Morgunblaðið - 03.10.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 21
Dregur að
Nóbelstil-
kynningu
SPENNAN eykst nú er nær
dregur tilkynningu sænsku
akademíunnar um hver hljóti
bókmenntaverðlaun Nóbels í
ár. Á meðal þeirra sem nefnd-
ir hafa verið eru Hollendingur-
inn Cees Nooteboom, Belginn
Hugo Claus og Jose Saramago
frá Portúgal. Akademían hef-
ur enn ekki upplýst um það
hvenær tilkynnt verður um
verðlaunahafann í ár en
sænskir fjölmiðlar geta sér
þess til að það kunni að verða
eftir tæpa viku, 9. október.
Lífvörðurinn
man ekkert
LÍFVÖRÐURINN Trevor Re-
es-Jones, sem lifði af bílslysið
er varð Díönu prinsessu að
aldurtila, man ekkert um að-
draganda slyssins eða um slys-
ið sjálft. Hann var yfirheyrður
öðru sinni á sjúkrahúsi í París
í gær en búist er við að hann
verði útskrifaður á allra næstu
dögum.
Mannskætt
rútuslys
YFIR fjörutíu manns létu lífið
er yfirfull rúta steyptist niður
í Magamuru-fljótið á Suður-
Indlandi í fyrrakvöld. Um tutt-
ugu farþegum tókst að bjarga
sér úr flakinu á sundi en hinir
drukknuðu í fljótinu, sem mik-
ill vöxtur hafði hlaupið í vegna
úrhellisrigningar.
Endurræsa
staðsetning-
arbúnað Mír
GEIMFARAR hófu í gær að
endurræsa staðsetningarbún-
að geimstöðvarinnar Mír en
þeir höfðu þá skipt um aðal-
tölvu hennar. Gangi allt að
óskum mun búnaðurinn, sem
stillir afstöðu Mír gagnvart
sólu og þar með sólarrafhlöður
hennar, vera kominn í lag í
dag, föstudag.
Stysti maður
heims látinn
GUL Mohammed, sem talinn
var lágvaxnasti maður heims
samkvæmt heimsmetabók Gu-
innes, lést í gær, 36 ára að
aldri. Lungnasjúkdómur varð
Mohammed, sem náði aðeins
56,16 sm hæð, að aldurtila en
hann var stórreykingamaður.
Hann lést án þess að fá æðstu
ósk sína uppfyllta, sem var að
kvænast hávaxinni konu.
Fjölþreifinn
Norðmaður
ARNE Ramstad, 42 ára norsk-
ur kaupsýslumaður, var í gær
dæmdur í háa fjársekt fyrir
dómi á Nýja Sjálandi fyrir að
káfa á flugfreyju. Ramstad var
gert að greiða sem svarar til
um 175.000 ísl. kr. fyrir að
snerta bijóst hennar, aftur-
enda og bak, og sagði í dómin-
um að hegðun mannsins hefði
verið skammarleg, auk þess
sem flugfreyjum væri sérstak-
lega hætt við slíku.
ERLENT
Atlantshafsbandalagið fundar með væntanlegum aðildarríkjum
Ríkin beri kostnað-
inn af aðild sinni
Maastricht. Reuter.
FORYSTUMENN Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) tilkynntu
þremur verðandi aðildarríkjum
bandalagsins í gær að þau myndu
bera stærstan hluta kostnaðarins
sem af aðild þeirra hlytist. Þetta kom
fram í máli Javiers Solanas, fram-
kvæmdastjóra NATO, á fundi varn-
armálaráðherra bandalagsins og
starfsbræðra þeirra frá Póllandi,
Tékklandi og Ungverjalandi, sem
haldinn var í Maastricht.
Enn hafa ekki verið birtar áætlanir
um kostnað við aðild ríkjanna þriggja
en Solana sagði í gær að af því yrði
fyrir áramót. Kostnaðurinn felst fyrst
og fremst í endumýjun hergagna og
uppstokkun í herliði ríkjanna.
Mörg NATO-landanna hafa
áhyggjur af því hver niðurstaða
Bandaríkjaþings verður er það tekur
fyrir væntanlega aðild Póllands,
Tékklands og Ungveijalands. Vitað
er að töluverð andstaða er við aðild-
ina á þinginu og bera þingmenn við
kostnaði sem slíku fylgir. Stóð Bill
Clinton Bandaríkjaforseti gegn því
að fleiri ríkjum en áðurnefndum
þremur yrði boðið til aðildarvið-
ræðna á sögulegum leiðtogafundi
NATO í sumar. Réð þar án efa
mestu fyrirséð andstaða í þinginu
en málið verður tekið fyrir þar á
fyrri hluta næsta árs.
Kostnaður ríkjunum ekki
um megn
Alain Richard, varnarmálaráð-
herra Frakklands, lagði mikla áherslu
í gær á að kostnaður við stækkun
NATO yrði viðráðanlegur og kvaðst
telja að hægt yrði að fjölga aðiidar-
ríkjum bandalagsins án þess að auka
þyrfti framlög til þess. Hinn þýski
starfsbróðir hans, Volker Riihe, tók
í sama streng. Sagði hann NATO
myndi gera hinum væntanlegu aðild-
arríkjum ljóst að þau væra velkomin
í bandalagið en að þau yrðu að bera
kostnaðinn af aðildinni. William Co-
hen, vamarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagði hins vegar ljóst að aðild-
arríkin yrðu að leggja eitthvað fram
aukalega vegna hennar.
Andrzej Karkoszka, aðstoðar-
varnarmálaráðherra Póllands, sagði
Pólvetjum ljóst að kostnaðurinn yrði
mikill en kvaðst ekki telja að hann
yrði þeim um megn.
miiii
t imaliö
og kveiktii á peruraii.
1.298 k r.
Nýtískulegir og ódýrir.
Kastararnir fást
stakir, þrefaldir og á
mislöngum brautum.
Halogen 3x20w með
spenimbreyti, perum
og öllum festingum.
:U!80 kr.
Veggljós, 3 litir.
2.688 kr.
2. -19. októbei
Lottljós, 3 litir.
1.995 kr.
Cristalmet halogen 300W
2 litir, grænt og brónt
'"'»"3.912 kr.
HÚSASMIÐJAN
Grænt númer Húsasmiðjunnar 800 6688
Húsasmiðjan er opin:
Verslun Skútuvogi 16 • Slmi 525 3000
Opið mán. - fös. 8-18
Lau. 10- 16
Sun. 12-16
Timbursala Súðarvogi 3 -5 • Slmi 525 3000
Opið mán. - fös. 8 - 12 og 13 - 18
Lau. 10-14
Verslun og timbursala Helluhrauni 16, Hafnarfirði
Slmi 565 0100
Opið mán. - fös. 8-18
Lau. 9- 13
Verslun og timbursala Smiðjuvöllum 5, Keflavlk
Slmi 421 6500
Opið mán. - fös. 8-18
Lau. 9- 13
Frábær Equa borðlampi
Wrú ,
\.i-a nii 5.900 kr.
P, ,,”3, \ W
Cnstabnet loftljos
2 litu, giænt og brónt
2.512 kr.
Cristalmet veggljos
2 litir, grænt og brúnt
2.120 kr.
di,
noraiux
Global útiljós
2.290 kr.