Morgunblaðið - 15.06.1997, Side 18

Morgunblaðið - 15.06.1997, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ STARAÐ í glyrnurnar á reiðum skúmi. Augnabliki síðar skaddaði fuglinn myndavélin MENN gætu haldið að Halldór fengi eitthvað sérstakt út úr því að fá hárin til að rísa þegar hann kvartar undan því að það sé ekkert fútt í skúmnum í þetta skipti. Svarið er á reiðum höndum: Það er vegna þess að enn eru ekki komnir ungar hjá honum. Hann er enn að verja egg og í mörgum til- vikum trúlega nýorpin egg. Til vitnis um það eru jeppaslóðir sem þræða varpþúfurnar á sandinum. Ljóst er að einhverjir leggja sér ekki síður skúmsegg til munns en t.d. svart- baks- og sílamávsegg. En að það sé ekkert fútt í þessum skúmum? Ef við hefðu ekki heyrt allar sögurnar um skúminn, sem flest- ar eru sannar, þá hefðum við hrist höfuðin, því nógu ískyggilegir voru þeir. Við finnum hvert hreiðrið af öðru og við eitt þeirra verjast þrír skúmar! Það er í blóra við lýsingar á skúm, að hann sé ófélagslynd- ur og sérlega duglegur, svo ekki sé meira sagt, að verja óðalið sitt fyrir óboðnum gest- um. Skúmarnir gera sig digra og eru kannski djarfastir að ráðast á bflana þegar þeir eru á ferð á milli varpþúfna. V'íða er slitrur af ýmsum fuglum. Við finnum svartbak, fyl og gæs. Aílt er étið og fmkroppað inn að beini. Það rifjast upp það sem sagt er um æti skúms og almenna borðsiði. I bókinni Fuglar í náttúru íslands eftir Guðmund Ólafsson stendur þetta: - Fæðan er aðallega fiskur, en samt er skúm- urinn ræningi. Hann rænir frá öðrum fugl- um, étur egg þeirra og drepur þá sér til mat- ar, s.s. svartfugla, vaðfugla, endur og gæsir, en ekkert er honum heilagt í þeim efnum og á hann það til að drepa svartbak, kjóa, kríu, lóm, súlu og gæsir. í erfiðari viðureignum „ER ENGINN dugur f þér?“ kallar Ilalldór frá hreiðurþúfunni . . . eiga tveir skúmar samvinnu um að þreyta bráðina uns yfir lýkur. Halldór dáist einmitt að þessu dæmalausa og skilyrðislausa valdi og takmarkalausa virðingarleysi sem skúmurinn auðsýnir öðrum dýrum merkurinnar. Skúmurinn fer ekki einu sinni í manngreiningarálit með það á hvern hann ræðst. Halldór fær sinn skammt og vel það og gildir einu þótt hann SKÚMURINN svarar því um hæl . . . hneigi sig og beygi og kalli kveðjur til hinna dökkbrúnu. Þeir rangtúlka það allt saman og færast í aukana. Halldór var á Sandinum fyrir um 20 árum og þá gerðist atburður sem hann segir okk- ur frá. Vitni voru og staðfestu söguna. Skúmur einn var í alveg sérdeilis slæmu skapi og lítt um heimsókn Halldórs gefinn. Hann renndi sér aftur og aftur á Dóra, því samferðarmennirnir með prikin voru flúnir inn í bíl. Dóri mátti beygja sig og sveigja og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.