Morgunblaðið - 25.06.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 9
FRÉTTIR
Afkomendarannsókn Hjartaverndar
Stærsta erfðarann-
sóknin til þessa
HJÁ Hjartavernd er að hefjast
erfðarannsókn á hjarta- og æða-
sjúkdómum. Afkomendur 5.000
einstaklinga sem tekið hafa þátt í
hóprannsókn Hjartaverndar síðast-
liðin 30 ár og fengu kransæðastífiu
eru rannsakaðir auk 3.000 afkom-
enda þeirra sem tóku þátt í sömu
rannsókn en fengu ekki sjúkdóm-
inn. Rannsókninni er ætlað að varpa
ljósi á þátt erfða í orsökum krans-
æðasjúkdóma.
Undirbúningur rannsóknarinnar
hefur staðið í nokkur ár og mun
rannsóknin sjálf standa yfir næstu
3 árin. Uggi Agnarsson, starfandi
yfirlæknir rannsóknarstöðvar
Hjartaverndar, segir svo viðamikla
erfðarannsókn ekki jiafa verið
gerða áður hérlendis. ísland henti
einkar vel til erfðarannsókna þar
sem góðar upplýsingar liggja fyrir
um einstaklinga í þjóðskrá og auð-
velt er að fylgjast með heilsufari
fólks. „Það sýnir sig einnig að þó
íslendingar séu mikið á faraldsfæti
þá koma þeir flestir aftur heim að
lokum,“ segir Uggi.
Rannsóknarstöð Hjartaverndar
hefur frá árinu 1967 unnið að
áfangaskiptum hóprannsóknum á
kransæðasjúkdómum hjá körlum og
konum. Afkomendur þeirra sem
greindust með kransæðasjúkdóma
á tímabilinu eru beðnir um að taka
þátt í rannsókn sem ætlað er að
varpa ljósi á erfðaþætti kransæða-
stíflu og til viðmiðunar er fenginn
hópur afkomenda þeirra sem ekki
fengu sjúkdóminn svo vitað sé.
Samfara erfðarannsókninni verður
gerð könnun á mataræði og neyslu-
venjum þátttakenda í samráði við
Manneldisráð. Sú könnun verður
mikilvæg heimild um mataræði ís-
lendinga í lok 20. aldar.
Gagnaöflun til
framtíðarrannsókna
„Með rannsókninni fáum við
blóðsýni til erfðarannsókna og mun
hluti rannsóknarinnar fara fram nú
en við munum einnig frysta blóð-
sýni til frekari rannsókna síðar, því
í framtíðinni kunna að vera mælan-
legir þættir sem við þekkjum ekki
í dag. Rannsóknin á því eftir að
nýtast okkur í langan tíma og hún
á eftir að vera grunnur að fjölmörg-
um rannsóknum líkt og fyrri hóp-
rannsóknir hafa verið,“ segir Uggi.
Um áhrif erfðaþátta á orsakir
kransæðastíflu er lítið vitað. „Það
gerir rannsóknina spennandi því
við erum viss um að erfðaþátturinn
er sterkur. Vitað er að hár blóð-
þrýstingur erfist en okkur er ekki
kunnugt um ákveðin gen sem valda
kransæðasjúkdómi þó að við vitum
um gen sem stjórna blóðfitunum
og geti með því móti valdið krans-
æðasjúkdómum," segir Uggi. „Við
veltum því einnig fyrir okkur
hvernig standi á því að sumt fólk
sem lifir heilbrigðu og hollu lífi
skuli engu að síður fá kransæða-
stíflu. Ef til vill fást hér einhver
svör.“
Flytur inn
hundrað
tonn
af furu
Flateyri. Morgunblaðið
TRESMIÐJA Sævars I. Péturs-
sonar á Flateyri tók nýlega á
móti 100 tonnum af furubolum
frá Eistlandi, en þeir komu
hingað til lands með flutninga-
skipi.
Að sögn Sævars er tilgangur-
inn með þessum innflutningi
tvíþættur, annarsvegar sá að
nýta afkastagetu sögunarmyllu
sem fyrirtækið keypti fyrir
skemmstu, og hinsvegar að
nýta bolina í byggingartimbur
og smíðavið. Erfitt hafi verið
um vik að sækja jafnmikið
magn af viði á heimamarkað.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Cara — Kringlukast
Konur ath! Eftirmiðdagskjólar sem má þvo. Verð frá kr. 6.500.
TÍSKUVERSLUN
Kringlunni Sími: 553 3300
Morgunblaðið/Árni Ámason.
ÓSK Hilmarsdóttir er fyrsti þátttakandinn í afkomendarannsókn
Hjartaverndar. Tekur hún við blómum af Ugga Agnarssyni yfirlækni.
6 metra stðng
vegur aðeins 23kg
Heit-galvanhúðaðar
festingar ryðga ekki
Sökkullinn
vegur 140kg
FORMENTA
glertrefja fánastöng
(6,7 eða 8 metra)
Stöngin er fellanleg
(3 boltar)
6 metra stöng,
íslenski fáninn og
forsteyptur sökkuli:
32.900-
Allar festingar
og fylgihlutir fylgja.
!
Engin steypuvinna á staðnum, einföld og fljótleg uppsetning!
Nú fást forsteyptir
sökklar á Formenta
fánastangimar.
Nú getur nánast hver sem er sett upp Formenta fánstöng, því nú getum við
boðið forsteyptan sökkul sem auðvelt er að koma fyrir. Engin steypuvinna,
aðeins þarf að grafa fyrir sökklinum og fylgja leiðbeiningum um frostfritt efni
til fyllingar að sökklinum. Einfalt og fljótlegt.
Sökkullinn er sívalingur 30sm í þvermál og 80sm á hæð, þyngdin er 140kg.
Láttu ekki uppsetninguna vaxa þér i augum, með forsteyptum
sökkli verður uppsetningin bæði ódýr og fljótleg.
Grandagarði 2, Rvik, sími 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugard. 10-14
ENDURSKIPULAGNING SPARISKÍRTEiNA RÍKISSJDÐS
TILKYNNING TIL ÞEIRRA SEM EIGA SPARISKIRTEINI
í GULU DG RAUÐU FLOKKUNUM
Þeir sem enn eiga eftir að skipta gömlu spariskírteinunum yfir í markflokka eru hvattir til
að gera það sem fyrst og tryggja sér þannig markflokka til 5 eða 8 ára á markaðskjörum.
Nú þegar hafa fjöimargir skipt yfir í markflokka í tengslum við endurskipulagningu spariskírteina
sem kynnt hefur verið að undanförnu.
MARKFLOKKAR njóta daglegrar viðskiptavaktar, sem
tryggir bestu fáanlegu markaðskjör fyrir kaupendur
og seljendur skírteinanna á hverjum tíma.
Hér til hliðar er tafla yfir hluta þeirra flokka
spariskírteina, sem nú eru til endurfjármögnunar
í markflokka, en þessir flokkar koma til lokainnlausnar
á næstu mánuðum.
Komdu meö gömlu skírteinin til Lánasýslu ríkisins
og við aðstoðum þig við skiptin. Það borgar sig að
skipta strax yfir í MARKFLOKKA.
Eftirfarandi gulir og rauðir flokkar spariskírteina
koma til lokainnlausnar á næstu mánuðum:
Lokagjalddagi Flokkur
1 12.05.1997 SP1984 III
ÉM| 01.07.1997 SP1986 II4A
10. 07. 1997 SP1989 II8D
10. 07. 1997 SP1985 IA
10. 07. 1997 SP1985 IB
10. 07. 1997 SP1986 I3A
10. 07. 1997 SP1987 I2A
10. 07. 1997 SP1987 I4A
10. 09. 1997 SP1977 II
10. 10. 1997 SP1987 1I6A
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ÁSKRIFT