Morgunblaðið - 03.10.1997, Page 30

Morgunblaðið - 03.10.1997, Page 30
í H Tíífil aMHÓTXO .8 flUOAan'i'^fV'i 30 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 GHCtAJaMUDHOM _________________________ ~ " ~ ""““"mórgunblaðið LISTIR KAFFILEIKHÚSIÐ í Hlaðvarp- anum hefur nú sitt fjórða starfs- ár. 1 vetur verða í boði fjölbreytt- ar sýningar í leikhúsinu. Kaffi- leikhúsið hefur eignast nýja stóla sem keyptir hafa verið fyrir styrk frá Alþingi og Reykjavíkurborg. Stólarnir voru hannaðir sérstak- lega fyrir leikhúsið af húsgagna- fyrirtækinu GKS. Eitt af því sem gefur Kaffileik- húsinu sérstöðu umfram önnur leikhús er það andrúmsloft sem skapast með samspili Ijúffengra veiga, matar og fjölbreyttrar leiklistar. Það nýmæli verður í vetur að enginn einn kokkur verður starfandi við húsið heldur mun verða leitað til mismunandi aðila eftir því sem hentar hverri sýningu í húsinu. Fjöldi léttra víntegunda verður aukinn veru- lega og verður það gert í sam- vinnu við vínfyrirtækin Vínland ehf. og ísdal hf. Gullkorn úr gömlu revíunum Fyrsta verkefni hússins í vetur er dagskrá sem hlotið hefur nafn- ið Revían í den - gullkorn úr gömlu revíunum. Eins og nafnið gefur til kynna er hér á ferðinni dagskrá sem byggir á atriðum og söngvum úr gömlu íslensku rev- íunum enþær nutu mikillar hylli landsmanna á árum áður. Leitast er við að sýna margt af því allra besta úr gömlu sýningunum, en þó í nýju ljósi og tengja saman atburði liðinna tíma við daginn í dag. Fjórða starfsár- Kaffileik- hússins Það er Guðrún Asmundsdóttir sem hefur sett saman dagskrána, leikstýrir henni ásamt Hákoni Leifssyni. Þau tvö leika auk þess fjölmörg hlutverk í sýningunni ásamt Rúrík Haraldssyni, Aldisi Baldvinsdóttur og píanóleikaran- um Carli Möller. Ljósahönnuður er Ævar Gunnarsson. Leikhúsið undirbýr nú gerð nýrrar revíu sem Karl Agúst Úlfsson mun semja. Frumsýning gullkornanna verður 19. október. Slóð og hvað er í matinn? Annað verkefni Kaffileikhúss- ins í vetur verður leikritið Slóð eða Sleuth eins og verkið heitir á frummálinu. Þetta er fyrsta og frægasta leikverk breska rithöf- undarins Anthony Shaffer. Slóð er spennuleikrit. Með að- alhlutverk fara Róbert Arnfinns- son og Sigurþór Albert Heimis- son. Þórunn E. Sveinsdóttir sér um leikmynd og búninga en leik- sljóri er Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir. Þýðandi er Margrét E. Jónsdóttir. Verkið hefur aldrei verið sýnt á sviði á íslandi en það var flutt í Rikisútvarpinu árið 1976. Fræg kvikmynd var gerð eftir verkinu þar sem þeir Laurence Olivier og Michael Caine fóru með hlutverkin. Frumsýnt verður í byrjun nóv- ember. Síðar í vetur verður sérstæð „kabarett“-sýning á fjölunum sem hlotið hefur nafnið Hvað er í matinn? Þessi sýning er enn i mótun en að henni mun fjöldi listamanna koma og verður mat- ur og matargerð stór þáttur hennar. Fyrsta sýning eftir áramót er sænskt verðlaunaleikrit, Harriet L., eftir Agneta Eles-Jarleman með tónlist eftir Gunnar Edander sem er kunnur fyrir lögin á plöt- unni Áfram stelpur. Leikritið byggist á ævi skáldkonunnar Harriet Löwenhjelm sem lést úr berklum langt um aldur fram. Leikstjóri verður Sigríður Mar- grét Guðmundsdóttir. Fleiri sýningar eru fyrirhug- aðar þegar líða tekur á vorið og má þar nefna tvö ný íslensk verk eftir unga höfunda. Kaffileikhús- ið hyggst einnig standa fyrir samræðukvöldum um listina í samvinnu við Bandalag íslenskra listamanna. Auk þess má búast við að ýmsir tónleikar skjóti upp kollinum í Kaffileikhúsinu i vet- ur, og ákveðið er að halda fleiri dansleiki í samvinnu við hljóm- sveitina Rússibanar. ÁSA Richardsdóttir og nýju stólarnir. Morgunblaðið/Þorkell Morgunblaðið/Ásdfs GERÐUR Gunnarsdóttir, og Anna Guðný Guðmundsdóttir halda tónleika í Gerðarsafni. Fiðla og píanó í Gerðarsafni GERÐUR Gunnarsdóttir, fíðluleikari, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, halda tónleika í Lista- safni Kópavogs mánudaginn 6. októ- ber kl. 20.30. Á efnisskránni verða Bókauppboð Svarthamars FJÓRÐA bókauppboð Svart- hamars verður haldið laugar- daginn 4. október kl. 12 á Sól- oni Islandusi. Boðin verða upp 153 verk, skáldrit, þjóðsögur og þjóðleg fræði og verk af ýmsum öðrum fræðasviðum. Bækurnar verða til sýnis á uppboðsstað á laugardaginn kl. 10-12. „Landslaginu í nærmynd“ að ljúka SÝNINGU á verkum Stefáns Magnússonar, sem staðið hefur yfir í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi, lýkur sunnudaginn 5. október. Á sýningu Stefáns eru 20 olíumálverk unnin á striga. Listasetrið er opið dagalega frá kl. 15-18. verk eftir Mozart, Snorra Sigfús Birgisson og Beethoven. Gerður Gunnarsdóttir stundaði nám við Tónlistarskóla Sigursveins D. Kristinssonar og framhaldsnám í_ fiðluleik í Köln og Amsterdam. Árið 1990 hlaut hún fyrstu verðlaun í Postbank-Sweelinck fiðlukeppn- inni í Amsterdam. Hún lauk „Konz- erttexament" frá Tónlistarháskó- lanum í Köln árið 1991 og hefur starfað sem 3. konsertmeistari í Sinfóníu- og óperuhljómsveit Köln- arborgar frá 1992. 1994-1995 starfaði hún í Sinfóníuhljómsveit íslands og jafnframt sem 1. kon- sertmeistari íslensku óperuhnar. Hún hefur verið meðlimur Caput hópsins frá 1987. Einnig hefur hún leikið með kammerhópum víðsvegar um Evrópu og sem einleikari, bæði hér heima og erlendis. Anna Guðný Guðmundsdóttir brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám við Guildhall Scholl of Music í Lundún- um. Hún hefur tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífí undanfarin 15 ár við flutning kammertónlistar hvers konar; sem einleikari með Sinfóníu- hljómsveit íslands, Sinfóníuhljómsveit Æskunnar, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, svo og við upptökur. Hún naut starfs- launa úr Lástasjóði árið 1995-1996. Hún er lausráðin við Sinfóníuhljóm- sveit íslands og kennir við Tónlistar- skólann í Reykjavík. □ HAPPD _ H jARjAVERJI R^ttÍ'Q^ ERJIDAR GOTT HJARTA E R GULLI BETRA ^fvinnincuR^. MMC Pajero Að verðmæti 3.290.000 ^ vinnincuR. CoIf GL 1.6 Glæsibifreiðar Ævintýraferðir Talvupakkar Hægt er að greiða heimsenda miða með greiðslukorti í síma 581 3947. Sendum miða hvert á land sem er. Að verðmæti 1.526.000 Miðaverð kr. 700 nnincuR^ 3 ævintýraferðir með Úrvali-Útsýn Hver að verðmæti 500.000 6m —,^5-^ÍHHÍHCUA. 20 ferðavinningar með Úrvali-Útsýn eða tölvupakkar frá Nýherja Hver að verðmætl 300.000 -< URVAL UTSYN m HEKLA «» Dregið 18. október 1997 11 REYigAVÍKUR SPARISJÓÐUR REYKJAVIKUR OG NAGRENNIS Leðurvömr í Galleríi Handverks og hönnunar ÓLÖF Matthías- dóttir (Lóa) frá Ak- ureyri opnar sýn- ingu á leðurfatnaði og ýmsum smávör- um úr leðri í Gall- eríi Handverks og hönnunar, Amt- mannsstíg 1, í dag, föstudag. Lóa lærði skinnfatatækni í Svíþjóð en að námi loknu hefur hún rekið litla sauma- stofu á Akureyri. Helsta hráefnið sem hún notar er m.a. íslenskt lamba- skinn, mokka og selskinn. Selskinnið hefur hún notað í jakka, vesti, töskur o.fl. Þetta er fyrsta einkasýning Lóu, en hún hefur tekið þátt í samsýningum í Ráðhúsi Reykjavík- ur. Sýningin er opin virka daga frákl. 11-17 nemamánudaga og laugardaga frá kl. 12-16. LÓA hefur sérhannað vesti fyrir íslenska veiðimenn. Lokað sunnudaga. Sýningin stendur til 18. október og er aðgangur ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.