Morgunblaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15 JÚNÍ 1997 B 31
„Au pair" í
Þýskalandi
vingjarnlega fjölskyldu í nágrenni Bremen í
norðvesturhluta Þýskalands vantar „au pair"
í eitt ár, frá júlí-ágúst-september 1997. Upplýs-
ingar gefur Vala Bára, fv. „au pair", í s. 9979.
Kennarar
Nýstofnaður, sameinaður grunnskóli á Eyrar-
bakka og Stokkseyri óskar eftir að ráða
kennara í almenna kennslu og raungreinar.
Upplýsingar gefur Arndís Harpa, skólastjóri,
í síma 483 1141 eða 483 1538.
Skólabúðir
á Reykjum
íþróttakennara vantar að skólabúðunum á
Reykjum í Hrútafirði.
Upplýsingar hjá skólastjóra í símum 451 0000
eða 451 0001.
Bókbindari
Óskum eftir að ráða bókbindara til framtíðar-
starfa. Nemi gæti komiðtil greina. Mikil vinna.
Upplýsingar á vinnutíma í síma 462 2500.
Prentsmiðjan Ásprent,
Akureyri.
Matreiðslumaður
Veitingahús í Keflavík
Ef þú ert hugmyndaríkur og skapandi mat-
reiðslumaður, þá höfum við starf að þínu
skapi.
Svör sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„1 — 2 og 3". Öllum svarað.
„Au pair" í París
Frönsk-íslenskfjölskylda óskar eftir ábyrgðar-
fullum einstaklingi til að gæta tveggja ára
drengs og sjá um heimilisstörf frá og með
1. ágúst.
Umsóknir sendisttil afgreiðslu Mbl. fyrir
20. júní, merktar: „XXX".
Nánari upplýsingar í síma 551 6139.
Rafvirki — sölumaður
Heildverslun með rafmagnsvörur leitar að
sölu- og afgreiðslumanni. Þekking á raflagna-
efni nauðsynleg. Þarf að geta unnið sjálfstætt.
Umsóknum skal skila til afgreiðslu Mbl., merkt:
„Rafvirki — 16708", fyrir 21. júní nk.
Bakari
Ungur bakari óskast nú þegar. Hlutastarf kem-
urtil greina. Upplýsingar veittar á staðnum.
Café Konditori Copenhagen,
Suðurlandsbraut 4A,
Reykjavík.
Hársnyrtistofan
Carter
óskar eftir hressum starfskrafti, nema á síðasta
ári eða sveini.
Áhugasamir sendi svörtil afgreiðslu Mbl.fyrir
19. júní, merkt: „Hár — 1247".
TILKYNIMIIMGAR
Frá
húsnæðisnefnd
Bessastaða-
hrepps
Til að kanna þörf fyrirfélagslegt íbúðar-
húsnæði í Bessastaðahreppi auglýsir húsnæð-
isnefnd hér með eftir umsóknum um félags-
legar eignaríbúðir og almennar kaupleiguíbúð-
ir í Bessastaðahreppi.
í almenna kaupleigukerfinu veitir Húsnæðis-
stofnun ríkisins 90% lán til 43 ára með 4,9%
vöxtum. í félagslega kerfinu eru vextir 2,4%.
Skilyrði fyrir úthlutun er að umsækjandi eigi
lögheimili í Bessastaðahreppi, uppfylli kröfur
um tekju- og eignamörk þar sem það á við,
standist greiðslumat og geti staðgreitt 10%
útborgun.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 1997.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum, milli
kl. 10.00 og 15.00 alla virka daga og í síma
565 3130.
Skrifstofustjóri
Bessastaðahrepps.
cJÉjy, Sjávarútvegsráðijncytið
Styrkir til fram-
haldsnáms
Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að veita
tvo styrki til framhaldsnáms við háskóla í fiski-
fræði, sjávarlíffræði, haffræði og skyldum
greinum.
Styrkurinn er ætlaður þeim sem miða að ma-
sters, doktors eða svipuðum lokaáfanga í
námi.
Umsóknir sendist sjávarútvegsráðuneytinu.
Umsóknarfrestur er til 30. júní.
Sjávarútvegsráðuneytið,
14.5.1997.
Húsnæði fyrir námsmenn
við Háskóla íslands
Umsóknir um vist á stúdentagörðum fyrir
skólaárið ‘97 - ‘98 þurfa að hafa borist
skrifstofu Stúdentagarða fyrir 20. júní 1997.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem
liggja frammi á skrifstofunni.
Allar nánari upplýsingar eru veittar
í síma 561 5959 kl. 8 -16 virka daga.
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut »101 Reykjavík
Styrktar- og minningarsjóður
Þorbjargar Björnsdóttur
Stjórn Styrktar- og minningarsjóðs Þorbjargar
Björnsdóttur hefur ákveðið að veita styrk úr
sjóðnum fyrir árið 1997.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtsjúka,
einkum unga gigtarsjúklinga.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Gigtarfélags (slands, Armúla 5, 108 Reykjavík.
Umsóknarfrestur ertil 30. júní nk.
Áformað er að styrkveiting fari fram í byrjun
september 1997.
Gigtarfélag íslands
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Sumartími ráðgjafa
í viðtölum
15. júní til 29. ágúst kl. 11.00—15.00.
Þriðjudagar: Norðurlönd.
Miðvikudagar: Enskumælandi og önnur lönd.
Fimmtudagar: ísland.
Engin viðtöl mánudaga og föstudaga.
TILBGÐ/ÚTBOÐ
Grýtubakkahreppur
Útboð
Grýtubakkahreppur óskar eftir tilboðum í að
byggja sambýli fyrir aldraða og heilsugæslu
við Túngötu 2 á Grenivík. Húsið er 513 fm að
grunnfleti á einni hæð. Húsið skal gera fokhelt
1997 og fullgera eigi síðar en 30. nóv. 1998.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Grýtu-
bakkahrepps, Grenivík, og á Arkitekta- og verk-
fræðistofu Hauks ehf., Kaupangi, Akureyri
gegn 20.000 kr. skilatryggingu frá og með
19. júní 1997.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Grýtubakka-
hrepps, Ráðhúsinu Grenivík, 30. júní 1997
kl. 16.00.
Grýtubakkahreppur.
Útboð
SIGLINGASTOFNUN
Vestmannaeyjar
Dýpkun
Hafnarstjórn Vestmannaeyja óskar eftir tilboð-
um í dýpkun austan við Friðarhafnarbryggju.
Áætlað dýpkunarsvæði er 3.200 fm. Dýpkunin
felst í greftri á lausu efni og að sprengja klöpp.
Bjóðendur skulu tilgreina verktíma í tilboði
sínu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Siglinga-
stofnunar Islands, Vesturvör 2, Kópavogi, frá
fimmtudaginn 19. júní, gegn 5.000 kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn
4. júlí 1997 kl. 11.00.
Hafnarstjórn Vestmannaeyja.
Z'
OÐ »>
Eftirfarandi útboð eru til sýnis og sölu á skrif-
stofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík:
* Nýtt f auglýsingu
10840 46 Pentíum tölvur fyrir Tækniskóla
íslands. Opnun 24. júní 1997 kl. 11.00.
10849 Listaskóli í Laugarnesi - breytingar
og endurbætur. Opnun 25. júní 1997
kl. 11.00. Verð útboðsgagna kr. 3.000,-.
Bjóðendum er boðið að skoða aðstæður
á verkstað þann. 18. júní nk. kl. 13.00-
15.00.
* 10843 Jakki II fyrir Ríkistollstjóraem-
bættið - Fyrirspurn. Opnun 26. júní
1997 kl. 11.00.
* 10851 Harðviður fyrir Rifshöfn á Snæ-
fellsnesi. Opnun 2. júlí 1997 kl. 11.00.
Útboðsgögn verða afhentfrá og með
miðvikudegi 18. júní.
10839 Varmaljómunarbúnaður (Thermol-
uminescence dosimetry system).
Opnun 3. júlí 1997 kl. 11.00.
10835 Áhaldaleiga — rammasamningur.
Opnun 9. júlí 1997 kl. 11.00.
10818 Vegmálning fyrir Vegagerðina —
forval. Opnun 9. júlí 1997 kl. 14.00.
10829 Náttúrufræðahús Háskóla íslands.
Opnun 10. júlí 1997 kl.11.00. Verð út-
boðsgagna kr. 20.000. Bjóðendum er
boðið á kynningarfund og að skoða að-
stæður á verkstað þann 19. júní 1997
kl. 10.00 í fylgd fulltrúa verkkaupa og
hönnuða.
* 10842 Framdrifsbúnaðurfyrir hafrann-
sóknarskip (Propulsion system for
oceanographic vessel). Opnun 24.
júlí 1997 kl. 11.00.
Gögn seld á kr. 1.200 nema annað sé tekið
fram.
W RÍKISKAUP
Ú f b o b s k i I a á r a n g r i I
BORGARTÚNI 7, /05 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
B r éf a s I m i 562-6739-Nelfang: rikiskaupGrikiskaup.is
Smiðjuvegi 2 - 200 Kópavogur
Sími 567 0700 - Símsvari 587 3400 - Telefax
567 0477
Tilboð
óskast í bifreiðar sem skemmst hafa í umferð-
aróhöppum. Bifreiðarnar verða til sýnis á
Smiðjuvegi 2, Kópavogi, mánudaginn
16. júní 1997, kl. 8-17.
Tilboðum sé skilað samdægurs.
Vátryggingafélag íslands hf.
- Tjónaskoðunarstöð -