Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 2

Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tuttugu og þrjú mál enn óleyst hjá embætti ríkissáttasemjara Sáttamál til meðferðar hafa aldrei verið fleiri en nú í ár ENN eru óleyst 23 mál hjá ríkissáttasemjara en frá áramótum hefur aftur á móti verið geng- ið frá 62 kjarasamningum hjá ríkissáttasemjara í sáttamálum sem vísað hefur verið formlega til embættisins. Aldrei hafa fleiri mál verið til með- ferðar hjá sáttasemjara og á þessu ári en frá seinustu áramótum hefur 85 málum verið vísað til sáttameðferðar. Auk funda í þeim deilum sem vísað hefur verið til sáttasemjara hafa verið haldnir fjöl- margir fundir hjá embættinu í kjaradeilum sem ekki var vísað til sáttasemjara. Eru nokkrar þeirra enn óleystar og ekki útilokað að einhverj- um þeirra verði vísað til ríkissáttasemjara í sumar. Þórir Einarsson ríkissáttasemjari segir ýmsar ástæður fyrir því hversu mörg mál hafa komið inn á borð sáttasemjara frá áramótum en þá urðu kjarasamningar nær allra stéttarfélaga lausir. Mikill meirihluti félaga á almenna mark- aðinum og opinberra starfsmanna vísaði deilum sínum við viðsemjendur til sáttasemjara. Þórir sagði að þessu hefði fylgt aukið álag fyrir starfs- fólk, tekin hefðu verið upp breytt vinnubrögð til að geta ráðið við aukin verkefni og húsnæði sáttasemjara var stækkað. Búast má við erfiðum deilum á síðari hluta ársins Daglega eru haldnir sáttafundir í fjölmörgum deilum sem enn eru til meðferðar hjá sáttasemj- ara en samkvæmt upplýsingum Þóris er reiknað með að gert verði tveggja eða þriggja vikna hlé um miðjan júlí. Svo megi búast við nokkuð ströngum fundahöldum í erfiðum kjaradeilum síðar í sumar og í haust, s.s. vegna samninga sjómanna og útvegsmanna. Meðal mála sem óleyst eru er kjaradeila Fé- lags íslenskra náttúrufræðinga gegn ijármála- ráðherra fyrir hönd ríkisins, Sjómannasamband- ið gegn útvegsmönnum, Alþýðusamband Vest- fjarða vegna sjómanna gegn VSÍ fyrir hönd Utvegsmannafélags Vestfjarða, Röntgentækna- félag Íslands gegn fjármálaráðherra, Landssam- band lögreglumanna gegn fjármálaráðherra, Sjúkraliðafélag íslands gegn fjármálaráðherra. VMSÍ, Samiðn, verslunarmannafélögin og Dags- brún/Framsókn vegna starfsmanna hjá Pósti og síma, Félag íslenskra leikskólakennara gegn fjármálaráðherra, Reykjavíkurborg og Launa- nefnd sveitarfélaga, Félag íslenskra atvinnuflug- manna gegn Flugfélagi Islands, Verkalýðsfélag Húsavíkur vegna ófaglærðra starfsmanna á Sjúkrahúsi Húsavíkur og í gær var vísað til sáttasemjara kjaradeilu Iðjuþjálfafélags Íslands gegn fjármálaráðherra, Reykjavíkurborg og Reykjalundi. Verndun smáhumars fyrir Suðurlandi Togveiðar og drag- nótaveiðar bannaðar ALLAR togveiðar og dragnótaveið- ar hafa verið bannaðar á tímabilinu frá 1. júlí næstkomandi til 15. ág- úst á fjórum aðgreindum svæðum fyrir suðurströndinni samkvæmt reglugerð sjávarútvegsráðuneytis- ins sem gefin var út í gær. Til að vernda smáhumar gaf ráðuneytið út reglugerð 20. júní sl. þar sem bannaðar voru allar hum- ar- og dragnótaveiðar á þessum svæðum auk banns við humarveið- um austan Ingólfshöfða. Ráðuneyt- ið hefur aflað gagna um sókn skipa á umrædd svæði á tímabilinu 1. júlí til 15. ágúst í fyrra og þar kem- ur i ljós að mest aflast í dragnót á svæðunum en nokkuð í botnvörpu, en í hvorugt veiðarfærið er um mikið aflamark að ræða. Ráðuneyt- ið hefur því gefíð út reglugerð um bann við öllum togveiðum og drag- nótaveiðum á þessum svæðum. ■ Humarsvæðum/C5 Ákæra í stóra hassmálinu Morgunblaðið/Sigurgeir SÉÐ yfir réttina í Ystakletti og í baksýn sést yfir innsiglinguna til Eyja og til bæjarins. Rúið í Ystakletti Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. FRÍSTUNDABÆNDUR sem eiga fé sitt á beit í Ystakletti í Vest- mannaeyjum smöluðu og rúðu fé sitt einn góðviðrisdag fyrir skömmu. Tíu frístundabændur eiga féð í Ystakletti en alls eru um 70 rollur þar á beit. í Ystakletti er góður bithagi fyrir féð sem Iifir þar í sátt og samlyndi við lundann og aðra bjargfugla. Að sögn Agústs Hall- dórssonar, eins bændanna, gekk rúningin vel og hjálpuðust börn og fullorðnir að við verkið enda er rúningsferð í Klettinn eins- konar ævintýraferð fjölskyldna sumra frístundabændanna í leið- inni. EMBÆTTI ríkissaksóknara gaf í gær út ákæru á hendur fímm manns í tengslum við innflutning um 25 kílóa af hassi, um þriggja kílóa af amfetamíni og um 600 E-taflna. Um að minnsta kosti tvær smygl- ferðir er að ræða, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Um er að ræða hollenskan karl- mann og hollenska konu um fimm- tugt, íslenska konu sem talin er hafa haft samráð við Hollendingana um innflutninginn og tvo íslenska menn, sem taldir eru annars vegar hafa verið með í ráðum og hins vegar að hafa tengst málinu fyrst og fremst varðandi dreifingu hér- lendis. Afar umfangsmikið mál Fjögur þeirra sem málinu tengj- ast sitja í gæsluvarðhaldi og hafa gert um sex mánaða skeið, eða frá því hollenska parið var stöðvað á Keflavíkurflugvelli í desember með yfír 10 kíló af hassi í fórum sínum, auk annarra efna. Fimmti maðurinn hefur verið í farbanni að undan- förnu, og er búist við að gerð verði krafa um áframhaldandi farbann. Aðeins er talið að hluti eitur- lyfjanna hafi verið settur á markað, og er rætt um þriðjung amfetamíns- ins í því sambandi, fimmtung hass- ins og sjötta hluta E-taflnanna, en hins vegar er um afar mikið magn af fíkniefnum af ræða og miðað við það er málið eitt hið alvarlegasta sem upp hefur komið hérlendis. „Efnismagnið er mjög mikið og málið afar stórt á þann mæli- kvarða. Verði viðkomandi aðilar fundnir sekir, má búast við mjög þungum refsingum,“ segir Egill Stephensen, saksóknari hjá emb- ætti ríkissaksóknara. Framkvæmdir hafnar við vamargarða á Flateyri Morgunblaðið/Egill VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Klæðning hefur hafíð að nýju framkvæmdir við varnargarðana. Vegna nýafstaðinna verkfalla dróst úr hömlu að hefja framkvæmdir við garðana eins og áætlanir gerðu ráð fyrir í upphafi. Upphaflega áætlunin var miðuð við verklok í september en nú er fyrirsjáanlegt að svo verður ekki. Til stendur að vinna á vöktum allan sólar- hringinn i sumar og fram á haust til að ná settum markmiðum. Banaslys í Grindavík 44 ÁRA gamall Grindvíkingur lést í vinnuslysi í Grindavík í gærmorg-. un. Maðurinn var ásamt fieiri mönnum við steypuvinnu í viðbygg- ingu slökkvistöðvarinnar þegar hann varð undir steypukeri, sem verið var að hífa. Vír sem kerið hékk í slitnaði og féll kerið á mann- inn. Hann lést samstundis. Starfsmenn Vinnueftirlitsins könnuðu aðstæður á slysstað í gær- dag. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. -...—.♦ ♦----- EM í brids Sigur og tap í opn- umflokki Montecatini. Morgunblaðið. ÍSLENSKA liðið í opnum flokki á Evrópumótinu í brids tapaði í gær- kvöldi 13-17 fyrir Hollendingum en vann ísraelsmenn fyrr um daginn 18-12, auk þess að fá 18 stig fyrir yfírsetu. Eftir 25 umferðir af 35 eru ís- lendingar i 8. sæti með 451 stig en stutt er í 2. sæti þar sem Pólverj- ar eru með 463 stig; ítalir eru efst- ir með 478,5 stig. Norðmenn eru í 3. sæti með 457 stig, Danir og Spánveijar í 5.-6. sæti með 454, og Hollendingar í 7. sæti með 453.1 dag spila íslend- ingar við Dani og Spánveija. Kvennaliðinu gengur illa í kvennaflokki gengur íslenska liðinu illa og tapaði báðum leikjum sínum í gær, fyrir Finnlandi 13-17 og fyrir Þýskalandi 10-20. ísland er þar í 21. sæti en Bretar og Frakk- ar eru í efstu sætum. ítalir halda enn góðri forustu þrátt fyrir nokkuð erfíðan kafla um miðbik mótsins. Þá voru þeir m.a. heppnir með að ná jafntefli við ná- granna sína frá San Marínó, en það er raunar ekki ný saga á Evrópu- mótum. ■ Hnífjafnt/12 ....---------- Maðurinn sem fórst MAÐURINN sem lést þegar ekið var á hann á horni Rauðarárstígs og Hverfisgötu á mánudag, hét Þorgeir Kr. Magnússon. Þorgeir heitinn var fæddur árið 1929, og hefði því orðið 68 ára á þessu ári. Hann var búsettur á Skúlagötu 76 í Reykjavík. MEÐ blaðinu í dag fylgir tólf síðna auglýsingablað frá Kringlunni. Blaðinu er nú dreift á höfuðborgarsvæðinu en var dreift á landsbyggðinni síðastliðinn laugardag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.