Morgunblaðið - 02.07.1997, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SIGFÚS Sigfússon, forstjóri Heklu, afhenti Önnu Þrúði Þorkels-
dóttur, formanni Rauða kross Islands, lyklana að nýjum
Mitsubishi Lancer GLX.
Bifreið að gjöf frá Heklu
BIFREIÐAUMBOÐIÐ Hekla
hf. færði Rauðakrosshúsinu,
neyðarathvarfi fyrir börn og
unglinga, nýja bifreið að gjöf
nýverið og er þetta í þriðja sinn
sem bifreiðaumboðið sýnir slíka
rausn í garð Rauðakrosshúss-
ins, segir í fréttatilkynningu
sem Morgunblaðinu hefur bor-
ist.
„Bifreiðin er af gerðinni
Mitshubishi Lancer GLX ár-
gerð 1997 og mun hún koma
sér vel fyrir starfsemina, ekki
síst við kynningu á starfsemi
neyðarathvarfsins og trúnaðar-
símans meðal nemenda í grunn-
skólum um land allt,“ segir
ennfremur.
Rauðakrosshúsið veitir
þrenns konar þjónustu, notend-
um að kostnaðarlausu: Neyðar-
athvarf sem er opið allan sólar-
hringinn, allan ársins hring,
trúnaðarsímann þar sem ræða
má viðkvæm mál án þess að
segja til nafns. Síminn er 511
5151, grænt númer 800 5151
og ráðgjöf sem börn og ungl-
ingar leita eftir í auknum mæli.
Gestakomum í Rauðakross-
húsinu fjölgaði umtalsvert á
síðasta ári miðað við árin á
undan. Þær voru 170 í fyrra
en 103 árið áður. Alls gistu yfir
90 einstaklingar í athvarfinu í
969 nætur. Um 35 þúsund ein-
staklingar hafa rætt vanda sinn
í trúnaðarsíma Rauðakross-
hússins frá upphafi. Starfs-
menn hússins tóku við ríflega
fjögur þúsund símtölum í fyrra,
segir einnig í fréttatilkynning-
unni.
Tríóið ÓHM á Sólon
TRÍÓIÐ ÓHM sem skipað er þeim
Óskari Guðjónssyni, saxafónleik-
ara, Hilmari Jenssyni, gítarleikara
og Matthíasi M.D. Hemstock,
trommuleikara, heldur tónleika á
Sóloni íslandusi í kvöld, miðviku-
dagskvöld, og hefjast þeir kl. 22.
Tónleikarnir í kvöld eru þeir
fyrstu í röð þriggja þemakvölda
og er viðfangsefni kvöldsins tónlist
Óskars Guðjónssonar.
Á efnisskrá tríósins næstu mið-
vikudagskvöld verða annars vegar
minnst þekktu lögin af annars lítt
þekktri Bandarískri jasshefð og
hins vegar nær óþekkt jasslög eft-
ir íslenska höfunda.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Lofgjörð, bæn og biblíulestur kl
20.00. Ræðumaður Hafliði Krist-
insson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Orð lífsins, Grensásvegi 8
Samkoma í kvöld kl. 20.
Jódís Konráðsdóttir prédikar.
Beðið fyrir lausn á þínum
vandamálum.
ÉSAMBAND (SLENZKRA
r KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssalurinn,
Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Ferðaþáttur frá Konsó í umsjón
Sigurlaugar Þorkelsdóttur.
Ræðumaður Benedikt Arnkels-
son.
Allir velkomnir.
FERÐAFEIAG
# ÍSLANDS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Miðvikudagur 2. júlí kl. 20:
Kvöldganga: Elliðaárdalur —
Elliðavatn.
5. áfangi afmælisgöngu. Brottföi
eingöngu frá Mörkinni 6.
Ýmsar spennandi ferðir:
1. í fjallhögum milli Mýra og
Dala 5.-6. júlí.
Einstök ferð á slóðir árbókar F.l
1997.
2. Hrafntinnusker — Torfa-
jökull 4.-6. júlf. Göngu- og-
gönguskíðaferð. Gist í skála.
3. Arbókarganga um Vatna-
leiðina 4.-6. júlí.
4. Landmannalaugar —
Þórsmörk, gönguferð.
Næstu ferðir 3., 4., 9. og 10. júlí.
Undirbúningsfundir á mánu-
dagskvöldum kl. 20.
5. Hesteyri — Hlöðuvík 5.—
12. júlí. Uppselt.
6. Eyðibyggðir á skaganum
milli Eyjafjarðar og Skjálf-
anda 11. —17/7. Laus pláss I
einstaka ferð með Valgarði Egils-
syni. Undirbúningsfundur mið-
vikudaginn 2. júlí kl. 18.00
Mörkinni 6.
7. Á Hornströndum 12. —19.
júlí. Hornvík og Hlööuvík. Hægl
að stytta. Fá sæti laus. Breyttur
brottfarartími, farið frá Isafirði kl
08.00.
8. Hlöðuvík — Reykjarfjörður
12. —19. júlf. Uppselt.
Upplýsingar og miðar á skrifstof-
unni.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Leiðmlegir kynnar
ÉG VAR einn af þeim sem að setja kynninguna fram
horfðu á boxleikinn fræga
sem sýndur var í sjónvarp-
inu aðfaranótt sl. sunnu-
dags. Mér fannst gasprið
og þvaðrið í Ómari og
Bubba ákaflega leiðinlegt
og skemma fyrir að nokkru
leyti. Þá fannst mér óþarfi
eins og um hand- eða fót-
boltalýsingu væri að ræða
því kappleikur af þessu
tagi á ekkert skylt við það
efni.
Björn Einarsson
Urðarbakka 24, Rvík.
Kattaplága
EFTIRFARANDI barst
Velvakanda: „Ég vil kvarta
undan kattaplágu í
Skipasundi. Fólk er hér
jafnvel með tvo ketti og
hund líka. Þessu er svo
sleppt út og kettirnir drepa
fugiana í görðunum. Við
sem búum héma í götunni
vitum ekki hvað við eigum
að gera. Mér fínnst það of
Skipasundi
mikið þegar fólk er með tvo
ketti og hund. Þetta er
orðið algjör plága. Maður
tínir upp dauða unga og
fugla hér í görðunum. Ég
er sammála Leifi Sveins-
syni sem skrifaði um þetta
vandamál og finnst að það
ætti að taka upp katta-
skatt.
Fuglavinur.
Ánægja með útvarps-
stöðina Stjörnuna
ÉG VIL koma á framfæri heyrist ekki á öðrum stöð-
þakklæti til útvarpsstöðv- um þ.e. gamla góða rokkið.
arinnar Stjömunnar. Þar Jóna
er verið að spila tónlist sem Guðmundsdóttir.
Tapað/fundið
Blár vindjakki
fannst
BLÁR vindjakki með hettu
fannst við Hrútagil á Þing-
völlum laugardaginn 28.
júní. Uppl. í síma
554-6959.
Fílófax tapaðist
í Skeifunni
FÍLÓFAX, lítið og svart,
töpaðust fyrir nokkrum
dögum í Skeifunni á milli
Sparisjóðsins og Amarins.
Þeir sem hafa fundið fíló-
faxið vinsamlega hafi sam-
band í síma 487 8256 eða
854 6165.
Dýrahald
Kisa tapaðist
á Selfossi
BRÖNDÓTT læða með
rauða ól tapaðist föstudag-
inn 27. júní frá Baugs-
tjöm, Selfossi. Þeir sem
hafa orðið varir við kisu
em beðnir að hringja í
síma 482 2013 eða
854 8913.
Kettlingar óska
eftir heimili
TVEIR sérstaklega falleg-
ir kassavanir kettlingar
óska eftir góðu heimili.
Upplýsingar í síma
483 4886.
Læðu vantar
heimili
SVÖRT læða með hvítar
Ioppur og hvíta bringu
(KR-litimir), kassavön,
óskar eftir heimili.
Upplýsingar í síma
551 8086.
Páfagaukur fannst
PÁFAGAUKUR (gári)
fannst í Elliðaárdal sl.
þriðjudag. Upplýsingar í
síma 581 2201.
Páfagaukur
tapaðist
LJÓSGRÁR páfagaukur
með ljósgult höfuð tapaðist
frá Skógarhjalla í Kópa-
vogi sl. sunnudag.
Upplýsingar í síma
554 6923.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stelpur, þær Steinunn og Heið-
dís, héldu hlutaveltu nýlega til styrktar Rauða
krossi Islands og varð ágóðinn 833 krónur.
Ljósm. Ari Hafliðason
FRÆNKURNAR Margrét Diljá Oddsdóttir og Petr-
ína Sigrún Helgadóttir, héldu tombólu fyrir skömmu
og söfnuðu 724 krónum og gáfu Rauða krossi Islands.
ÞESSAR duglegu stelpur héldu hlutaveltu nýlega
til styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn
1.418 krónur. Þær heita Ástrós Rut Sigurðardóttir
og Kolbrún Björk Baldvinsdóttir.
Ljósm. Ari Hafliðason
SYSTURNAR íris Rut og Tinna Rut Jónsdætur
söfnuðu um 700 krónur í tombólu og færðu Rauða
krossi Islands.
Víkverji skrifar...
TLI það sé mikið til í því,
að Islendingar leggi ekki
upp I ferðalög hér innanlands, fyrr
en júnímánuður er liðinn? Víkveiji
hugleiddi þetta um helgina, þegar
hann brá sér út úr bænum í góða
veðrinu og keyrði austur að Þing-
völlum. Veðrið var öldungis yndis-
legt, Þingvellir skörtuðu sínu feg-
ursta, fjallahringurinn var ólýsan-
Iegur og gróðurilmur í lofti. Vík-
veija kom á óvart, hversu fáir voru
á ferð, þrátt fyrir alveg dæmalaust
gott ferðaveður. Þeir fáu sem Vík-
veiji og ferðafélagar hans rákust
á, voru ekki íslendingar.
xxx
AÐ er mjög skemmtilegt að
keyra Þingvallahringinn og
komast þannig hjá því að aka sömu
leið til baka til Reykjavíkur. Vegur-
inn er líka ágætlega góður um
þessar mundir - aðeins stuttur
kafli á leiðinni niður að Ljósafossi
sem er ekki mjög góður. Viðkoma
í sundlauginni á Hótel Örk er allt-
af hin ágætasta skemmtun, en
sömu sögu var að segja um þá
heimsókn og heimsóknina á Þing-
velli, sárafátt fólk var í lauginni.
Hvergerðingar búa einstaklega
vel, að því er varðar sundlaugar-
mannvirki. Þeir eiga hina ágætustu
50 metra sundlaug, Sundlaugina
Laugaskarði, þá fyrstu sem byggð
var á íslandi. Það er til fyrirmynd-
ar hversu vel þeirri laug hefur
verið viðhaldið. Þar er snyrti-
mennskan í fyrirrúmi, og umhverfi
laugarinnar allt hið fegursta.
Raunar státar Laugaskarð einnig
af hinu ágætasta gufubaði. Vík-
veiji hefur alltaf ánægju af því að
sækja Hveragerði heim, ráfa um
Eden og fá sér kaffibolla og
skreppa í gróðurhús í leit að ís-
lensku grænmeti. Eina umkvörtun-
arefni Víkvetja er hin skelfilega
ljóta bygging, sem áður hýsti Tí-
volíið. Víkveija finnst byggingin
sú svo ljót, að hún skapi raunveru-
lega sjónmengun.
xxx
OSKÖP lagðist nú lítið fyrir
kappann Tyson, að bíta bara
stykki úr eyra heimsmeistarans,
Holyfield, þegar þeir kappar áttu
að eigast við um heimsmeistara-
titilinn í hnefaleikum. Slík vanstill-
ing er Tyson til skammar og aug-
ljóst að hann á við slíka skap-
gerðarbresti að stríða, að hann
þyrfti að leita sér hjálpar. Það er
ljóst að geysilega margir urðu fyr-
ir sárum vonbrigðum þegar bar-
dagi þeirra Tyson og Holyfield var
stöðvaður í þriðju lotu aðfaranótt
sunnudagsins. Menn voru búnir að
bíða spenntir eftir þessu „einvígi
aldarinnar" eins og bardaginn var
gjarnan nefndur, en á örskammri
stundu breyttist hann í „hneyksli
aldarinnar".