Morgunblaðið - 03.10.1997, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 33
JltargtiiifcljiMfe
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VIRKJUNARKOSTIR
OG ORKUVERÐIÐ
HITAVEITA Suðurnesja hefur hafið framkvæmdir
við nýtt orkuver í Svartsengi, sem stefnt er að því
að taka í notkun haustið 1999. Það á að koma í stað
eldra orkuvers og auk heita vatnsins getur það fram-
leitt 30 megavött af raforku. Núverandi orkuver annar
um 55% af þörf almenningsmarkaðar á Suðurnesjum
fyrir forgangsorku, en viðbótin er keypt af Landsvirkjun
fyrir þrjár krónur kílóvattstundin. Nýja orkuverið er svo
hagkvæmt, að Hitaveitan getur framleitt kílóvattstund-
ina fyrir minna en þriðjung þess verðs, sem greitt er
til Landsvirkjunar, eða fyrir minna en eina krónu.
Þrátt fyrir augljósan ávinning fyrir allan almenning
á Suðurnesjum og atvinnulífið þar af stórlækkuðu raf-
orkuverði hefur iðnaðarráðuneytið ekki ennþá gefið út
virkjanaleyfi. Ástæðan er sú, að lögum samkvæmt er
útgáfa virkjanaleyfis bundið því skilyrði, að heildarrekst-
ur raforkukerfisins sé hagkvæmur. Hér er um það að
ræða, að Landsvirkjun telji að orkuvinnslan á Suðurnesj-
um falli að áætlunum hennar og sé því fyrirtæki þóknan-
leg. í raun veita lögin Landsvirkjun einokun á virkjana-
og dreifingarsvæði hennar. Að sjálfsögðu eru slík einok-
unarákvæði orðin gjörsamlega úrelt og alls ekki við hæfi
í lok tuttugustu aldar, þegar viðast hvar er stefnt að
sem mestri samkeppni til aukinnar hagsældar fólks og
fyrirtækja.
Um áratuga skeið hefur sú stefna verið við lýði, að
raforkuverð skuli vera það sama, hvar sem er á land-
inu, án tillits til gífurlegs kostnaðar við flutningslínur
og rekstur þeirra. Lögin leggja þá kvöð á Landsvirkjun
að selja öllum almenningsveitum raforkuna á sama verði
og Landsvirkjun getur því ekki veitt afslátt vegna magn-
kaupa eða mismunandi afhendingarkostnaðar orkunnar.
Þessi stefnumörkun á rætur í byggðastefnu, sem gengur
út frá því, að landsmenn geti ekki notið hagstæðra að-
stæðna á hveijum stað fyrir sig heldur skuli ávinningi
deilt með öllum öðrum. Með sams konar verðjöfnun er
opin leið til að dreifa kostnaði af fjárfestingarmistökum.
Eigendur Landsvirkjunar eru ríkið, Reykjavíkurborg
og Akureyrarbær. Ekki er því hægt að tala um fyrirtæk-
ið sem þjóðareign. Á þetta hefur bent einn af þingmönn-
um Reyknesinga, Árni R. Árnason, og hann segir, að
engin pólitísk sátt sé um það, að meina orkufyrirtækj-
um, sem ekki eiga eignaraðild að Landsvirkjun, að virkja
með hagkvæmari hætti en hún getur gert. Verkefnið
sé að koma á samkeppni milli orkufyrirtækja. Undir það
skal tekið, enda hlýtur meginmarkmiðið að vera að al-
menningur og atvinnulífið njóti ávaxtanna af hagkvæm-
ustu virkjunarkostunum í verði orkunnar.
GIGT ARRANN SÓKNIR
ISLENZKAR heilbrigðisstéttir standa í fremstu röð,
bæði að menntun og starfsárangri. Þetta hefur ítrek-
að verið staðfest. Evrópusambandið hefur nú veitt fjár-
framlag, sem svarar hundrað milljónum íslenzkra króna,
til evrópsks samstarfsverkefnis í gigtarrannsóknum, sem
rætur rekur til Kristjáns Steinssonar og samstarfsmanna
hans á gigtardeild Landspítalans. Rannsóknin hefur
m.a. beinst að faraldsfræði gigtsjúdóma, þar á meðal á
gigtsjúkdómnum rauðum úlfum, sem og að orsökum
gigtar, einkum að því er lýtur að erfðum.
Þessar rannsóknir gigtardeildarinnar hafa verið unnar
í samvinnu vð Rannsóknarstofu Landspítala í ónæmis-
fræðum og Blóðbankann. Niðurstöður sýna að stór hóp-
ur gigtarsjúklinga hefur meðfæddan galla í ónæmis-
kerfi. í framhaldi af því var nýrri meðferð beitt til að
bæta upp þennan galla og gefur hún góðar vonir. Þess-
ar niðurstöður hafa birzt í erlendum fagtímaritum síð-
ustu misseri og hlotið verðskuldaða athygli.
Styrkur Evrópusambandsins er mikilvæg viðurkenn-
ing. Hæfni og þekking fagfólks á þessum sviðum getur,
ef vel er að starfsemi þess búið, orðið verðmæt útflutn-
ingsvara, auk þess að tryggja landsmönnum heilbrigðis-
þjónustu sem þolir samanburð við það bezta í umheimin-
um.
Áformum stj órn-
arsáttmálans
vindur vel fram
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, flutti
stefnuræðu ríkisstjórnarinnar á Alþingi í
gærkvöldi og er hún birt hér í heild. Milli-
fyrirsagnir eru Morgunblaðsins:
„Herra forseti.
Islendingar hafa löngum verið uppnæm-
ari fyrir því sem að utan kemur, en úr
eigin ranni. Fjölmiðlar vitna gjaman í svo-
nefnda íslandsvini og slá dómum þeirra
upp sem afgerandi áliti á því sem hér tíðk-
ast. Á svipaðri minnimáttarkennd örlar hjá
frændum okkar á Norðurlöndum, sem telj-
ast til smáríkja á heimsvísu, þótt fjölmenn-
ari séu en við. Er þetta heldur hvimleiður
háttur og lítið betri en heimóttarleg sjálfs-
vissa um að allt í þessu landi taki öllu fram
sem annars staðar þekkist. Meðalhófið er
geðfelldast í þessum efnum, sem stundum
endranær. Hitt er annað mál að hreinskil-
inn og heiðarlegur samanburður á okkar
hag og annarra er einvörðungu til gagns.
Þó þarf við slíkan samanburð að huga að
ýmsu. Fyrst þarf að gæta þess að fyllast
ekki oflæti þótt í einstökum atriðum sé
samanburður okkur mjög í hag og ekki
síður að verða ekki þrungin vanmetakennd
þótt á okkur kunni að halla. í annan stað
getum við aldrei litið fram hjá því að flest
verður okkur dýrara hér í fámenninu, en
þar sem hagræði stærðarinnar nýtur sín.
Það er með öðrum orðum „dýrt að vera
íslendingur" eins og ritsnillingurinn orðaði
það fyrir fjörutíu árum. En á móti kemur
að það er okkur flestum einnig afar dýr-
mætt að vera íslendingur og vegur að
fullu upp kostnaðaraukann.
Úr öskustónni
Enginn vafi er á því, að öldin sem senn
kveður verður í okkar sögu þekkt sem
árin, þegar ísland reis úr öskustónni. í
upphafi aldarinnar var það eitt fátækasta
ríki norðurálfu en er nú án vafa í hópi
þeirra sem best hefur séð málum sínum
borgið. Sameiginlega ættu íslenskir stjórn-
málaflokkar að hugga sig við þessa stað-
reynd, því hér á landi tíðkast að gefa sér,
að stjómmálamenn séu lakari, vanhæfari
og óábyrgari en annars staðar gerist. Ég
hef þannig stundum heyrt þá röksemd frá
þeim sem umhugað er um að ísland gerist
aðili að Evrópusambandinu að þar með
losnaði atvinnulífið undan áhrifum og valdi
íslenskra stjórnmálamanna. Evrópskur
samanburður bendir þó ekki til að þar far-
ist mönnum stjórnsýslan betur úr hendi
en hér. Þvert á móti sýna þeir kvarðar,
sem Evrópusambandið sjálft hefur sett,
að betur hefur gengið hér á síðustu árum
en í flestum ríkjum sambandsins. Það er
reyndar ekki umdeilanlegt að meira að
segja enn víðtækari samanburður en við
Evrópusambandið eitt er okkur afar hag-
stæður um þessar mundir.
Þannig segir OECD okkur að ísland
vermi eitt af fímm efstu sætum þess, þeg-
ar landsframleiðsla er metin. Alþjóðabank-
inn segir okkur að við séum í hópi sjö
auðugustu þjóða heims samkvæmt sérstök-
um skilgreiningum hans. Island, eitt ör-
fárra ríkja, uppfyllir erfiðislaust öíl skilyrð-
in sem kennd eru við Maastricht. Alþjóðleg
fyrirtæki, sem fást við mat á lánshæfi,
segja okkur að ísland njóti sívaxandi
trausts á erlendum mörkuðum og stjórnar-
andstaðan segir okkur að hér sé allt á
afturfótunum. Ég býst við að ykkur, góðir
áheyrendur, þyki það athyglisvert sjónar-
mið.
Hr. forseti.
ísland er land samsteypustjórnanna. Við
þær aðstæður ræður mestu um hvort vel
tekst til um stjórn landsmála, að samstarf
sé gott og trúnaður ríki á milli manna inn-
an ríkisstjórnar og þingmenn stjórnarliðs-
ins séu bærilega sáttir við hvernig mál
ganga fram. Þessar forsendur hafa verið
fyrir hendi í núverandi stjórnarsamstarfí
og hefur það gert gæfumuninn. Auðvitað
Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, flutti stefnu-
ræðu ríkisstjómarínnar
á Alþingi í gærkvöldi.
er togstreita á milli flokkanna um einstök
mál, eins og sjálfsagt er. En slíkar glímur
eru jafnan háðar undir formerkjum þess
að ná niðurstöðum sem báðir flokkar geti
unað við, en forðast er að setja samstarfs-
flokki óbilgjörn eða óaðgengileg skilyrði.
Það er ekki síst vegna þessara vinnu-
bragða, að þeim áformum, sem sett eru
fram í stjómarsáttmála, vindur vel fram.
Tekist hefur að ná jafnvægi í ríkisfjármál-
um. Skattar hafa verið lækkaðir, peninga-
stofnunum hefur verið breytt í hlutafélög,
vinnulöggjöf hefur verið endurskoðuð,
rekstrarskilyrði útflutningsgreina hafa
verið tryggð, fjárfesting erlendra aðila
hefur verið aukin og stöðugleiki hefur ver-
ið í efnahagslífinu, svo aðeins nokkur lykil-
atriði séu nefnd. Þá er rétt að minna á,
að þrátt fyrir aðhald í ríkisfjármálum hafa
framlög til heilbrigðis- og tryggingamála
hækkað umtalsvert undanfarin tvö ár.
Þannig hafa stjórnvöld varið hluta af aukn-
um þjóðartekjum til velferðarmála, um leið
og þau hafa undirstrikað mikilvægi þess
að draga úr vaxtabyrði og skuldsetningu
ríkisins. Þessi þróun heldur áfram á næsta
ári.
En þó margt hafí áunnist er dagsverkinu
hvergi lokið. Kosta verður kapps um að
varðveita það, sem áunnist hefur og byggja
á því.
I þjóðhagsspá, sem ég hef lagt fýrir
háttvirta alþingismenn, kemur fram að
hagvöxtur verði um 4,6% á þessu ári eða
töluvert meiri en áður hafði verið talið. Á
móti kemur að sennilega verður hann
nokkru minni á næsta ári en áður var spáð.
Við getum búist við því að hin mikla fjár-
festing í atvinnulífinu, sem verið hefur að
undanfömu, fari að skila sér að verulegu
leyti á næsta ári og að fullu á árunum þar
á eftir. Útflutningstekjur okkar munu því
fara vaxandi. Þótt hinn gamli vágestur,
verðbólgan, hafí ekki farið mikinn á þessu
ári, má lítið út af bera og því þarf að hafa
á verðbólgunni vakandi auga. Fái hún of
laug^n taum er það tilræði við stöðu og hag
flestra launþega í landinu. Kaupmáttur á
þessu ári mun aukast mun meir en byggt
var á í almennum kjarasamningum. Tilraun-
ir einstakra hópa nú í lok kjarasamningsfer-
ils til að knýja fram miklu meira í sinn
hlut en aðrir samningsaðilar hafa fengið
er mikið áhyggjuefni. Það kom fyrir hér á
árum fyrr að einstakir hópar sprengdu sig
út úr kjarnanum og afleiðingin varð sú, að
kaupmáttur allra hrapaði fáum misserum
síðar. Slíka hringelqu má ekki setja í gang.
Það yrði öllum til óþurftar.
Skattalækkanir
Herra forseti.
Alþingi lögfesti síðastliðið vor umtals-
verða lækkun tekjuskatts einstaklinga.
Tekjuskattur þeirra var lækkaður um 4
prósentustig á tveggja ára tímabili. Fyrsti
áfanginn, 1,1 prósentustigs lækkun, kom
strax til framkvæmda á þessu ári. Um
næstu áramót lækkar skatthlutfallið um
1,9 stig í viðbót og loks um 1 stig í árs-
byijun 1999. Auk þess var lögfest að skatt-
leysismörk skyldu hækka um 2,5% á ári
næstu þrjú ár. Á næsta ári verður einnig
breyting á barnabótakerfinu þar sem
skerðingarhlutföll verða lækkuð með það
fyrir augum að draga úr jaðaráhrifum
barnabóta.
Með þessum ákvörðunum eru stigin
veigamikil skref í átt til þess að lækka
jaðarskatta hér á landi. Þetta kemur í kjöl-
far fyrri ákvörðunar um að undanþiggja
lífeyrisiðgjöld launþega skattlagningu, sem
kom til framkvæmda á árunum 1995 og
1996, en sú ákvörðun jafngilti 1,5-1,7
prósentustiga lækkun tekjuskatts. Fyrsta
skref í átt til þess að draga úr jaðaráhrif-
um barnabótakerfisins var hins vegar stig-
ið þegar á árinu 1996, þegar skerðingar-
prósentur voru lækkaðar.
Til viðbótar þessum ákvörðunum ákvað
ríkisstjórnin síðastliðið vor að gera breyt-
ingar á bótum almannatrygginga sem
draga verulega úr jaðaráhrifum í almanna-
tryggingakerfínu, meðal annars varðandi
uppbót á lífeyri vegna lyfjakostnaðar og
fyrirkomulags á afnotagjaldi Ríkisútvarps-
ins. Jafnframt hefur ríkisstjórnin ákveðið
umtalsverða hækkun á bótum almanna-
trygginga, sem nemur um 13% frá ársbyij-
un 1997 til ársbyijunar 1998. Með þessari
ákvörðun er lífeyrisþegum tryggð einhver
mesta kaupmáttaraukning tryggingabóta
sem orðið hefur á síðustu áratugum.
Það er einnig ástæða til að vekja at-
hygli á því að stjórnvöld hafa nýverið
ákveðið að draga úr jaðaráhrifum i náms-
lánakerfínu með lagabreytingu sem lækkar
endurgreiðsluhlutfall lána úr 7% i 4,75%.
Af þessu sést að stjórnvöld hafa ekki setið
auðum höndum hvað varðar lækkun jaðar-
skatta eins og ýmsir hafa gefið í skyn.
Um þessar mundir er leitast við að ná
víðtæku samkomulagi um að treysta
starfsgrundvöll lífeyrissjóðakerfísins og
um leið að auka og efla möguleika fólksins
í landinu til að treysta framtíðarhag sinn
og sinna. Mikilvægt er að allir leggi sig
fram í þeirri vinnu. Það eru stórkostlegir
hagsmunir í húfí, því málið snertir stöðu
hvers manns í landinu næstu áratugina.
Orka og umhverfi
Herra forseti.
Hvert sem litið er í alþjóðlegri umræðu
sést glöggt að umhverfismál hafa komist
æ ofar á dagskrá. Það væri fráleitt af
okkur að standa utan við slíka umræðu,
þótt aðstæður hér séu ólíkar mörgu af því
sem helst knýr umræðuna annars staðar.
Þess utan er það okkur hagstætt að þessi
þáttur fái aukið vægi. Það styrkir ferða-
þjónustu og útflutning og á þátt í því að
gera orkufrekan iðnað hér á landi aðlað-
andi fyrir erlenda fjárfesta. Við þurfum
hins vegar að gæta þess afar vel að taka
jafnan ríkt tillit til umhverfíssjónarmiða
við slíkar ákvarðanir. Vel varðveitt um-
hverfí getur orðið okkar dýrmætasta fjár-
festing, þegar fram líða stundir.
Fjárfesting í orkufrekum iðnaði á ís-
landi hefur aukist jafnt og örugglega á
síðustu misserum. Það hafa ekki allir gert
sér grein fyrir þeim vexti. Umræðan um
Atlantal verkefnið stóð í mörg ár og samn-
ingaviðræðurnar voru langar og strangar.
Sú verksmiðja átti að nýta um 3.000 gíga-
vattstundir á ári. Með stækkun ísal um
80 þúsund tonn, með þriðja ofni jámblendi-
verksmiðjunnar og Norðurálsverkefni
stefnir aukin orkunotkun þegar í 2.600
gígavattstundir. Ekki er óvarlegt að ætla
að á næstu fáeinum árum muni eðlileg
stækkunarþörf þessara fyrirtækja leiða til
nýtingar á um 3.000 gígavattstundum á
ári til viðbótar. Nýtingin nálgaðist þá 5.600
gígavattstundir, sem jafngildir 380 þúsund
tonna álframleiðslu eða nálægt tvöföldun
á Atlantal verkefninu og svipuðu magni
og menn eru nú að skoða í samvinnu við
Norsk Hydro. Ýmsar frekari fjárfestingar
eru einnig í athugun, svo sem kunnugt er.
Möguleikar okkar eru því miklir á þessu
sviði sem svo mörgum öðrum um þessar
mundir. Á hitt er þó að líta að tæknin ein
setur okkur ekki skorður, eins og löngum
var áður talið. Önnur mikilvæg sjónarmið
eru uppi, sem ekki má horfa framhjá. Stór-
aukin erlend fjárfesting er því aðeins full-
FORSÆTISRAÐHERRA í ræðustóli á Alþingi
í gærkvöldi er hann flutti stefnuræðuna.
Kaupmáttur á þessu ári mun aukast
meir en byggt var á í almennum
kjarasamningnm
Rétt er að skoða vel, hvort ekki verði
að takmarka of mikla samþjöppun kvóta
til einstakra fyrirtækja
komið fagnaðarefni, ef tekst að gæta eðli-
legra umhverfissjónarmiða við framkvæmd
hennar.
Ríkisstjómin mun sem fyrr leggja sitt
af mörkum við að koma til framkvæmda
víðtækri áætlun í umhverfismálum, sem
samþykkt var fyrr á þessu ári og ber heit-
ið Sjálfbær þróun í íslensku samfélagi. Er
þess vænst að um þá framkvæmd takist
góð samvinna við sveitarfélög, aðila vinnu-
markaðar og fijáls félagasamtök.
Ríkisstjórnin mun taka fullan þátt í
samningaviðræðum um loftslagsbreyting-
ar, sem nú standa yfir og áætlað er að
ljúka í Kyoto í Japan í desember nk. Það
er mikið í húfí fyrir íslendinga að niður-
staða náist um aðgerðir til þess að stöðva
aukningu á losun gróðurhúsalofttegunda.
íslensk stjórnvöld hafa í samningaviðræð-
unum lagt áherslu á að miðað væri við að
auka nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa í
stað kola og olíu og að aðgerðir einstakra
ríkja yrðu samræmdar í þágu heildarinnar.
Árangursstjórnun
í framhaldsskólum
Herra forseti.
Á undanförnum misserum hefur starfs-
vettvangur nemenda í skólum landsins tek-
ið miklum breytingum. Minni miðstýring
og aukið sjálfstæði skóla fela í sér að
ákvarðanir um menntun nemenda eru
teknar nær þeim sjálfum. Unnið er að því
að íslenska skólakerfið veiti nemendum
menntun og þjónustu sem stenst saman-
burð við hið besta sem þekkist. Áhersla
er lögð á að upplýsingatæknin sé nýtt til
hins ýtrasta á öllum skólastigum. Jafn-
framt eiga nemendur að njóta sérkenna
íslenska skólakerfísins, sem felst m.a. í
jafnri aðstöðu til náms og fjölbreytilegu
námi.
Flutningur grunnskóla frá ríki til sveit-
arfélaga markaði tímamót og um hann
náðist gott samkomulag allra aðila. Grunn-
skólanemendur fá nú fleiri kennslustundir
í viku en áður og næstu fjögur árin verður
kennslustundum fjölgað enn frekar. Ríkis-
sjóður sendi grunnskólann til sveitarfélag-
anna með auknum ijárframlögum til að
tryggja að þetta gengi eftir.
Ný framhaldsskólalög tóku gildi 1. ág-
úst 1996 og hefur verið unnið markvisst
að því að hrinda þeim í framkvæmd. Mark-
miðið er að skólamir verði sjálfstæðar
stofnanir, sem geri áætlanir um eigin starf-
semi. Unnið er að því að gera samning
um árangursstjómun milli menntamála-
ráðuneytisins og framhaldsskóla. Jafn-
framt hefur verið leitast við að koma til
móts við ýmsar sérþarfir nemenda. Nem-
endum, sem ekki hafa fullnægjandi undir-
búning úr grunnskóla, býðst nú fornám í
fleiri skólum en áður.
Unnið er að gerð nýrra námskráa fyrir
grunn- og framhaldsskóla. Endurskoðun á
aðalnámskrám er með viðamestu og mikil-
vægustu umbótaverkefnum í menntamál-
um á síðustu árum. I öllum þessum efnum
eru menn að taka ákvarðanir, sem varða
munu miklu um framtíð hins íslenska
menntakerfís.
Samþjöppun kvóta
Herra forseti.
Á síðustu dögum hafa farið fram um-
ræður um stöðu sjávarútvegsins á þessu
ári og horfur á hinu næsta. I heild er stað-
an bærileg en þó er æði misskipt. Á hitt
er að líta að sú staða undirstrikar þá breyt-
ingu sem orðið hefur i sjávarútvegi, sem
nú er ekki jafn einsleit atvinnugrein og
áður var. Eggin eru nú í fleiri körfum en
forðum. Sú þróun er jákvæð og dregur úr
hættu á þeim stórfelldu sveiflum sem urðu
í sjávarútvegi og reglulega skóku íslenskt
þjóðfélag.
Meginmarkmið sjávarútvegsstefnunnar
eru skýr:
• Við viljum tryggja varanlegan hámarks-
afrakstur sjávarútvegsins í þágu þjóðarinn-
ar með ábyrgri nýtingu allra auðlinda hafs-
ins.
• Við viljum tryggja að við allar ákvarðan-
ir sé jafnan gengið út frá bestu líffræði-
legu og hagfræðilegu forsendum sem fyrir
hendi eru.
• Við viljum, að þeim sem starfa í sjávar-
útvegi, sé með skýrum og almennum leik-
reglum skapað hagstætt starfsumhverfi
er tryggi sterka samkeppnisstöðu á al-
þjóðavettvangi.
Mikil samstaða hefur skapast um þá
stefnu að byggja ákvarðanir um heildar-
afla á ráðgjöf vísindamanna. Árið 1995
samþykkti ríkisstjómin formlega reglu um
hvaða hlutfall skuli árlega veitt af veiði-
stofni þorsks þannig að nokkuð tryggt sé
að stofninn haldi áfram að vaxa. Er reglan
niðurstaða umfangsmikillar vinnu líffræð-
inga og hagfræðinga sem stóð í um tvö
ár. Markmiðið er að árleg þorskveiði verði
á komandi árum um eða yfir 300 þúsund
lestir. Þær friðunaraðgerðir, sem gripið var
til, hafa þegar borið verulegan árangur
og niðurstöður seiðatalningar 1997 gefa
vonir um að þau markmið náist sem sett
hafa verið um uppbyggingu stofnsins.
Sjávarútvegurinn hefur á síðustu árum
þróast á grundvelli markaðslögmála og
rekstrarárangur greinarinnar í heild hefur
batnað þrátt fyrir þann mikla niðurskurð
sem nauðsynlegur var. Ekki er vafí á að
sú jákvæða kaupmáttarþróun sem íslend-
ingar hafa notið á síðustu misserum hefði
ekki átt sér stað án framleiðniaukningar
í sjávarútvegi.
Bætt afkoma við nýtingu auðlinda sjáv-
ar hefur haft jákvæð áhrif á afkomu fyrir-
tækja í flestum greinum íslensks atvinnu-
lífs, sérstaklega þeim sem eiga bein við-
skipti við hefðbundin sjávarútvegsfyrir-
tæki. En athyglisvert er hve mörg íslensk
iðnfyrirtæki sem framleiða vörur fyrir sjáv-
arútveg eru að ná góðum árangri, bæði
heima og erlendis.
Ekki er ágreiningur um að framseljan-
legar aflaheimildir hafa aukið afrakstur í
sjávarútvegi. Engu að síður hlýtur að koma
til álita að setja reglur sem setji skorður
við því að of miklar aflaheimildir færist á
hendur fárra fyrirtækja, hvort sem um er
að ræða hlut í heildarafla eða einstaka
stofna. Samfara því að sjávarútvegsfyrir-
tæki hafa orðið færri, stærri og hagkvæm-
ari undanfarin ár, hefur hluthöfum þessara
fyrirtækja sem betur fer fjölgað hratt.
Mörg þúsund íslendingar taka nú þátt
í útgerð með beinni eignaraðild og tugir
þúsunda fólks með óbeinum hætti gegnum
lífeyris- og verðbréfasjóði. Að því leyti er
nýtingarrétturinn að færast á sífellt fleiri
hendur. Hin aukna eignadreifíng innan
fyrirtækjanna er afar mikilvæg, en það
breytir ekki því að rétt er að skoða vel
hvort ekki verði að takmarka of mikla
samþjöppun kvóta til einstakra fyrirtækja.
Slík mál verða til umræðu á næstunni.
Atlantshafsbandalagið
opið ríkjum álfunnar
Herra forseti.
Atlantshafsbandalagið steig í sumar
fyrsta skref í einu mikilvægasta máli Evr-
ópu eftir kalda stríðið, en það er stækkun
bandalagsins austur á bóginn. Á leiðtoga-
fundi þess í Madrid í júlí var ákveðið að
bjóða fyrst í stað þremur Mið- og Austur-
Evrópuríkjum aðild. Þau eru Pólland, Tékk-
land og Ungveijaland.
Við íslendingar studdum eindregið frá
upphafí stækkun Atlantshafsbandalagsins,
en við lögðum jafnframt þunga áherslu á
að bandalagið yrði áfram opið nýjum aðild-
arríkjum. Af okkar hálfu var lagt til, að
því til áréttingar fengju öll ríkin, sem sótt
hefðu um aðild, kost á henni, en framgang-
ur hverrar umsóknar yrði látinn ráðast í
aðildarviðræðum. Með þessari tillögu var
einkum verið að halda fram hagsmunum
Ey strasaltsríkj anna.
Það varð snemma ljóst að Eystrasalts-
ríkin yrðu ekki með í fyrsta áfanga stækk-
unar Atlantshafsbandalagsins. Urðum við
auðvitað að taka tillit til þess, enda verður
það ekki ísland sem tekur á sig þyngstu'
byrðamar af stækkun bandalagsins.
Við lögðum höfuðáherslu á, að fyrsta
lota stækkunar Atlantshafsbandalagsins
gengi vel, þannig að fyrr gæti komið að
næsta áfanga og að skýrt væri að Atlants-
hafsbandalagið stæði öllurrt ríkjum álfunn-
ar opið. Jafnframt kæmi fram að bandalag-
ið og ríki þess létu sig miklu skipta hvern-
ig Eystrasaltsríkjunum og öðmm umsækj-
endum reiddi af á meðan.
Á Madrid-fundinum sameinuðust íslend-
ingar, Danir og Norðmenn, Bandaríkja-
mönnum og Bretum um að tryggja greiðan
framgang fyrsta áfanga stækkunarinnar
með þvi að takmarka hann við þijú ríki.
Annað hefði leitt til vandræða og tafíð eða
stöðvað frekari stækkun. Með samstöðu
fyrrgreindra ríkja náðist einnig að tryggja,"
að Eystrasaltsríkin væru nefnd sérstaklega
sem umsækjendur um aðild að bandalag-
inu.
Þetta var því góð niðurstaða og vonum
framar, frá sjónarhóli íslands, og leiðtogar
Eystrasaltsríkjanna lýstu yfír mikilli
ánægju með hana. Skömmu síðar kom í
ljós að Eistland verður með í fyrsta áfanga
stækkunar ESB í austurátt. Kostir aðildar
að ESB fyrir ríkin í Mið- og Austur-Evr-
ópu eru miklir. Þótt þeir lúti að öðru en
aðild að Atlantshafsbandalaginu má ljóst
vera að öryggi, lýðræði og stöðugleiki þess-
ara ríkja eru um margt háð því skjóli sem
aðild að ESB getur veitt þeim. Því til við-
bótar er auðvitað aðgangur að hinum mikil-
væga innri markaði sambandsins.
Sagan sýnir, að ætla má að allt að tíu
ár líði þar til full aðild fyrstu Mið- og
Austur-Evrópuríkjanna að ESB verður að
veruleika. Að auki þarf ESB að þessu sinni
að leysa ýmis erfið innri mál, en takmark-
aður árangur varð á ríkjaráðstefnu þess í
sumar. Sakir þess hve afrakstur ráðstefn-
unnar var almennt rýr varð samstaða í
ESB um að bæta þar úr með því að fella
Schengen-samninginn um opin landamæri
á innri markaðnum inn í regluverk sam-
bandsins. Þar með skapaðist óvissa um
þátttöku íslands og Noregs í Schengen.
Þegar útlit var fyrir að ríkjaráðstefnan
mundi setja Schengen undir ESB, komu
íslensk stjórnvöld á framfæri við samband-
ið fyrirvörum um afstöðu okkar í málinu.
Bent var á að þátttaka íslands í Schengen
réðist af því forgangsatriði að viðhalda
norræna vegabréfasambandinu, sem gerir
íslendingum kleift að ferðast um Norður-
lönd án vegabréfaskyldu. Vakin var at-
hygli á að samstarfssamningur um þátt-
töku okkar í Schengen væri þegar fyrir
hendi og það mundi valda miklum erfiðleik-
um fyrir ísland ef forsendur hans breytt-
ust. Það kynni að leiða til vanda sem lyti
að stjórnarskrá íslands og útilokaði þar
með þátttöku okkar í Schengen.
ESB lýsti svo yfir því, eins og kemur
fram í lokaskjali ríkjaráðstefnunnar, að séð
yrði til þess að hagsmunir íslands og Nor-
egs yrðu ekki fyrir borð bomir. Á þennan
yfíriýsta vilja mun reyna í viðræðum sem
gert er ráð fyrir að hefjist eftir nokkrar
vikur. Niðurstaða þeirra þarf að tryggja
að þátttaka íslands í ákvarðanatöku og
dómsmálum varðandi Schengen samræm-
ist íslenskum lögum. Hitt er annað, að
ekki er útilokað að breytt staða í norskum
stjórnmálum kann að hafa áhrif á fram-
gang alls þessa máls, sem og væntanleg
þjóðaratkvæðagreiðsla í Danmörku.
Herra forseti.
Framundan eru annasamir dagar hér á
Alþingi. Við alþingismenn eigum ekki endi--
lega að telja okkur helst til tekna að fjöldi
nýrra laga sé settur eða lengi talað. Það
er ekki keppikefiið að þenja út lagasafnið
eða gera líf fólksins í landinu flóknara en
nauðsyn krefur. Lagabætur eru mikilvæg-
ari en lagasetning og markviss skoðana-
skipti taka löngum ræðum langt fram. Til
þess að undirstrika þetta síðasta lýk ég
máli mínu.“ ’