Morgunblaðið - 03.10.1997, Side 12

Morgunblaðið - 03.10.1997, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Formenn stjórna Landsbankans og Búnaðarbankans Samningar um starfskjör tilbúnir um miðjan mánuð Morgunblaðið/Bjarni Grétarsson UNNIÐ við framkvæmdir hjá Gunnarstindi hf. Framkvæmdir hjá Gunnarstindi hf. Stöðvarfirði. Morgunblaðið. STARFSKJÖR bankastjóra Lands- banka Islands og Búnaðarbanka íslands eru í endurskoðun í tengsl- um við það að ríkisviðskiptabank- arnir verða að hlutafélagabönkum um áramót. Gengið verður til samninga við bankastjórana á næstunni og eru vonir bundnar við að niðurstaða í málinu liggi fyrir um miðjan mánuðinn. Endurskoð- unin tekur til allra starfskjara bankastjóranna, að sögn formanna stjóma bankanna. Helgi Guðmundsson, formaður stjómar Landsbankans, sagði að á síðasta fundi stjómarinnar hefði hann fengið heimild til að ganga til samninga við bankastjóra Landsbankans, þ.e. Björgvin Vil- mundarson, sem aðalbankastjóra. Sverri Hermannsson og Halldór Guðbjarnason. Hann væri nú að vinna í því að fara yfir launasamn- ing og erindisbréf sem væri um leið starfslýsing. Þegar þetta væri tilbúið myndi hann leggja þetta fyrir stjórn bankans til upplýs- ingar. I framhaldinu yrði gengið frá samningum. Stefnt væri að því að klára þessa vinnu fyrir 15. októ- ber næstkomandi, en samning- urinn myndi gilda frá næstu ára- mótum þegar hlutafélagabankinn tæki við af ríkisviðskiptabankan- um. Tekur til allra þátta Helgi sagðist aðspurður hvort endurskoðun starfskjara banka- stjóranna tæki til ferðakostnaðar til maka þeirra ekki geta tekið út einstök atriði. Endurskoðunin tæki til allra þeirra starfskjara sem væru í gildi nú, svo sem risnu, ferðalaga o.fl. Á þessari stundi væri ekki hægt að segja hver niðurstaðan yrði. Pálmi Jónsson, formaður banka- ráðs Búnaðarbanka íslands, sagði að þeir væm komnir nokkuð á veg með að taka saman starfskjör bankastjóranna og síðan þyrfti að gera nýja samninga við þá hvern og einn Stefán Pálsson aðalbanka- stjóra, Sólon Sigurðsson og Jón Adolf Guðjónsson. „Við höfum talað um að reyna að ljúka þessu um miðjan október eða að minnsta kosti í októbermán- uði,“ sagði Pálmi. Hann sagði að farið yrði yfír laun og annað sem tengdist starfskjörum bankastjór- ana, svo sem reglur um dagpen- inga, ferðakostnað og annað sem lyti að þeim. Á síðastliðnu þingi lagði Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður fram fyrirspum á Alþingi í tvígang um laun og starfskjör stjómenda ríkis- bankanna. í skriflegu svari Finns Ingólfssonar viðskiptaráðherra í lok apríl í vor varðandi ferðakostnað bankastjóra kemur meðal annars fram að bankastjórar Landsbank- ans fá greiddan ferða- og dvalar- kostnað erlendis á sama hátt og ráðherrar. Samkvæmt því fá þeir greiddar fulla dagpeninga, auk ferða- og gistikostnaðar, risnu- kostnaðar og símtala. Fargjald og gisting er að fullu greidd fyrir maka bankastjóra Landsbankans og þeir fá að auki 50% dagpeninga ráðherra. Þá kemur fram að bankastjórar Búnaðarbankans fá greiddan ferða- og dvalarkostnað með sama hætti og bankastjórar Landsbankans. Hins vegar er ekki greiddur ferða- kostnaður fyrir maka bankastjóra. Samkvæmt svarinu giltu þær reglur um ferðakostnað banka- stjóra Seðlabanka íslands að far- gjöld em greidd samkvæmt reikn- ingi. Bankastjórar fá greiddan kostnað við gistingu, risnukostnað og símtöl eftir framlögðum reikn- ingum og dagpeninga sem skulu vera 80% af dagpeningum banka- starfsmanna. Tvisvar á ári var bankastjóra heimilt að fá greitt fargjald og gistingu fyrir maka, jafnframt því sem þá skulu greidd- ir dagpeningar sem svara til helm- ings dagpeninga bankastjóra, þ.e. 40% af dagpeningum bankastarfs- manna. Ef sérstaklega stendur á er bankastjóra þó leyfilegt að fá oftar greitt fargjald og gistingu fyrir maka en þá er ekki um greiðsl- ur dagpeninga að ræða. 26 milljónir á ári Nú hefur bankaráð Seðlabank- ans ákveðið að afnema þá reglu að greiða ferðakostnað fyrir maka bankastjóra Seðlabankans. Þröstur Ólafsson, formaður bankaráðs Seðlabankans, segir í Morgunblað- inu í gær að þessi ákvörðun hafi verið tekin nýlega vegna þess að búið sé að ákveða að breyta ríkis- viðskiptabönkunum í hlutafélög og því eigi samanburður á kjörum bankastjóra Seðlabankans við kjör bankastjóra ríkisviðskiptabank- anna ekki lengur við. Ennfremur kemur fram að ferða- kostnaður bankastjóra og aðstoðar- bankastjóra ríkisbankanna nam samanlagt 78,5 milljónum króna á árunum 1994-96 eða rúmum 26 milljónum króna að meðaltali og er þá ekki meðtalinn risnukostnað- ur og símtöl. Kostnaður Lands- bankans var þar af rúmar 12 millj- ónir króna á ári að meðaltali, Bún- aðarbankans 5,5 milljónir og Seðla- bankans 8,5 milljónir króna. VERULEGAR framkvæmdir hafa verið hjá Gunnarstindi hf. á Stöðvarfirði undanfarnar vikur. Fyrirtækið stendur í uppbygg- ingu á sviði loðnu- og síldar- vinnslu. Verið er að koma upp flokkunarstöð fyrir síld ásamt geymslutönkum og löndunarbún- aði. Starfsmenn frá Héðni hf. í Reykjavík ásamt heimamönnum hafa unnið við uppsetningu á tækjum og búnaði. Einnig standa yfir byggingarframkvæmdir við núverandi vinnslustöð. Verið er að byggja véla- og lyftarageymslu og mikil stækkun verður á frysti- geymslum þar sem verið er að reisa 1200 fm viðbyggingu við frystihús fyrirtækisins. Húsið er byggt úr steyptum veggeiningum frá Brúnás hf. Egilsstöðum og er áætlað að það verði tilbúið til notkunar nú í lok október. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN ROMANI Samstarf um verðlagseftirlit og verðkannanir -------- F R A T E L L I ----------- Tegund: 5207 Verð: 7.995,- Brúnt leður Stærðir: 37- Tegund: 5237 Verð: 8.995,- Brúnt leður Stærðir: 36- Tegund:5240 Verð: 8.995, Brúnt leður Stærðir: 36-42 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR • PÓSTSENDUM SAMDÆGURS STEINAR WAAGE # STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN £ SKÓVERSLUN SlMI 551 8519^^ SÍMI 568 9212^ J Verð í hillu ekki það sama og á kassa NOKKUR brögð eru að því að neytendur séu hlunnfarnir þar sem fyrirtæki taka annað verð á kassa en merkt er á hillu þar sem varan stendur inni í versluninni. Oft get- ur hér verið um talsverðar upphæð- ir að ræða, einkum í þeim tilfellum þegar vara er auglýst á tilboðs- verði inni í búð en láðst hefur að lækka verðið frammi á kassa. Verslun má ekki taka annað verð fyrir vöru en gefið er upp á hillu- merkingu og eiga neytendur því kröfu á leiðréttingu, sé verð annað við kassa. Birgir Guðmundsson, verkefnis- stjóri í samstarfsverkefni ASÍ, BSRB og Neytendasamtakanna um verðlagsaðhald og verðkann- anir, segir að þangað hafi borist margar ábendingar og kvartanir þess efnis að hilluverð sé annað en verð á kassa. Þar á bæ íhuga menn nú aðgerðir gegn þeim fyrir- tækjum sem verða uppvís að vill- andi verðmerkingum og hvetja neytendur til að tilkynna um slíkan mismun til verðlagseftirlits ASÍ, BSRB og Neytendasamtakanna. Mannleg mistök Birgir segir að svo virðist sem nokkur fyrirtæki skeri sig úr hvað þetta varðar. Haft hefur verið sam- band við sumar þessara verslana og eru svörin oftast á þá leið að um mannleg mistök sé að ræða. „En það er auðvitað spuming hversu mikil mistök það em þegar þetta gerist aftur og aftur,“ segir hann en kveðst þó ekki tilbúinn að fullyrða neitt um það á þessu stigi. Þegar verði er breytt á vörum er vinnureglan sú að þegar það er lækkað er verðinu fyrst breytt á kassa og svo á hillu. Sé verðið aftur á móti hækkað er því fyrst að breytt á hillu og svo á kassa. Sé ekki farið eftir þessari vinnu- reglu er hætt við að neytandinn sé hlunnfarinn. Verslunareigendur almennt ánægðir með aðhaldið Á vegum Samkeppnisstofnunar hafa undanfarin sex ár verið gerð- ar kannanir þrisvar á ári í öllum matvöruverslunum á höfuðborgar- svæðinu sem eru með strikamerk- ingar. Að sögn Kristínar Færseth, deildarstjóra hjá Samkeppnisstofn- un, eru þetta alls um fimmtíu versl- anir. Fimmtíu vörutegundir eru teknar af handahófi í hverri versl- un og athugað hvort verðið er hið sama á hillumerkingunni og við kassann. Ef það stenst ekki á eða ef merkingum er á annan hátt ábótavant, er haft samband við viðkomandi verslun og gerðar at- hugasemdir. Kristín segir versl- unareigendur almennt mjög ánægða með það aðhald sem þess- ar kannanir veita, en niðurstöður þeirra eru birtar í Neytendablað- inu, fréttabréfi og ársskýrslu Sam- keppnisstofnunar. Gafst upp á brugginu ÝMIS bruggáhöld fundust utan vegar við Suðurlandsveg skammt frá Geithálsi á mið- vikudagsmorgun. Þar voru fimm bláar tunn- ur, tveir 200 lítra brúsar, þrír 100 lítra brúsar og einn þrjá- tíu lítra álbrúsi, auk tveggja plastpoka með slöngum og plastdóti, sem allt var flutt á lögreglustöð. Að sögn lögreglu virðist sem einhver bruggarinn hafi gefíst upp á heimilisiðnaðin- um og ákveðið að losa sig við öll tæki og tól til þess arna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.