Morgunblaðið - 15.06.1997, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR15. JÚNÍ 1997 B 35 ,
Þ JÓÐHÁTÍÐ ARD AG U Rl NINI
HÁTÍÐAHÖLDIN í Reykjavík 17.
júní verða með hefðbundnum
hætti fram að hádegi. Dagskráin
hefst kl. 10 þegar forseti borgar-
stjórnar, Guðrún Ágústsdóttir,
leggur blómsveig á leiði Jóns Sig-
urðssonar í kirkjugarðinum við
Suðurgötu. Hátíðardagskrá við
Austurvöll hefst kl. 10.40 með
ávarpi formanns hátíðarnefndar,
Steinunnar V. Óskarsdóttur. Því
næst leggur forseti íslands, hr.
Ólafur Ragnar Grímsson, blóm-
sveig frá íslensku þjóðinni að
minnisvarða Jóns Sigurðssonar og
forsætisráðherra, Davíð Oddsson,
flytur ávarp. Þá mun fjallkonan
flytja ávarp sitt. Karlakór Reykja-
víkur syngur, Lúðrasveit verka-
lýðsins leikur og skátar standa
heiðursvörð. Guðþjónusta verður
í Dómkirkjunni kl. 11.15 og pred-
ikar sr. Tómas Sveinsson, Dóm-
kórinn og St. Jaakobs Gosskör frá
Svíþjóð syngja.
Tvær skrúðgöngur
Tvær skrúðgöngur verða fam-
ar um götur bæjarins. Önnur
leggur af stað frá Hlemmi kl.
13.30 og fer niður Laugaveg að
Ingólfstorgi, en hin leggur af stað
frá Hagatorgi 13.45 og munu
skátar fara fyrir göngunum.
Skemmtidagskrá hefst á tveim-
ur leiksviðum í miðbænum kl. 14,
á Ingólfstorgi og í Lækjargötu.
Fjölmargt verður í boði fyrir há-
tíðargesti í borginni á hinum ýmsu
stöðum. í Tjarnarsal Ráðhússins
verður tónlistardagskrá. í Hallar-
garðinum og Hljómskálagarðin-
um verða leiktæki og sýningaratr-
iði, á Tjörninni verða árabátar og
kanóar og Sautjánda júní lestin
ekur um Vonarstræti. Götuleik-
hús Hins hússins fer um hátíðar-
svæðið, Brúðubíllinn sýnir við
Tjarnarborg en við Reykjavíkur-
höfn verður Fornbílaklúbburinn
með sýningu og erlendar kapp-
siglingarskútur verða sýndar þar
einnig.
Hátíðahöld viða um borgina
Á Kjarvalsstöðum verður sýn-
ingin Islensk myndlist og þar
verður borgarlistarmaður út-
nefndur. í Arbæjarsafni verður
sérstök dagskrá og í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í Laugardal
verður boðið upp á ýmislegt til
skemmtunar. I Þjóðminjasafni
verður sýningin Kirkja og kirkju-
skrúð.
Að kvöldi þjóðhátíðardags
verða skemmtanir á tveimur svið-
um í miðbænum. Á Ingólfstorgi
verða gömlu og nýju dansarnir
fram til miðnættis. I Lækjargötu
verða tónleikar vinsælla hljóm-
sveita en þar mun dagskránni
ljúka kl. 1 eftir miðnætti. Strætis-
vagnar Reykjavíkur verða með
ferðir úr miðbænum að skemmtun
lokinni.
Víðavangshlaup og
skemmtiganga í Kópavogi
Víðavangshlaup fýrir 16 ára
°g yngri og skemmtiganga eldri
borgara hefjast við Kópavogsvöll
kl. 10. Messað verður í Kópavogs-
kirkju kl. 13 og flytur frú Guðrún
Katrín Þorbergsdóttir stólræðu en
kór Kópavogskirkju og Karlakór
Reykjavíkur syngja. Skrúðganga
leggur af stað kl. 14 frá Mennta-
skólanum í Kópavogi að Rútstúni
og Skólahljómsveit Kópavogs og
skátar fara fyrir göngunni. Utihá-
tíð verður á Rútstúni milli kl.
14.30 og 18. Forseti bæjarstjórn-
ar flytur hátíðarræðu og fjallkon-
an ávarpar samkomuna. Fjöllista-
menn leika listir sínar, dansatriði
verða og Furðuleikhúsið flytur
skemmtiþátt. Magnea Tómasdótt-
ir mun flytja einsöng og dixiband-
ið Öndin og hljómsveitin Dead Sea
Apple skemmta hátíðagestum.
Leiktæki, veitingasala og ýmsar
uppákomur verða á túninu.
Klukkan 17 verður leikin knatt-
spyrnuleikur á Kópavogsvelli milli
4. fl. Breiðabliks og HK til minn-
ingar um Daða Sigurvinsson.
Fjölbreytt hátíða-
höld 17. júní
Ókeypis veiði í
Garðabæ
Við Arnarnesvog verður útsýn-
issigling frá kl. 9.30 til 12. Við
Hofstaðaskóla á milli kl. 10 og
12 verður víðavangshlaup fyrir
börn 6-13 ára, götukörilubolti,
línuskautar fyrir 10-12 ára og
hjólabretti. Boðið verður upp á
íjöltefli við stórmeistara en einnig
verður náttúruskoðun og veiðiferð
í mýrinni fyrir yngri kynslóðina.
Veiði verður ókeypis við Vífils-
staðavatn fýrir alla Garðbæinga.
í Vídalinskirkju hefst hátíðar-
stund kl. 13 og skrúðganga leidd
af fánaborg skáta og Lúðrasveit
Garðabæjar leggur af stað þaðan
hálftíma síðar að Garðaskóla. Þar
verður hátíðin formlega sett kl.
14 og fjallkonan flytur ávarp.
Starfsstyrkur listamanns verður
afhentur, skólakór Garðabæjar
syngur og léttsveit tónlistaskóla
Garðabæjar spilar. Við Garða-
skóla verður skátaþrautabraut,
koddaslagur, svifbraut, andlits-
málun, tívolíleiktæki og sælgæti
dreift úr flugvél svo eitthvað sé
nefnt.
Kvenfélag Garðabæjar verður
með kaffihlaðborð við Garðalund
kl. 15 og uppákomur við íþróttam-
iðstöðina verða milli kl. 16 og 17.
Þar verður Lúðrasveitin, dansatr-
iði, verðlaunaafhending, hæfi-
leikakeppni, fimleikar og Magnús
Scheving í hlutverki íþróttaálfs-
ins. Um kvöldið spilar diskótekið
Dísa fyrir kynslóðina í Garðalundi
frá kk 20.30 til 21.45 en þá tekur
Páll Óskar Hjálmtýsson við til kl.
22.30.
Flugvélasýning
í Mosfellsbæ
í Varmárlaug hefst kl. 10 sund-
mót á vegum sunddeildar UMFA
og kl. 11 er fjölskylduhlaup á
vegum frjálsíþróttardeildar
UMFA á Varmárvelli. Skrúð-
ganga verður farin frá íþróttahús-
inu í Álafosskvos kl. 13.30 og
fara skátar og skólahljómsveit
Mosfellsbæjar fýrir göngunni.
Skemmtidagskráin í Álafosskvo-
sinni hefst svo með hátíðarræðu
og afhendingu menningarverð-
launa. Karlakórinn Stefnir syngur
og leiktæki, barnatjald, andlits-
málun og fleira verður í boði. Á
Tungubökkum verða flugvélar og
flugstæðið til sýnis og möguleiki
á útsýnisflugi. Halli og Laddi
bregða á leik kl. 14.30 en kl. 15
mun Leikfélag Mosfellsbæjar
skemmta. Skátafélagið Mosverjar
og unglingadeild Kyndils verða
með leiki og leiktæki á svæðinu
og töframaður mætir á svæðið
kl. 15.30 og sýnir listir sínar.
Leiklistarklúbbur Varmárskóla
sýnir leikþátt kl. 16 og börn af
leikskólanum Hlaðhömrum koma
fram. Leikfélag Mosfellssveitar
skemmtir börnunum kl. 16.30 og
kl. 17 verður diskótekið Dísa með
barnadansleik. Unglingadansleik-
ur verður í Álafosskvosinni á milli
kl. 21 og 01 en þar munu hljóm-
sveitirnar Maus, Spitsign, Gimp
og Sól dögg koma fram.
Unglingahljómsveitir
í Hafnarfirði
Hátíðin í Hafnarfirði hefst kl.
8 með fánahyllingu og kl. 10
verður frjálsíþróttamót leikj a-
námskeiða á Hörðuvöllum. Á
sama tíma munu yngri flokkar
Hauka og FH í knattspyrnu
mætast á Víðistaðatúni. í Hellis-
gerði hefst helgistund kl. 13.15
og Lúðrasveit Hafnarfjarðar leik-
ur og Eldri Þrestir syngja. Að
lokinni helgistund verður lagt af
stað í skrúðgöngu að Víðistaðat-
úni þar sem fjölskylduhátíð hefst
kl. 14.30. Þar mun bæjarstjóri
og fjallkonan flytja ávörp sin og
barnaskemmtun verður í umsjón
Hafnarijarðarleikhússins Her-
móðar og Háðvarar.
Forseti íslands, hr. Ólafur
Ragnar Grímsson, mun leggja
hornstein að skátamiðstöðinni við
Víðistaðatún kl. 16 og kl. 17
hefst 17. júní mótið í handbolta
í íþróttahúsinu við Strandgötu.
Tónleikar á Thorsplani hefjast
kl. 17.30 með hafnfirskum ungl-
ingahljómsveitum. Á Thorsplani
byijar fjölskylduskemmtun kl.
20.30 með ávarpi nýstúdents en
m.a. munu Halli og Laddi,
íþróttaálfurinn, listhópur vinnu-
skólans og dansarar koma fram.
Páll Óskar, Milljónamæringarnir,
Bjarni Ara og Raggi Bjarna auk
hafnfirskra víkinga munu halda
uppi fjörinu. í Vitanum verða
gömlu dansarnir kl. 21.30 og í
Hafnarborg hefjast djasstónleik-
ar kl. 22. Dagskrárlok verða kl.
0.30.
Fjölskyldudansleikur í
Reykjanesbæ
í Njarðvík hefjast knattspyrnu-
leikur og púttmót kl. 10 og víða-
vangshlaup fyrir alla fjölskylduna
við Njarðvíkurvöll kl. 11. Hátíðar-
messur verða í Keflavíkurkirkju
og Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 12.30
og skrúðgöngur leggja af stað frá
báðum kirkjum kl. 13.20 í átt að
Skrúðgarðinum. Þar hefst hátíð-
ardagskráin kl. 14 með hátíðar-
ræðu og ávarpi fjallkonu. Valinn
verður listamaður Reykjanesbæj-
ar 1997 og Karlakór Keflavíkur
syngur. Einnig verður dans, Skari
skrípó sprellar og töfrar og
Kvennakór Suðurnesja syngur.
Magnús Scheving og félagar úr
Latabæ auk Páls Óskars verða á
staðnum. Á torginu við Tjarna-
götu hefst kvöldskemmtun kl. 20
með Léttsveit tónlistaskólanna en
efnilegir söngvarar byrja kl.
20.30. Pétur Pókus mætir kl. 21
og töfrar áhorfendur og þrír
Spaugstofubræður mæta kl.
21.45. Hljómsveitin Reggae on Ice
spilar á milli kl. 22.20 og 0.30.
í Stapanum verður fjölskyldu-
dansleikur frá kl. 20 til 23 með
hljómsveit Birgis Gunnlaugsson-
ar. í Selinu við Vallarbraut verður
kvöldskemmtun fyrir eldri borg-
ara frá kl. 20 til miðnættis.
Götubolti á Selfossi
Opið hús verður hjá Slökkvi-
stöðinni á Selfossi, Lögreglunni í
Árnessýslu og Björgunarsveitinni
Tryggva milli kl. 10 og 12. í hest-
húsahverfinu verður yngri kyn-
slóðinni boðið á hestbak milli kl.
10 og 12 en „ónytjurölt" hefst frá
Tryggvaskála kl. 10.
Helgistund hefst í Selfosskirkju
kl. 13 og messar sr. Þórir Jökull
Þorsteinsson og kirkjukórinn
syngur. Skrúðganga fer frá Sel-
fosskirkju kl. 13.30 og fara skátar
og hestamenn fýrir göngunni að
íþróttahúsinu. Hátíðardagskráin
hefst kl. 14 í íþróttahúsinu og
ávarpar fjallkonan samkomuna.
Einnig verður fánahylling, þol-
fimisýning, tískusýning og barna-
kórinn syngur. Við sundlaugina
hefst skemmtunin kl. 15 þar sem
nýtt útivistarsvæði verður tekið í
notkun með viðhöfn. Opna Foss-
nestismótið í götubolta hefst kl.
16 á plani Fjölbrautaskóla Suður-
lands. Á íþróttavellinum verður
sælgætisregn úr flugvél kl. 16.30,
ef veður leyfir, og á Bankavegi
verður farið í leiki kl. 17. Dans-
leikur í tjaldinu fyrir yngri kyn-
slóðina hefst kl. 17 með hljóm-
sveitunum Skítamóral og NN.
Menningardagskrá á Hótel Sel-
fossi hefst kl. 20.30 en þar koma
fram Karlakór Selfoss, Leikfélag
Selfoss og söngflokkurinn Leiðar-
ljósin. Harmoníkuball byrjar kl.
21 í Tryggvaskála og dansleikur
í tjaldinu með hljómsveitunum
Skítamóral og NN verður frá kl.
21 til 01.
Afmælisræða og dans-
kennsla á Egilsstöðum
Sala á gasblöðrum og öðru til-
heyrandi hefst við Hettuna kl. 12
og boðið verður upp á andlitsmál-
un. Skrúðganga verður farin frá
Hettunni kl. 13 og liggur leiðin
að hátíðarsvæðinu í Vémörk und-
ir leik lúðrasveitar og í fylgd
hestamannafélagsins Freyfaxa.
Hátíðarguðþjónusta hefst kl.
13.30 og messar sr. Vigfús Ing-
var Ingvarsson og Kirkjukór Eg-
ilsstaðakirkju syngur. Fjallkonan
heldur ræðu og leikþáttur frá leik-
félaginu verður sýndur. Báru-
kvartettinn og barnakórinn
skemmta gestum og haldinn verð-
ur sérstök afmælisræða bæjarins.
Boðið verður upp á ýmsar kaffi-
veitingar í Vémörk á milli kl. 15
og 17. og leikir og önnur skemmt-
un fyrir börnin verður á meðan.
Hátiðardansleikur verður í Vé-
mörk frá kl. 20 til miðnættis en
fram koma Shape, Harmoníkufé-
lagið og Fiðrildin og Eymundur
Hannesson kenna dans.
Söngvarakeppni á Isafirði
Messað verður í Ísafjarðar-
kirkju kl. 11 en kl. 13.20 verður
safnast saman á Silfurtorginu þar
sem lagt verður af stað í skrúð-
göngu kl. 13.50 að hátíðarsvæð-
inu við gamla sjúkrahúsið. Þar
verður hátíðin sett kl. 14 með
hátíðarræðu Úlfars Ágústssonar.
Sunnukórinn mun syngja og íjall-
konan ávarpar hátíðargesti. Sól-
arkvartettinn skemmtir og söngv-
arakeppni verður haldin auk afl-
raunasýningar, svampakasts,
kassabílasýningar, pokahlaups og
körfukeppni. A palli munu Sæ-
greifarnir spila og hljómsveitin
Woofer. Sýning Péturs Guð-
mundssonar í Fagranesi verður
frá kl. 16 til 22 og á boðstólum
verður þjóðhátíðarkaffi og með-
læti.
Akstur
SVR
17. júní
VAGNAR SVR aka eftir
tímaáætiun helgidaga þriðju-
daginn 17. júní þ.e. á 30.
mín. tíðni (sjá leiðabók) þó
þannig að aukavögnum verð-
ur bætt á leiðir eftir þörfum.
Frá kl. 13 þegar hátíðar-
höldin hefjast í Lækjartorgi
er breytt frá venjulegri akst-
ursleið vagnanna og nær
breytingin til þeirra leiða sem
aka um Lækjargötu.
Vagnar á leiðinni 2, 3, 4,
5 og 6 á vesturleið munu aka
um Hverfisgötu-Kalkofns-
veg-Geirsgötu, Pósthússtræti
og Tryggvagötu með við-
komu við austurenda Toll-
stöðvar. Á austurleið hafa
þessir vagnar viðkomu í
Hafnarstræti.
Vagnar munu aka á öllum
leiðum fram til kl. 1 nema
1, 5, 7 og 8. Þess má geta
að aukaferð er frá miðbæ kl.
1.30 á leiðum 110, 111, 112
og 115.