Morgunblaðið - 15.06.1997, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.06.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 B 17 HÉR bregður hann sér i hlutverk hestamannsins í siðustu viðureigninni. þriðji er tókst ætlunarverk sitt. Nautið datt með fímm pinna í sér og spjótstungur. Það nennir þessu varla og virðist hissa og áhugalaust yfir þessum fíflagangi. Pasodoble músíkin sem hljómar er eftir konu. Hann verður að nautast meira hefð- bundið, segir einhver. Snýr oft baki því nautið gerir ekkert nema því sé ögrað. Oft að falli komið, misstígur sig, heldur í annað hornið á hnjánum og bakið, nautið horfir forviða á. Nautið hefur auðvitað enga reynslu af þessu, því ekkert þeirra fær að lifa þetta af. Nautabanar fara oft til Rómönsku Ameríku á vetuma. Þetta ár var ekki gott fyrir Jesúlín því hann lenti illa í konu, segja þeir, en hann lýkur vertíðinni vel. Miðar sverðinu sem skeikar og dettur niður, hann virðist þreyttur við þriðja nautið. Fær nýtt sverð og reynir aftur, sverðið fer rétt niður, aðeins fremsti hlutinn. Nautið stendur og aðstoðarmennimir mæta á svæðið. Þá fær hann sverðið sem aðeins er hægt að nota oddinn á og stingur í mænuna, nautið fellur. Eng- inn hvítur klútur, ekkert eyra. Al- menningur stundum ósammála for- setanum og heimtar eyra fyrir frammistöðuna og veifar hvítum klút- um. Það er í anda nýja stílsins að sleppa dulunniog mjaðma nautið. Fjórða og fimmta nautið Blóðlyktin er í loftinu og baninn með blóðbletti á maga og pung á hinum dýra búningi. Jesúlín er feim- inn og alvarlegur; einmana og vina- laus, 140 nautaöt á síðasta ári, 110 í ár. Einsemdin er gjald frægðarinn- ar, segir kona, en hvað er þetta, segir karl og nefnir töluna, vinur hans er nautið. Fjórða sverðið fór beint oní, munaði litlu að nautið næði honum, konurnar veifa nær- buxum og kyija torero. Nautið stendur uppi þó nokkurn tíma en fellur. Hann brosir út að eyrum. Hvítum klútum veifað. Hann fær tvö eyru. Hann slær í gegn. Nautið dreg- ið í burtu af múlösnum. Tveir tímar liðnir við fímmta naut- ið er heitir Cordobes og er 520 kg. Pinnakallarnir eru oft í mestri hættu því þeir hafa enga dulu og þurfa að hlaupa. Munaði litlu að baninn væri stangaður og snerti nautið svo hann fékk fullt af blóði á sig. Sest niður og tekur í homið rétt eftir háskann. Ef nautið hreyfír sig á meðan hann miðar sverðinu og horfist í augu, hættir hann við. Sverðið fór niður og aðstoðarmennimir þrír mæta. Það fellur, holé. Hættulegasta augnablikið þegar hann stingur. Þær koma og kyssa hann þegar hann fær sér drykk í pásu með eitt eyra. Sjötta nautið Jesúlín fer upp á hestinn og held- ur á spjótinu í forleiknum og stingur með spjótinu sem getur ekki farið lengra inn en oddurinn og nautið þjarmar að hestinum. Fagnaðarlæti. Nú leikur hann líka pinnarann og nær að stinga tveimur. Músík. Hann fer aftur með pinnana og stingur báðum og hleypur með nautinu og í kringum það en ekki í burtu eins og hinir venjulega. Aðdáunin leynir sér ekki í andlitum kvennanna. Hann reynir í þriðja sinn og tekst, nautið nær honum næstum og hann snertir hornin til að halda því frá. Nautin hljóta að vera vinir hans eins og karlinn sagði. Það er allt að verða vitlaust. Hann sýnir pinnuranum sem eru yfírleitt eldri hver listin sé. Algjört undur. Og nú er hann kom- inn með sverðið og rauðu duluna eftir að hafa leikið öll hlutverkin. Síðasta atriðið á þessari vertíð. Áður þakkar hann fyrir erfiða vertíð og faðmar alla aðstoðarmennina. Tekur utan um annað hornið og veifar rauðu dulunni rétt fyrir framan nautið sem er með lafandi tungu og stendur kjurt örþreytt. Hendir frá sér dulunni og tekur sverðið. Tveir tímar og 35 mínútur. Sverðið á kaf ofaní bakið. Er það dautt? Já, það fellur, yndislegt og æðislegt. Tvö eyru í viðbót, átta í heildina. Það eru læti og lögreglan þarf að ryðja konunum frá sem þyrpast að honum til að snerta. Manudag, miðvikudag, fímmtudag og verður sriyrtifræðingur frá Clarins í Versluriinní og veitir persóriulega ráðgiöf. Mtkið af nýjungum, þar a meðal rtýja megrunarkremið Cféme Masvelt. Verið velkomin í Andorru, sérverslun Clarins í Hafnarjirði snYrtivöruverslun Strandgötu 32, Hafnarfiröi, sími 555 2615 Wagner utanhúss klæðningarkerfi Wagner klæðningarkerfi: • kemur í stoð timburs. • er úr áli og aluzink, hentar undir allar gerðir loftræstra útveggjaklæðninga. • er mjög fljótlegt og auðvelt í uppsetningu. • sparar mikinn tima og gerir allar afréttingar mjög auðveldar. • hefur sömu endinau oa útveaaiaklæðninain. • ekkert viðhald. • hentar í öll verk, stór og smá. • hefur reynst frábærlega hér á landi eins og annars staðar. • er þýsk hágæðavara og lága verðið kemur á óvart. Engin tæring myndast á milli Wagner utanhúss klæðningarkerfisins og útveggjaklæðningarinar. < <Wagner-System> > Hafið samband við okkur og fáið allar nánari upplýsingar Wagner klæðninqarkerfi er retta lausnin fyrir framtíðina Suðurlandsbraut 22 , Sími: 588 3220 117 eða 155 iHs PowerPC litaskjár sem styður í>Ú£ 12 eða 16 - 64 ®> vinns: Möguleiki á sexkraða ge Eafhlaða 50 vattstunda, 16 hita víððma hljáð • : Skipholti 21, 105 Reykjavik, simi: 511 5111 Heimasíöa: http://www.apple.is OOO'OOZ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.