Morgunblaðið - 15.06.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 B 11
fordæma er að höfðingjar eru bæði
giftir og halda frillur. Oft margar,
eins og Jón Loftsson og Gissur
Hallsson. Það er hórdómur sam-
kvæmt kirkjunni. Glæpurinn varð
enn alvarlegri vegna þess að marg-
ar af þessum konum búa undir
sama þaki og eiginkonurnar. Þá
kallar hann það búfjárlífi þeirra,
þeir lifí eins og dýr en ekki eins
og manneskjur. Aðalverkefni Þor-
láks verður að fá höfðingjana til
að virða hjónabandið, því eftir höfð-
inu dansi limirnir. Þetta sjáum við
í öllum öðrum löndum, að ráðist
er fyrst að höfðingjunum.
Höfðinginn Jón Loftsson átti
frillu, sem var Ragnheiður systir
Þorláks biskups. Þegar átök eru
þeirra í milli kallar biskup systur
sína hórkonu. Sennilegt að sú skil-
greining hafi síðan verið notuð á
frillur giftra karla. Þær eru þá
hórkonur og síðan er talað um
hórbörn. Órækja Snorrason er kall-
aður hórkonusonur Snorra Sturlu-
sonar, sem var giftur þegar hann
eignaðist hann.
Velja milli hjónabands
og frillulífis
Auður segir að merkja megi að
höfðingjarnir fari að velja á milli
þess að gifta sig eða eiga frillur.
Ef þeir gera hvort tveggja er hægt
að væna þá um hórdómsbrot. Þeir
kjósa þá að ganga ekki í hjónaband
heldur eiga margar frillur. Það
gera tveir synir Jóns Loftssonar.
Eigi þeir bara frillur er ekki hægt
að sakfella þá. Þarna virðist þessi
neikvæði tónn koma með áhrifum
kirkjunnar og smáherðir á því.
„Sturla Sighvatsson, bróðurson-
ur Snorra átti frillu, sem hann sendi
burt þegar hann fékk sérlega fínt
kvonfang, besta kvonfang á ís-
landi, sem var Sólveig dóttir Sæ-
mundar Jónssonar í Odda,“ segir
Auður.
Þetta vekur upp spurningar um
stöðu frillunnar. „Þetta fyrirkomu-
lag var viðtekið. Kirkjan sýndi
umburðarlyndi gagnvart því. Þor-
lákur biskup lagði mikla áherslu á
að reyna að fá fólk í sambúð til
að ganga í hjónaband. Það var
auðvitað dálítið erfitt í tilfellum
eins og með Sæmund og Orm bróð-
ur hans, sem höfðu margar frillur.
Páll Jónsson, bróðir Sæmundar og
Orms, var eftirmaður Þorláks á
biskupsstóli og var þá ekki gengið
neitt eftir því að þeir bættu ráð
sitt. Frillurnar höfðu nokkuð góða
stöðu, sérstaklega þær sem voru
frillur höfðingja. Þær voru að jafn-
aði af lægri stigum en makar
þeirra. Sá var líka munur á hjóna-
bandi og frillulífi að konur sem
giftast voru efnahagslega og fé-
lagslega jafn hátt settar sem menn
þeirra. En frillurnar eru af lægri
stigum. Þá mega þær vænta þess
að í gegn um þetta samband kom-
ist þær upp í samfélagsstiganum ,
sérstaklega ef þær eignast börn
með manninum. Þetta er alveg
sama munstur og maður sér í Nor-
egi. Konungar höfðu margar ást-
konur eða frillur. Þar gátu allir
synir krafist krúnunnar, hvort sem
þeir voru skilgetnir eða óskilgetnir.
Frillan fylgir í rauninni barni sínu
sem nýtur ætternis. Munstrið í
þessu er að samningar eru gerðir
milli höfingjans og fjölskyldu kon-
unnar, sem er af lægri stigum en
hann. Ættmenn virðast gerast
fylgdarmenn höfðingjans í staðinn
og margir þeirra komast til tals-
verðra metorða. Ættmenn þessarar
frillu Sturlu Sighvatssonar komast
til metorða, vafalaust vegna þessa
sambands við Sturlu og Sighvat
föður hans. Þeir eru t.d. með honum
á Örlygsstöðum og beijast við hlið
hans alveg til loka þótt frillusam-
bandið sé löngu búið.“
Hvert fara þær þá þegar frillu-
sambandinu er lokið? „Þessi stúlka
var send heim til föðurhúsanna.
Síðan var hún gift öðrum. Við vit-
um ekki hvort Sturla hafði sam-
band við hana áfram, en ég er nú
að gæla við það að hann hafi haft
samband við hana þótt hann sé
kominn í hjónaband með Sólveigu,
m.a. af því að hann er einmitt
staddur heima hjá föður hennar og
bræðrum þegar Svínafellsför var
PÁLL Jónsson biskup, bróðir Orms og
Sæmundar og frillusonur Jóns Loftsson-
ar og Ragnheiðar. Þarmeð systursonur
Þorláks helga, fyrirrennara síns, er
reyndi að fá höfðingjana til að virða
hjónabandið. Sjálfur var Páll giftur og
fylgdi þessu því ekki eftir.
gerð. Þau áttu dóttur saman, sem
síðar er í því hlutverki að krefjast
hefndar eftir föður sinn. Þá eru
hennar maður og hinn nýi maður
móður hennar með í því liði sem
fer til að hefna. Hinn nýi eiginmað-
ur frillunnar hefnir, sem í okkar
eyrum hljómar svolítið fyndið."
Frillur höfðu góða stöðu
En höfðu frillurnar búsforráð á
heimilinu? „Já, það er hægt að sjá
þetta með frillur Sæmundar og
Orms bróður hans í Odda. Þeir eru
moldríkir höfðingjar í Rangárþingi,
eiga mörg bú. Það eru frillurnar
sem stjórna búunum og sýnast
hafa virðingu. Auðvitað fer virðing
líka eftir upprunalegri þjóðfélags-
stöðu þeirra. Ef þær eru dætur
stórbænda njóta þær virðingar sem
slíkar. Það er þetta sem skýrir
máltækið að betra sé að vera góðs
manns frilla en gefin illa. Ef þær
eru gefnar mönnum í sömu stöðu
þá eru þær fastar í sama samfé-
lagshópi, en séu þær frillur sér
æðri manna og höfðingja þá njóta
þær virðingar sem slíkar. Komast
ofar.“
Njóta börn frillanna jafn mikillar
virðingar sem hjónabandsbörnin?
„Það er ekki svo að börn njóti ekki
virðingar vegna þess að þau séu
frillubörn. En þau hafa ekki sama
erfðarétt. Þau fá að erfa með sam-
þykki skilgetinna systkina sinna.
Til dæmis spyr Þórður Sturluson
Böðvar son sinn leyfís á banabeðinu
um að fá að arfleiða einnig óskil-
getna syni sína. Þeir voru mektar-
menn og nutu virðingar í samfélag-
inu. Skilgetinn kemur fyrst til
erfða, en þessi klásúla um leyfi
systkina eða annarra lögerfingja
gerði stöðu óskilgetinna barna
nokkuð góða. Síðan kemur inn í
löggjöfina að menn megi ættleiða
óskilgetin börn sín til
að koma þeim í fyrstu
erfðaröð.
Ég held að frillulífið
hafi verið mikilvægt í
pólitískum tilgangi,"
segir Auður. „Þegar
fólk gifti sig myndaðist
bandalag milli ætt-
anna. Þetta urðu
bandamenn. Ef maður-
inn átti margar frillur
eignaðist hann fleiri
bandamenn í mörgum
fjölskyldum. Ef hann
átti ekki kost á ein-
hveiju frábæru kvon-
fangi, eins og Sturla
Sighvatsson þegar
hann giftist Sólveigu,
þá gat borgað sig að
eiga að frillum dætur
stórbænda, einkum í
héruðum þar sem þeir
voru veikir fyrir. Stór-
bændur höfðu töluvert
að segja.“
Þegar stjórnkerfið
breytist eftir fall þjóð-
veldisins og valdabar-
áttan fer að dvína, fer
úr þessu lífsmynstri.
að draga
Varla segir Auður að sé þó hægt
að segja að það falli alveg niður.
Frekar að menn fari að halda eina
frillu en margar. Og fari þeir að
búa með einni frillu, þá geta þeir
alveg eins gifst henni. Þá er farið
að hægjast um hjá höfðingjunum
því þeir þurfa ekki þetta bákn leng-
ur. Nú fá þeir völdin orðið frá kóng-
inum, ekki með því að vera alltaf
að beijast og ná sér í bandamenn.
Þetta hefur ýmsar efnahagslegar
afleiðingar, svo þeir sjá sér hag í
að draga úr. Það verður til þess
að þeir að lokum fara að velja bara
eina konu. Það er dýrt að eiga
margar frillur. Þær þarf að fram-
færa sína á hveiju búi, svo og öll
börnin og sjá til þess að þau kom-
ist ekki á vonarvöl þegar þeir falla
frá. Hægt að segja að í lok 13.
aldar séu þeir famir að róast. Þessi
breyting verður eins mikið fyrir
efnahagsleg áhrif eins og kirkjunn-
ar.“
En frillur hætta samt ekki að
vera til, eða hvað? „Nei, prestarnir
ganga á undan með góðu fordæmi
og hafa fylgikonur. Fram að siða-
bót em prestar geysilega duglegir
við að halda frillur. Þá mega prest-
amir gifta sig, sem leysir vanda-
málið. Við siðabótina kemur svo
Stóridómur með öllum sínum hörðu
refsingum við öllum siðferðisbrot-
um. Þá hverfa frillurnar.
Mér finnst þetta mjög skemmti-
legt verkefni," segir Auður. „Alltaf
að koma upp eitthvað nýtt. Sér-
staklega eftir að maður fer að bera
þetta saman við Evrópu og við
baráttu kirkjunnar í Evrópu við að
fá í gegn virðingu fyrir hjónaband-
inu. Maður hefur alltaf álitið íslend-
inga seina að laga sig að kristnum
venjum, en sé litið til Evrópu þá
em þeir engir eftirbátar. Þeir
þekkja allar þessar reglur og boð
og bönn kirkjunnar þó þeir lagi sig
ekki að þeim strax, ekki fremur
en höfðingjarnir úti í löndum. ís-
lendingar hafa ekki verið eins langt
frá páfanum og álitið var áður. Eg
er að bera frillulífi á íslandi saman
við önnur lönd, sérstaklega Norður-
lönd. Sama vandamálið er alls stað-
ar. Það er ekki fyrr en með Há-
koni gamla í Noregi, sem lifir í
hjónabandi, að allir þessir óskil-
getnu synir sem krefjast arfs til
krúnunnar eru úr sögunni. Áður
var stöðutákn að eiga margar kon-
ur, sýndi hvað þú áttir mikið undir
þér. I Frakklandi var erkibiskupinn
að biðja höfðingjana um að hætta
að búa með svona mörgum konum,
því það væm svo margir einstæðir
karlmenn. Hann höfðaði hreint og
beint til réttlætiskenndar þeirra,
að þeir ættu nú að deila með sér
þessum fáu konum."
Nú sér Auður fyrir endann á
verkefninu, kveðst eiga eftir sex
mánaða vinnu við skriftir áður en
doktorsritgerðin er í höfn. En hún
er þegar byijuð á nýju verkefni,
sem hún flutti um erindi á Sögu-
þinginu nýlega. Það er um einhleyp-
inga. „Það spannst út frá þýðingu
orðsins „einbleypingur" í nútíma
íslensku," útskýrir hún. „Þegar
maður er að skrifa um frillur og sér
orðið „einhleypingur" í heimildum
þá tengir maður það við einhleyp-
inga nútímans, sem em ógiftir karl-
menn. Það vekur ýmsar spumingar.
Vom þetta kannski einbleypingar
sem aldrei fengu neinar konur af
því að svo margir höfðingjar áttu
svona margar? Vom kannski ekki
nógu margar til?“
Auður hefur búið í Svíþjóð síðan
1988. Fór þá að starfa við Gauta-
borgarháskóla og hefur meðfram
rannsóknum sínum m.a. verið þar
við kennslu. Gerði bara hlé á þeim
meðan hún var að eignast lítinn
dreng, sem hún kom með í frí til
íslands. Hún á tvö börn og er i
sambúð með sænskum manni. „Lifi
frillulífi," segir hún í framhaldi af
samtali okkar um líkinguna á sam-
búðaháttum nútímans og frillulífi
þjóðveldisaldar og dillandi hlátur
hennar fylgir mér út á tröppur.
EfT*\r i r i Iti fjf r * / iv'T'*
I J I J I JJ l i | > y Jj\
11111 bjóðum við hagstæðustu^^^MM^^^Ó^.
I L L,J verð sumarsins til
Benidorm í
vikur
Á Benidorm eru allir gististaðir
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur
staðsettir miðsvæðis eða við
ströndina, í hjarta bæjarins
lc w.
2 ö 665
í júní: 23, og 30
1 vika
4 í íbúð, 2 börn og 2 fullorðnir kr. 28665
2 í íbúð kr. 38200
Gisting á Gemelos II í hjarta bæjarins -
Stutt í alla þjónustu
2 vikur
4 í íbúð, 2 börn og 2 fullorðnir kr.
35°«
4§400
2 í íbúð kr.
Gisting á Gemelos II eða Maryciel - Báðir gististaðir eru staðsaðsettir
í hjarta bæjarins - Stutt i alla þjónustu
Innifalið: Flug, gisting, flutningur til og frá flugvelli erlendis - Islensk fararstjórn og allir skattar
Viðbótarafsláttur kr. 4000.- þegar þú notar
EURO/ATLAS ávísunina þína.
Pantiö i síma
552 3200
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Aðalstræti 16 - sími 552-3200