Morgunblaðið - 02.07.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIMGAR
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997 41
I HEIÐRÚN
HELGADÓTTIR
+ Heiðrún Helga-
dóttir fæddist í
Súðavík 7. maí
1931. Hún lést í
Reykjavík 24. júní
Ísíðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Helgi J. Jónsson,
smiður og- skáld í
Súðavík, f. 23.6.
1880, d. 21.2. 1959,
og Pálína Sigurð-
ardóttir, f. 23.9.
1889, d. 1967.
Systkini: Símon J.,
f. 28.4. 1909, d.
16.2. 1988; Soffía
M., f. 28.11. 1910, d. 2.1. 1986;
Snorri, f. 1912, dó 1914; Frið-
* rika, f. 1913, dó 1914; Friðrik,
f. 1915, dó 1942; Sigurður Fr.,
f. 20.11. 1917; Marsibil G., f.
15.1. 1921, og Anna, f. 29.8.
1929.
Maki Einar M. Þorsteinsson,
f. 5.10. 1924, d. 14.4. 1990.
Fyrir fáeinum árum tók ég eftir
iaglegri og mjög snyrtilegri konu,
sem farin var að sækja samkomur
’ Kristniboðssambandsins í salnum
á Háaleitisbraut 58-60. Hún virt-
ist kunna mjög vel við sig á þessum
samverustundum, tók þátt í söngn-
um og mætti trúfastlega.
Kona þessi var Vestfirðingur að
ætt og uppruna, fædd í Súðavík.
Hún hét Heiðrún Helgadóttir og
er nýlátin. Mann sinn Einar M.
Þorsteinsson hafði hún misst
• nokkrum árum áður. Áttu þau
fjögur börn.
Heiðrún var glaðleg í framkomu,
með hlýtt viðmót og á allan hátt
elskuleg kona. Mjög fljótlega gekk
hún í Kristniboðsfélag kvenna, sem
er meðeigandi í Kristniboðssalnum
og heldur þar flesta fundi sína.
Þá kynntumst við henni betur. Hún
tók strax þátt í félagsstarfinu,
vann muni á basara félagsins, bak-
aði kökur, þegar þess þurfti og tók
■ að sér að sjá um fundarefni. Heiðr-
I ún var einlæglega trúuð kona, með
góða dómgreind og þekkti biblíuna
sína vel. Hún var þannig á allan
hátt styrkur í félagsstarfinu og
mjög trúföst. Áður hafði hún tekið
þátt í starfi Heimatrúboðs leik-
manna og greinilega fengið þar
traustan evangelískan lúterskan
Igrundvöll að byggja trú sína á.
Meðan Heiðrún gat sótt kristileg
mót, fundi og samkomur sat hún
oft við hlið mína, og þegar samver-
unni lauk bauð hún mér að flytja
mig heim í bíl sínum, þó að það
væri miklu lengri leið en hún þurfti
sjálf að fara. Eg komst að því síð-
ar, að á þennan hátt hefði hún
árum saman greitt götu annarra,
sem áttu ekki sjálfir ökutæki.
Fyrir einu og hálfu ári nefndi
Heiðrún eitt sinn við mig, að hún
væri orðin slæm í hálsi og ætti
I bágt með að syngja, sem hún hefði
annars mikið yndi af. Fékk hún
þá lyf, sem virtust gagnslaus, svo
að fleiri ferðir varð hún að fara
út af þessum sjúkdómi áður en í
ljós kom, hvað að var. Smátt og
smátt missti hún röddina og gat
ekkert tjáð sig að síðustu, nema
með því að skrifa á blað. En þrótt-
Íurinn í fingrunum fjaraði líka út.
Hún notaði bílinn sinn meðan hún
gat, líka í annarra þágu, þó stund-
| um ætti hún erfitt með að koma
1 lyklinum á sinn stað. En við stýrið
var hún aftur á móti lengi örugg.
Þar kom að lokum að mátturinn
þvarr. Sárt var að sjá þessa ötulu
konu missa þannig líkamsorku
sína. Andlegum kröftum hélt hún
aftur á móti og sýndi undravert
þolgæði í erfiðum sjúkdómsraun-
í um sínum. Trúartraustið var mik-
ið. Það birti brosið á andliti hennar
best, þear hún gat ekki tjáð sig á
| annan hátt. Til hinstu stundar hélt
hún þessari ró sinni og hefur nú
Börn: 1) Anna, f. 9.6.
1954, maki Ragnar
J. Jónsson, f. 22.3.
1929. Þeirra börn:
Ragnar Helgi, f.
1978, og Heiðrún,
f. 1979. 2) Reynir,
f. 26.1. 1956, eigin-
kona Laufey Jens-
dóttir, f. 7.1. 1961.
Þeirra börn: Heið-
dís Rós, f. 1988,
Rebekka Jenný, f.
1993, Aðalheiður
Dögg, f. 1996. 3)
Ólafía Guðrún, f.
1.11. 1960. Hennar
börn: Einar Magnús, f. 1978,
Yngvar Rafn, f. 1981 og Sig-
urður, f. 1996. 4) Valgerður
Helga, f. 12.6. 1968, hennar
börn Eydís Ósk, f. 1990, og
Pálmar, f. 1996.
Útför Heiðrúnar fer fram
frá Kópavogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
fengið að mæta frelsara sínum,
sem hún trúði á. Honum fól hún
líka alla ástvini sína.
Við í Kristniboðsfélagi kvenna
og Kristniboðssambandinu þökk-
um Guði fyrir að hafa kynnst
Heiðrúnu og þökkum jafnframt
samverustundirnar með henni og
áhuga hennar á málefni Drottins.
Öllum ástvinum hennar sendum
við einlægar samúðarkveðjur.
Lilja S. Kristjánsdóttir.
Elsku Rúna mín. Núna ertu far-
in og kemur aldrei aftur. Þegar
ég hugsa til baka, þá sé ég fyrir
mér litla dökkhærða, elskulega og
brosmilda konu. Þú varst alltaf svo
góð við okkur systkinin. Það var
alltaf svo gaman þegar þú komst
í heimsókn, það var svo gaman að
spjalla við þig og svo varst þú með
svo smitandi hlátur.
Þau fáu skipti sem mamma bauð
þér í skötu á Þorláksmessu eftir
að Einar dó, verða alltaf minnis-
stæð. Það gaf því ákveðinn lit að
hafa þig við matarborðið hjá okk-
ur. Eftir að þú veiktist fannst mér
eins og þú værir ofsalega þreytt,
og það vantaði allt líf í augun þín.
Mér finnst svo leiðinlegt að hafa
ekki heimsótt þig oftar, en maður
getur alltaf verið vitur eftir á. Ég
verð að viðurkenna að ég var
hrædd við að heimsækja þig eftir
að þú veiktist. Tilhugsunin um að
sjá einhvern sem manni þykir vænt
um líða svona illa, varð til þess
að ég þorði ekki að koma.
En núna loksins, mánudaginn
23. júní, komum við mamma í
heimsókn til þín á spítalann. Anna
dóttir þín var hjá þér. Mér brá
rosalega að sjá þig, það var eins
og þú hefðir elst um tuttugu ár.
Þjáningin skein úr augunum þín-
um. Ég held að þú hafir samt vit-
að að við vorum þarna. Við mamma
vorum bara búnar að vera hjá þér
í stuttan tíma, þegar Anna er köll-
uð fram. Þér var farið að hraka.
Við mamma þurftum að yfirgefa
spítalann, og vissum alveg hvað
var í vændum. Næsta dag varstu
dáin.
Elsku Rúna mín, ég vil þakka
þér allar samverustundirnar sem
við áttum og kveð þig með sökn-
uði. Núna ertu komin í faðm allra
ástvinanna sem fóru á undan þér.
Vonandi líður þér vel, og ég hef
trú á því að þú þurfir ekki að þjást
lengur.
Ég og fjölskylda mín vottum
ættingjum og vinum okkar dýpstu
samúð.
Þín frænka,
Linda.
Lionsklúbbur Kópavogs
Gefur tölvu
fyrir fötluð
börn
LION SKLÚBBUR Kópavogs
afhenti leikskólum Kópavogs,
sérkennsludeild, til eignar
tölvu og prentara, en tölvan
er einkum hugsuð til notkunar
fyrir fötluð börn. Þá fylgdu
gjöfinni ýmis forrit sem ætluð
eru börnum á leikskólaaldri.
Afhendingin fór fram í leik-
skólanum Smárahvammi en
þar mun tölvan verða fyrst í
stað.
Morgunblaðið/Jim Smart
VIÐ afhendingu Lionsklúbbs Kópavogs á tölvunni, sem einkum
er ætluð fötluðum börnum.
Strandgöngur í Kolla-
firði og Skerjafirði
ÖNNUR af tveim ferðaröðum sem
Hafnargönguhópurinn stendur fyrir
í sumar og haust hefst í kvöld,
miðvikudagskvöld, 2. júlí.
Gengið verður með strönd Kolla-
fjarðar á miðvikudagskvöldum og
strönd Skeijafjarðar á fimmtudags-
kvöldum. Hægt verður að mæta í
gönguferðirnar við Hafnarhúsið kl.
20 og fara á upphafsstaði þeirra
með SVR eða rútu, einnig að mæta
í gönguferðimar þar. Ráðgert er
að raðgöngurnar verði farnar hálfs-
mánaðarlega. Fyrir hveija ferð
verða afhent sérstök kort af göngu-
leiðunum hveiju sinni. Leiðinni á
kortinu verður skipt í 500 metra
fjörureinar til að auðvelda þátttak-
endum staðsetningarnar. I göngu-
ferðunum verður í stuttu máli íjall-
að um það sem fyrir augu ber
bæði af því náttúrulega og mann-
Bók um
heilbrigði
trjágróðurs
ÚT ER komin hjá Iðunni bókin
Heilbirgði tijágróðurs, handbók
um skaðvalda á tijágróðri og varn-
ir gegn þeim. Bókin er ætluð öllu
áhugafólki um tijárækt og á með-
al annars að auðvelda fólki að
greina sjúkdóma og meindýr á
tijám, átta sig á umhverfísþáttum
og bregðast rétt við vandamálum
sem upp kunna að koma við rækt-
un alls kyns tijáa og runna, segir
í fréttatilkynningu.
Ennfremur segir: „í bókinni er
fjallað á einfaldan og aðgengileg-
an hátt um hvers konar skaðvalda
á tijágróðri og varnir gegn þeim,
helstu orsakir skemmda og sjúk-
dóma, meindýr sem sækja á tré
og runna og náttúrulegar varnir
plantnanna. Rætt er um þá þætti
í umhverfinu sem máli skipta fyrir
vöxt og viðgang tijáplantna, svo
sem veðurfar og næringu, gefnar
greinagóðar lýsingar á öllum
helstu meinsemdum sem við er að
etja í tijárækt hér á landi og leið-
beint um varnaraðgerðir. Höfund-
ur bókarinnar er dr. Guðmundur
Halldórsson, skordýrafræðingur
og dr. Halldór Sverrisson, plöntu-
sjúkdómafræðingur, eru meðal
helstu sérfræðinga landsins á
þessu sviði.“
Heilbrigði tijágróðurs er 120
bls. og í henni eru um 70 litprent-
aðar ljósmyndir. Aftast eru orð-
skýringar, heimildaskrá og ítarleg
atriðisorðaskrá til hægðarauka
fyrir notendur.
Bókin er prentuð í Prentbæ,
Bókfell sá um bókband en Lit-
myndir-prentmiðlun um litgrein-
ingar og filmuvinnslu.
gerða og spáð í framtíðarsýnina.
I kvöld verður mæting við Hafn-
arhúsið kl. 20 og farið með SVR
leið 3 í Seltjarnarnesbæ og göngu-
ferðin hefst kl. 20.30 á Valhúsa-
hæð. Gengið verður niður í Eiðsvík
vestri og síðan með ströndinni og
hafnarbökkum inn undir Stúlkna-
klett við Höfða. Þaðan verður val
um að ganga til baka eða fara í
SVR á Hlemm.
Annað kvöld, fimmtudagskvöld
verður einnig mæting við Hafnar-
húsið kl. 20 og farið með SVR leið
3 í Seltjarnarnesbæ og ganga hefst
á Valhúsahæð kl. 20.30 en gengið
í Bakkavör og síðan með ströndinni
inn í Sundskálavík við Flugbrautar-
endann. Þar verður val um að ganga
til baka eða fara með SVR.
Allir eru velkomnir í ferðirnar,
ekkert þátttökugjald.
Happdrættis-
vinningar í
Landsbanka-
hlaupinu
Eftirtaldir aðilar voru dregnir út í
Sportklúbbshappdrætti þann 2. júní sl.
Fjallahjól frá Markinu:
Gunnar S. Indriðason, Pétur Grétars-
son, Birgir Gauti Jónsson.
Bíómiðar í Háskólabíó:
Hrund Pálsdóttir, Ingibjörg Lilja,
Ellert Ingi Hafsteinsson, Gunnar Ingi
Svansson, Sigríður E. Stefánsdóttir,
Bragi Bergsteinsson, Guðmundur
Þór Gunnarsson, Erik Chaillot, Georg
Helgi Hjartarson, Karen Ýr Sæ-
mundsdóttir.
Sportklúbbsbolir:
Haukur Ármannsson, Solveig S.
Gunnarsdóttir, Rut Ragnarsdóttir,
Salvör Þórisdóttir, Jón Ingi Ragnars-
son, Helgi Karlsson, Linda B. Sigurð-
ardóttir, Gústaf K. Gústafsson, Há-
kon Frosti Pálmason, Sigurkarl
Gústavsson, Friðgeir J. Kristjánsson,
Rútur S. Siguijónsson, Sæunn Björg-
vinsdóttir, Axel Þór Axelsson, Helga
Sjöfn Jóhannesdóttir, Ingvi H. Vict-
orsson, Leifur Birkir Logason, Ingi
Þór Stefánsson, Hildur Ósk, Sigurður
Birkir Gunnarsson.
Vinningar verða sendir til vinn-
ingshafa.
Fréttabréf
tveggja rann-
sóknastofnana
FRÉTTABLAÐIÐ Tæknipúlsinn
kemur nú út í fyrsta sinn en blaðið
er sameiginlegt fréttabréf tveggja
íslenskra rannsóknastofnana, Iðn-
tæknistofnunar og Rannsóknastofn-
unar byggingariðnaðarins.
Iðntæknistofnun gaf áður út
fréttabréfið Púlsinn.
Lögreglan lýsir
eftir vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að aðdraganda árekst-
urs sem varð á gatnamótum Bú-
staðavegar og aðreinar Kringlu-
mýrarbrautar 26. júní sl. um kl.
20.20.
Áreksturinn varð þegar hvítri
fólksbifreið af Volvo-gerð, með
skráningarnúmerið HV-330, var
ekið austur Bústaðaveg og hvítri
Toyotu Carina fólksbifreið, með
skrásetningarnúmerið G-15010,
var ekið norður aðrein Kringlumýr-
arbrautar.
Toyota-bíllinn ók inn á gatna-
mótin og áleiðis vestur Bústaða-
veg, þegar bifreiðirnar skullu sam-
an._
Á þessum gatnamótum er um-
ferðarljós og greinir ökumenn á
um stöðu þeirra þegar atvikið varð.
Þeir sem gefíð gætu upplýsingar
um málið eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við rannsókn-
ardeild lögreglunnar í Reykjavík.
LEIÐRÉTT
Þau mistök urðu við birtingu um-
sagnar í sunnudagsblaði um sýn-
ingu Þórdísar Öldu Sigurðardóttur,
að mynd af verki eftir hana snéri
öfugt. Hér birtist verkið, sem heitir
Tímatal, eins og það á að snúa.
Beðizt er afsökunar á þessum mis-
tökum.
Jón Þ. Gfslason Magnús H. Ólafsson
Myndavíxl
Þau mistök urðu við birtingu af-
mælistilkynninga í blaðinu í gær
að myndir víxluðust af Jóni Þ. Gísla-
syni og Magnúsi H. Ólafssyni, sem
báðir voru fimmtugir. Eru þeir
beðnir afsökunar á mistökunum.