Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 25 LISTIR Nýjar hljómplötur • ÚT ER komin hljómplatan Þrír heitnar íeinum - tónlist eftir Kjart- an Ólafsson tón- skáld. Verkin eru þrjú: Samantekt, Tvíhljóð I og Skammdegi, öll samin í Finnlandi og á íslandi á síð- ustu árum. Tónsmíðarnar eru ólíkar að gerð, allt frá tölvu- reiknuðu efni að frjálsum spuna og kennir áhrifa frá nútímatónlist, jassi, rokki og sígildri tónlist. Samantekt var samin árið 1994, í tölvutónlistar- hljóðveri Sibelíusarakademíunnar í Helsinki. Efniviðurinn er tónsmíðar Kjartan Ólafsson Kjartans frá 1986-1994. Örstuttum brotum er raðað saman og þeim umbreytt með tækninni til að mynda heildstætt tónverk. Tvíhljóð I fyrir einleiksgítar og tölvuhljómsveit er flutt af Pétri Jónassyni gítarleikara. Verkið var samið fyrir hann og frum- flutt á Myrkum músíkdögum árið 1993. Skammdegi fyrirtölvu, djassgítar, klassískan gítar og slag- verk var samið árið 1996 og frum- flutt í Listaklúbbi Þjóðleikhúskjallar- ans sama ár. Verkið nýtur áhrifa frá djassi, nútímatónlist, rokki og poppi en myndar þó tónlistarlega heild, segir í kynningu. Flytjendur auk Kjartans eru Pétur Jónasson gítarleikari, HilmarJens- son djassgítarleikari og Matthías Hemstock trommu- ogslagverks- leikari. Útgefandi er Erkitónlist sf. ogsérJapis um dreifinguna. Tryqqðu þér innqönqutilboðið ikraðu þiq í síma 550 3000 VAKA- HELGAFELL Egilsstaðir í hálfa öld BÆKUR F r æ ð i r i t EGILSSTAÐABÓK - FRÁ BÝLI TIL BÆJAR Ritstjóri: Bjöm Vigfússon. Egils- staðabær, 1997,496 bls. ÞÉTTBÝLI á Egilsstöðum er rak- ið til stofnunar Egilsstaðahrepps árið 1947. Sú byggð hefur aukist hröðum skrefum á umliðinni hálfri öld og telur nú um 1.600 manns. Heitir það Egilsstaðabær og hefur kaupsstaðarréttindi, bæjarstjóra og bæjarstjórn. Bók þessi er gefin út af bæjarfé- laginu og til þess að minnast 50 ára búsetu. Ritnefnd verksins skipuðu ÁHidis ÞtíiÁdÍdkdettif; Ái-HidHH Hdii- ddrkstíh og Ölöf M. Guilhltihdsddttir; kl#jÖfi vdf fáðlhh Öjöfh Vlþfösstíh; Margír eru iiöftihdáf þössd dtöfd rits. Ritstjórinn hefur bersýnilega skrifað mest sjálfur eins og eðliiegt er, en auk hans er 21 höfund- ur skráður fyrir pistlum og ritgerðum um ýmis efni, mismunandi löng- um. Bókin skiptist í 20 kafla. Sá fyrsti er Inn- gangur þar sem segir frá aðdraganda og til- högun verksins. Sá síð- asti er eins konar annáll og ber heitið Ár og dagar í lífi Egils- staða. Efni hinna kaf- lanna má vel greina af kaflaheitum: Landslag og staðhættir, Aðdrag- andi þéttbýlis í landi Egilsstaða á Völlum, Bifreiðin í sögu Egilsstaða, Stofnun Egiisstaðahrepps 1947, Sveitar- stjórnir á Egilsstöðum, Stofnanir og starfsemi Egilsstaðahrepps, Barna- fræðsla á Egilsstöðum í hálfa öld. Garðbærinn Egilsstaðir, Landbún- aður í Egilsstaðahreppi, KHB og Egilsstaðir, Gistihúsið á Egilsstöð- um, Flugið í sögu Egilsstaða, At- vinna og fyrirtæki, Stofnanir ríkisins á Egilsstöðum, Samkomuhald á Egilsstöðum, Valaskjálf, - félags- heimili Fljótsdalshéraðs, Egilsstaða- söfnuður og kirkja, Félög og klúbbar á Egilsstöðum. Eins og sjá má á þessari upptaln- ingu er efni fjölbreytt og fjallað um flesta þætti bæjarlífsins að ætla má. Raunar er efnið mun fi'ölbreyttara en kaflaheitin segja, því að inni í mörgum kaflanna eru þættir t.a.m. um einstakar persónur og atvik. Margir þessara kafla eru langir og Björn Vigfússon ítarlegir og auðséð að þar hefur verið vandað til verks. í bókarlok er skrá yfir mannanöfn og ioks heillaóskaskrá, en hún er stutt, hvað sem því kann að valda. Mikill fjöldi mynda er í bókinni, en þær eru nokkuð misjafnar að gæðum eins og vænta má, því að þær eru teknar á ýmsum tímum og sjálfsagt oft með lélegum tækjum. Sumar þeirra eru þó ágætar, t.a.m. myndir Sigurðar Blöndals. Bók þessi hefur ýmsa góða kosti en einnig galla. Til kosta telst að hún er býsna skemmtileg aflestrar. Oft og tíðum er hún fjörlega skrif- uð, en aðalkosturinn er kannski sá hversu hún iðar af mannlífi og fær- ir lesandann nálægt fólkinu sem byggir þennan stað eða líklega öllu fttíhihi’ byggðl; þVi ád hitídt tíb ddht tfð fhiiiiiiyggjhiihih; .’Mafgt frðditígt; sktíhihitiifegt ög jdfhVel sþdhgiltígt ktíiiitir þdf hþþ hf þþkdlitífHI; Ltíd- andinn fær góða innsýn í þdð hvern- ig þetta bæjarfélag hef- ur mótast jafnt og þétt á hálfri öld og hverjir settu þar mestan svip á og lögðu mest af mörk- um. Ekki er ég nógu kunnugur á Egilsstöð- um til að geta metið hversu góðs jafnvægis og hlutleysis er gætt í frásögnum af mönnum og málefnum. En trúað gæti ég að sumum þætti þar misskipt. Um sumt er fjallað mjög ítariega, jafnvel smá- smugulega, en á öðru er rétt aðeins tæpt. Hvað veldur því t.a.m. að ekki er fjallað um Verkalýðsfélagið í kaflanum Félög og klúbbar, heldur aðeins í lítilli grein í síðasta kaflanum og þá í hálfgildings skrítlu? Er í raun ekk- ert að segja af verkalýðsmálum á Egilsstöðum? Heil blaðsíða er um „5-4 leikinn" - „úrslitaleikinn (knattspyrnuleik) í 3. deild". Það er álíka langt og um Hestamannafé- lagið Freyfaxa, sem mig rámar í að margt sé um að segja. Talsvert ber á endurtekningum, sums staðar óþörfum. Var t.a.m. þörf á að minna svo oft á „silfrið hans Vilhjálms", þó að skiljanlega séu Egilsstaðabú- ar stoltir af afreki hans. Fremur hefði ég þó kosið að meira væri sagt frá starfsemi Menntaskólans á Egilsstöðum. Þá er sitthvað sem ég sakna í góðri bók, svo sem korts af bænum og nágrenni hans. Það hefði verið lesandanum mikið hag- ræði. Undarlegt þykir mér að sjá ekki í bók, sem hefur metnað til að vera vönduð, skrá fyrir heimildir í bókarlok. Einn höfundur hefur þó heimildarskrá í lok kafla síns. Gjarnan hefði ég séð þar einnig á einum stað töflu yfir íbúafjölda frá ári til árs, svo og um fulltrúa f sveit- ar- og bæjarstjórn. Nokkuð er taf- samt að tína þetta saman inn í bók. Og meðal annarra orða. Þótti það enginn viðburður þegar Egilsstaðir fengu kaupstaðarréttindi? Gerðu menn sér engan dagamun þá? Þess er aðeins getið í framhjáhlaupi inni í kafla og dagsetninga ein látin duga. Miðað við það hvernig bókin er samin hefði verið æskilegt að hafa skrá yfir atriðisorð. Vera má að þetta þyki margar aðfinnslur um bók sem annars hlýtur dð ttíljdst Vtíhltíþ; öþ tít fhtífþtihl gðð- hhi köÉttíhi böih. Mdttíd ýdhkdhtd ritífél ItíðVÍidfegd Hiátt ldgd ög Vtífð- tíf þvi dð stítld dð flthtíthtíití tídíl eitthydð iitíltað 3 ytífðiHiiih: Sigurjón Björnsson r Haust ‘97 A EINU GOLFI DÆMI: ARMSTRONG gólfdúkur Teg. C0MF0RT áðurkr. 1.430 mz nú kr. 990 mz DÆMI: G0LFFLISAR Stærð 30X30 ■ DÆMI: BARNA bílamottur stærð 100x165 kr. 2.213 pr.stk. stærð 140x200 kr. 3.716 pr.stk. -25% DÆMI: G0LFTEPPI Teg. SAMBA 4m á breidd áðurkr. 1.090 m2 Takið málin ||ý |(f, 654 mz með það flýtir _ _ _ _ afgreiðslu! _i_A f|0/ ,£|U/o Góð grelðslukjörí Raðgrciðslur tII allt að 36mánaða S0MMER plastparke W3 álagsþol / 4 litir nú kr. 1.835 m2 DÆMI: DREGLAR 70 sm 80 sm 90 sm á breidd DÆMI: FILTTEPPI Teg. FUN 4m a breidd TILBOÐ! nú kr. 298 mz DÆMI: M0TTUR 100% polypropoleme Teg. ALFA stærð 80x150 1.638 pr.stk. stærð 120x180 kr. 2.939 pr.stk. DÆMI: B0EN parket norsk gæði Teg. EIK MARKANT áður kr. 4.300 m2 nú kr. 3.190 m2 -25% # AFGANGAR: ___. , _ . _ Zt'aÍ™; ^fTEPPABUDIN 0PHUrtfeU,4'Ílí,'a Suðurlandsbraut 26 s: 568 1950
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.