Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 48
18 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
JL
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó GrOtt Tí ÍÓ
FYRSTA STORMYND ARSINS
Bruce Willis - Gary Oldman
Milla Jovovich
A
★ ★ ★
★ ★ ★
leikstjóriTluc BESSOIU
PIERCE BROSNAN
LINDA HAMILTON
★ ★★
OHT Rás2
lílllLT
íiLllLL
Sýnd kl. 6.50, 9 og 11.15. B. i. 12 ára.
Myndin er byggö á sönnum atburðum í lífi rithöfundarins Ernest Hemingway
sem leiddi til þess aö hann skrifaði hina frægu skáldsögu Vopnin kvödd.
Leikstjórn: Richard Attenborough
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9.05 og 11.15.
je rgsi r"*| ■
Die Hard framtíðarinnar. Hörku spennandi mynd um
leigubílstjóra í New York árið 2300 sem fyrir tilviljun
kemst að því að jörðinni er ógnað af ókunnu afli utan
úr geimnum. Til þess að bjarga jörðinni verður hann að
finna fimmta frumefnið.
Búningar: Jean-Paul Gaultier, tónlist Eric Sierra.
Leikstjóri: Luc Besson.
íslensk heimasíða:
xnet.is/5thelement
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11.30. B. i. 10 ára
UNDIR'DJ'ÚP^mmS
D ra g ð u?á§M«n ;djúpt
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Enn ein perla í
L festl lslens*<rar
/jgjjr , náttúru.
*<‘l>SkÞingvallavatn,
Geysir Gullfoss
f • og Mývatn.
Náttúra íslands
, frá alveg nýju
sjónarhorni
Sýnd kl. 5.30. Enskt tal, ótextaö.
ÁTT ÞÚ
AÐ SJÁ K
L
Sýnd kl. 7, 9 og 11. Síðustu sýningar
T H
T I-T
E LIC H E LIC
Jamiroquai í
garðinum
Jam In The Park nefndust stórtónleikar sem
Jamiroquai hélt nýlega úti undir berum himni
í Finsbury Park í London. Ragga and The
Jack Magic Orchestra voru meðal 14 hljóm-
sveita sem komu fram á þessum tónleikum.
Dagur Gunnarsson var í garðinum og
fylgdist með því sem fram fór.
ÞEGAR nær dró Finsbury í norður-
hluta London, fór að bera á fólks-
fjöldanum. Allir streymdu í sömu
áttina og smám saman átti maður
ekki annarra kosta völ en að fylgja
mannþrönginni og straumnum inn
á tónleikasvæðið. Hér er fólk
greinilega vant útihátíðum og blíð-
viðri því margir höfðu nefnilega
rænu á að mæta snemma með nest-
iskörfuna og eitthvað til að sitja
á. Þrjátíu þúsund manns komu til
að sjá Jamiroquai og gestahljóm-
sveitir hans. Samkvæmt aðstand-
endum tónleianna voru það fimm
þúsundum umfram það sem þeir
höfðu ætlað svæðinu að þola.
Mannþröngin var náttúrulega mik-
il, en skipulagningin var það góð
að maður þurfti aldrei að standa
lengi í biðröðum, það var gnægð
af sölutjöldum bæði með drykk,
mat, húðflúrun og líkamsgötun,
meira að segja hið eilífa kamra-
vandamál virtist vera í lágmarki.
Tónleikaveislan bytjaði rétt eftir
hádegi og stóð fram undir mið-
nætti. Boðið var upp á fjöldan allan
af gómsætum tónlistarréttum á
tveimur sviðum, á meðal þeirra sem
fram komu voru Neneh Cherry hin
sænska, Erykha Badu, Damage,
Finley Quaye, Morcheeba og Faith-
less til að nefna nokkra fyrir nú
utan sjálfan Jamiroquai og landa
okkar í Ragga and the Jack Magic
Orchestra.
„Þetta var sannarlega sólríkur
sunnudagur og vissulega lang fjöl-
mennustu tónleikar sem við höfum
leikið á. Það var bæði heiður og
ánægja að fá að slást í hóp með
þeim mörgu áhugaverðu tónlistar-
mönnum sem þarna komu fram,“
sagði Jakob Frímann Magnússon
daginn eftir tónleikana. Hann lét
almennt vel af uppákomunni og
sagði að næsti stórviðburður hjá
þeim í JMO yrði að koma fram á
Glastonbury-hátíðinni í lok júní.
Þeim var að sjálfsögðu vel tekið
af áhorfendum og var ekki hægt
að sjá annað en að þau kynnu tök-
in á Bretunum sem dilluðu sér í
takt við kraftmikla rödd Ragnhild-
ar.
Þeir sem komu mest á óvart í
Finsbury Park voru að mínu mati
hljómsveitirnar Finley Quaye og
Faithless. Finley þessi er víst
Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson
BRETARNIR dilluðu sér í takt við kraftmikla rödd Ragnhildar.
frændi Tricky og sýndi hann af sér
góðan þokka á sviði, það var sterk-
ur reggíhljómur í tónlistinni þeirra
og minnti mig dulítið á sveifluna
og kímnigáfuna í músíkinni hjá
Fine Young Cannibals heitnum,
kannski líka af því að Roland Gift
og Finley Quaye hafa svipaðan
hreim og söngstíl. Ég náði bara
rétt í lokin á Faithless, maður þurfti
að hafa sig allan við, hlaupandi á
milli sviðanna til að ná í bestu bit-
ana á dagskránni. Faithless er stór
grúppa sem virðist vera svipað
uppbyggð og GusGus, þ.e. einskon-
ar regnhlífasamtök þar sem margir
listamenn leggja sitt af mörkum
undir einu nafni. Þar voru góðir
söngvarar á ferð og tónlistin létt
og fjörug, maður fann hvað stuðið
og spilagleðin var mikil en samt
alltaf innan ramma atvinnu-
mennskunnar.
Það trylltist náttúrulega allt þeg-
ar Jamiroquai stormaði inn á svið-
ið, síðast á dagskránni, og þegar
söngvarinn tilkynnti að hann til-
einkaði næsta lag (Space Cowboy)
lögleiðingu kannabisefna ætlaði
allt um koll að keyra og áhorfend-
ur flautuðu, hrópuðu og klöppuðu
eins og þeir ættu líf sitt að leysa.
Dagur Gunnarsson
DAGINN eftir þáttinn hjá
Dave Letterman: Farrah
Fawcett leit út fyrir að
hafa ekki jafnað sig.
Fawcett
snýst til
varnar
►FARRAH Fawcett olli
áhorfendum vonbrigðum
þegar hún kom fram í þætti
Daves Lettermans á dögun-
um. Leikkonan virtist vera
undir miklu álagi og átti
erfitt með að segja frá. Lett-
erman varð einu sinni að
bera í bætifláka fyrir hana
og segja áhorfendum að hún
hefði þurft að flýta sér mjög
að komast á staðinn. Getum
var leitt að því að leikkonan
væri undir áhrifum áfengis
eða lyfja en Farrah Fawcett
vísaði því á bug.
Nú eru þrír mánuðir síðan
Farrah skildi við Ryan
O’Neal en þau höfðu verið
gift í sautján ár. Því hefur
verið haldið fram að leik-
konan sé að kikna undan
álagi í kjölfar skilnaðarins
en því hefur hún neitað.