Morgunblaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Á bænum Tröð í Fróðárhreppi var áður stunduð útgerð en nú er þar lít- ið gallerí sem hjónin Karl Magnússon og Hallfríður Eiðsdóttir hafa komið á laggimar í gömlu fískverkunarhúsi. Guðrún Guðlaugsdóttir skoðaði handavinnu þeirra og ræddi við þau um liðin ár gleði og sorgar. HEIMSOKNI GALLERÍ TRÖÐ Eg var komin aðeins framhjá þegar ég átt- aði mig á hvað stóð á spjaldinu - Gallerí Tröð. Ég bakkaði og skoðaði spjaldið bet- ur. Jú, það bar ekki á öðru, þama var greinilega rekið gallerí. Ég fór út úr bílnum og barði að dyrum. Út kom stór maður, eilítið álútur en afar einlægur á svip. Á eftir honum kom út smávaxin og lagleg kona, varkár í fasi með rannsakandi augnaráð. Þau fullvissuðu mig bæði um að þama væri einmitt rekið gallerí og mér væri guðvel- komið að skoða það. Ég var stödd heima á hlaði á bænum Tröð í Fróðárhreppi, sem er skammt frá Ólafsvík á Snæfells- nesi. Þarna hafði greinilega einu sinni verið róið til fískjar og það er enn lítill bátur á hlaðinu. „Gall- eríið er einmitt í húsi þar sem var áður gert að fiski,“ segir Karl Magnússon sem þarna býr ásamt konu sinni, Hallfríði Eiðsdóttur. „Við vomm bæði hjónin í útgerð- inni og hún gekk vel, en svo varð ég fyrir slysi og varð að selja bát- inn. Ég var að koma vestur á Pickup-bíl og það sprakk á einu hjóli, bíllinn fór hringinn, það brotnaði á mér höfuðkúpan og ég var nærri dáinn, síðan hef ég ekki verið samur maður.“ Hallfríður opnar dyrnar á galleríinu og við göngum inn í nokkuð stórt her- bergi með hillum á veggjum. „Við vinnum bæði mikið í höndunum svo okkur datt í hug að fara að selja þetta. Fyrst vomm við með fram- leiðsluna í herbergi uppi á lofti í íbúðarhúsinu okkar en svo komu tvær konur sem komust varla upp stigann, þá fannst okkur rétt að að fara með þetta á aðgengilegri stað og ákváðum að taka fiskverk- unarhúsið undir gallerí, það var hvort sem er ónotað og alltaf varð það meira og meira sem við vildum sýna og selja,“ segir Hallfríður. Á hillunum er sannarlega álitlegt úr- val af alls kyns hlutum sem þau hjón hafa sjálf unnið. Mikið er þar af hvers konar handavinnu, pijón- aðir dúkar, perlusaumaðir gripir, litlar prjónadúkkur, málaðar mynd- ir, renndir lampar, barnaleikföng og margt fleira. Ég geng um og skoða og Hallfríður og Karl fylgja mér eftir. Loks ákveð ég að kaupa lítinn, hvítan pijónadúk og perlu- saumað hálsmen. Hallfríður setur þetta í poka og ég borga. Síðan förum við aftur út á hlaðið og stöndum þar litla stund í norðanátt og björtu sólskini. Karl segir mér að hann sé fædd- ur á þessum stað og hafi lengst af búið þarna en á yngri árum stund- „Það er góður kraftur í honum og hann er snöggur. Það er þœgilegt að sitja undir stýri og auðvelt að ná í allt - það hefur greinilega verið hugsað um það hvemig hlutunum erfyrir komið. Svo er gott útsýni úr honum. Mérfinnst Balenoinn bara skemmtilegur bíll oggott að keyr'annJ“ $ SUZUKI SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akianes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSAhf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Blla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Fáanlegur m. sjálfsk. Lýsing nýs eiganda á þvi af hverju honum finnst gott að keyra Baleno fólksbíl Fáanlegurm.ABS og sjálfskiptingu. Fáanlegur m. sjálfsk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.