heldur einnig vegna þess að Horace Andy vann hana með okkur og Shara Nelson og reynd- ar er þetta plata sem ég tek fram reglulega og hlusta á mér til skemmtunar.“ Eins og getið er er Massive Attack tríó, en meðal þess sem einkennt hefur sveitina er að ólík- ir tónlistarmenn hafa lagt henni lið á plötum og tónleikum, Daddy G getur um þau Horace Andy og Sarah Nelson sem komu við sögu henni hingað til lands, en Andy er meðal frumherja í jamaicareggíi. Auk þess starfi með Massive Attack ný söngkona, Sarah J, sem kemur með henni hingað til lands. Hann segir að hún komi mjög við sögu á plötunni nýju, aukinheldur sem hún syngi það sem þarf í eldri lögum á tónleikum. Reyndar verður obbinn af þeim verkum sem heyrast 1 Kaplakrikanum annað kvöld af íyiri plötum flokksins að sögn Daddy G en í mjög breyttum útsetningum, auk- inheldur sem íslenskir áheyrendur verða þeir fyrstu til að heyra sex lög af væntanlegri plötu sem þau hafi aeft inn á tónleikadagskrána fyrir íslandsförina. „Okkur finnst við einungis vera að leika nýtt efni, því gömlu lögin eru endurút- sett og verulega breytt frá því sem þau eru á plötunum. Mér finnst það reyndar eftirsóknar- verðast á tónleikum að heyra ný lög eða gömul flutt upp á nýtt og helst í sem ólíkustum búningi frá því sem var á viðkomandi plötu og það höfum við í huga í tónleika- haldi okkar.“ Fannst ekki rétt að sefja saman tónleikasveit Daddy G segir að þegar Massive Attack fór af stað hafi þeir félagar talið tónleikahald óþarft og bein- línis til trafala. „Okkur fannst ekki rétt að setja saman tónleika- sveit þar sem við værum hvort eð er að búa alla tónlistina til i hljóð- veri. Því reyndum við að hafa tón- leikahald með þeim hætti að sviðs- ljósið væri ekki á hljómsveitina, heldur væri umbúnaðurinn bein- línis til þess fallinn að draga at- hyglina frá henni, meðal annars með myndvörpum, allskyns ljósa- gangi og skrauti enda var mark- miðið að fólk tæki helst ekki eftir þegar sveitin kæmi á svið. Með tímanum hefur þetta viðhorf okk- ar gjörbreyst og í dag kunnum við því hið besta að vera með starf- andi hljómsveit sem leikið getur á tónleikum. Reyndar finnst okkur öllum að ég held, mér að minnsta kosti, bráðgaman að leika á tón- leikum og það hefur haft góð áhrif á tónlist okkar því á sviðinu gefst svo gott sjónahorn á tónlistina og ótal tækifæri til að reyna nýjar leiðir og afbrigði. Á tónleikum gerist líka iðulega að lögin taka óvænta stefnu; einhver fær hug- dettu sem hinir taka svo þátt í að sannreyna. Það er líka reynsla mín af tónleikahaldi að fólk vilji heyra eitthvað nýtt eða sjá gömul lög í nýju Ijósi og vonandi eiga ís- lenskir áheyrendur eftir að kunna að meta það að heyra eitthvað sem enginn hefur áður heyrt, sumt sem er jafnvel nýtt fyrir okkur.“ Segja má að það sé eins gott að þeir félagar í Massive Attack kunni tónleikahaldi vel, því framundan er stíf útgerð, hefst í Kaplakrika og síðan verður hald- ið áfram um Evrópu alla og víð- ar, því Daddy G segir að skipu- lagt sé tónleikahald fram eftir ári, „Við stefnum að því að vera á ferðinni fram í desember með stuttum hléum fyrir upptökur og annað stúss fyrir plötuna, en vegna anna kemur hún líklega ekki út fyrr en í janúar næst- komandi. Það má því segja að íslendingum gefist sérstakt tækifæri á að vera fyrstir til að heyra drjúgan hluta plötunnar löngu áður en hún kemur út,“ segir Daddy G að lokum. Eins og getið er leikur Massive Attack í íþróttahús- inu í Kaplakrika í Hafnarfirði annað kvöld, en með í för verður Darren Emerson, einn liðsmanna Underworld, sem hyggst þeyta plötum og skráma áður en hljóm- sveitirnar hefja leik sinn. Á undan Massive Attack leikur Gus Gus á síðustu tónleikum sínum hér á landi á árinu, en sveitin er að leggjast í ferðalög líkt og Massive Attack, leikur um heim allan fram eftir ári. út hafa komið í Bretlandi á ára- tugnum. Félagarnir í Massive Attack, Daddy G Marshall, 3D-del Naja og Mushroom Vowles, eru ekki afkastamiklir í plötuútgáfu, hafa sent frá sér tvær breiðskífur á sex árum, en eru um þessar mundir á kafi í upptökum á næstu plötu. Þeir taka sér þó frí frá upp- tökum um helgina og leggja land undir fót; leika í íþróttahúsinu í Kaplakrika í Hafnarfirði annað kvöld dyggilega studdir aðstoðar- söngvurum. Daddy G segir að sveitin sé nú að taka upp breiðskífu í Bristol, samhliða því sem æft sé af kappi fyrir tónleikahald í sumar og haust. „Við höfum haft í nógu að snúast undanfarið, stofnuðum út- gáfu, gerðum myndband fyrir fyrstu smáskífu af væntanlegri plötu, sömdum tónlist fyrir kvik- mynd og erum á kafi í upptökum fyrir plötuna. Hver stund sem gefst er síðan notuð fyrir æfingar vegna tónleika í sumar, þar á meðal tónleikanna á íslandi og síðan munum við vera á ferðinni fram í desember.“ Fyrsta skífa Massive Attack, Blue Lines, þótti mikið meistaraverk og næsta plata, Protect- ion, lítt síðri, enda talda hafa valdið straumhvörfum í breskri danstónlist. Daddy G segist vona að næsta skífa eigi ekki eftir að hafa minni áhrif, enda sé sveitin ævinlega að reyna að þróa tónmál sitt og leita nýrra leiða. „Fyrsta platan var afrakstur samstarfs ólíkra tónlistarmanna, því við fé- lagaranir komum hver úr sinni áttinni með ólíkan tónlistarsmekk í farteskinu og því má segja að Massive Attack sé niðurstaða málamiðlana og spennan á milli okkar skilar sér á plötunum. Á næstu skífu, Protection, lögðum við meira í tónlistina, eyddum margfalt meiri tíma í hljóðveri og fyrir vikið var hún fágaðri og út- setningar íburðarmeiri. Eftir á að hyggja vorum við ekki allskostar ánægðir með það hve við nostruð- um við smáatriðin á þeirri plötu og þvi stefnum við að því að hafa næstu plötu hrárri og gædda meira lífi. Hvort hún eigi eftir að vekja eins mikla athygli og hinar plöturnar tvær er ekki gott að segja, en vonandi tekst okkur að fara nýjar leiðir ef ekki nema fyrir okkur sjálfa.“ Mikið átak að gera Blue Lines „Við Mushroom erum plötu- snúðar og höfum mikið að gera sem slíkir. Fyrir vikið erum við vel með á nótunum með allt það sem er nýjast að gerast í tónlist- inni, en fram að þessu höfum við frekar orðið varir við að fólk sé að stæla Massive Attack en að við sé- um að fá að láni hugmyndir ann- arra,“ segir Daddy G og bætir við að þeir félagar hafi aldrei ætlað sér að vera brautryðjendur. „Fyr- ir okkur eru plötumar mjög ólíkar og mér finnst sú sem við erum að vinna í dag vera töluvert frá- brugðin þeim íyrri. Fyrsta platan okkar, Blue Lines, var á skjön við allt það sem var helst á seyði í Bretlandi, því þá var rave allsráð- andi, og vonandi tekst okkur að vera eins á skjön með næstu plötu.“ Eins og getið er þykir plata með hana,“ segir hann og hlær að minningunni, en bætir síðan við að þrátt fyrir afbragðsdóma og mikla umfjöllun hafí platan sú ekki selst eins vel og ætla mætti og talsvert minna en næsta skífa á eftir. „Það var mikið átak að gera Blue Lines, því stór hluti hljóðverstím- ans fór í að rífast um það hvað við vildum gera, hvert við vildum stefna og hvernig hvert lag lætti á fyrstu skífunni, en einnig kom við sögu á plötunni tónlistarmaður sem kallaði sig Tricky Kid, en sleppti síðan seinni hlutanum og þekktur í dag einungis sem Tricky. Á Protection var Tricky einnig með og söngkonumar Tracey Thorn og Nicolette, auk þess sem Andy syngur í einu lagi. Daddy G segir að Horace Andy sé enn með sveitinni og komi með sem af mörgum er talin ein merkasta danssveit tíunda áratugarins leikur á tónleikum í Kaplakrika annað kvöld. Árni Matthíasson ræddi við einn liðsmanna hljómsveitarinnar, Daddy G, sem segir sveitina hafa búið sig af kappi undir tónleikana og að hún hyggst frumflytja hér á landi lög af væntanlegri breiðskífu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.