Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Israelar láta stofnanda Hamas - samtakanna lausan úr fangelsi vegna veikinda Yassin segist munu snúa aftur til síns heima á Gaza Gaza, Jerúsalem, Amman, Alexandríu. Reuter. STOFNANDI Hamas, samtaka heittrúaðra múslíma, sem ísraelar slepptu úr haldi í fyrri- nótt, sagði að hann myndi brátt snúa aftur til síns heima á Gazasvæðinu, eftir að hafa verið undir læknishendi í Amman í Jórdaníu, en þang- að var hann fluttur er honum var sleppt úr fang- elsi í ísrael. Ahmed Yassin er Palestínumaður, 61 árs og andlegur leiðtogi meðlima Hamas. Hann var hnepptur í lífstíðarfangelsi í ísrael 1989 fyrir að stofna samtökin og að gefa meðlimum þeirra fyrirskipanir um árásir á ísraelsk skotmörk. Herskár armur samtakanna er eindregið andvíg- ur samningaumleitunum milli Frelsissamtaka Palestínu, PLO, og ísraela og hefur staðið að tilræðum sem hafa orðið fjölda manns að bana á undanfömum árum. Israelski herinn gaf út stutta yfirlýsingu í gær þar sem sagði að Yassin hefðu verið gefnar upp sakir af heilsufarsástæðum. Hefði hann verið fluttur til Amman í Jórdaníu á miðvikudag í kjölfar þess að Hussein Jórdaníukonungur krafð- fet aðgerða er stuðluðu að friðarumleitunum. „Ég sendi allri palestínsku þjóðinni kveðjur mínar. Ég vil segja henni að ég mun koma til Gaza innan tíðar. Ég er undir læknishendi í Jórdaníu," sagði Yassin í símaviðtali við frétta- mannafund í Gaza í gær. Skipuleggjandi fundarins og leiðtogi Hamas á Gaza sagði að Yassin hefði ítrekað heit samtakanna um „full- komna endurheimt réttinda palestínsku þjóðar- innar“. Liður í samkoniulagi við Jórdaníumenn? ísraelska útvarpið hafði í gær eftir ónafn- greindum Palestínumönnum að Yassin hafí verið Reuter YASSIN ekið í hjólastól frá fangelsi í Tel Aviv í fyrrinótt, en þaðan var hann flutt- ur til Amman. látinn laus vegna samkomulags ísraela og Jórd- aníumanna, sem hefðu í staðinn látið lausa tvo meinta útsendara ísraelsku leyniþjónustunnar, Mossad, sem hafí verið í haldi í Amman fyrir að reyna að myrða Khaled Mashal, leiðtoga Hamas. Talsmaður ísraelskra stjórnvalda vildi ekkert segja um þessar fullyrðingar í gær. Jórdönsk yfirvöld neituðu því að þau hefðu sæst á að láta lausa tvo menn í skiptum fyrir Yassin. Yasser Arafat, forseti heimastjómar Palest- ínumanna, sagðist í gær fagna því að Yassin skyldi látinn laus en lét í ljósi vonbrigði með að hann skyldi sendur til Jórdaníu. Sagði Arafat að lausn Yassins yki traust og tiltrú, og von- andi væri þetta upphaf þess að félagar Yassins, sem þjáðust í ísraelskum fangelsum, yrðu látnir lausir. Sviksemi ísraela Bandaríkjamönnum ljós Arafat átti í gær stuttan fund með Hosni Mubarak, forseta Egyptalands. Að honum lokn- um sagði Arafat að Bandaríkjamenn væru nú orðnir sannfærðir um að ísraelar væru að reyna að víkja sér undan skyldum sínum í friðarumleit- unum fyrir botni Miðjarðarhafs. ísraeíar og Palestínumenn samþykktu á fundi með Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í New York á mánudag að hefja aftur formlegar friðarviðræður, en þær hafa leg- ið niðri í hálft ár vegna landnáms gyðinga og sprengjutilræða múslíma. Sagði Arafat að til- raunir Bandaríkjamanna til að koma á viðræðum bæru þess glöggt vitni að Bandaríkjamenn teldu að Israelar væru að reyna að víkja sér undan heitum sem þeir hefðu skrifað undir. Somoza saknað í Nicaragua Eftirsjáin vex með fátæktinni San Rafael del Sur í Nicaragua. Reuter. HUNDRUÐ Nicaraguabúa komu til kirkju á mánudag til þess að vera við messu er haldin var til heiðurs Somozafjölskyldunni, sem var ein- ráð í landinu í hartnær hálfa öld. Messan var haldin í bænum San Rafael del Sur, um 55 km suðaust- ur af höfuðborginni, Managua. Fyr- ir einungis fáum árum hefði messu- hald sem þetta verið óhugsandi í Nicaragua, því fáir létu þá upp- skátt um stuðning við Somozafjöl- skylduna. En eftirsjá eftir ljölskyldunni hefur vaxið undanfarin ár um leið og sár fátæktin sem fylgdi í kjölfar þess að herstjórn hennar leið undir lok. „Lengi lifi Somoza hershöfð- ingi!“ æptu stuðningsmenn við messugjörðina. Flestir íbúa San Rafael del Sur eru verkafólk, og segja má að bærinn hafi fyrr á tíð verið í eigu Somozafjölskyldunnar. „Ég er Somoza-sinni,“ hefur Reuter eftir Olgu Flores, sem dreifði minningarkortum með mynd af ættföðurnum, Anastasio Somoza Garcia, sem ljóðskáldið Rigoberto Lopez Perez myrti 1956. Tveir sona hans tóku við völdum af honum uns vinstrisinnaðir Sandinistaskæruliðar steyptu An- astasio Somoza Debayle hershöfð- ingja af stóli í júlí 1979. r Hér er ték höfum benkeþjófms
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.