Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
______________________FRÉTTIR________________________
Ný og glæsileg bygging fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ
—
ÍMýÍJSIil
BRÚIN og klæðningin setja sterkan svip á bygginguna.
Morgunblaðið/Kristínn
„Húsið er gott
og lofar góðu“
Stór og glæsileg bygging Fjölbrautaskólans
í Garðabæ hefur risið 1 bænum á síðustu þremur
árum. Anna G. Ólafsdóttir skoðaði sig um og
spjallaði við Þorstein Þorsteinsson skólameistara
og Einar Ingimarsson og Pálmar Ólason
arkitekta um nýju bygginguna, skólastarfíð
og framtíðina.
NÝ OG glæsileg bygging Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ
verður vígð á morgun, föstu-
dag. Fyrsti hluti fyrsta áfanga
byggingarinnar hefur verið tekinn í
noktun. Fullbúinn verður skólinn
5.652 fm að flatarmáli. Heildar-
kostnaður við lóð, byggingu og til-
skilinn búnað er áætlaður rúmlega
700 milljónir króna. Stefnt er að
verklokum árið 2001. Arkitektar
eru Einar Ingimarsson og Pálmar
Ólason.
Þorsteinn Þorsteinsson skóla-
meistari segir að nokkur aðdrag-
andi hafi verið að byggingunni. „Ég
man ekki betur en að umræðan um
að skólinn þyrfti nauðsynlega á
betra húsnæði að halda
hafi hafist um svipað leyti
og starfsemin hófst árið
1984. Skólinn hafði aðset-
ur í iðnaðarhúsnæði við
Lyngás 7-9 og leiguhús-
næði í tveimur öðrum
byggingum við sömu götu. Húsnæð-
ið var algjörlega ófullnægjandi og
erfítt að vera á sffelldum þvælingi á
milli húsa,“ segir Þorsteinn.
Fyrsta áþreifanlega skrefið fólst
í því að riki og bæjarfélög Iögðu fé
til undirbúnings fyrir framkvæmd-
imar árið 1991. Undirbúningsnefnd
var stofnuð og arkitektar hófu for-
sagnarvinnu. „Forsagnarvinnan
fólst í því að skilgreina hvaða rými
þyrftu að vera í byggingunni.
Hvernig þyrfti að útbúa hvert rými
og tengja við önnur rými. Við leit-
uðum til kennara, annarra starfs-
manna skólans og nemenda og
fengum góðar hugmyndir út úr því
samstarfi. Nemendur létu ekki
trufla sig að nýja byggingin kæmi
þeim sjálfum varla til góða og gáfu
ýmis gagnleg ráð. Forsagnarvinnan
tók langan tíma og satt best að
segja held ég að margir í bygging-
arnefndinni hafi verið orðnir býsna
óþolinmóðir að sjá teikningar. Eftir
á að hyggja held ég hins vegar að
skilningur á mikilvægi forsagnar-
vinnunnar hafi aukist," segir Einar
Ingimarsson.
Þorsteinn tekur undir með Ein-
ari um gildi forsagnarvinnunnar.
„Samvinnan hefur ekki aðeins haft
í fór með sér ýmsar góðar lausnir.
Ein afleiðing samvinnunar felst í
því að byggingin stendur
okkur nær en ella. Ég hef
ekki tekið eftir öðru en
starfsmenn og nemendur
séu afar ánægðir með
sjálfa bygginguna og
heildarfyrirkomulagið,"
sagði hann. „Húsið er gott og lofar
góðu.“
Stór lóð gefur möguleika
Ekki voru allir á eitt sáttir um
hvar heppilegast væri að hin nýja
skólabygging risi í Garðabæ. „Við
vildum helst vera í miðbænum.
Bæjaryfirvöld voru ekki á sama
máli og tókst að sannfæra okkur
um að hér væri gott að reisa skóla
enda væri nægilegt rými f kring.
Lóðin er alls 23.000 fm og því ætt-
um við ekki að vera í vandræðum
með að byggja við skólann," segir
Þorsteinn og Einar og Pálmar Óla-
Forsagnar-
vinnan
tók langan
tíma
NEMENDUR vinna af kappi f björtum og rúmgóðum skólastofum. Alls eru um 540 nemendur í skólanum.
JF I — I r
1
4-’ ■; 1 éímJ í i
1
i * 11
ÞORSTEINN skólameistari og arkitektarnir Einar Ingimarsson og
Pálmar Ólason í anddyri skólans.
son taka undir með honum um
ágæti staðsetningarinnar. „Ef lóðin
hefði ekki verið svona stór hefði
ekki verið hægt að hafa jafn stórt
grænt svæði í kring. Ekki var held-
ur skortur á plássi til að gera að-
komuna að skólanum skemmtilega.
Hér er bflastæði á aðra hönd og
meðfram því er gert ráð fyrir trjá-
göngum í átt að aðalinnganginum."
Áberandi aðkoma
Að aðalinnganginum sem er á
annarri hæð liggur brú yfir Arnar-
neslæk. „Við hefðum auðvitað get-
að leitt lækiim þarna undir en völd-
um að gera fremur brú yfir hann
enda var lögð áhersla á að aðkom-
an væri áberandi. Aðrar áherslur
af okkar hálfu voru að augljóst
væri þegar komið væri inn í bygg-
inguna að komið væri inn í skóla.
Við vildum hafa miðrými og stóri,
breiði stiginn á milli fyrstu og
þriðju hæðar fylgdi okkur frá upp-
hafi,“ segir Pálmar og tekur fram
að auk samvinnu við starfsmenn og
nemendur skólans hafi verið lögð
áhersla á að skoða aðra skóla áður
en hafist var handa við bygging-
una. „Við skoðuðum framhalds-
skóla á Akureyri, Egilsstöðum,
Sauðárkróki og Selfossi. í Reykja-
vfk skoðuðum við framhaldsskóla,
byggingar Háskólans, svo og Mela-
skólann og Laugarnesskóla sem
dæmi um hvernig vel hannaðir og
velbyggðir skólar standast tímans
tönn.“
Athygli vekur að galvaniserað
járn þekur alla bygginguna. „Við