Morgunblaðið - 03.10.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 27
LISTIR
Tónlistarviðburður
TONLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Hafliða Hall-
grimsson og Jean Sibelíus. Stjóm-
andi: Petri Sakari. Finuntudagurinn
2. október, 1997.
TÓNLEIKARNIR hófust með
nýju hljómsveitarverki eftir Haf-
liða Hallgrímsson, er nefnist
Krossfesting og er það að nokkru
byggt á hughrifum er tónskáldið
upplifði við kynningu á málverkum
eftir Craigie Aitchison. Myndin
sem Hafliði hafði til fyrirmyndar
var sýnd áður en verkið var flutt,
sem í heild er áhrifamikið en einn-
ig einfalt að gerð, þar sem tónefn-
ið er að mestu leyti lagbundið
(tónalt) en umvafið mjög þéttum
og oft á tíðum ómstríðum umbún-
aði, með sérlega kyrrstæða þung-
amiðju, er oftast kom fram í liggj-
andi bassa, orgelpunkti og minnti
nokkuð á hljómskipti eins og þau
sem tíðkuðust í klassískri hljóm-
skipan. Tónbilaskipan var bæði
ómstríð og ómblíð og mátti jafnvel
heyra hreinar áttundir í samspili
hljóðfæra, nokkuð sem til skamms
tíma var ekki talið tilhlýðilegt að
nota. Þarna mátti sem sé heyra
það afturhvarf, sem hefur á seinni
árum gert vart við sig og tónskáld
samtvinna nútímalegri vinnuað-
ferðum, eins og heyra má hjá
Gorecki.
Þetta gaf verki Hafliða áhrifa-
mikinn blæ og var gangan (stuttur
mars) upp Golgata sérlega mögn-
uð. Selló og túba voru með smá
einleiksstrófur, sem Bryndís Halla
Gylfadóttir og Bjarni Guðmunds-
son skiluðu mjög vel, og mun selló-
línan trúlega hafa átt að túlka
hugarangur Krists en í tengslum
við túbueinleikinn léku sellóin stef-
gerð, sem vel mætti heimfæra upp
á íslenskt rímnalag.
Flutningur þessa verks var mjög
vel mótaður af hljómsveit og
stjórnanda og er ekki mikið sagt
þó flutningur Krossfestingarinnar
sé talinn mikill tónlistarviðburður
en með þessu verki hefur Hafliði
Hallgrímsson skapað sér stöðu
meðal bestu tónskálda núdagsins.
Seinna viðfangsefni tónleik-
anna, var sú fimmta eftir Sibel-
íus, sem hann samdi á öðru ári
fyrri heimsstyrjaldarinnar 1915,
en stríðsárin voru honum sérlega
erfið. Samband við útgefendur
hans í Þýskalandi rofnaði og þar
sem Finnland hafði ekki undirritað
Bern-sáttmálann, fékk hann ekk-
ert fyrir flutning verka sinna utan
Finnlands. Hann trúði því, eins
og margir aðrir, að stríðið tæki
fljótt af og þar af má ráða í glað-
leikann í þessu verki sem hann
endursamdi nokkrum sinnum. Eitt
sem er sérkennandi fyrir Sibelíus
og er í raun hans sérstaka fram-
lag til sinfónískra vinnubragða er
sú aðferð að hefja verk með smá-
stefjum sem smám saman þéttast
og enda kaflana á því að stefið
er flutt í heild sinni. Þetta skapar
tignarlegt niðurlag, sem var sér-
staklega fallega mótað í lok seinni
þáttanna.
Hljómsveitin lék Sibelíus mjög
vel undir stjórn Petri Sakaris og
blásararnir áttu margar vel leiknar
strófur, sérstaklega lúðrarnir í
lokakaflanum.
Jón Ásgeirsson
KROSSFESTING eftir Craigie Aitchison. Málverkið sem tónverk
Hafliða er samið út frá.
Kortagest-
um fjölgar
UNDANFARIN ár hefur fjöldi
kortagesta í Þjóðleikhúsinu farið
vaxandi og eru þeir nú fleiri en
nokkru sinni fyrr, að sögn leikhúss-
ins. Eru áskriftarsýningar orðnar
tólf á Stóra sviðinu, sem hefur aldr-
ei áður gerst í sögu hússins.
Ekki verður hægt að bæta við
fleiri kortagestum á þessu leikári,
því leikhúsið leggur áherslu á að
hafa einnig úrval góðra sæta fyrir
aðra gesti leikhússins fyrstu tóif
sýningarnar.
Mikil starfsemi er í Þjóðleikhhús-
inu um þessar mundir, þijú verk í
sýningu, tvö í æfíngu, tvö önnur í
undirbúningi og von á heimsóknum
erlendra listamanna.
-----» ♦ ♦---
Sýningar
MÍR
REGLUBUNDNAR kvikmyndasýn-
ingar í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
hefjast að nýju á sunnudag, eftir
sumarhlé. Kl. 15 verður sýnd kvik-
myndin „Hvítur fugl með svartan
díl“, sem gerð var árið 1971 í Úkra-
ínu og segir frá atburðum sem gerð-
ust í vesturhéruðum landsins á árun-
iin 1989—T94Ö. Myndiii ei Lalselt i
;nsku. f • , •
Listm
að yrkja
Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands býður í októ-
ber og nóvember upp á kvöldn-
ámskeið, ljóðagerð, en það er
ætlað þeim sem hafa hug á
að þjálfa sig á því sviði. Á
námskeiðinu verður leitast við
að kynna sem flestar tegundir
ljóða, hefðbundin ljóð jafnt
sem „nútímaljóð". Farið verð-
ur yfir helstu bókmenntahug-
tök sem ljóðum tengjast og
þau æfð. Aðalþáttur nám-
skeiðsins verður þó sá að nem-
endur skili frumsömdum ljóð-
um sínum og verða þau rædd
í tímum. Námskeiðið verður
haldið á miðvikudagskvöldum,
8. október til 19. nóvember.
Kennari á námskeiðinu verður
Þórður Helgason, bókmennta-
fræðingur og rithöfundur,
lektor við HÍ. Nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Endur-
menntunarstofnunar.
GETUR ERNIE ELS UNNIÐ BIKARINN
FJÓRÐA ÁRIÐ í RÖÐ?
golíkeppnina íjögur ár í röð? Enn einu sinni mun Ernio keppa gegn ellefu aí. bestu golfleikurum i heimi
YOTA
PLAY CHAMPIONSHIP
TOYOTA
WORLD MATCH PLAY
GOLFKEPPNIN
9.-12. október 1997, Wentworth Club Virginia Water, Surrey, England