Morgunblaðið - 25.06.1997, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1997 45
I DAG
Arnað heilla
/?/'iÁRA afmæli. í dag,
OUmiðvikudaginn 25.
júní, verður sextugur Sig-
fús Thorarensen, verk-
fræðingur. Hann og kona
hans Hjördís Þorsteins-
dóttir taka á móti gestum
á heimili sínu, Markarflöt
16, Garðabæ, frá kl. 17 til
20 í dag, afmælisdaginn.
BBIDS
Umsjón Guómundur Páll
Arnarson
UTSPILIN hafa verið í
sviðsljósinu undanfarið, en
það er sá angi spilsins sem
menn læra seint til hlítar.
Hins vegar er farsælt að
hafa einhveijar þumalfing-
ursreglur að styðjast við.
Ein er sú að leita ætíð að
tilgangi með útspili. Önnur
farsæl regia er að „hafa
það sem einfaldara reyn-
ist“. Með öðrum orðum,
vera ekki að flækja málin
óþarflega. Þetta verður síð-
asta þrautin frá æfingamóti
Norðurlandanna:
(7) Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♦ 63
V 98642
♦ KD962
♦ K
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass Pass
2 grönd Pass 3 lauf Pass
3 hjörtu Pass 3 grönd Pass
Pass Pass
Vestur sýnir 20-22
punkta og fjórlit í hjarta, en
makker hans virðist eiga
spaðalit. Hvert er útspilið?
í þetta sinn er liturinn
ekkert vandamál. Það er
sjálfsagt að koma út með
tígul. En hvort á að spila
litlum tígli eða mannspili?
Hver væri tilgangurinn
með því að spila út kóng eða
drottningu? Augljóslega sá,
að negla niður gosa annan
í blindum eða á hendi sagn-
hafa. Makker þarf þá að eiga
tíuna þriðju a.m.k., og síðan
þarf norður að komast inn
á laufkóng.
En er einhver hætta því
samfara að byija á hátígli?
Svo sannarlega. Liturinn
gæti hæglega stíflast ef
makker á gosa annan, eða,
sem verra er...
Norður
♦ 63
▼ 98642
♦ KD962
♦ K
Vestur
♦ ÁKD
V ÁK107
♦ 743
♦ Á105
Austur
♦ G9872
* G3
♦ G105
* DG7
Suður
+ 1054
V D5
♦ Á8
♦ 986432
... ásinn annan! Svona
var spilið í reynd, og eins
og nærri má geta, vakti það
enga kátínu í bijósti suðurs
að sjá tígulkónginn koma
út. Hann lét lítinn tígul og
fékk næsta slag á ásinn.
Skipti svo yflr í smátt lauf.
Sagnhafi ætlaði ekki að
leggja allt undir svo snemma
spils og stakk upp ás!
pT /AÁRA afmæli. Fimm-
l) V/tug er í dag, miðviku-
daginn 25. júní Hrafnhild-
ur Saniúelsdóttir, Hlé-
gerði 1, Hnífsdal. Eigin-
maður hennar er Jósef
Vernharðsson. Þau hjónin
taka á móti gestum laugar-
daginn 28. júní á heimili
sínu, frá kl. 17 til 20.
P AÁRA afmæli. í dag,
tívrmiðvikudaginn 25.
júní, er fimmtug Rósa
Vestfjörð Guðmundsdótt-
ir, framkvæmdasljóri,
Langholti 31, Akureyri.
Hún og eiginmaður hennar
Kári Þórðarson, eiga og
reka Prentsmiðjuna Ás-
prent/POB ásamt sonum
sínum. Þau verða að heim-
an á afmælisdaginn.
GULLBRÚÐKAUP. Sólveig Eggerz Pétursdóttir og
Árni Jónsson, Breiðvangi 13, Hafnarfirði áttu fimm-
tíu ára brúðkaupsafmæli laugardaginn 21. júní. Þau
vonast til að sjá sem flesta vini og vandamenn í kaffí-
sopa í Oddfellowhúsinu, á morgun, fimmtudaginn 26.
júní kl. 20.
Hlutavelta
ÞESSAR ungu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu við
Hrísalund á Akureyri og söfnuðu 1.282 krónur sem
þær færðu Rauða krossinum. Þær heita Lilja Sif
Þórisdóttir og Hildur Sara Steinarsdóttir.
Með morgunkaffinu
Ast er...
jCi/lAO 4-5
að taka tileftirsig.
TM Reg. U.S. Pat Ofl. — all rlghis roserved
(c) 1997 Los Angalos Times Syndicale
SJÁÐU hvað ég bjó til.
ÞETTA var fínt. Nú
skaltu prófa án hjálpar-
dekkjanna.
STJ ÖRNUSPA
cítir Frances Drakc
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert iaginn við að laða
fram það besta í fólki, sérð
fieiri en eina hlið á málum
og ert sáttasemjari.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl) fl*
Þú þarft á einveru að halda
í dag og ættir að halda þig
fjarri ástvini þínum. Þið get-
ið hist í kvöid.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að byija daginn
snemma, ef vel á að ganga
í dag. Gefðu þér líka tíma
til að sinna fjölskyldunni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kemur heilmiklu í verk í
dag. Leggðu áherslu á að
styrkja Ijölskylduböndin.
Krabbi
(21. júnl — 22. júlí) HI8
Þú ert uppnuminn af list
þessa dagana og þarft að fá
útrás, hvað það varðar. Ein-
hver ágreiningur gæti komið
upp milii hjóna um hvemig
kvöldinu sé best varið.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þú getur þakkað ákveðinni
persónu það, að þú hefur
eignast nýtt áhugamái. Vertu
samt viss um að þetta sé það
sem þú vilt. Að vekja falskar
vonir, er ekki af hinu góða.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Hugsaðu þig vel um, áður en
þú hellir þér út í fjárhagslegt
fyrirtæki. Vinur þinn gæti
gefið góð ráð. í kvöld skaltu
ekki segja neitt vanhugsað.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Nú ættirðu að gefa þér tíma,
í einveru og hugleiða á sjálf-
an þig. Það hjálpar þér til
að taka ákvörðun sem þú
þarft að taka. Láttu ekkert
trufla þig.
Sporódreki
(23.okt. - 21. nóvember)
Eitthvað gæti komið upp í
dag, sem truflar annars gott
samstarf milli þín og félaga
þíns, svo þið þurfið að ræða
málið í hreinskilni.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú ættir að eiga frumkvæði
að því að hafa samband við
fólk, sem þú hefur ekki
heyrt, né séð, lengi. Þú verð-
ur ekki fyrir vonbrigðum, því
þú færð góðar fréttir.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Þó allt virðist ganga þér í
haginn, ertu eitthvað óánægð-
ur. Kannski er svarið að fmna
hjá fjölskyldunni, sem þú hef-
ur vanrækt að undanfömu.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar)
Þolinmæði þín er á þrotum
svo þú ættir að taka þér hvíld
um tíma til að safna kröftum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert uppfullur af hug-
myndum um hvernig pening-
unum sé best varið, en ekki
eru þær allar skynsamlegar.
Leitaðu til ráðgjafa.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár a f þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hvernig bíl
mundir þú fá þér
ef þú ynnir rúmlega
44 milljónir í
Víkingalottóinu?
ATH! Adeins 20 kr. röðin
V I K I N G A
L#TT#
Til mikils að vinna!
1106511
QJALDFRJÁtST ÞJÓNUSTUNÚMER
Alla miðvikudaga
fyrir kl. 16.00.