Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1997 5
FRETTIR
Eftirlit með ástandi landgræðsluskóga
Afföll plantna
lengi að koma fram
SÍÐASTLIÐIÐ haust var kannað
ástand gróðursetningar frá 1991 og
1992 á níu landgræðsluskógarsvæð-
um víða um land. Um 3.600 plöntur
hafa verið undir reglulegu eftirliti
frá gróðursetningu og rannsóknir
sýndu að rúmlega 60% plantnanna
voru enn lifandi haustið 1996 sem
er allmikil rýrnun frá haustinu 1993
þegar yfir 80% plantnanna voru lif-
andi. Afföll plantna virðast því koma
fram á lengri tíma en áður hefur
verið haldið. Meginafföll plantna
verða vegna frostbreytinga í jarð-
vegi.
Asa L. Aradóttir og Járngerður
Grétarsdóttir, sérfræðingar hjá
Rannsóknarstöð Skógræktar ríkis-
ins á Mógilsá, gerðu úttektina. Að
sögn Járngerðar komu þau viðbótar-
afföll, sem nú hafa orðið, talsvert á
óvart. Þær plöntur sem afskrifaðar
voru nú hafí þó flestar verið orðnar
lélegar við úttekt 1993 auk þess sem
hafa beri í huga að gróðursetning
fór fram í lítt grónu landi svo að
heildarafföllin þurfi ekki endilega
að teljast mikil. Eftirlifandi plöntur
reyndust vel á sig komnar, um 70%
þeirra höfðu vaxið frá síðustu úttekt
og tæp 30% höfðu tvöfaldað hæð
sína.
Birkiplöntur
stóðu sig best
Mikill munur var á afföllum og
lífsþrótti plantnanna eftir tegundum
og þeim svæðum sem plantað var
á. Að meðaltali voru 71% birkis, 63%
furu en aðeins 46% lerkis lifandi
haustið 1996. Meðalafföll lerkisins
voru um 30% árið 1993 en eru nú
orðin 56%. „Það voru svæði á Suður-
landi þar sem eiginlega allt lerkið
var dautt en það kom betur út á
Norðurlandi. Birkið kom best út yfir
heildina og það má segja að áburð-
argjöfin hafi haft þar mikið að
segja,“ segir Járngerður. Þær birki-
plöntur báru af sem fengu búfjár-
áburð við gróðursetningu. Birkip-
löntur virðast því duga vel í land-
græðsluskógrækt en furan á betur
við í grónu landi. Sums staðar á
landinu hefur góð reynsla verið af
lerkiplöntum í lítt grónu landi eri svo
Gatnaframkvæmd-
ir í Kópavogi
Alfhólsveg-
ur lokaður
til hausts
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir
við endurgerð Álfhólsvegar og
Bröttubrekku, frá Laufbrekku suð-
ur að Víghólastíg, í Kópavogi. Verk-
ið er unnið í áföngum og mun að
mestu leyti verða lokið 1. nóvember
nk., en framkvæmdum við Bröttu-
brekku frá Álfhólsvegi að Lauf-
brekku lýkur ekki fyrr en 1. júní á
næsta ári.
Verkið er unnið á vegum Kópa-
vogsbæjar, en að því koma einnig
Hitaveita Reykjavíkur og Raf-
magnsveita Reykjavíkur auk Pósts
og síma. Að sögn Þórarins Hjalta-
sonar, bæjarverkfræðings, verður
skipt um jarðveg og lagnir í götun-
um og þær malbikaðar en vinna við
heimæðar veitustofnana er unnin
samhliða vinnu við götulagnir.
Mikil umferð er jafnan um Álf-
hólsveginn og mun hún nú beinast
tímabundið um Nýbýlaveg og
Digranesveg, en Þórarinn segir
sennilegt að göturnar muni verða
opnaðar aftur fyrir umferð í áföng-
um frá 1. september nk.
virðist sem lerkið henti ekki hvaða
landsvæði sem er.
Áburðargjöf hefur
mikið að segja
Járngerður segir að mismunandi
aðferðir séu notaðar við gróðursetn-
ingu á þessum svæðum. „Sumir nota
þá aðferð að gróðursetja mikið og
er lítið borið á en á öðrum stöðum
er betur hlúð að plöntunum. Þegar
fram líða stundir getur árangurinn
verið sá sami,“ segir Járngerður.
Fjöldi gróðursettra plantna er því
ekki aðalatriðið.
Áburðargjöf virtist skipta miklu
máli og bar búfjáráburður þar af.
Var þannig mögulegt að koma í veg
fyrir frostlyftingu með því að blanda
búfjáráburði í holu við gróðursetn-
ingu. Járngerður segir vönduð
vinnubrögð við gróðursetningu
skipta miklu máli fyrir árangur.
Mikilvægt er, ef gróðursett er með
plöntustaf, að þrýsta plöntunni vel
ofan í holuna. Með því að vanda
þannig gróðursetninguna má kom-
ast hjá óþarfa afföllum. Einnig þarf
að athuga að gróðursetja ekki of
þétt.
Morgunblaðið/Ásdís
BIRKI plantað í skjóli lúpínunnar á Hólasandi.
HELLMANN’S
>W F*T IflAIONES
ftl
: i .
Hellmann's Low Fat mvai
viðbiftió sem fáanle^t er á Islandi.
Það innilieldur en^a meftftaða fiftu o«£ ev
at^pörlo^a lausft s'iö Ltólosftoról.
" '11
■
Imailialcl míðað ríð lOO Fita Hitaein. Hitaein. frá fitu Mettuðfita
Smjörvi 81,5g 738 99,39% 45,5g
Létt og Laggott 40g 394 91,37% 22g
Sólblóma 65 65g 593 98,65% I7g
Klípa 27g 295 82,37% 16g
Létta 40g 373 96,51% 8g
Létt Sólblóma 40g 373 96,51% 7g
I4F
KARL K. KARLSSON EHR