Morgunblaðið - 02.07.1997, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
Yítamín
og vísindi
EFTIR að skrifum
hins mæta læknis Þór-
arins Guðnasonar lauk
í Mannlífsstraumum
Morgunblaðsins, er
hann lést fyrir nokkr-
um árum, hefur skóla-
bróðir minn Magnús
Jóhannsson læknir,
þekktur krossfari
gegn öllum náttúru-
legum efnum til inn-
töku, tekið þar við. Og
ég verð að játa að ég
sakna sárt hins víð-
sýna hugarheims Þór-
arins í hvert sinn sem
ég slysast til að lesa
„Magnúsar-vísindi" í
þessum dálki. Svo mikið ber á
milli í skrifum þeirra, þó að þau
snúist um sama fagið. Eins víðf-
eðm og þekking Þórarins var opin-
berar Magnús fákunnáttu sína æ
ofan í æ á ýmsum sviðum sem
hann skrifar þó um þar. - Gott
og vel, Magnús hefur staðið í for-
svari fyrir opinbert lyfjaeftirlit hér
á landi um árabil og skrif hans
litast því eðlilega af því. Og enginn
efast um það að krossfarinn Magn-
ús er fullviss um að hann sé að
bæta heiminn með skrifum sínum.
En því miður, trú er ekki hið sama
og vísindi.
Sunnudaginn 15. júní keyrir þó
um þverbak í skrifum Magnúsar.
Og það svo að vísindin verða að
gervivísindum í meðförum hans,
þ.e. einhliða skýringar hans undir
yfírskrift læknisfræðinnar myndu
koma óorði á þau fræði, ef standa
skyldu óátalin. Slíkar einhliða
hreinvísindatrúar-túlkanir eins og
þama koma fram, eru ekki til ann-
ars en slá ryki í augu almennings
sem yfírleitt tekur allt sem stendur
í Mogganum sem viðurkenndan
sannleika.
En ef til vill býr hér annað að
baki? Gæti það til dæmis verið að
Magnús sé með þessu að undirbúa
íslenskan almenning undir enn nýja
reglugerð, nú frá Sameinuðu þjóð-
unum eða Codex Alimentarius-
nefndinni á vegum þeirra, en þá
reglugerð er þegar búið að skrifa
undir óséða af Alþingi með GATT
samningnum? Reglugerðina á
nefnilega að kynna fyrir þjóðinni
nú með haustinu. Þar á að tak-
marka enn aðgengi að vítamínum
og öðrum fæðubótarefnum meira
en nú þegar er þó ákveðið (sbr.
nýja ósamþykkta reglugerð um
„náttúrulyf") og gera þau mun
dýrari en nú er. Ég hef áður lesið
furðulegt viðtal við Magnús í Tím-
anum (26.3. 1991) um ginseng, þar
sem hann sagði m.a. alla landsmenn
sem taka inn ginseng borða stera-
kjama (!). Þetta byggist á 20 ára
grein í JAMA-málgagni bandarísku
læknasamtakanna sem var síðar
leiðrétt sem misskilningur! Þetta
síðasta slær þau skrif alveg út.
Hitt er þó verra að
Magnús vitnar máli
sínu til stuðnings í
bandaríska NCAHF-
„þjóðarráðið" (Nat-
ional Council Against
Health Fraud), sem
hefur starfað síðan á
sjöunda áratugnum.
Rétt eins og hér sé á
ferðinni venjuleg neyt-
endasamtök eða jafn-
vel opinbera stofnun!
Hann getur þess ekki
að þetta er einkafyrir-
tæki stofnað af nokkr-
um þekktum ofstækis-
mönnum, t.d. Barrett
og Jarvis. Og blásið
var til þeirra þegar læknasamtök
Bandaríkjanna, AMA, urðu uppvís
að margvíslegum lögbrotum árið
1975. En þau urðu þá að fara með
veggjum og leggja niður eigin
„kuklnefnd" sem fylgir raunar öll-
um læknasamtökum. Og auk þess
Því miður, segir
Einar Þorsteinn
Asgeirsson, trú er
ekki sama
og vísindi.
leggja niður afsprengi hennar,
leynifélagið („Ráðstefnuna" um
heilsuupplýsingar), CCHI, sem var
ætlað það hlutverk að uppræta
endanlega og með öllum ráðum,
löglegum eða ólöglegum, allt það
sem kallast nú óhefðbundnar lækn-
ingar. Sem sé hrein hagsmuna-
gæsla fyrir lyfjarisana.
NCAHF-„þjóðarráðið“ vann þá
þegar ötullega að því að neyða
almenning til þess að kaupa fæðu-
bótarefni og vítamín í gegnum lyf-
seðil eða þá eingöngu lyf í stað
þeirra. Rétt eins og nú er hér í
framkvæmd á íslandi með mela-
tonin, sem er náttúruefni t.d. fram-
leidd í heila hvers manns og því
ekki einkaleyfishæft en er sem
sagt orðið að lyfí hérlendis hvaða
lögleg reglugerð sem er svo sem
á bak við það. Það efni er því 11
sinnum dýrara hér en t.d. í Banda-
ríkjunum. En eins og kunnugt er,
eru öll lyf einkaleyfishæf eingöngu
vegna kostnaðar við þróun þeirra
og slíkt á því ekki við um náttúru-
leg_ efni.
Árið 1984 fór NCAHF-„þjóðar-
ráðið“ síðan inní samtök sem
Fæðu- og lyfjaeftirlit Bandaríkj-
anna, FDA, og Auglýsingaráð
lyfjaiðnaðarins, PAC, gerðu samn-
ing með sér um að mynda. Sá fólst
í því að vinna sameiginlega gegn
óhefðbundum lækningum, þar með
talin inntaka vítamína og bæti-
efna, á nýjan hátt. Meðal annars
með rakalausum kærum og eftir-
Einar Þorsteinn
Ásgeirsson
SUMARTILBOÐ
Gluggatjaldaefni
20% afsláttur
JtíL Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
w FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.
farandi málaferlum. Þetta átak er
enn í gangi og nefnist: Átak gegn
kukli til almenningsheilla og er
fjármagnað af FDA og PAC auk
lyfjaiðnaðarins. Þessi samtök hafa
því í frammi ólöglega undirróðurs-
starfsemi af ýmsu tagi og þver-
bijóta bandarísk lög. En hið opin-
bera þar í landi sinnir því samt
illa. Dómstólarnir þar dæma þó enn
fyrirtækjum sem framleiða og selja
náttúruleg efni í vil enda hafa þau
ekkert brotið af sér. En skaðinn
sem málaferlin gera þeim er gífur-
legur. - Það voru þessir aðilar sem
fóru í mál við Herbal Life-fyrirtæk-
ið en eins og kunnugt er vann
Herbal Life það mál, en nóg um
það í bili. - En ef þetta eru Banda-
ríkjamennirnir sem Magnús styðst
við er ekki von á góðu.
Varðandi vísindalega skoðun á
vítamínum sem krossfarinn Magn-
ús Jóhannson skólabróðir minn
hamast ævinlega á móti skal þess
t.d. getið að bandaríski vísinda-
maðurinn dr. Roger Williams, sem
var lengi forstöðumaður lífefna-
deildarinnar við Texasháskóla og
fann m.a. upp aðferðina við að
framleiða B5 vítamín, er fyrir lif-
andis löngu búinn að sanna það
með rannsóknum sínum að ein-
staklingar hafa mjög mismunandi
mikla þörf fyrir vítamín og stein-
efni. Munurinn getur verið allt að
20 falt meiri en RDA, eða dagleg-
ur meðmæltur skammtur banda-
rísku Heilbrigðisstofnunarinnar,
kveður á um. RDS íslenskra mann-
eldisstofnana er sniðinn að þeim.
Willams nefnir þetta: „Lífefna-
fræðileg sérkenni“ einstaklingsins.
T.d. eru meltingarlíffæri manna
ákaflega mismunandi gerðar. Séu
t.d. meltingarvessar mismunandi
einstaklinga bornir saman við nef
á sama fólki, mætti segja að annar
einstaklingur ætti að vera með
krækiber sem nefstærð en hinn
með melónu í stað þess. Svo mik-
ill er munurinn. - Þörfin á vítamín-
um er einnig mjög mismunandi
eftir lífsstíl, streituaðstæðum, tíma
ársins o.s.frv. Þetta er vitað og
viðurkennt af öllum nema þeim
sem enn styðja niðurstöðu banda-
ríksu læknasamtakanna frá 1926
um að vítamín sé blekking!
Þrátt fyrir þessar vísindalegu
niðurstöður hefur lyfjaiðnaðurinn
og þeir sem að honum standa eða
vilja baða sig í áuðsöfnun hans,
nú eða trúa blint á lyfin sem allra-
meinabót að vísu með aukaverkun-
um(!), hafa ávallt reynt að gera
vítamínin tortryggileg í augum al-
mennings. Og sömuleiðis viljað
gera þá sem selja vítamín á lágu
verði, þ.e. utan apótekanna, að
eins konar sakamönnum, sem séu
að græða á auðtrúa fólki. Það þarf
enginn að velkjast í vafa um það,
að hér eru í grunninn viðskiptaleg
hagsmunaátök á ferðinni, þó að
látið sé líta svo út að vísindi og
neytendavernd séu bakgrunnur
málsins. Einstaka „vísinda-kross-
fari“ vinnur svo að sama máli án
nokkurrar sporslu frá trilljarðaiðn-
aði erlendu lyfjarisanna. Því miður
sýnast mér skrif Magnúsar Jó-
hannssonar míns gamla skólabróð-
ur hneigjast í þá síðastnefndu átt
og þykir mér það mjög miður því
Magnús er fyrir utan þessa ann-
marka mjög gegn og vandaður
maður. En málið snýst ekki um
það heldur hitt, að íslenskur al-
menningur á mun betra skilið en
að láta mata sig á einhliða trú
víðsfjarri allri vísindaskoðun. En
það er einmitt einkenni slíkra
skrifa að þau hefjast iðulega með
orðunum: „sem ekki eiga við vís-
indaleg rök að styðjast“ - eða -
„fyrst verður að bijóta öll viður-
kennd náttúrulögmál". - Það verð-
ur fróðlegt að heyra hvernig Magn-
ús skýrir þetta þekkingarleysi sitt
á heilu köflunum í sögu læknavís-
indanna?
Höfundur er félagi í Heilsufrelsi
og höfundur bókarinnar
„Lífsspursmál".
ALLAR þær rang-
færslur er kirkjunnar
menn létu eftir sér hafa
í Bjarma í mars verða
ekki allar raktar hér,
reyndar er ekki hægt
að fá að birta svo stóra
svargrein í MBL. En
þar sem vissir kirkj-
unnar menn innan
þjóðkirkjunnar eru að
ofsækja aðra með ekki
nægilega góðum skil-
greindum kenningum
sínum, verður að bera
fram að minnsta kosti
14 spurningar handa
þeim hér. Þannig að
mönnum er einfaldlega
gefið tækifæri á að svara með betri
skilgreiningum og rökum. Það er
hins vegar alveg ljóst á öllu, að viss-
ir menn geta ekki látið aðra trúaða
meðbræður sína í friði.
Kirkjunnar menn rétt eins og dr.
Einar Sigurbjörnsson prófessor er
hafa verið að gagnrýna önnur trú-
arbrögð, spíritisma svo og Maríu
og dýrlingadýrkun hvað eftir annað
1 fleiri áratugi, verða að fara að
gera sér grein fyrir því að menn eru
farnir að sjá í gegnum þessa órétt-
látu gagnrýni hjá þeim.
Menn sem skrifa þvílíkan hroka
og þennan í Bjarma, gera sig seka
um mikla vanþekkingu. Þar sem dr.
Einar beinir þeim tilmælum sínum
til þjóðkirkjunnar að hún eigi að
bjóða fólki að koma með spurningar
sínar og svara þeim, finnst mér við
hæfí að biðja þjóðkirkjuna eða þessa
menn er skrifuðu í Bjarma um þessi
mál, að svara skiimerkilega þessum
14 spurningum hér að neðan í réttri
röð.
1. Ef Jesús Kristur var ekki mið-
ill milli tveggja heima, hins andlega
og hins veraldlega (1. Tim 2.5) hvað
var hann þá? I tímaritinu Bjarma
kemur það fram að: ..........aldrei
kenndi hann (Jesús) að leita til
framliðinna eða lúta leiðsögn ein-
hverra framandi anda.“ Þetta er
ekki rétt, því að er Jesús ummynd-
aðist lærisveinum sínum þremur,
leitaði hann til framliðinna manna
Móse og Elía og átti samtal við þá.
2. Hvernig er það brutu læri-
sveinarnir þrír og Jesús Kristur ekki
lögmálið hans Móse, er þeir tóku
upp á því að tala við Móse og Elía
spámann (eða framliðna menn, Mt
17.1-9), í stað þess að leita til Guðs
í bæn í því tilviki, eins og þeim bar
að gera samkvæmt kenningum
kirkjunnar, eða hvað?
3. Móse og Elía leyfðu sér að
tala við þá Jóhannes, Jakob, Pétur
og Jesú Krist, en þeir báðir Móse
og Elía vissu að slíkt var stranglega
bannað samkvæmt 5. Mósebók, en
samt sem áður leyfðu þeir sér að
tala við þá, af hveiju ieyfðu þeir sér
það þegar þeim bar að halda allt
gamla lögmálið og síðan einnig allar
kenningar kirkjunnar?
4. Hefðu þeir Móse og Elía ekki
átt að hreinlega fordæma þetta og
segja við Jesú Krist og lærisvein-
anna þijá, það sama og þið segið
alltaf, er þið fordæmið aðra hvað
eftir annað: „Eigi skal nokkur
fínnast hjá þér, ...sá er leiti frétta
af framliðnum" (5. Mæs 18.10-12),
vegna þess að boðorðið á að vara
alla eilífð í andlega og veraldlega
heiminum, eða hvað?
5. Hvemig er það, vilja ekki kirkj-
unnar menn einnig túlka það þannig,
að ástæðan fyrir því að Jesús Krist-
ur var krossfestur, hafí verið sú að
Jesús braut lögmálið (talaði við fram-
liðna menn), rétt eins og hin ástæð-
an er þið kirkjunnar menn túlkið,
að hafí verið fyrir því að Sál konung-
ur missti konungdóm og endaði líf
sitt með sjálfsvígi, eða hvað?
6. Hafa kirkjunnar menn hugsað
sér að þurrka út úr Biblíunni alla
frásögnina um ummyndun Jesú
Krists, vegna þeirra hræðslu er þeir
finna hjá sjálfum sér
gagnvart spíritisma?
7. Hvernig er það,
vilja ekki kirkjunnar
menn halda allt gamla
lögmálið hans Móse,
fremur en eitthvað
annað og síðan reyna
að fara eftir öllu því
sem Jesús Kristur boð-
aði og framkvæmdi?
8. Eftir að Jesús
Kristur hafði dáið lík-
amsdauða sínum á
krossinum, er sagt að
menn hafi risið úr gröf-
um sínum og birtust
mörgum mönnum (Mt
27.52-53), hvað varð
um þessa menn sem risu upp til
eilífs lífs, eru þeir ekki búnir að
flytja fagnaðarerindið út um allt,
eða hvað?
9. Eru mennirnir sem risu upp
úr gröfum sínum enn á lífi einhvers
staðar í dag og þá kannski í Ama-
son skóginum eða einhverstaðar
annars staðar, búnir að eignast börn
og fjölskyldur?
10. Ef kenning kirkjunnar er
þannig, að Jesús Kristur hafí risið
upp frá dauðum í jarðneskum lík-
ama og síðan stigið upp til himins,
þar sem hann hafi getað lifað á
góðu fæði, andrúmslofti, ljósi og
hita í allt að því 2000 ár. Trúa þá
ekki kirkjunnar menn því einnig,
að eftir upprisuna muni menn lifa
eilíflega í jarðneskum líkama hér á
jörðu, þrátt fyrir að það allt saman
stangist á við öll nútíma vísindi í
dag?
Menn eru farnir að
sjá í gegnum, segir
Þorsteinn Seh.
Thorsteinsson,
óréttláta gagnrýni
þjóðkirkjumanna.
11. Á hinum efsta degi segja
kirkjunnar menn, að þeir sem eru
sofnaðir muni rísa upp til eilífs lífs,
en hvernig er hægt að sópa einhveij-
um saman líkamlega er hefur verið
dauður í allt að því 2000 eða 6000
ár og öll atóm mannsins komin út
um allt sköpunarverkið?
12. Er það satt að margir kirkj-
unnar menn trúa því að eftir fall
Adams og Evu hafi dauðinn komið
yfír þau (og börnin þeirra einnig)
og svefnpillan svonefnda eða eitt-
hvað annað verið sett í þau, eitthvað
sem gengur í erfðir og virkar eftir
líkamsdauðann, þannig að maðurinn
sefur til efsta dags eða þar til að
Kristur kemur aftur?
13. Ritningin segir, að: „Sáð er
í jarðneskum líkama, en upp rís
andlegur líkami...“ (1. Kor 15.44),
en var gerð einhver undantekning
frá þessu lögmáli er Jesús Kristur
reis upp frá dauðum?
14. Hvar er að finna eitthvað er
segir, að: „spíritisminn hafni öllum
helstu grundvallaratriðum kristinn-
ar trúar eins og guðdæmi Jesú
Krists, hjálpræðisverki hans og upp-
risu.. . “ ? Hér er óskað eftir því
að menn sem segja slíkt (eða kirkj-
unnar menn) komi með nákvæma
tilvitnun um slíkt, því svona lagað
er ekki að finna í kenningum spírit-
ismans, sem þið kirkjunnar menn
hamrið á aftur og aftur í Bjarma.
Þar sem að kirkjunnar menn þykj-
ast búa yfír svo mikilli þekkingu á
þessu sviði, ætti að vera auðvelt fyr-
ir þá að svara þessum 14 spurningum
hér. Þ.e.a.s þá eftir þeirra eigin kenn-
ingum, í réttri röð og með bæði góð-
um rökum og skilgreiningum.
Höfundur er í „Samstarfsnefnd
trúfélaga fyrir heimsfriði
Opið bréf til
kirkjunnar
Athugasemdir við greinaskrif í Bjarma
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson