Morgunblaðið - 02.07.1997, Side 14
1
14 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997_________________________________________________________ MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Landsmóta-
eldurinn
komlnn til
Borgarness
Borgarnesi - Um síðustu helgi var
komið hlaupandi með Landsmóta-
eldinn til Borgarness. 22. Lands-
mót UMFÍ hefst í Borgarnesi
fimmtudaginn 3. júlí _og lýkur
sunnudaginn 6. júlí. íþróttafólk
skiptist á að hlaupa með kyndilinn
frá Akranesi_ en bæjarstjóri Borg-
arbyggðar, Oli Jón Guðmundsson,
hljóp með eldinn yfir Borgarfjarð-
arbrú og síðan tók Ingimundur
Ingimundarson, formaður Lands-
mótsnefndar, við og hljóp síðasta
spölinn inn í Borgarnes.
Mikill undirbúningur
Mikil vinna hefur verið lögð í
undirbúning Landsmótsins og ber
þar hæst lokafrágang íþróttasvæð-
isins við Skallagrímsvöll og smíði
25 metra útisundlaugar. Segja má
að fjölmargir Borgnesingar og aðr-
ir héraðsbúar komi á einn eða ann-
an hátt að undirbúningi eða fram-
kvæmd Landsmótsins sem haldið
er af Ungmennasambandi Borgar-
íjarðar, UMSB. Þó Landsmótið fari
aðallega fram í Borgarnesi þá verð-
ur einnig keppt á Akranesi, Varma-
landi og á Hvanneyri þar sem einn-
ig verður haldin Landbúnaðarsýn-
ing í tengslum við Landsmótið.
Umferðarmál
Þar sem frítt verður inn á Lands-
mótið er gert ráð fyrir því að fjöl-
margir leggi leið sína í Borgarfjörð-
inn um næstu helgi. Reynt verður
að draga sem mest úr bílaumferð
í Borgarnesi um mótsdagana og
Morgunblaðið/Theodór
BÆJARSTJÓRINN Óli Jón Gunnarsson hleypur með Landsmótaeldinn yfir Borgarfjarðarbrú.
Með honum f.v. eru Gísli Halldórsson, Kristmar Ólafsson og Ingimundur Ingimundarson.
eru íbúar hvattir til þess að geyma
bíla sína heima. Verða strætisvagn-
ar í stöðugum ferðum innabæjar
og upp á tjaldsvæðin sem eru ofan
við bæinn. Búið er að útbúa sérstök
bílastæði í Borgarnesi og þar verð-
ur stöðug gæsla. Þá verður Skalla-
grímsgata gerð að göngugötu yfir
mótsdagana og verður umferð
mjög takmörkuð um Þorsteinsgötu.
Sett verður upp einstefna á nokkr-
ar götur og bifreiðastöður bannað-
ar alfarið á Borgarbraut. Leyfður
hámarkshraði verður lækkaður á
helstu leiðum inn í bæinn og fram-
úrakstur takmarkaður. Sunnan og
norðan við bæinn verða starfrækt-
ar upplýsingamiðstöðvar fyrir þá
sem eru á leið á Landsmótið og
þar fær fólk afhent sérstakt upp-
lýsingakort af Borgarnesi. Starf-
rækt verður sérstakt Landsmótsút-
varp FM 101,3 á meðan á móts-
haldi stendur og þar verður upplýs-
ingum komið til Landsmótsgesta,
spiluð létt lög og spjallað við gesti
og gangandi.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
___ *
Flugdagar á Isafirði
ÍSLANDSFLUG hélt flug-
daga á Isafirði sl. sunnudag
til að kynna starfsemi sína
o g þær nýju flugleiðir sem
félagið býður uppá. Svipaðar
kynningar voru einnig
haldnar á Akureyri og Sauð-
árkróki um síðustu helgi
Eins og meðfylgjandi
myndir frá ísafirði bera
með sér var margt um mann-
inn á kynningu félagsins og
telja forráðamenn félagsins
að um þúsund manns hafi
heimsótt félagið niður á ísa-
fjarðarflugvöll í blíðskapar-
veðri.
Félagið kynnti flugvéla-
kost sinn á flugdögunum: 19
sæta Dornier vél og 46 sæta
ATR-42. Meðal annars var
sýnt listflug á Dorniervélinni
en að sögn Ulfars Ágústsson-
ar, umboðsmanns íslands-
flugs á Isafirði, hentar sú vél
einkar vel við erfiðar að-
stæður víða um land. Einnig
sýndu sex félagar úr Fall-
hlífaklúbbi íslands fallhlífa-
stökk. Þá veitti Ómar Bene-
diktsson, framkvæmdastjóri
íslandsflugs, Sigríði Sigur-
steinsdóttur, umboðsmanni
íslandsflugs á Flateyri, sér-
staka viðurkenningu en hún
hefur verið starfsmaður fé-
lagsins á Flateyri frá stofnun
félagsins.
Fermingarkj ólar, leikföng og kaffi-
bætir á sýningu á Egilsstöðum
Rei&ubúiun ab aflétta
styfjaldarástandi ýjl
Inrtalkráhhatr'ir M nrhnrhnili
tiour
ur nf álbræösia ayggð á ísiandí? |
Morgunblaðið/Ragnheiður Kristjánsdóttir
ÞÓRHALLUR Árnason lét fara vel um sig í gamla hæginda-
stólnum og gluggaði í Morgunblaðið frá 4. febrúar 1969.
Gömlu dagana
gefðu mér
Egilsstaðir - Opnuð hefur verið
sýning í kjallara Safnahússins á
Egilsstöðum er nefnist Gömlu
dagana gefðu mér. Þar eru til
sýnis ýmsir gamlir og skemmti-
legir munir , s.s. heimilismunir,
skóla- og skátadót, leikföng og
jafnvel kaffibætir (export) í
gömlu dósunum.
Einnig er á sýningu þessari
gamall fatnaður, s.s. eins og
fermingarkjólar og kápur mið-
aldra kvenna í bænum. Á gras-
þaki fyrir utan húsið hafa
„gamlir strákar" í bænum sett
upp hornabú og smíðað trévöru-
bíla eins og þeir gerðust bestir
á árum áður. Gefst ungviði því
er skoðar sýninguna kostur á
að leika sér með horn og læra
að leggja vegi. Við opnun sýn-
ingarinnar var boðið upp á app-
elsínlímonaði með lakkrísröri og
Prins Polo. Sýningin verður opin
til 17. ágúst.
Sunnudaginn 29. júní hófst
síðan dagskrá kl. 14 í mýrinni
bak við Búnaðarbankann. Er hún
tileinkuð þeim sem byggðu bæ-
inn, rifjaðar upp gamlar og góðar
minningr og fá börnin tækifæri
til að leika sér í gullabúi á stein-
unum eing og forðum daga.
Minjasafn Austurlands hefur
einnig aðsetur í Safnahúsinu.
Er það opið daglega, nema
mánudaga, frá kl. 11 til 17. Þar
eru varðveittar minjar um menn-
ingu, atvinnulíf og búshætti á
Héraði og Borgarfirði eystri. í
tilefni 50 ára afmælis bæjarins
er þar bás tileinkaður Þorsteini
Sigurðssyni héraðslækni, sem
er nýlátinn, en Þorsteinn er einn
af þeim sem byggðu upp sjúkra-
húsið á Egilsstöðum.
-
I
í
I
I
I
í
M
g
l
i
!
I