Morgunblaðið - 03.10.1997, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Islenska barnaleikhúshátíðin 1997
Klassískar sögur í
nýstárlegum búningi
ÍSLENSKA barnaleikhúshátíðin
verður haldin um helgina í Mögu-
leikhúsinu við Hlemm og Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða fimm íslenskar sýn-
ingar sem sjálfstæðir leikhópar
bjóða upp á um þessar mundir.
Furðuleikhúsið sýnir nýstárlega
leikgerð á sögunni um Mjallhvíti
og dvergana sjö, sem leikin er af
tveimur leikurum og leikrit um
Hlini kóngsson eftir hinu kunna
þjóðsöguævintýri. Möguleikhúsið
sýnir verkin Einstök uppgötvun
eða BúkoIIa í nýjum búningi og
Astarsögu úr fjöllunum, eftir
sögu Guðrúnar Helgadóttur. Litla
tígrisdýrið og litli björninn sýna
leikverk sem fjallar um sam-
nefndar persónur og hegðun
þeirra í umferðinni og byggist
verkið á bók Miroslav Janosch
sem notið hefur mikilla vinsælda
hjá börnum. Sögusvuntan sýnir
Minnsta tröll í heimi, einfalda
sögu með einfaldri leikmynd sem
byggist á þátttöku áhorfenda. Þá
sýnir leikhúsið 10 fingur skugga-
leiksýninguna Sólarsögur en
þetta leikhúsform er talið hið
elsta sem enn er stundað. Sérstak-
ir gestir hátíðarinnar eru Det lille
turnéteater frá Danmörku. Sýn-
ingar þessa 9 ára gamla leikhóps
hafa vakið mikla athygli í Dan-
mörku og víðar um Norðurlönd,
í Ástralíu og á Englandi.
Hin 3.000 ára gamla saga af
Ódysseifi lifir enn góðu lífi. Det
lille turnéteater býður íslenskum
áhorfendum upp á túlkun sína á
þessari sígildu sögu af örlögum
konungsins. Leikgerðin er eftir
Kim Norrevig, sem jafnframter
Ieikstjóri, og með öll 15 hlutverk
verksins, auk hlutverks sögu-
manns, fer Peter Holst. Bassaleik-
arinn Christian Glahn sér um leik-
hljóð og tónlist. Það er danska
sendiráðið, danska menningar-
málaráðuneytið og Norræna hús-
ið sem standa að heimsókninni
og leikferðin er styrkt af Teater
og Dans i Norden.
Peter Holst stofnaði leikhópinn
eftir að hafa fyrir tilviljun tekið
að sér hlutverk í barnaleikriti og
komist að því hversu krefjandi og
skemmtilegt það er að leika fyrir
börn. Sýningar hópsins segir hann
þó ekki síður höfða til fullorðinna
en bama. Det lille turnéteater set-
ur að jafnaði upp 4-5 sýningar á
ári og verkið Ödysseifur var frum-
sýnt fyrir 3 ámm og hefur síðan
þá notið mikilla vinsælda. „Þetta
er án efa uppáhaldsverk okkar
Christians, segir Peter. „Það er
vel skrifað og frásagnarstíllinn
sem er í anda Darios Foes með
tilheyrandi látbragði er einstakur
að mínu mati.“ I verkinu fléttast
saman frásögn, tónlist og leikur
og Peter segir að sýningin verði
sífellt þéttari með ámnum. „Sam-
spil okkar Christians er orðið svo
gott að það er hrein unun að leika
verkið.“
Sýningar hópsins em oftast
byggðar á klassískum sögum og
ævintýmm. „Við reynum að túlka
sögurnar á þannhátt að böra
skilji þær betur. í Ódysseifi er
hlutur trygga hundsins Argosar
og sonarins Telemakosar stór því
að dýr og önnur börn em það sem
fangar best athygli barnanna."
Tónlistin er hluti af atburðarás
Morgunblaðið/Golli
F.V. PÉTUR Eggerts, einn aðstandenda Möguleikhússins ásamt
Peter Holst og Christian Glahn frá Det lille turnéteater. ís-
lensku leikhóparnir á Barnaleikhúshátíðinni eru allir meðlimir
í ASSITEJ ISLAND, samtökum um barnaleikhús og Pétur seg-
ir vonir þeirra standa til að hægt verði að halda barnaleikhúshá-
tið árlega á Islandi.
áður unnið í Ieikhúsi. „Ég þurfti
því að nálgast leikhúsið á minn
persónulega hátt í góðri samvinnu
við þá Peter og Kim og þegar upp
var staðið kom það okkur sjálfum
mest á óvart hversu nýstárleg
sýningin varð og hversu mikla
athygli hún vakti í dönsku leik-
húslífi."
Umgjörð leiksýningarinnar er
ekki mikil og Peter segir að áhorf-
endurnir þurfi sjálfir að skapa sín-
ar eigin ímyndir í kollinum. „Við
segjum bara sögu en ímyndunar-
afl barnanna gefur sögunni líf.
Börn nú til dags eru t.d. svo vön
ofbeldi úr sjónvarpi að það virðist
mun áhrifameira að gefa ákveðna
hluti í skyn en að tjá þá bemm
orðum." Det lille turnéteater er
að koma úr vel heppnaðri Ieikför
til Svíþjóðar og Peter og Christian
hlakka mikið til að upplifa við-
brögð íslenskra áhorfenda við sýn-
ingunni. Ódysseifur verður sýndur
í Norræna húsinu á morgun, laug-
ardag, kl. 14 og í Möguleikhúsinu
við Hlemmm á sunnudag kl. 15.
FURÐULEIKHUSIÐ sýnir
leikrit byggt á ævintýrinu
um Hlini kóngsson.
verksins og Christian Glahn segir
verkið hafa verið mjög krefjandi
fyrir sig þar sem hann hafi aldrei
STEINGRÍMUR við
stærsta málverk sitt, Dynj-
andisfoss - náttúruvætti
Vestfjarða.
Land, sjór
og fantas-
íur í Eden
STEINGRÍMUR St.Th. Sig-
urðsson, listmálari og rithöf-
undur, opnar sína 85. sýningu
í Eden í Hveragerði á mánu-
daginn kemur kl. 20.30. Á
sýningunni eru milli 30 og 40
myndir, málaðar á síðasta
ári. Viðfagnsefnið er land,
sjór og fantasíur.
Steingrímur er nýkominn
frá Vestfjörðum þar sem hann
málaði náttúruvætti Vest-
fjarða, Dynjandisfoss. Þetta
er stærsta mynd sem málar-
inn hefur málað, tveir metrar
á hæð og 1,45 á breidd.
Sýningin varir í hálfan
mánuð.
EIN mynda Gunnellu á sýningu hennar í Garðabæ.
Ljósmyndir í Galleríi Horninu
BERGLIND Björnsdóttir og Fríða
Jónsdóttir opna sýningu á ljósmynd-
um og „polaroid-þrykki“ í Galleríi
Hominu, Hafnarstræti 15, á morg-
un, laugardag kl. 15-17.
Berglind og Fríða lærðu báðar
ljósmyndun í Brevard Community
College í Cocoa, Flórída, og Berglind
auk þess við Arizona State Univers-
ity í Tempe, Arizona, hvaðan hún
útskrifaðist með BFA-gráðu árið
1994. Meðan á námi stóð vann Berg-
lind tvisvar til verðlauna í keppninni
„Best of College Photography“ og
tók þátt í tveimur samsýningum í
Bandaríkjunum.
Gunnella sýnir
í Garðabæ
GUNNELLA, Guðrún E. Ólafs-
dóttir, opnar málverkasýningu í
Sparisjóði Hafnarfjarðar, Garð-
atorgi, Garðabæ, á morgun, laug-
ardag, kl. 15.
Gunnella stundaði nám í Mynd-
lista- og handiðaskóla Islands og
lauk prófi frá grafíkdeild. Framan
af vann hún í grafík, silkiþrykki,
en hefur hin síðari ár snúið sér
að olíumálverkum. Sýningin sam-
anstendur af um 20 olíumálverkum
sem máluð em á sl. tveimur ámm.
Gunnella hefur tekið þátt í
mörgum samsýningum og er þetta
fjórða einkasýning hennar.
Gunnella hlaut i sumar starfs-
styrk listamanna, úr menningar-
sjóði Garðabæjar, og þakkar hún
fyrir sig með þessari sýningu.
LJÓSMYND Berglindar Björnsdóttur á sýningunni á Horninu.
Ingibjörg
sýnir í Gall-
eríi Fold
INGIBJÖRG Hauksdóttir opn-
ar sýningu á olíumálverkum í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg
4. október kl. 15. Sýninguna
nefnir listakonan Þræðir.
í kynningarhorni gallerísins
verða vatnslitamyndir Ásu K.
Oddsdóttur úr gömlu Iðnó.
Ingibjörg Hauksdóttir er
fædd árið 1961. Hún stundaði
nám við Otis Art Institute of
Parsons School of Design, Los
Angeles, Laguna Art Institute,
Kaliforníu, og Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Þá var
hún gestakennari við Listaskól-
ann í Þrándheimi 1991. Þetta
er hennar fjórða einkasýning,
auk þess hefur hún tekið þátt
í nokkrum samsýningum.
Ása Kristín Oddsdóttir
fæddist árið 1945. Hún lauk
kennaraprófi í myndmennt frá
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands. Hún hefur síðan sótt
ýmis námskeið í Myndlista-
skóla Reykjavíkur og listaskóla
í Bandaríkjunum.
Sýningunum lýkur 19. októ-
ber.
Gallerí Fold er opið daglega
frá kl. 10-18, laugardaga frá
kl. 10-17 og sunnudaga frá
kl. 14-17.
Lúðrasveitin
Svanur í Vík
LÚÐRASVEITIN Svanur er að
hefja 68. starfsár sitt og er nú
skipuð ungu og efnilegu fólki
eins og svooft áður undir stjórn
Haraldar Árna Haraldssonar.
Fyrstu tónleikar starfsársins
verða á morgun, laugardag, kl.
16, í Leikskálum í Vík í Mýr-
dal. Á efnisskránni verður
ýmiskonar létt efni, bæði ís-
íenskt og erlent. Til að gera
tónleikana fjölbreyttari verður
kynning á hljóðfærum lúðra-
sveitarinnar í upphafi tónleik-
anna og gefst áheyrendum þá
kostur á að sjá hversu fjöl-
breytt hljóðfæraskipan er í lúð-
rasveit. Aðgangur að tónleik-
unum er ókeypis.
Lúðrasveitin Svanur mun
síðan halda jólatónleika um
miðjan desember þar sem
áhersla verður á jólalög og lög
úr ýmsum áttum. Seinni hluti
starfsársins fer síðan í að und-
irbúa vortónleika ásamt því að
spila við hinar ýmsu uppákom-
ur.
Textílþrykk
í Galleríi
Listakoti
ÁSLAUG „SAJA“ Davíðsdóttir
textílhönnuður opnar sýningu
í Galleríi Listakoti á morgun,
laugardag. Þetta er hennar
fyrsta einkasýning og sýnir hún
textílþrykk.
Ásíaug útskrifaðist úr textíl-
deild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1996.
Gallerí Listakot er opið virka
daga frá kl. 12-18 og laugar-
daga til kl. 10-16.
Ljóð Hellas-
arhópsins
GUNNAR Dal, Sigurður A.
Magnússon, Kristján Árnason
og Tryggvi V. Líndal munu
lesa úr eigin frumsömdum ljóð-
um nk. sunnudag kl. 14 á veit-
ingahúsinu Lækjarbrekku.
Hellasarhópurinn saman-
stendur af skáldum í Rithöf-
undasambandi íslands sem
hafa vitnað mikið [ forn-grísk-
ar bókmenntir í ljóðum sínum.