Morgunblaðið - 03.10.1997, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 03.10.1997, Qupperneq 44
-C4 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, VALBORG HJÁLMARSDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Tunguhálsi, lést á Sjúkrahúsi Skagfirðinga laugardaginn 27. september. Jarðarförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju á morgun, laugardaginn 4. október, kl. 13.00. Auður Guðjónsdóttir, Guðbjörg Felixdóttir, Garðar V. Guðjónsson, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Guðsteinn V. Guðjónsson, Björk Sigurðardóttir, Hjálmar S. Guðjónsson, Þórey Helgadóttir, Stefán S. Guðjónsson, María Ásbjörnsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabar-abwrnabörn. + Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LILJU HALLDÓRSDÓTTUR STEINSEN, Flúðabakka 1, Blönduósi, fer fram frá Blönduósskirkju á morgun, laugar- daginn 4. október, kl. 14.00. Sævar Örn Stefánsson, Eggert Konráð Konráðsson, Guðrún Katrfn Konráðsdóttir, Ágústína Sigríður Konráðsdóttir, Inga Dóra Konráðsdóttir, Torfhildur Rúna Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingi Jónatansson, Halldór Sigurðsson, Aðalsteinn Guðmundsson, Hólmfríður Margrét Konráðsdótir, Andrés Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR TRAUSTI FRIÐRIKSSON rafmagnsverkfræðingur, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. október kl. 10.30. Erfidrykkja í Víkingasal Hótel Loftleiða í kjölfarið. Aðstandendur þakka veitta samúð. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd og/eða Psoriasis samtökin, Guðrún Sigurveig Jónsdóttir, Jón Guðmundsson, Pétur Guðmundsson, Virginia Wood, Friðrik Þór Guðmundsson, Kristín Dýrfjörð, Kristrún Jóna Guðmundsdóttir, Joel Coldurn og barnabörn. + Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HELGA JÓNASSONAR frá Völlum, Stigahlíð 14, Reykjavík. Eyrún Guðmundsdóttir, Bragi Helgason, Kristín Þorsteinsdóttir, Sigurveig Helgadóttir, Ari Stefánsson, Guðrún Helgadóttir, Hilmar Jóhannsson, Steinunn Helgadóttir, Kristinn Jörundsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Þökkum innilega öllum þeim sem sý samúð og hlýhug vegna andláts og föður okkar, tengdaföður og afa, HREINS SVAVARSSONAR, Austurbrún 6, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Margrét Hreinsdóttir, Jónas Þór Hreinsson, Júlía Hreinsdóttir, Arnþór Hreinsson, Daði Hreinsson, Karl Smári Hreinsson og afabörnin. ít hafa útfarar Stefán Steingrímsson, Marta Hallgrímsdóttir, Lena Bernhoj, DAGRÚN HELGA HA UKSDÓTTIR + Dagrún Helga Hauksdóttir fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1962. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 24. september síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Háteigskirkju 1. október. Dagrún Hauksdóttir starfaði með hléum hjá Vöku-Helgafelli frá hausti 1990 og allt fram á þetta ár. Hún gekk í ýmis störf í fjármála- og þjónustudeild fyrirtækisins, lengst- um við innheimtu en undir það síð- asta hafði hún með höndum sam- skipti við bókabúðir. Dagrún var mikil atorkukona; vann störf sín af dugnaði og elju. Líklega naut hún sín hvað best í þeirri stemmningu sem skapast á bókaforlagi fyrir jólin. Þá gengur mikið á í að þjóna bókaverslunum, sjá til þess að pantanir gangi snurðulaust fyrir sig og brýnt að allur hópurinn starfi saman af krafti. Þar lá Dagrún ekki á liði sínu. Þó að starfsmenn Vöku-Helgafells minnist hennar fyrir vel unnin störf lifa lengur í minningunni samverustundir utan vinnustaðar. Einu gilti hvort farið var í úti- legur á sumrin, gönguferðir eða á hestbak: alltaf var Dagrún mætt með þá feðga, Bergþór og Andra Má, með sér. Þau settu mark sitt á félagsskapinn, vöktu athygli fyrir sam- heldni og þeim fylgdi ferskur and- blær sem smitaði út frá sér. Þeirra verður nú saknað í ferðum starfs- manna. Dagrún lét af störfum hjá Vöku- Helgafelli snemma á þessu ári. Þremur mánuðum síðar greindist hún með krabbamein sem nú hefur dregið hana til dauða langt um aldur fram. Mikill harmur er kveð- inn að Bergþóri, Andra Má og öðr- um aðstandendum og sendum við þeim okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Gengin er góð vinkona og samstarfsmaður. Starfsfólk Vöku-Helgafells. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, GUÐRÚN ÁGÚSTA GEIRSDÓTTIR, Leifsstöðum, Austur Landeyjum, verður jarðsungin frá Stóra Dalskirkju laugardaginn 4. október kl. 14.00 Hrönn Leifsdóttir, Auðunn Leifsson, Margrét Eygló Birgisdóttir, Lára Leifsdóttir, Þórunn Geirsdóttir, Gísli Konráð Geirsson, Lilja Jónsdóttir, og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG RUNÓLFSDÓTTIR, Efriey 1, Meðallandi, lést þriðjudaginn 30. september á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum. Þórir Bjarnason, Guðgeir Bjarnason, Sigrún Sæmundsdóttir, Arndís Bjarnadóttir, Gunnar Þorsteinsson, Runólfur Bjarnason, Anna Arnardóttir, Gunnhildur Bjarnadóttir, Sigurjón Einarsson, og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN ÞÓRÓLFSDÓTTIR frá Hraunkoti, Litla-Hvammi 9a, Húsavík, lést á Sjúkrahúsi Þingeyinga miðvikudaginn 1. október. Karl Ingólfsson, Ingólfur Árnason, Þóra Jónsdóttir, Ingibjörg María Karlsdóttir, Friðbjörn Óskarsson og barnabörn. Lokað Eftirtaldir aðilar á Suðurlandsbraut 52 hafa lokað í dag, föstu- daginn 3. október, milli kl. 13.00 og 15.00 vegna útfarar STEINGRÍMS BENEDIKTSSONAR. Lögskipti, Bergur Guðnason hdl., Rúnar S. Gíslason hdl., Húsakaup hf., Húsvirki hf. Óson hf. Afmælis- og minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftir- farandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvern einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálks- entimetrar í blaðinu). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disklingur fýlgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í text- amenferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í sím- bréfi - 569 1115 - og í tölvu- pósti (minning@mbl.is). Vin- samlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. - kjarni málsins!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.