Morgunblaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15 JÚNÍ 1997 B 29
SJÚKRAHÚS SUÐURLANDS
v/Arv©g - 800 Selfoss - Pósthólf 241 - Sími 98-21300
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Suðurlands óskar að ráða hjúrunar-
fræðinga til sumarafleysinga á geðsvið við
Sogn eftir 1. júlí 1997 í 4 vikur.
A Sogni er 7 rúma deild. Þar eru hjúkrunarfræðingar á bakvöktum
á nóttunni og um helgar.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga í fastar stöður
við Sjúkrahúsið á hand- og lyflæknissvið og
á öldrunardeild S.h.S. Ljósheima.
A sjúkrahúsinu eru 30 rúm, sem skiptast í hand- og lyflæknissvið
og vinna hjúkrunarfræðingar til skiptis á þessum sviðum. Á öldrunar-
deild S.h.S eru 26 rúm fyrir langlegu, þar eru hjúkrunarfræðingar
á bakvöktum á nóttunni.
Kynnið ykkur sérkjör varðandi laun og
húsnæði.
Allar nánari upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri í síma 482 1300.
Þjónustudeild
Kraftvéla
óskar eftir að ráða vélvirkja, bifvélavirkja eða
menn með sambærilega menntun.
Starfið felst í að þjónusta KOMATSU vinnuvél-
ar og TOYOTA lyftara ásamt öðrum vörumerkj-
um sem fyrirtækið hefur.
Góð laun eru í boði fyrir réttan starfskraft.
Farið verðu með allar umsóknir sem trúnaðar-
mál. Skriflegarumsóknirsendisttil Kraftvéla
efh. Funahöfða 6, 112 Reykjavík, merktar:
„Starfsumsókn þjónustudeild".
Grunnskólakennarar
athugið
Við Laugaskóla í Dalasýslu eru enn lausar
til umsóknarstöðurgrunnskólakennara. Um
er að ræða almenna bekkjarkennslu yngri
nemenda ásamt kennslu í raungreinum og
dönsku. Skólinn er heimavistarskóli, (55 nem-
endur), og er staðsettur 20 km vestan við Búð-
ardal, og er aðstaða til kennslu góð.
Umsóknarfrestur ertil 23. júní nk.
Allar upplýsingar veitir Kristján Gíslason, skóla-
stjóri, í s. 434 1262 eða 434 1269. Veffang skól-
ans er http://rvik.ismennt.is/~laugdal en
þar er að finna ýmsar upplýsingar um skólann.
Skólastjóri.
Draumastarfið
fyrir húsmóður
í boði er hálfsdagsstarf í leiðandi og öflugu
matvælafyrirtæki.
Starfið felst í að efla eftirspurn eftir dagvöru,
sem dreift er ýmist beint til stærri verslana eða
í gegnum umboðsmannakerfi.
Unnið er með hæfu starfsfólki, sem er stöðugt
að ná árangri og gerir kröfur til sín um enn
betri árangur.
Launakerfið er persónubundið og hvetjandi.
Ef þú ert fylgin þér, skipulögð og átt gott með
að umgangast fólk, þá skaltu senda inn um-
sókn um þetta starf.
Umsóknir sendisttil afgreiðslu Mbl., merktar:
„D — 16707", fyrir 18. júní nk.
KOPAVOGSBÆR
Leikskólastjóri
Kópavogsbær auglýsir til umsóknar stöðu
leikskólastjóra í leikskólanum Grænatúni,
v/Grænatún.
Um er að ræða tímabundna stöðu frá 1. sept.
1997 til 31. maí 1998.
Umsóknarfrestur ertil 25. júní.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma
554 6580 og leikskólafulltrúi í síma 554 1988.
Starfsmannastjóri
ST JÓSEFSSPlTAUSUM
HAFNARFIRÐI
Skrifstofustarf
— afleysingar
Starfsmaður óskast til afleysinga í fullt starf
á skrifstofu spítalans. Nauðsynlegt er að við-
komandi geti hafið störf sem fyrst og unnið
út október. Reynsla á tölvur er nauðsynleg,
en hluti starfsins erfólgið í launavinnslu í
H-launakerfi Tölvumiðlunar.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 19. júní nk.
Allar nánari upplýsingar veitirframkvæmda-
stjóri eða skrifstofustjóri í síma 555 0000.
Framkvæmdastjóri.
Aukavinna
Getum bætt við starfsfólki til að starfa við sím-
svörun og úthringingarýmis konar. Ekki bein
sölumennska. Fjölbreytt verkefni fyrirfyrirtæki
m.a. á sviði trygginga, ferðaþjónustu, fjölmiðl-
unar, verðbréfa o.fl. Vinnutími kl. 18—22 virka
daga. Góðar aukatekjur.
Viðkomandi þarf að vera ákveðinn, opinn og
jákvæður, geta unnið sjálfstætt, hafa einhverja
tölvureynslu og geta unnið 2—3 kvöld í viku.
Lögð er áhersla á þjálfun starfsfólks.
Lágmarksaldur 20 ára.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil afgreiðslu
Mbl., merktar: „Símavinna", fyrirföstudaginn
20. júní. Öllum umsóknum svarað.
Garðabær
Fræðslu- og menningarsvið
Hofsstaðaskóli
Kennsla yngri barna
Við Hofsstaðaskóla eru lausar stöður við
kennslu yngri barna næsta skólaár.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 565 7033
og grunnskólafulltrúi í síma 525 8500.
Umsóknarfrestur ertil 21. júní 1997.
Umsóknum skal skilað til skólastjóra.
Grunnskólafulltrúi.
Leikskólakennarar
Leikskólakennararóskasttil starfa við Leikskóla
Stykkishólmsbæjar sem tekurtil starfa 1. ágúst
nk. Nánari upplýsingar veita:
Margrét Thorlacius, formaður leikskólanefnd-
ar, vs. 438 1128 og hs. 438 1636 og Gunnsteinn
Sigurðsson, aðstoðarleikskólastjóri, í síma
438 1028.
Umsóknirskal senda Stykkishólmsbæ, Skóla-
stíg 11, 340 Stykkishólmi.
Umsóknarfrestur ertil 1. ágúst 1997.
Bæjarstjóri.
Leikskólakennarar
Það bráðvantardugmikinn leikskólakennara
frá og 1. ágúst 1997 til að veita forstöðu leik-
skólanum okkar og til að halda áfram því
metnaðarfulla uppbyggingarstarfi sem núver-
andi leikskólastjóri hefur unnið að.
Leikskólinrt er í nýja grunnskólanum í Þykkvabæ,
sem erfalleg bygging og einkar þægilegur vinn-
ustaður, byggður 1992.
Við bjóðum upp á flutningsstyrk og fría húsa-
leigu og athugið að það eru aðeins 100 km til
Reykjavíkur (rúml. klst. akstur á bundnu slitlagi).
Vinsamlega hafið samband við núverandi leik-
skólastjóra, hana Áslaugu, í vs. 487 5659, hs.
487 5644 eða formann skólanefndar, hana Sig-
ríði, í síma 487 5630.
Starfsmenn óskast
Starfsmann vantar í afgreiðslu.
Vinnutími frá kl. 9.30—18.00.
Einnig vantar starfsmann í efnalaug.
Vinnutími frá kl. 8.00—16.15.
Reyklaus vinnustaður.
Umsækjendur hafi samband við Þorvarð í síma
581 2220.
Skeifunni 11
Ræstingar
J.K. Ræstingar vilja ráða þrjár manneskjurtil
ræstingastarfa í Höfðahverfi.
Um er að ræða þrif á stórri skrifstofu. Vinnu-
tími frá kl. 17—20, 3 til 4 daga í viku. Frí um
helgar. Vinna hefst 1. júlí nk. en þú þarft að
vera tilbúintil að vinna helgina 28.—29. júní
við hreingerningu á þessari skrifstofu.
Ef þú ert 25 ára eða eldri, rösk, ábyggileg og
umfram allt alltvandvirk, og hefur metnaðtil
að skila stykkinu þínu eins góðu og kostur er
hverju sinni, þá bjóðum við þér að hafa sam-
band við okkur.
J.K. Ræstingar,
Mörkinni 3, sími: 588 6969.
Leikskólinn
í Búðardal
Auglýst er eftir starfsmanni á leikskólann í
Búðardal.
Leitað er eftir leikskólakennara. Um er að ræða j
framtíðarstarf sem m.a. fellst í að leysa leik- *
skólastjóra af í fæðingarorlofi. í boði er lifandi
og skemmtilegur vinnustaður með góðum
starfsanda.
Umsóknarfrestur ertil 25. júní nk.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður á skrif-
stofu sinni eða í síma 434 1432.
Sveitarstjóri Dalabyggðar
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Lausar stöður
Lausar eru stöður kennara við skólann i eftir-
töldum greinum: Ensku, þýsku, dönsku, raun-
greinum, stærðfræði, tölvufræði, sjávarútvegs-
greinum, sérkennslu og námsráðgjöf.
Umsóknarfresturtil 30. júní.
Upplýsingar í síma 478 1870 eða 478 1381.
Skólameistari
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Lausar kennarastöður
Umsóknarfrestur um áður auglýstar stöður,
m.a. í stærðfræði, tölvufræði, raungreinum
o..fl., framlengist til 20. júní.
Ennfremur eru auglýstar stöður í sögu, félags-
fræði og sálfræði (hlutastaða).
Umsóknir sendist undirrituðum í pósthólf 160,
902 Vestmannaeyjar.
Upplýsingarfást í síma 481 1079,481 2190 eða
898 8579.
Ólafur H. Sigurjónsson,
skólameistari FÍV.
^ Verzlunarskóli íslands
Efnafræðikennari
Verzlunarskóli íslands vill ráða í stöðu efna-
fræðikennara fyrir næsta skólaár. Leitað er að
kennara með háskólamenntun í efnafræði.
Nánari upplýsingar gefa deildarstjóri eða
skólastjóri, sími 568 8400; fax 568 8024;
tölvupóstur thorvard@tvi.is.
Verzlunarskóli íslands.