Morgunblaðið - 03.10.1997, Síða 6

Morgunblaðið - 03.10.1997, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBBR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðlaunaljósmyndir í Kringlunni HIN árlega blaða- og fréttaljósmyndasýning World Press Photo-samkeppninnar verður opnuð í Kringlunni á morgun, laugardag. Þar verða sýndar á annað hundrað verðlaunamynda úr ár- legri fréttaljósmyndakeppni. Að þessu sinni bár- ust í keppnina 35.650 myndir 3.663 Ijósmyndara frá 119 löndum. Á myndinni taka Martijn Kramer, fulltrúi World Press Photo, og Erla Friðriksdótt- ir, starfsmaður Kringlunnar, upp myndirnar og halda þau á ljósmyndinni sem vann til fyrstu verð- launa í flokknum daglegt líf en hún sýnir konu í stormi á Malí. Samhliða sýningumii verður haldin sýning á 30 fréttamyndum Ijósmyndara Morgun- blaðsins. Frainkvæmdaslj óri SÍT um f ( húsleit Samkeppnisstofnunar Ekki í neinu sam- ræmi við tilefnið (! STARFSMENN Samkeppnisstofn- unar lögðu á þriðjudag hald á gögn hjá Sambandi íslenskra trygginga- félaga og íslenskri endurtryggingu hf. Sigmar Ármannsson, fram- kvæmdastjóri SÍT, sagði að aðgerð- ir stofnunarinnar væru í engu sam- ræmi við tilefni rannsóknarinnar. Sigmar sagði að gögnin sem hald var lagt á varði málefni Samsteypu íslenskra fiskiskipatrygginga og að einhverju leyti ökutækjati’yggingar vegna meints ólögmæts samráðs vá- tryggingafélaga. „Þetta mál er vegna kvörtunar Alþjóðlegrar miðl- unar ehf., sem hefur reynt að selja fiskiskipa- og ökutækjatryggingar fyrir erlend tryggingafélög. Um fiskiskipin er það að segja að full- trúar vátryggjenda og fulltrúar LIU hafa samið um iðgjöld fyi-ir einstök fiskiskip sem eru stærri en 100,5 rúmlestir. Enginn útgerðar- maður er skuldbundinn til að tryggja skip sitt hjá aðildarfélagi innan samsteypunnar. Það fyrir- komulag sem gilt hefur um trygg- ingar fiskiskipa yfir 100 lestir hefur legið Ijóst fyrir alla tíð og viðsemj- I endur vátryggingafélaganna haft sterkari stöðu gagnvart kaupum á þessari þjónustu en almennt gengur og gerist.“ Sigmar sagði að kvörtunin lyti einnig að eyðublöðum sem beri heit- ið „tilkynning um eigendaskipti ökutækis“. „Við kaup og sölu öku- tækja eiga kaupandi og seljandi að fylla þetta form út, m.a. á kaupandi að merkja við það vátryggingafélag, sem hann óskar eftir að vátryggja bifreið sína hjá. Öll íslensku vá- | tryggingafélögin hafa orðið að gefa | út afdráttarlausa yfirlýsingu um það, að hafi kaupandi merkt við fé- lag sé það skuldbundið til að tryggja bifreiðina. Nú gerist það, að erlent félag, sem er að hasla sér völl hér á landi á sviði ökutækjatrygg- inga, krefst þess að það skuli til- greint á eigendaskiptatilkynning- unni, en neitar að gefa slíka yfirlýs- ingu. Skráningarstofan, sem gefur eyðublöðin út, hafnaði þessari beiðni og af því er kvörtun erlenda félagsins sprottin." Stangaveiðin 18% minni en í meðalári Auka þarf forvarn-1 ir og bæta stjórnun j ALLS veiddust um 29.000 laxar á stöng sumarið 1997, en veiðitímabil- inu lauk um mánaðamótin. Þetta eru bráðabirgðatölur frá Veiðimála- stofnun og eru þær 18% undir með- alveiði áranna 1974-1996 og um 1-2% lakari heldur en stangaveiðin sumarið 1996. í frétt frá Veiðimálastofnun kem- ur fram að spár fiskifræðinga stofn- unarinnar varðandi göngur tveggja ára laxa úr sjó hafi gengið eftir, en smálaxagöngur hafi valdið nokkrum vonbrigðum. „Veiðimálastofnun áleit horfur fyrir veiðisumarið 1997 á þann veg að veiði á stórlaxi yrði undir meðal- lagi, í kjölfar lítillar smálaxaveiði sumarið 1996, en samhengi er á milli veiði smálax og veiði á stórlax ári síðar enda um sama gönguseiða- árgang að ræða. Betur leit út með smálaxaveiði. Seiðamælingar sýndu að seiðabúskapur var með betra móti og gönguseiði voru á eðlilegum tíma á leið til sjávarvorið 1996 sam- kvæmt niðurstöðu rannsókna í lyk- ilám þar sem fylgst er með ár- gangastyrk seiða og göngu seiða til sjávar. Samkvæmt mælingum Haf- rannsóknastofnunar áraði allvel til sjávar vorið 1996, en sjávarhiti að vori hefur sýnt sig að ráða miklu um afkomu laxins. I stuttu máli var veiði á stórlaxi eins og búist var við, en smálaxa- veiði olli nokkrum vonbrigðum. Endurheimtur merktra seiða í lyk- ilánum voru litlar sem sýnir að mik- il affóll hafa orðið í hafi, gagnstætt því sem vonir stóðu til. Athyglisvert er að smálax var vænn sumarið 1997, en alla jafna fer saman væn- leiki og fjöldi laxa, þó að stærð laxa ráðist einnig af lengd vaxtartíma í sjó. Ástandið 1997 er því að nokkru óvanalegt," rita þeir Sigui-ður Guð- jónsson og Guðni Guðbergsson fiskifræðingar. Hrun í hafbeit Netaveiði í ám, 5.000 laxar, er áþekk og 1996 og ásamt stangaveið- inni var heildarveiðin þannig 34.000 laxar í íslenskum ám sem er 17.000 löxum minni heildarafli heldur en meðaltal áranna 1974-1990. Þar inn í kemur að netaveiði í Hvítá í Borgarfirði er ekki lengur inni í myndinni. Endurheimtur úr hafbeit í súmar, 14.500 laxar, eru langt undir tölum síðasta sumars er 84.243 laxar end- urheimtust. FORGANGSROÐUN í heilbrigðis- málum hefur verið röng þar sem engin áhersla hefur verið lögð á for- varnir og nota verður betur þær upplýsingar sem til eru í heilbrigð- isráðuneytinu við stjórnun stofnan- anna til að skilgreina kostnað við hvern lið í heilbrigðisþjónustunni. Þetta kom fram í erindum Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Heilsustofnunar NLFI, og Einars Odds Kristjánssonar alþingis- manns á málþingi um forgangsröð- un í heilbrigðiskerfinu í gær. Einnig fluttu erindi þeir Ólafur Ólafsson landlæknir og sr. Ólafur Oddur Jónsson. Árni Gunnarsson sagði að for- varnir hefðu ekki átt upp á pall- borðið meðal ráðandi manna í heil- brigðiskerfinu og ljóst væri að efla þyrfti heilsueflingu, heilbrigt líferni og hvers kyns forvarnir. „Sjúk- dómaumfjöllunin hefur rutt allri raunverulegri heilbrigðisumræðu út af borðum ráðamanna og ég hef bæði í gamni og alvöru stundum kallað heilbrigðisráðuneytið sjúk- dómaráðuneytið,“ sagði Árni. „Nú- verandi heilbrigðisráðherra hefur þó aðeins reynt að snúa við þessari þróun og er það vel en á þessu sviði þarf ekki breytingar heldur bylt- ingu,“ sagði Árni ennfremur. Árni sagði að röng forgangsröðun kæmi niður á framleiðni sjúkra- húsa. „Það á að vera forgangsverk- efni að greiða hæfum sjúkrahús- læknum sómasamleg laun og gera um leið kröfu til þeirra um full vinnuskil. Núverandi kerfi er í eðli sínu ónothæft, það dregur úr af- köstum og er siðspillandi." Árni sagði það líka þurfa að vera for- gangsverkefni að endurskoða stjórnkerfi stóru sjúkrahúsanna, stytta boðleiðir og draga úr papp- írsvinnu með bættri upplýsinga- tækni. Nútíma stjórnunarhættir ekki notaðir Einar Oddur Kristjánsson sagði fjái’veitingar til heilbrigðismála eiga að hækka um 3,3% á næsta ári sam- kvæmt fjárlagafrumvarpinu og væri þar um magnaukningu að ræða en ; ekki aðeins aukningu vegna hærri kostnaðar. Hann sagði heilbrigðis- þjónstu hér almennt góða en fram- leiðni sjúkrahúsa of litla og væri ástæða þess ekki sú að hér skorti vel menntaða starfsmenn eða tækni heldur að menn hefðu forðast að nýta sér nútíma stjórnun á sjúkra- húsum. „Menn komast upp með það j vegna þess að stjórnmálamenn og j stjómmálaflokkar og ríkisstjórnir ; heykjast á því að skilgreina við- I fangsefnið." Þingmaðurinn sagði æskilegt að j geta boðið út mikinn hluta heil- brigðisþjónustunnar. Slíkt væri hins vegar ekki hægt nema kostn; aðargi-eining væri fyrir hendi. í heilbrigðismálum væri hægt að finna út hvað hver liður kostaði rétt eins og í vegamálum og þvi yrði að skilgreina hvert atriði þjónustunn- ar. „Við verðum að skilgi-eina aftur og aftur hvern einasta kostnaðarlið, þá getum við rekið heilbrigðisþjón- ustuna miklu ódýrara en við ger- um,“ sagði Einar Oddur. Ný skoðanakönnun um afstöðu almennings til lífeyrissjóðanna Jákvæð viðhorf til lífey r issj ó ðanna HELMINGUR þjóðarinnar hefur jákvætt viðhorf til lífeyrissjóðanna, en 34% hafa nei- kvætt viðhorf til þeirra. 54% telja að almennu lífeyrissjóðirnir muni standa undir gefnum loforðum um lífeyri í framtíðinni, en 36% telja að sjóðimir muni ekki gera það. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Hagvangur hf. gerði fyrir Landssamband lífeyrissjóða og Samband almennra lífeyrissjóða. Benedikt Davíðsson hjá Sameinaða lífeyr- issjóðnum sagði að skoðanakönnunin sýndi yfirgnæfandi stuðning þjóðarinnar við sam- tryggingu lífeyrissjóðanna. Könnunin sýndi að meirihluti þjóðarinnar styddi skylduaðild að lífeyrissjóðunum. Það væri greinilegt að traust þjóðarinnar á almennu lífeyrissjóðun- um færi vaxandi og væri í raun meira en bú- ast mætti við vegna þess að lífeyrissjóðakerf- ið væri ekki fullburða. Það yrði það ekki fyrr en um árið 2030 þegar lífeyrisgreiðslur allra lífeyrisþega væm farnar að byggjast á ið- gjöldum sem greidd hefðu verið af fullum launum. Skoðanakönnunin var gerð 28. ágúst til 5. september. Hringt var í 1.000 manna slembi- úrtak fólks á aldrinum 18-67 ára um allt land. Svarhlutfall var 73,9%. 80,3% sögðust vera sammála þeirri fullyrð- ingu að almenna lífeyrissjóðakerfið væri nauðsynleg stoð í íslensku þjóðfélagi. 53,8% sögðust hafa jákvætt viðhorf til almennu líf- eyrissjóðanna, en 34% sögðu viðhorf sitt nei- kvætt. Viðhorf þeirra sem eru sjálfstæðir at- vinnurekendur var mun neikvæðar en laun- þega. 46,6 atvinnurekenda sögðust hafa nei- kvætt viðhorf til lífeyrissjóðanna. Þeir sem vora með háar tekjur höfðu heldur jákvæðara viðhorf til lífeyrissjóðanna en þeir sem voru með lágar tekjur. Skiptar skoðanir um ávöxtun 46,9% svarenda sögðust treysta lífeyris- sjóðunum vel til að ávaxta fjármuni launþega. 42,2% sögðust treysta þeim illa til að ávaxta fjármunina vel. 55,9% sjálfstæðra atvinnurek- enda svöraðu illa og lágtekjufólkið virtist sömuleiðis treysta lífeyrissjóðunum verr hvað þetta varðar en þeir sem háar tekjur hafa. i Spurt var hvort fólk vildi að aðild að lífeyr- j issjóðum færi eftir starfsgrein þannig að allir i í sama verkalýðsfélagi greiði í sama lífeyris- j sjóð. 49,5% sögðust vera hlynnt þessu, en j 44,7% sögðust vera andvíg. Yfirgnæfandi j meirihluti taldi að konur ættu ekki að fá lægri j lífeyri þrátt fyrir að þær lifðu að meðaltali' lengur en karlar. Yfirgnæfandi meirihluti lýsti einnig yfir stuðningi við að greiddur yrði maka- og örorkulífeyrir. 77,3% vildu að greiddur yrði lífeyrir til æviloka fremur en að. hann yrði greiddur tímabundið, t.d. í 10 ár. j 62,6% svarenda vildu að lífeyrissjóðirnir | væru félagslegar stofnanir, en 37,4% vildu að; þeir byggðust frekar á hagnaðarsjónarmiðum' og samkeppni. Meiri stuðningur var við að líf- eyrissjóðirnir byggðust á hagnaðarsjónarmið- um og samkeppni meðal atvinnurekenda og hátekjufólks, en launþega og lágtekjufólks. Spurningar í könnuninni voru samdar af starfsfólki lífeyrissjóðanna í samráði við Hag- vang.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.