Morgunblaðið - 02.10.1997, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
r
Morgunblaðið/Ásdís
FORSETI Slysavamafélags íslands, Gunnar Tómasson, tekur hér við nýja björgunarbátnum hjá Bert König,
framkvæmdastj óra þýsku útgerðarinnar sem gaf bátinn.
Útgerð Víkartinds gefur björgunarbát
ÚTGERÐ Víkartinds, Peter Döhle
Schiffarts í Hamborg, hefur afhent
Slysavarnaskóla sjómanna lokaðan
björgunarbát, svokallaðan frífalls-
bát. Þessi gerð báta hefur tekið við
af eldri lífbátum sem notaðir eru í
flutningaskipum.
Þrjú skip íslenskra útgerða eru
búin slíkum bátum, Brúarfoss Eim-
skipa, og leiguskip Samskipa, Arn-
arfell og Helgafell. Hilmar Snorra-
son, skólastjóri Slysavarnaskóla
sjómanna, segir að skólanum sé
mikill akkur að gjöfinni og verður
hann notaður til þjálfunar sjó-
manna kaupskipaflotans í framtíð-
inni. Báturinn sem hér um ræðir
var björgunarbátur í Víkartindi.
5352000 er talan sem
jjárfestar þurfa að muna
Stórt stökk fram á viö í upplýsingagjöf á fjármálamarkaði
í nútíma fjármálaumhverfi þurfa fjárfestar
nýjar og áreiðanlegar upplýsingar fljótt og
örugglega. Upplýsingaveita Landsbréfa er
stórt stökk fram á við í upplýsingagjöf um
verðbréf og verbréfamarkað.
Aðeins eitt símanúmer gefur
upplýsingar um: -----------------------
—• Síðasta viðskiptagengi allra félaga
á Verðbréfaþingi Islands og
á Opna tilboðsmarkaðnum.
—• Gengi verðbréfa- og
hlutabréfasjóða Landsbréfa.
—• Kaupverð Landsbréfaá húsbréfiim
á ákveðnu nafhverði í tilteknum fiokkum.
—• Gengi, ávöxtunarkröfu og afföll húsbréfa,
—• Ahugaverð tilboð.
Ennfremur er hsegt að nota takkaborð símans
til að fá sent fax með nýjustu upplýsingum um gengi bréfa.
Upplýsingaveita Landsbréfa er opin
allan sólarhringinn - hringdu!
jf
y LANDSBREF HF.
- 'Tvhi,
Löggilt vorðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 2 4. 108 REYKJAVÍK, SÍMI 535 2000. BRÉFSÍMI 535 2001
Vantar fleiri blóðgjafa
Þurfum að efla starf-
semi Islensku blóð-
gj afasamtakanna
Björn Harðarson
orðurlanda-
þjóðirnar með
Dani fremsta í
flokki hafa að
undanförnu unnið mark-
visst að því að vera sjálf-
um sér nógar með blóð
og afurðir þess. Danir
sem hafa hvað mesta
reynslu Norðurlanda-
þjóðanna í samskiptum
við Evrópubandalagið
búast jafnvel við að sett-
ar verði reglugerðir um
frjálsa og óhefta mark-
aðsvæðingu á blóði og af-
urðum þess. Þær reglur
myndu einnig snerta Is-
lendinga. Björn Harðar-
son yfirmaður hjá Blóð-
bankanum segir að
margt megi læra af Dön-
um þegar blóðgjafir eru
annarsvegar en þeir eiga meðal
annars mjög virk blóðgjafasam-
tök og eru manna duglegastir á
Norðurlöndum að gefa blóð.
„Danir settu lög í sumar sem
skilgreina hvemig blóðgjöf á að
fara fram, þ.e.a.s. blóðgjafar
gefi sjálfviljugir og þiggi ekki
greiðslu fyrir. Þannig tryggja
Danir að blóðgjafar gefi blóð til
hjálpar samlöndum sínum.
- Hvernig er starfí þessara
dönsku blóðgjafasamtaka hátt-
að?
„Danmörku er skipt í svæði og
mismargir blóðbankar eru innan
hvers svæðis. Alls eru milli 70 og
80 blóðbankar í Danmörku. Það
er ekki í höndum þeirra að kalla
inn blóðgjafa eins og hér á landi.
Þegar blóð vantar hafa þeir
samband við dönsku blóðgjafa-
samtökin sem sjá um að senda
blóðgjafa í viðkomandi flokkum
til gjafar. Pulltrúar úr svæðis-
stjómum mynda sameiginlega
stjóm dönsku blóðgjafasamtak-
anna. Fyrir hvem blóðgjafa fá
samtökin greiðslu frá danska
ríkinu sem þau nýta til útgáfu
fræðsluefnis til blóðgjafa og
verðlaun og viðurkenningar fyr-
ir blóðgjafa.“
- Telur þú þessa leið heppi-
lega fyrir Islendinga?
„Ég held að við getum tekið
mið af reynslu Dana. íslensku
blóðgjafasamtökin vora stofnuð
árið 1982. Þau þurfa að verða
virkari. Fram til þessa hefur öll
starfsemi þess verið unnin í
sjálfboðavinnu og þar verið unn-
ið fórnfúst starf. Það er hinsveg-
ar ljóst að þar er engan veginn
sambærilegt starf unnið miðað
við hjá dönsku samtökunum þar
sem fólk er í fullu starfi. Ég sé
fyrir mér virk samtök
sem starfa að velferð
íslenskra blóðgjafa í
náinni samvinnu við
Blóðbankann."
Bjöm telur nauð-
synlegt að íslensk heilbrigðisyf-
irvöld gefi íslenskum blóðgjöf-
um meiri gaum, til dæmis með
því að styðja við bakið á starf-
semi Blóðbankans og íslenska
blóðgjafafélagsins.“
„Við höfum tækifæri til að
stíga mikilvægt skref í átt að því
að vera sjálfum okkur nóg með
blóðafurðir ef við sendum til út-
landa blóðvökva (plasma) til
fullvinnslu. Til þess að þetta
verði mögulegt vantar fjármagn
til að hægt sé að kaupa nauð-
synlegan tækjabúnað. Ég sé
fyrir mér að heilbrigðisyfirvöld
Björn Harðarson fæddist í
Reykjavík árið 1959. Hann
lauk prófi í líffræði frá Há-
skóla íslands árið 1982 og hef-
ur síðan starfað hjá Blóðbank-
anum. Bjöm er yfirmaður
þjónustusviðs og blóðhluta-
framleiðslu Blóðbankans og
formaður Blóðgjafafélags Is-
lands. Eiginkona Björns er
Bryndís Olafsdóttir skurð-
hjúkrunarfræðingur og eiga
þau fjögur börn.
gætu aðstoðað við slík kaup.“
- Vantar blóðgjafa?
„Já það vantar alltaf blóð-
gjafa. Arlega gefa Islendingar
um 15.000 blóðeiningar og eru
það á bilinu 8.000-9.000 einstak-
lingar sem gefa það blóð. Það
era 3-4% þjóðarinnar. Daglega
þurfum við að fá til okkar í Blóð-
bankann á bilinu 60-70 blóð-
gjafa. Við viljum því endilega
fjölga blóðgjöfum, gefa þeim
viljugu einstaklingum sem við
eram að leita til lengri hvíld
milli blóðgjafa.
- Hversu oft gefa menn blóð?
„Menn hafa fengið viðurkenn-
ingarskjal við 25. blóðgjöf, aftur
þegar komið er í 50. skipti, 75.
og síðan í 100. skipti. Þeir sem
hafa gefið blóð hundrað sinnum
fá einnig viðurkenningargrip."
- Hafa margir gefíð blóð 100
sinnum?
„Sjö manns hafa gefið blóð
hundrað sinnum og við köllum
þá hundraðshöfðingja." Björn
segir að konur sér sérstaklega
boðnar velkomnar. Hlutfall milli
kvenna og karla er mikið. Um
90% þeirra sem gefa blóð era
karlmenn.11
- Hverjir geta gefíð
blóð?
„Allir hraustir ein-
staklingar frá átján
ára aldri og fram að
sextugu. Við göngum
úr skugga um að fólk hafi nóg
blóð að gefa og síðan er mælt
með að konur komi á fjögurra
mánaða fresti en karlar á
þriggja mánaða fresti."
-Hvernig bera þeir sig að
sem vilja gefa blóð?
„Þeir koma til okkar í Blóð-
bankann. Við tökum vel á móti
fólki og kunnum að meta það að
einstaklingar gefi sér tíma til að
koma í þessum tilgangi. Blóð-
bankinn er opinn mánudaga til
miðvikudaga frá klukkan 8-15,
fimmtudaga frá kl. 8-19 og
föstudaga frá 8-12.
Um 90%
blóðgjafa eru
karlmenn