Morgunblaðið - 03.10.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
SÓKNARPRESTARNIR sr. Karl V. Matthíasson og Ægir Fr. Sigurgeirsson ásamt kór Grundar-
fjarðarkirkju og Kópavogskirkju.
Anægjulegt samstarf
Grundarfirði - Á þessu ári hafa Fyrri heimsóknina gerðu Grund-
kórar, organistar og sóknarprestar firðingar í Kópavog og nú á síð-
Grundarfjarðarkirkju og Kópa- asta sunnudegi komu Kópa-
vogskirkju heimsótt hvorir aðra. vogsbúarnir til Grundarfjarðar.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
FLUTNINGABÍLLINN nær fulllestaður af staurum.
Kórarnir sungu saman og hvor í
sínu lagi.
Ragnheiður Dröfn Benedikts-
dóttir, Sylvía Rún Ómarsdóttir og
Þóra Lind Þórsdóttir, sem allar eru
í grunnskólanum, sungu með
kirkjukór Grundarfjarðarkirkju.
Meðhjápari var Eiður Björnsson.
Organistar eru Friðrik Vignir Stef-
ánsson og Örn Falkner. Sóknar-
prestar eru Sr. Karl V. Matthíasson
og Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Eftir guðsþjónustuna var boðið
upp á kaffi og góðar veitingar í
safnaðarsal Grundarfjarðarkirkju.
Að því loknu rakti sr. Karl bygging-
arsögu kikjunnar. Þá var Kópa-
vogsbúum sýndur bærinn undir
leiðsögn Gunnars Kristjánssonar,
ritara sóknarnefndar, og gamla
kirkjan á Setbergi heimsótt og
skoðuð. Að þessu loknu hvarf hver
til síns heima og allir voru glaðir
með þennan dag í Grundarfirði.
Langþráður
slökkviliðsbíll
Egilsstöðum - Brunavarnir á
Héraði og Flugmálastjórn fengu
föstudaginn 26. september form-
lega afhentan nýjan og glæsileg-
an slökkviliðsbíl. Er hann þýskur,
af gerðinni Man, útbúinn há- og
lágþrýstidælum. Ofan á húsi bfls-
ins er vatns- og froðubyssa sem
kemur sér einkar vel, t.d. við
bruna á flugvöllum og þar sem
vænta má olíubruna. Hefur hún
70 metra drifkraft. Bíllinn er
hraðskreiður með 400 hestafla
vél.
Það eru Flugmálastjórn og
Brunavarnir á Héraði sem kaupa
og reka bílinn sameiginlega og
er hann hafður í tækjageymslu
Flugmálastjórnar á Egilsstaða-
flugvelli.
Fyrsti samráðsfundur rekstrar-
aðila var haldinn 1993 og var þá
strax hafinn undirbúningur að
komu þessa bíls með menntun
slökkviliðsmanna og kaupum á
nýjum göllum og öðrum útbún-
aði. Við afhendingu nýja bílsins
var undirritaður samstarfssamn-
ingur milli Flugmálastjórnar og
Brunavarna á Héraði og mun
hann vera eini samningur sinnar
tegundar á landinu.
HÉRAÖi
Morgunblaðið/Ragnheiður Kristjánsdóttir
GUÐMUNDUR Steingrímsson, stjórnarformaður Brunavarna á
Héraði, Ingólfur Arnarsson, umdæmisstjóri Flugmálastjórnar á
Austurlandi, Birgir Ólafsson, slökkviliðsstjóri Flugmálastjórnar,
og Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna á Héraði, við
nýja slökkvibílinn.
Talsverð
timbursala í
*
Arneshreppi
Árneshreppi - Allnokkur sala á
timbri hefur tíðkast gegnum
árin frá hlunnindabændum í
Árneshreppi svo sem sala á
staurum, byggingarefni, sperr-
um og stoðum. Þetta þykir tals-
verð búbót hjá mörgum bónd-
anum.
Á dögunum sótti Ræktunar-
samband Flóa og Skeiða hátt í
3000 staura sem teknir voru á
5 bæjum og fóru þeir á Selfoss
til bænda þar í nágrenni en
fyrr í sumar var búið að ná í
annað eins af staurum sem not-
aðir voru meðfram veginum
norðan megin Hvalfjarðar-
ganga en Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða er með það verk-
efni.
GRAM A GjAFVERÐI
B|ÓÐUM 20 GERÐIR GRAM KÆIISKÁPA
iFúnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
lcewear
Verksmidjusala
vegna flutninga
Allar Coral barna- og fullorðinspeysur seldar á kr. 750.
Eldri lagerar af ýmsum vörum á mjög hagstæðu verði kr. 150—3.900.
Útsalan stendur aðeins til 4. október.
Síðustu dagar útsölunnar
og enn lækkar verðið
lcewear, Skútuvogi 13A, 104 Reykjavík.
Við erum bakvið Bónus gegnt Húsasmiðjunni.
Opnunartími kl. 12.00—18.00
— laugard. kl. 10.00—16.00
Sæbraut
13
C37 Cb Húsasmiðjan
£
Súðarvogur OÖ d Skútuvogur
c cn
Cl CL Bónus
<V
K-i
Hér erum við
(E) Komið og gerið frábær kaup
VISA