Morgunblaðið - 02.07.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samtök sérkennarafélaga á Norðurlöndum
Samnorræn
ráðstefna á
Laugarvatni
Selfossi - Morgunblaðið
SAMTÖK sérkennarafélaga á Norð-
urlöndum héldu 24. ráðstefnu sína
dagana 25.-28.júní síðastliðinn.
Ráðstefnan fór fram á Hótel Eddu,
Laugarvatni. Yfirskrift ráðstefnunn-
ar var „Höfum gengið til góðs..
Fjöldi fyrirlestra
Fyrirlesarar fjölluðu í erindum sín-
um um áhugaverðar rannsóknir á
stöðu sérkennslumála í dag. Helstu
fyrirlesarar voru Kristín Aðalsteinss-
dóttir sem talaði um sameiginlega
hugmyndafræði á Norðurlöndum
sem sker sig frá öðrum Evrópulönd-
um, Henning Johansson gerði grein
fyrir hvað rannsóknaraðilar við Há-
skólann í Luleá hafa lært af reynsl-
unni undanfarin ár. Sören Langager
fjallaði um sérkennslu í ljósi siðfræð-
innar, Ole Gustafsson sagði frá
reynslu Finna af flutningi grunnskól-
ans frá ríki til sveitarfélaga og
Malfrid Hatteland lýsti fyrirkomulagi
á ráðgjafaþjónustu í dreifðum byggð-
um Norður-Noregs.
Fjöldi þátttakenda
Þátttakendur á ráðstefnunni voru
150 og komu þeir frá öllum Norður-
löndunum. Ráðstefnur sem þessar
ANNA Kristín Sigurðardóttir,
formaður Félags íslenskra sér-
kennara, setur ráðstefnuna.
eru haldnar þriðja hvert ár, til skipt-
is á Norðurlöndunum. Að þessu sinni
var hún skipulögð af Félagi íslenskra
sérkennara sem farið hefur með for-
mennsku í samtökum sérkennarafé-
laga undanfarin ár.
islll
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
FJÖLDI fólks frá öllum Norðurlöndum sótti ráðstefnu Samtaka
sérkennarafélaga á Norðurlöndum sem fram fór
á Laugarvatni um seinustu helgi.
Tökum á kvikmyndinni Perlur og svín lauk í gær
Morgunblaðið/Þorkell
OSKAR Jónasson, leikstjóri, innan um sætabrauðið í bakaríinu.
ÓLAFUR Darri Ólafsson þreytir frumraun sína á hvíta tjaldinu.
Ef hálf þjóðin
mætir á ég fyrir
salti í grautinn
„PERLUR og svín er gamanmynd
um bakarahjón sem gera allt vit-
laust í Þingholtunum," segir Óskar
Jónasson, leikstjóri myndarinnar,
en tökum á henni lauk í gær.
„Astæðan er fyrst og fremst sú
að þau undirbjóða pylsubrauða-
markaðinn þannig að stóru færi-
bandabakaríin hrynja yfir sig eins
og tonn af gijóti.“
Eftir að hugsað sig um stund-
arkorn bætir hann við: „Þetta end-
ar allt með ósköpum."
Sviti, skítugt deig og köngulær
Undirbúningsvinna hefur tekið
mörg ár, að sögn Óskars, og hófst
spunavinna með leikurunum fyrir
þremur árum. „Við bjuggum til
persónur sem voru að fást við
hitt o g þetta,“ segir hann.
„Þær voru að baka pizzur,
braska með hjálpartæki ástarlífs-
ins og ein vitleysan var að kaupa
bakarí. Þessi atriði nýttust mér
ágætlega við handritsskrifin, þótt
margt dytti út — stundum heilar
persónur."
Viðtalið fer fram í leikmynd-
inni, sem blaðamanni skilst að
eigi að vera bakarí á horni
Frakkastígs og Grettisgötu. „Þar
er framhliðin og afgreiðslan.
Þetta eru innviðirnir sem enginn
fær að skoða; hiti, sviti, ryk, skít-
ugt deig og kóngulær. Allt það
sem fólk veit ekki að á sér stað
áður en það kaupir brauðið."
Dýrt tómstundagaman
Kvikmyndin gerist á tveimur
árstímum og hófust tökur því í
vetur og héldu áfram í vor. Kostn-
aður er áætlaður um 50 til 60
milljónir króna, að sögn Óskars.
„Maður er ekki ennþá farinn að
sjá fram á nein laun fyrir þessa
vinnu,“ segir hann.
„Þetta verður aldrei meira en
dýrt tómstundagaman fyrir þann
sem skrifar, leikstýrir og stendur
í þessu stappi frá upphafi til enda.
Það er raunin með kvikmyndagerð
á íslandi." En hvað þarf til að
endar nái saman? „Ef hálf þjóðin
lætur sjá sig á ég fyrir salti í graut-
inn,“ svarar Óskar og brosir.
Stefnt er að því að myndin verði
tilbúin í haust og frumsýnd
snemma í október. Verður þetta
þá jólamyndin í ár, spyr blaðamað-
ur. „Vonandi páskamyndin líka,“
segir Óskar og hlær. „Ætli þetta
verði ekki bara aldamótamynd-
in ..."
Lifandi og skemmtilegt
Ólafur Darri Ólafsson er 24
ára, á 4. ári í leiklistarskóianum
og fer með stórt hlutverk í Perl-
um og svínum. „Yfirleitt þarf ég
að lesa handrit nokkrum sinnum
til þess að njóta þess, en við frum-
lestur þessa handrits gat ég oft
ekki annað en skellt upp úr. Það
er dæmigert fyrir skopskyn Ósk-
ars Jónassonar; lifandi og
skemmtilegt.“
Ólafur Darri leikur Bjartmar
Finnbogason, sem er sonur bak-
arahjónanna. „Eg verð bakara-
drengur eins og Gísli Alfreðsson
forðum," segir hann brosandi. Að-
spurður um hvort bakaradrengur-
inn lendi i skemmtilegum uppá-
komum verður Ólafur Darri vand-
ræðalegur á svip. „Nú veit ég ekki
hvað ég má segja,“ dæsir hann.
Hlýtur að vera drepfyndin
„Bjartmar lendir í því að horfa
upp á foreldra sína, sem honum
þykir afskaplega vænt um, gera
þá vitleysu að æða í hlutina án
fyrirhyggju," heldur hann áfram.
„Hann reynir að hafa vit fyrir
þeim, en gengur heldur treglega.
Svo lendir hann í basli, bæði með
þeim, og í viðskiptum við rúss-
neska togarasjómenn."
Ólafur Darri segir að myndin
sé mjög íslensk. „Maður kannast
við ótal persónur úr þjóðlífinu.
Menn sem ætla að verða milljóna-
mæringar á mánuði á því að flytja
inn bréfaklemmur. Ef ég dæmi
af handritinu og því sem ég hef
séð hlýtur þessi mynd að vera
drepfyndin,“ segir hann. „Það
bara hlýtur að vera.“
Leifur
áfram á
sama
stöpli
EKKI stendur til að fjarlægja
stöpulinn sem styttan af Leifi
heppna Eiríkssyni stendur á
á Skólavörðuholtinu. Að sögn
Ragnhildar Skarphéðinsdótt-
ur, iandslagsarkitekts og eins
af höfundum að breyttu
skipulagi í Skólavörðuholti, á
aðeins að taka styttuna niður
meðan líming, sem heldur
marmarasteinum í stöplinum
saman, er endurnýjuð.
Ragnhildur segir að Leifur
fari aftur á sinn stöpul og að
stöpullinn og Leifur séu eitt.
Bandarískur listamaður,
Calder að nafni, gerði stytt-
una en stallinn gerði sonur
listamannsins. Ragnhildur
segir að styttan verði færð
um hálfan metra til norðurs
þannig að hún verði í miðri
sjónlínu þegar gengið er upp
Skólavörðustíg.
Sleipnismenn
samþykkja
samninga
FÉLAGSMENN Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis sam-
þykktu nýgerðan kjarasamn-
ing með talsverðum mun í
fyrrakvöld. Alls voru 158 á
kjörskrá en 76 greiddu at-
kvæði og voru 54 fylgjandi
samningnum en 21 á móti.
Einn kjörseðill var auður.
Óskar Stefánsson, formað-
ur Sleipnis, kveðst vera sæmi-
lega sáttur við þessa niður-
stöðu. Mikil umræða hafi
skapast innan félagsins um
ákveðna þætti samningsins
og hann skilji mótatkvæðin
sem óánægju með þau atriði.
Kröfur Sleipnismanna voru
hart gagnrýndar í viðræðum
þeirra við vinnuveitendur, en
þeir fóru m.a. fram á að byrj-
unarlaun myndu hækka úr
64 þúsund krónum í rúmar
127 þúsund krónur. „Með til-
liti til krafna okkar tel ég nið-
urstöðuna ekki fjarri því sem
við var að búast í stöðunni,
en við erum enn þeirrar skoð-
unar að kröfugerð okkar hafi
verið réttlætanleg og fráleitt
óraunhæf," segir Óskar.
Samningarnir eru lausir
15. febrúar árið 2000.
Biskup til
Hong Kong
BISKUP íslands, herra Ólafur
Skúlason, var um síðustu
helgi viðstaddur biskups-
vígslu í Hróarskeldu í Dan-
mörku.
Síðan heldur biskup til
Hong Kong á þing Lútherska
heimssambandsins en það er
50 ára um þessar mundir.
Með biskupi, sem er stjórnar-
maður í Lútherska heimssam-
bandinu, er kona hans frú
Ebba Sigurðardóttir en í
sendinefnd íslands á þinginu,
sem stendur í tíu daga, eru
sr. Þorbjörn Hlynur Árnason,
Halla Jónsdóttir, deildarstjóri
og sr. Skúli Ólafsson. Um 120
kirkjur tilheyra Lútherska
heimssambandinu.