Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 43
-4. FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ____________________________ MINNINGAR I + Vilborg Matt- hildur Ólafs- dóttir fæddist í Ólafsvík 8. ágúst 1908. Hún lést 24. september síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Ólafur Bjarnason og Katr- ín Hjálmarsdóttir. Vilborg var yngst níu systkina sem upp komust, þau eru öll látin. _ Hinn 6. júní 1929 giftist Vilborg Ge- org Sigurðssyni, vélsljóra, f. 28. júní 1906. Hann fórst með mb. Kjartani Ólafs- syni 14. desember 1935. Börn þeirra Vilborgar og Georgs voru: 1) Salvör Sigríður, f. 21. mars 1930, d. 6. júní 1971, maki Vilmundur Jónsson, börn: Georg, Guðjóna, Vilborg Matt- hildur og Órn. 2) Pétur Ás- björns, f. 5. júní 1931, d. 24. júlí 1987, maki Emelía Jóns- dóttir, börn: Ragnheiður Jó- hanna, Vilborg, Margrét og Petrea Emelía. 3) Katrín, f. 1. Nú þegar ég sest niður til að skrifa kveðjuorð um ömmu Boggu og læt hugann reika til baka er það þakk- læti sem fyrst og fremst leitar á hugann. Þakklæti fyrir að hafa feng- ið að kynnast og alast upp í um- hverfi sem hún var alltaf hluti af, þakklæti fyrir að hafa lært að virða fortíðina, fengið svo náin kynni af aldamótakynslóðinni og raunhæfa frásögn af lífmu í bernsku hennar án þess að hún væri „dramatiseruð" um of. Hún sagði frá á einfaldan og nærgætinn hátt með virðingu fyrir öllum. Hún bar alltaf sérstakar tilfinningar til æskustöðvanna í Ólafsvík og sagði oft frá „krökkun- um á Snoppunni" og alltaf var stutt ' „blessaðan Jökulinn minn“. Amma hafði mikla sjálfsvirðingu °S gat þess vegna alltaf sýnt öðrum fulla virðingu og ekkert var það starf sem henni fannst vera of lítilfjör- legt, aðeins illa unnin störf voru henni ekki að skapi. Hún var mjög góður kokkur og mörgum eru í fersku minni veislur hennar á Mel- stað. Oft hef ég á seinni árum undr- ast framsýni hennar í að nýta sér og taka upp nýjar aðferðir í matar- gerð. Hún gerði þetta allt svo vel og smekklega að fagfólk hefði varla gert betur. Oft heyrði ég „kallana hennar" í Sementsverksmiðjunni dásama matargerð hennar og bar öllum saman um að það skipti engu hvort um væri að ræða fisk á þriðju- degi eða steik á föstudegi, allt var þetta gott og borið fram af natni og umhyggju og ennþá eru matar- uppskriftir hennar notaðar mikið innan fjölskyldunnar. Minningarnar hrannast upp og alltaf stendur amma frammi sem hin fyrirhyggjusama stórfjölskyidu- móðir sem alltaf var til staðar og sá til þess að allir fengju sitt. Eftir að hún fór að eldast kom hún mér á óvart þegar ég komst að því hversu vel hún fylgdist með öllum afkom- endunum, vissi alltaf hvar fólkið var statt í námi og starfi, virtist kunna vaktatöfiur þeirra sem unnu vakta- vinnu utanað og alltaf gat hún sagt hvar þeir sem sjóinn stunduðu eða voru á ferðalagi voru staddir. Þrátt fyrir að lífið hafi ekki alltaf farið mjúkum höndum um ömmu varð maður aldrei var við beiskju hjá henni. Hún sagði oft frá baslinu með bömin þriggja til fimm ára, hún orðin sjómannsekkja 27 ára gömul, en tónninn alltaf sá sami: „Þau voru svo dugleg." Amma lifði tvö af þrem- ur börnum sínum - Sigríður, elsta dóttir hennar, lést 41 árs gömul og er Pétur, sonur hennar, lést 56 ára gamall kom það í minn hlut og bróð- ur míns að færa henni fréttina. Pét- ur sem hafði verið henni svo mikill styrkur og axlað ungur karlmanns- hlutverk heimilisins samkvæmt þeirra tíma venju var nú allur. Það september 1932, maki Janus Bragi Sigurbjömsson, böm: Georg Vil- berg, Valgerður, Hilmar Bragi, Heimir Björn og Heiðrún. Einnig ólst upp með börn- um hennar Elín El- íasdóttir, f. 20. febr- úar 1920, maki Ein- ar Magnússon, börn: Georg, Viðar, Bjamey Steinunn, Einar og Dröfn. Langömmubörnin em 37 og langalangömmubarn eitt. Fyrri hluta starfsævi sinnar stundaði Vilborg ýmis fisk- vinnslustörf, þá starfaði hún á Nótastöðinni á Akranesi en lengst af starfaði hún sem matráðskona í mötuneytum og síðustu tíu starfsárin við mötu- neyti Sementsverksmiðju ríkis- ins á Akranesi. Útför Vilborgar verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. var mikil reynsla að fylgjast með ömmu vinna sig áfram út úr sorg- inni og takast á við lífið að nýju. Þá var það iðjusemi hennar, æðru- leysi og sá eiginleiki að kunna að meta og þakka það sem hún átt hafði, fremur en að sýna beiskju út í lífið, sem hjálpaði henni til að vinna sig áfram að nýju. Síðustu æviárin dvaldi amma á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi og ekki er annað hægt en að minn- ast þess tíma. Ég held að allir hafi kviðið svolítið fyrir því að hún færi þangað, þar sem hún hafði sínar skoðanir á flestum hlutum, hvemig skyldi henni ganga að vera inni á stofnun? Hún tók því eins og öllu öðru, með æðruleysi og fullum vilja til að gera sitt besta. Á Höfða hélt hún fullri reisn og „stúlkurnar henn- ar“ önnuðust hana svo vel að hún naut þar ævikvöldsins alsæl og eins og best varð á kosið. Fyrir hönd fjöl- skyldunnar vil ég þakka starfsfólki Dvalarheimilisins Höfða og starfs- fólki Sjúkrahúss Akraness góða ummönnun og umhyggju í hennar garð. Megi minningin um styrk hennar og gæsku lifa með okkur öllum. Georg V. Janusson. Kæra Vilborg. Leitt að þú ert farin frá okkur. Eg sakna þín. Amma Bogga farin ert þú. Þú kemur aldrei aftur. Ég vona að þú hafír það gott. Þitt barnabarnabarn Hjalti. Glöð með glöðum varstu göfg og trygg á braut þreyttra byrði barstu, blíð í hverri þraut. Oft var örðugt sporið aldrei dimmt í sál sama varma vorið viðkvæm lund og mál. (Magnús Markússon.) Það kemur fólki alltaf að óvörum og enginn getur verið við því búinn þegar náinn ættingi eða vinur er brott kallaður og hverfur yfir móð- una miklu. Þannig var því einnig farið með okkur sem þessa kveðju sendum þegar okkur barst sú fregn að Vilborg Matthildur Ólafsdóttir hefði látist miðvikudaginn 24. sept sl. á Sjúkrahúsi Akraness. Vilborg eða Bogga eins og við kölluðum hana hafði verið á sjúkrahúsinu um stundarsakir vegna áverka sem hún hlaut er hún datt í íbúð sinni á Dval- arheimilinu Höfða nú fyrir skömmu. Bogga kom til Akraness frá Reykjavík árið 1928 í fylgd verðandi eiginmanns síns, Georgs Sigurðsson- ar frá Melstað á Akranesi, en honum hafði hún kynnst þegar hann var við nám í Reykjavík og lærði til vél- stjóraprófs en sjálf hafði hún komið til Reykjavíkur frá Ólafsvík þar sem hún var fædd og uppalin yngst 9 systkina, sem öll eru nú látin. Strax eftir að þau hófu búskap Bogga og Georg tóku þau í fóstur systurdóttur Georgs, Elínu, þá átta ára gamla, og ólst hún upp hjá þeim eins og þeirra eigið barn þar til Georg féll frá aðeins 29 ára gamall en eftir það ólst hún upp hjá Boggu sem alltaf leit á hana sem eitt af sínum börnum. Georg fórst með mb. Kjart- ani Ólafssyni 14. desember árið 1935. Bogga og Georg byggðu hús- ið Melteig 16b (Vestri Melstað) ásamt Sigurði tengdaföður Boggu og fluttust þau í það hús árið 1930. Þar fæddust þeim hjónum þrjú börn, þau Salvör Sigríður, Pétur Ásbjörns og Katrín. Katrín lifir móður sína og systkin en Sigríður og Pétur lét- ust langt um aldur fram. Það var á Melstað sem við kynnt- umst þessari merkis konu sem aldr- ei bognaði né brotnaði sama á hverju gekk. Við litum hana fyrst augum við fæðingu okkar í þennan heim og vorum í nánum samvistum við hana og börn hennar þar til þau fóru að heiman og við fluttum frá Melstað 1960. Við bjuggum sjö á miðhæðinni en Bogga og börn henn- ar þijú í risinu. Þarna voru engin landamæri, þetta var ein fjölskylda, Bogga amma okkar og börnin henn- ar, systkini okkar. Hún var svo já- kvæð út í lífið sem þó hafði farið svo ómjúkum höndum um hana og svipt hana því sem henni var dýr- mætast. Það var yndislegt að sjá barnið í sálu hennar vakna þegar skammdegið lagðist yfir og jólin nálguðust. Tilhlökkunin og gleðin sem skein úr augum hennar við undirbúning þessarar ljóssins hátíð- ar hreif okkur og gerði þennan tíma ógleymanlegan í hugum okkar barn- anna og allra þeirra sem voru í ná- lægð við hana. Okkur eru í fersku minni jólaboðin sem hún hélt fyrir fjölskylduna á loftinu á Melstað, gleðin og kátínan sem þar ríkti var einstök. I dag þegar við hugsum til þessara tíma skiljum við ekki hvem- ig hægt var að rúma allan þennan fjölda á þessum fáu fermetrum og ekki fannst okkur vera þröngt um okkur. Sennilega er það vegna þeirr- ar hjartahlýju og væntumþykju sem hún bar í bijósti til fjölskyldu sinnar sem geislaði frá henni að okkur fannst rýmið vera nóg. Bogga var ákaflega framsýn manneskja og skyldi nauðsyn menntunar fyrir ungt fólk og fram- tíð þess. Hún var því óþreytandi við að hvetja afkomendur sína og önnur ungmenni til menntunar og enginn gladdist meira en hún þegar einhver náði langþráðum áfanga á mennta- brautinni og góðum árangri i starfi. Eitt af áhugamálum Boggu voru ferðalög og fór hún margar ferðir til útlanda og voru þau ófá löndin sem hún heimsótti. Hún kom aldrei heim úr þessum ferðum án þess að færa sínum nánustu einhvern glaðn- ing því það var líf hennar og yndi að gefa og gleðja aðra. Elsku Bogga okkar, við viljum með þessum fátæklegu línum færa þér alúðar þakkir fyrir allt sem þú hefur verið okkur og fjölskyldum okkar. Við erum þess full viss að á ströndinni hinum megin munu eig- inmaður þinn sem þú misstir svo ung og börnin tvö taka á móti þér auk allra ættingja og vina sem gengnir eru. Guð blessi þig fyrir allt. Elsku Kata, þegar þú nú kveður elskulega móður þína hinstu kveðju sendum við þér og fjölskyldu þinni innilegar samúðarkveðjur og biðjum algóðan Guð að halda verndarhendi sinni yfir ykkur og hugga á rauna- stund. Öllum aðstandendum sendum við samúðarkveðjur og óskum þeim Guðs blessunar. Böm og frændur falla fram í þakkargjörð fyrir ástúð alla - tón þín á jörð fyrir andans auðinn, arf, sem vísar leið, þegar dapur dauðinn dagsins endar skeið. (Mapús Matthíasson.) Elín Elíasdóttir, börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra. VILBORG MA TTHILD- UR ÓLAFSDÓTTIR t Elskulegur sonur, stjúpsonur, bróðir og mágur, SKÚLI JÓHANN GUÐMUNDSSON, Frostafold 135, lést á heimili sínu þriðjudaginn 30. septem- ber. Kristín Skúladóttir, Jónas Björnsson, Birna Jónasdóttir, Pétur Gunnarsson, og aðrir vandamenn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR EINARSSON fyrrverandi lögregluþjónn, lést á St. Jósefsspitalanum þriðjudaginn 30. september. Jarðarförin ferfram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 9. október kl. 15.00. Einar Gunnarsson, Ingibjörg Harðardóttir, Ingá Gunnarsdóttir, Þórunn Gunnarsdóttir, Skarphéðinn Þ. Helgason, Gunnar Theodór Gunnarsson, Ásta Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Efstalandi 16, lést á Landsspítalanum mánudaginn 29. september, Erla Gunnarsdóttir, Hjördís Gunnarsdóttir, Kristin Gunnarsdóttir, Hjördís Guðmundsdóttir, og aðrir aðstandendur. t Móðir okkar, ÞÓREY EYJÓLFSDÓTTIR KOLBEINS. Grenimel 33, Reykjavik, lést að morgni þriðjudagsins 30. september. Sigrún Ólafsdóttir, Ásta Kristrún Ólafsdóttir og Haraldur Ólafsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÁGÚSTA F. GÍSLADÓTTIR, Hamraborg 14, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstu- daginn 3. október kl. 13.30. Halldór Jónsson, Guðmunda S. Halldórsdóttir, Samúel Richter, Ólöf Svava Halldórsdóttir, Ágúst Árnason, Gísli Halldórsson, Ása Margrét Ásgeirsdóttir, 4 I? barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega fyrir samúð og hlýhug vegna andláts, JÓHANNSJÓNSSONAAR, Sunnuvegi 13, Selfossi. Sigríður Ólína Marinósdóttir, Marinó F. Einarsson, Valgerður Jakobsdóttir, Hansína Ásta Jóhannsdóttir, Guðbjörg Jóhannsdóttir, Sigdór Vilhjálmsson, Guðmundur Rúnar Jóhannsson, Margrét Fanney Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ----------------------------------------------------------H ! I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.