Morgunblaðið - 02.10.1997, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Hjálma-
dagur
AKUREYRSK börn flykktust í
miðbæinn síðdegis í gær til að
taka þar þátt í táknrænni at-
höfn, að setja upp hjálm, en í
gær tóku gildi lög sem kveða á
um að allir 14 ára og yngri
skuli bera hjálm við hjólreiðar.
Það voru hjólreiðamenn og
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur
í samvinnu við land- og héraðs-
lækni, umferðarráð og lögreglu
sem stóðu að hjálmadeginum á
Akureyri en með því var verið
að minna á mikilvægi hjálms
sem öryggistækis. Efnt var til
happdrættis, Sjóvá-Almennar
og VÍS gáfu endurskinsmerki
og þá var sælgæti dreift á svæð-
inu.
Morgunblaðið/Kristján
Þijú af stærstu fyrirtækjunum auglýsa eftir fólki í yfir hundrað störf
Misjafnlega hefur gengið
að fá verkafólk til vinnu
ÞRJÚ af stærstu fyrirtækjunum á
Akureyri, Samheiji, hf., Útgerðar-
félag Akureyringa hf. og Slippstöð-
in hf., hafa öll auglýsa eftir verka-
fólki til vinnu að undanförnu. Um
er að ræða samtals yfir 100 störf
og hefur fyrirtækjunum gengið
misjafnlega að fá fólk til starfa.
í lok september var 281 á at-
vinnuleysisskrá á Akureyri 205
konur og 76 karlar og hafði fækkað
um tæplega 50 frá ágúst.
Hjá landvinnslu Samheija var
auglýst eftir verkafólki fyrir
skömmu og stóð til að ráða 70
manns til Strýtu og 15-20 manns
til Söltunarfélags Dalvíkur. Aðal-
steinn Helgason, framkvæmdastjóri
landvinnslunnar, sagði að búið væri
að ráða um 65 manns til starfa hjá
Strýtu og um 10 manns hjá Söltun-
arfélagi Dalvíkur.
Starfsmenn í landi um 330
„Við náðum ekki að manna tvær
vaktir á Dalvík og erum því með
eina og hálfa vakt í gangi þar. Við
erum að ná tölunni hér á Akureyri
og í Strýtu vinna nú um 180 manns
og á Dalvík starfa 30 manns,“ sagði
Aðalsteinn. Verkefnastaðan hjá
Iandvinnslu Samheija er góð og hjá
Strýtu er unnið í öllum deildum
16-24 tíma sólarhring. Það hefur
löngum verið talað um að Samheiji
sé fyrst og fremst frystitogarafyrir-
tæki. Varla er hægt að tala um
slíkt lengur, því starfsmenn fyrir-
tækisins í landi eru samtals um 330
talsins og þar af um 270 í Eyja-
firði. Einnig er Samheiji með land-
vinnslu á Eskifírði og í Grindavík.
Leitað að vönu fólki
Útgerðarfélag Akureyringa aug-
lýsti um helgina eftir vönu fólki í
fískvinnslu félagsins á Akureyri og
einnig eftir gæðastjóra landvinnslu
ÚA á Akureyri, Grenivík og Seyðis-
firði. Magnús Magnússon, forstöðu-
maður framleiðslu- og markaðs-
sviðs ÚA, segir að nokkrar umsókn-
ir hafi borist um starf gæðastjóra
og einnig þó nokkrar umsóknir um
starf í fiskvinnslu félagsins.
„Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hversu margir starfs-
menn verða ráðnir. Við auglýstum
eftir vönu fiskvinnslufólki og viss-
um að það myndi takmarka fjöld-
ann. Með því ætluðum við að sjá
hvað væri mikið af vönu starfsfólki
á lausu og þá til hvaða ráða við
þyrftum að grípa varðandi hráefnis-
öflun til að tryggja þá vinnu sem
við þyrftum," sagði Magnús.
Komnir yfir barnasjúkdóma
Miklar breytingar voru gerðar á
landvinnslu félagsins í ágúst sl. og
segir Magnús að vinnslan hafi
gengið samkvæmt áætiun. Hann
segir menn komna yfir þá barna-
sjúkdóma sem oft fylgja þegar ver-
ið sé að taka inn nýja tækni og ný
tæki. Hráefnisöflun hefur gengið
vel en auk þess sem togarar ÚA
leggja upp hjá félaginu er keyptur
fiskur til vinnslu á markaði. „Við
bæði kaupum og seljum fisk á
markaði. Hér sérhæfum við okkur
og vinnum fjórar fisktegundir og
setjum aðrar tegundir á markað,"
sagði Magnús.
Útgerðarfélag Akureyringa er
einnig með fiskvinnslu á Grenivík
og tímabundna vinnslu í kringum
loðnufrystingu á Seyðisfirði. Þá á
félagið 60% hlut í Laugafiski í
Reykjadal. Á Akureyri eru starfs-
menn ÚA í landi tæplega 200, á
Grenivík 28 og hjá Laugafiski
starfa um 25 manns.
Lúðvík Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Laugafisks segir að
þar vanti fimm manns til starfa og
auglýsingar eftir starfsfólki hafi
ekki borið árangur. „Það er nokkuð
um að fólk hafi haft samband,
bæði frá Akureyri og Húsavík en
þetta strandar frekast á húsnæðis-
málum. En ástandið er einnig oft
erfitt kringum sláturtíðina," sagði
Lúðvík.
Ingi Bjömsson, framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar, segir að
fáir hafi leitað eftir vinnu hjá fyrir-
tækinu og því sé aðeins búið að
bæta við þremur mönnum. „Við
hefðum verið tilbúnir að ráða allt
að 10 manns tímabundið en þessi
viðbrögð koma ekki á óvart miðað
við hvernig ástandið er. Það hefur
verið mikið að gera víða og verka-
fólk því ekki gengið atvinnulaust
að undanförnu," sagði Ingi.
Hann segir miklar sveiflur í
Slippstöðinni en að undanförnu hafi
fyrirtækið verið með óvenju mikið
af málningar- og þvottaverkefnum.
„Við vitum ekki hvert framhaldið
verður og þetta er því ekki endilega
varanlegur skortur á vinnuafli."
Nýr kjarasamningur
Ingi segir verkefnastöðuna hjá
Slippstöðinni góða sem stendur og
ljóst að næg verkefni em fyrirliggj-
andi í október. „Mér sýnist verk-
efnastaðan verða í lagi fram að
áramótum. En það em engin stór-
verkefni undir en hugsanlega í far-
vatninu."
Slippstöðin skrifaði í síðustu viku
undir nýjan kjarasamning við stétt-
arfélög starfsmanna og gildir hann
til ársins 2000. Ingi segir að samn-
ingurinn sé á svipuðum nótum og
samið var um á almennum markaði
í vor.
Hópferð
safnara
SAMTÖK búvélasafnara við Eyja-
Qörð hafa ákveðið að opna samtökin
öllum söfnumm, ekki bara þeim sem
safna búvélum. Stjórn samtakanna
hefur nú ákveðið að samtökin nefn-
ist Samtök safnara við Eyjafjörð.
Samtökin eru með hús á leigu í
Fornhaga í Hörgárdal og þar geta
félagar komið gömlum vélum og
tækjum í geymslu gegn vægu gjaldi.
Efnt verður til hópferðar á vegum
samtakanna til að skoða safngripi í
S-Þingeyjarsýslu á laugardag, 4.
október. Staðnæmst verður á þremur
bæjum og skoðað safn gamalla bú-
véla og bíla. Safnahúsið á Húsavík
verður heimsótt og einnig einkasafn
Aðalgeirs á Mánárbakka.
Lagt verður af stað frá Umferðar-
miðstöðinni á Akureyri kl. 10 og
komið til baka um kl. 17. Ferðin
kostar 2.000 kr. Bjarni Guðleifsson
á Möðruvöllum veitir upplýsingar.
-----♦ ♦ ♦-----
Guðlax á
sjávarrétta
hlaðborði
Bautans
GUÐLAX, sem eigendur veita-
staðarins Bautans/Smiðjunnar
komust yfir, verður á boðstólum
á sjávarréttarhlaðborði Bautans á
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
Guðlaxinn er um 40 kíló og
veiddist hann úti fyrir Reykjanesi
en Hallgrímur Arason einn eig-
enda veitingastaðarins sagði að
afar erfitt væri að fá þennan fisk.
„Við fengum þijú stykki fyrir um
15 árum af Akureyrartogurum og
buðum upp á hann og reyndist
hann vinsæll, fólk hefur gaman
af að prófa nýjar fisktegundir,"
sagði Hallgrímur en Bautamenn
reyndu mikið að útvega sér þenn-
an fisk til að hafa á sjávarrétta-
hlaðborði sínu.
I fiskabókinni kemur fram að
guðlaxinn sé auðþekktur á vaxt-
arlagi sínu; bolurinn mjög hár en
þó allþykkur, munnurinn lítill,
tannlaus og framskjótanlegur.
Hreistrið er smátt og mjög laust,
en guðlax er náskyldur vogamær
og rauðserk. Guðlaxinn er um 1,5
til 1,8 metra að lengd og getur
orðið allt að 100 kiló að þyngd.
Fram kemur í bókinni að hann sé
ekki sjaldséður hér við land en
aðallega verði hans vart á sumrin
og haustin.
Á myndinni er Þormóður Guð-
bjartsson, matreiðslumaður á
Bautanum, með guðlaxinn, en
hann verður matreiddur á ýmsa
vegu.
REYMAVIK
MAKE UP FOR EVER 97
NÁNARIUPPLÝSINGAR OG SKRÁHIING:
REYKJAVÍK: SkólavörOustíg 2. sími 551 1080
og hjá umboðsaðila Grensásvegi 13, simi: 588 7575
AKUREYRI: Hafnarstrati 91, (kaoz), simi 461 3399
Barbie
TlMI: LAUGARD. 4. OKT. KL 15.00
STAÐUR: KAFFI REYKJAVlK
ÞTMA: BARBIE
MAKE UP FOR EVER
raorissioNAi
Morgunblaðið/Kristján