Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997
MININIINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
DAGRUN HELGA
HA UKSDÓTTIR
+ Dagrún Helga
Hauksdóttir
fæddist í Reykjavík
24. nóvember 1962.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
24. september síð-
astliðinn og fór út-
för hennar fram frá
Háteigskirkju 1.
október.
Það er erfitt að lýsa
þeirri tilfinningu sem
þyrmdi yfir mig þegar
Vignir hringdi í mig
og lét mig vita af því
að Dagrún systir hans hefði dáið
um nóttina. Dagrún var sterkur
persónuleiki sem sýndi sig í því hve
jákvæð, sterk og ákveðin hún var
í því að sigrast á sjúkdómnum. Það
eitt fékk alla aðra til að trúa því
einnig. Ég kynntist Dagrúnu fyrir
fimmtán árum þegar ég sem ungl-
ingur fluttist á heimili þeirra Hauks
og Sigrúnar sem unnusta Vignis.
Frá þeim tlma á ég margar ljúfar
minningar frá því góða heimili.
■"feagrún, Bergþór og Andri Már
komu oft í Fjarðarásinn og þá var
oft gripið í spil. Dagrún var einstak-
lega hláturmild og skemmtileg.
Hún var einnig mjög frændrækin
eins og foreldrar hennar og oft var
mikill gestagangur í Fjarðarásnum.
Þó að leiðir okkar Vinis lægju ekki
lengur saman kom hún alltaf í af-
mæli litlu frænku sinnar með
Andra Má. Alltaf var hún að hvetja
mig að koma í heimsókn til sín þó
ég léti ekki verða af því fyrr en í
Simar. Dagrún er ekki eina barn
þeirra Hauks og Sigrúnar sem hrif-
ið er á brott í blóma lífsins. Hafþór
Már var hrifinn á brott ungur mað-
ur í blóma lífsins. Hver
hefði trúað því þá að
Guð ætti eftir að varpa
þyngri byrði á herðar
Hauks og Sigrúnar.
Elsku Bergþór,
Andri Már, Sigrún og
Haukur. Ég sendi ykk-
ur og öðrum ástvinum
mína dýpstu samúð og
megi Guð styrkja ykk-
ur í þessari miklu sorg.
Katrín Sif.
Elskuleg og kær
vinkona okkar hefur
kvatt sitt jarðneska líf eftir hetju-
lega baráttau við sjúkdóm sem tók
að lokum líf hennar langt fyrir ald-
ur fram. Eftir lifa minningarnar
um yndislegan tíma sem við áttum
saman, skemmtilegu utanlands-
ferðina okkar sem við gátum enda-
laust rifjað upp og hlegið að, þegar
við sátum þijár saman og spjölluð-
um, og oftar en ekki byijuðum við
að tala um alvöru lífsins sem end-
aði í óstöðvandi hláturskasti þegar
við sáum hlutina í aðeins víðara
samhengi.
Þú varst alltaf tilbúin að taka
þátt í lífi vina þinna og fjölskyldu
bæði í gleði og sorg það var svo
gaman að segja þér gleðilegar
fréttir því þú samgladdist okkur
alltaf svo innilega en þegar eithvað
bjátaði á varst þú alltaf komin til
að hlusta og hugga.
Elsku hjatans Dagrún, engan
hefði grunað hvað þú áttir stutt
eftir þegur þú stóðst fallegri en orð
fá lýst á heimili foreldra þinna 20.
septemer síðastliðinn og giftist ást-
inni í lífinu þínu. Það fór ekki fram
hjá neinum sem umgengust ykkur
Bergþór hvað þið voruð ástfangin
og stolt af einkasyninum, honum
Andra Má. Elsku Bergþór, Andri
Már, Haukur, Sigrún, Vignir og
aðrir aðstandendur, við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð og megi
guð veita ykkur styrk í sorg ykkar.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Við áttum eftir að segja þér svo
margt, elskulega vinkona, og orð
fá ekki lýst þeim söknuði og tóma-
rúmi sem verður þegar kveðjum
þig-
Þínar vinkonur
Sigrún og Erna.
Hafsjór minninga þýtur í gegn-
um huga minn; svo margar og svo
dýrmætar. Minningar um ómetan-
lega vináttu okkar sem nú spannar
hátt í tuttugu ár. Elsku fallega vin-
kona mín, það tók mig sárar en
orð fá lýst að heyra af veikindum
þínum nú í vor, en þú sem þekkir
mig svo vel vildir ekki að ég heyrði
af því símleiðis heldur baðstu vin-
konu okkar að segja mér frá því
bara þegar hún væri komin til mín.
Þó að undanfarin ár hafi lönd og
höf skilið okkur að vissum við allt-
af báðar að hvorki fjarlægðir né
tími gátu nokkru sinni haft áhrif á
vináttu okkar, til þess var hún og
er bæði of sterk og hrein. Fagnað-
arópin, faðmlögin og kossarnir þeg-
ar við hittum hvor aðra, þó að langt
hafi liðið á milli, eru eitthvað sem
við höfum eflaust báðar oft yljað
okkur við því þó að pósthólfm hafi
ekki verið full af bréfum okkar
hvorrar til annarrar alla daga veit
ég að þú hugsaðir til mín alveg
eins og ég hugsaði til þín.
Þegar við töluðum saman nú
fyrir stuttu kom einurð þín og festa
svo vel í ljós, sem sýndi sig ekki
síst í því að á milli þess sem við
ræddum hin ýmsu mál hlógum við,
eins og venjulega, eins og vitleys-
ingar að öllu mögulegu og ómögu-
legu, gömlu og nýju. Hlátur þinn
svo einstakur og smitandi, svo
smitandi að þegar þú byijðir lá við
að fólk I næstu húsum heyrði til
þín og gat ekkki annað en hlegið
með án þess að hafa hugmynd um
út af hverju. Já, það má segja að
við höfum verið grallarar, en við
vorum góðir grallarar sem fullorðn-
uðumst að mörgu leyti saman,
bæði hér heima og í rannsóknar-
og skólaleiðöngrum okkar erlendis,
þar sem Santander skiþtaði stóran
sess í huga okkar beggja. Við tók-
um upp á ýmsu, deildum næstum
öllu, allt frá vasapeningunum okkar
og fötum ef því var að skipta að
dýpstu leyndarmálum.
Það er erfitt að taka því að þú
skulir hafa veikst einmitt núna
þegar framtíðin blasti við þér og
enn erfiðara að skilja tilgang þess.
Ég veit að þú bjóst yfir ótrúlegum
sálar- og viljastyrk og barðist eins
og hetja til að fá að vera áfram
hjá ástvinum þínum. En þó að veik-
ur líkami þinn hafi nú látið bugast
áttirðu eftir áður en svo varð, með
einstökum glæsibrag, að verða feg-
ursta brúður sem nokkur faðir get-
ur gefið frá sér og nokkur brúð-
gumi getur eignast. Með gleði þinni
og viljastyrk tókst þér að deila með
og gefa manninum þínum, syni,
foreldrum 'og öðrum vandamönnum
ógleymanlegan dag. Gullfallegar
brúðarmyndirnar bera þess svo
sannanlega vitni.
Elsku besta Dagga mín, þakka
þér fyrir að hafa gefið mér vináttu
þína, þakka þér fyrir ást þína og
virðingu og allar stundirnar sem
við höfum átt saman í blíðu og
stríðu í gegnum árin. Ég veit að
Hafþór hefur tekið vel á móti þér
og nú þegar þú hefur fengið hvíld
+
Eiginkona mín,
GUÐRÚN ÁMUNDADÓTTIR
frá Sandlæk,
Sólvallagötu 26,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík á morgun, föstudaginn
3. október, kl. 13.30.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Karl Jóhann Guðmundsson.
Þökkum innilega öllum þeim sem sýnt hafa
samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar
móður minnar, systur, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR EINARSDÓTTUR
hjúkrunarkonu frá Bakka,
Akranesi,
Furugerði 1.
Halldóra Jónasdóttir,
Sigríður Einarsdóttir, Halldór Einarsson,
Margrét Hákonardóttir, íris Margrét Valdimarsdóttir,
Guðbjörg Hákonardóttir, Vala Sveinsdóttir,
og langömmubörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför áskærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGURBJARGAR ANGANTÝSDÓTTUR,
Sunnuvegi 2,
Skagaströnd,
Guð blessi ykkur öll.
í
Sigmar Jóhannesson,
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Benjamín L. Fjeldsted,
Dagný Marín Sigmarsdóttir, Adolf Hjörvar Berndsen
og barnabörn.
RAGNHEIÐUR G.
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Ragnheiður G. Guðmunds-
dóttir fæddist í Hafnarfirði
10. ágúst 1928. Hún andaðist í
Sjúkrahúsi Reykjavíkur 23. sept-
ember síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði 30. september.
Elsku araraa. Mig langar að
kveðja þig með nokkrum orðum.
Ég var alltaf velkominn til ykkar
^TXTXxxrrrq
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Sími 562 0200
aiiiiiiiiiil
hvenær sem ég vildi. Ég notaði hvert
tækifæri þegar ég átti frí í skólanum
til að hringja til þín og afa og spyija
hvort ég mætti koma. Það var alltaf
sjálfsagt að fá að sofa hjá ykkur
þótt þú værir stundum veik. Alltaf
varst þú tilbúin til að spila, horfa á
fótbolta með mér eða tala við mig,
enda eruð þú og afí mínir bestu vin-
ir. Þegar þú fórst inn á spítala lof-
aði ég þér því að ég myndi passa
afa fyrir þig og það ætla ég alltaf
að gera.
Elsku amma mín, ég mun aldrei
gleyma þér og öllum þeim góðu
stundum sem við áttum saman.
Guð geymi þig.
^'nn Óskar Jón.
Crfisdrykkjur
GRPI-lfm
Sími 555-4477
í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða.
Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla
Verið velkomin til okkar,
eða fáið myndalista.
SKEMMUVEGI 48, 200
, SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410
langar mig að senda þér þessa bæn
sem hefur fylgt mér frá því ég var
barn.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð þinn náðarkraftur
mér veri vöm í nótt.
Æ, virzt mér að þér taka,
mér yfír láttu vaka
þinn engil, svo ég sofí rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Um leið og ég votta Bergþóri,
Andra Má, foreldrum þínum og
Vigni, sem nú mega bera þá óend-
anlega þungu byrði að sjá á eftir
öðru barni sínu og systkini, fjöl-
skyldu og aðstandendum öllum
mína dýpstu samúð, bið ég algóðan
Guð að gefa þeim styrk í þeirra
miklu sorg. Drottinn blessi minn-
ingu minnar kæru vinkonu, Dagr-
únar Helgu Hauksdóttur.
Þín vinkona alltaf,
Guðlaug.
Afmælis-
og minn-
ingar-
greinar
MIKILL fjöldi minningargreina
birtist daglega í Morgunblað-
inu. Til leiðbeiningar fyrir
greinahöfunda skal eftirfarandi
tekið fram um lengd greina,
frágang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvern einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
minningargreinar um sama
einstakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksenti-
metrar í blaðinu). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þijú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram
í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textamenferð
og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Þá er ennfremur unnt
að senda greinar í símbréfi -
569 1115 - og í tölvupósti
(minning@mbl.is). Vinsamleg-
ast sendið greinina inni í bréf-
inu, ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn eða
eftir að útför hefur farið fram,
er ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.