Morgunblaðið - 03.10.1997, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hillumerkingakerfi
Verðmerkingaborðar
Skiltarammar á fæti
J^Ofnasmiðjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100
Jakka
peysur
fallegt
úrval
Glugginn
Laugavegi 60 sími 551 2854.
Elizabeth Arden
Þekkir þú Elizabeth Arden?
Kynning í Hygea, Laugavegi,
föstudag og langan laugardag.
15% kynningarafsláttur
UtttttU
H Y G E A
jnyrtivöruverdlun
Laugavegi 23, slmi 511 4533
Tilboðið
framlengt út
október.
Myndataka, þar sem þú ræður
hve stórar og hve margar
myndir þú færð, innifaliðein
stækkun 30 x 40 cm í ramma.
kr. 5.000,oo
Þú færð að velja úr 10 - 20 myndum
af bömunum, og þær fæiðu með
50 % afslætti frá gildandi verðskrá
ef þú pantar þær strax.
Sýnishorn af verði:
13 x 18 cm í möppu kr. 1.100,00
20 x 25 cm í möppu kr. 1.550,00
30 x 40 cm í ramma kr. 2.300,00
Hringdu á aðrar
ljósmyndastofúr og kannaðu
hvort þetta verð á stækkunum
er ekki lægsta verðið á
landinu.
Ljósmyndastofan
Mynd
sími: 565 4207
Ljósmyndstofa
Kópavogs
sími: 554 3020
Ödýrari
Pantaðu strax, tilboðið gildir aðeins ákveðinn tíma
Topptilboð
LANGUR LAUGARUAbUK " UPIÐ 10-16
Tegund: 5009
Litur: Brúnir
Tegund: 133
Stærðir: 36-40
Litur: Svartir
Verð áður 5,995,-
Verð nú 2.995,
Stærðir: 28-35
Verð: 1.795,-
Ath: Vandaðir, úr góðu leðri, fóðraðir
Ath: með grófum sóla
Ioppskórinn
Veltusundi v/ Ingólfstorg, sími 552 1212
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Biblían er vopn
kristins manns
í ÞÆTTINUM Kastljósi
þriðjudaginn 30. septem-
ber var rætt um sálarrann-
sóknir, spíritisma og
kristna trú. Áhorfendur
máttu svara, með eða á
móti, hvort samræmdist
kristinni trú að leita frétta
af framliðnum. Þá var svar
verðandi biskups hvorki já
eða nei, sem sé, hann var
háll eins og áll. Biskupsrit-
arinn kom vopnlaus. Gunn-
ar Þorsteinsson var vel
vopnaður fullviss þess að
guðsorð, Biblían, hefur
svarið. Þökk sé Gunnari
Þorsteinssyni.
Súsí Backman.
Þakkir til
Tryg’gva
Hjörvar
ÉG ÞAKKA fyrir bréf
Tryggva Hjörvar um lokun
Hafnarstrætis. Ég er íbúi
á Hverfisgötunni þar sem
tappinn úr Hafnarstrætinu
hélt áfram löturhægt undir
dyggri forystu SVR sem
stjórnar nú (sem betur fer)
umferðarhraðanum á
Hverfisgötunni. Þegar ég
leit út um gluggana hálf-
partinn öfundaði ég alla
þessa bílastjóra sem virtust
hafa nægan tíma, oft var
meðalhraðinn innan við 10
km. Eftir lokun Hafnar-
strætis hefur þetta vanda-
mál minnkað til muna.
Ibúi við Hverfisgötuna.
Innflutningur á
skriðdýrum
MÁ ÉG biðja þann sem
ábyrgur er fyrir innflutn-
ingi á skriðdýrum, alls kon-
ar furðukvikindum, eitur-
köngulóm og snákum að
svara fyrirspurn þessari:
Hver er tilgangurinn? Hér
á landi höfum við verið
blessunarlega laus við
þetta en nú er svo komið
að fólk getur varla opnað
glugga, hvað þá svaladyrn-
ar, án þess íbúðirnar fyllist
af ágengum geitungum og
vespum, og þvílíkum
ófögnuði. Svo langar mig
líka að ítreka orð þeirrar
góðu konu sem hýsir kett-
ina í Kattholti að fólk gæti
dýranna vel núna þegar
vetur gengur í garð. Og
ég spyr af hveiju kattaeig-
endur láta _ heimilisketti
flækjast úti. Ég held þetta
þekkist ekki nokkurs stað-
ar nema á íslandi. Og þar
á ég við heimilisketti.
Tapað/fundið
Frakki og festi
í óskilum
STUTTUR dömufrakki,
brúnn, og hálsfesti, gull-
keðja, eru í óskilum á
Snyrtistofunni Gyðjunni,
Skipholti 70. Uppl. í síma
553 5044.
Taska týndist
SVÖRT plasttaska með
hliðaról týndist í miðbæn-
um, líklega í Hafnarstræti,
aðfaranótt sunnudagsins
21. septmber sl. í töskunni
voru m.a. skilríki. Finnandi
er vinsamlega beðinn að
hringja í síma 565 8267.
Merkúr
er týndur
BRÚNN persneskur kött-
ur, sem gegnir nafninu
Merkúr, hvarf frá Grund-
argerði 26 að kvöldi 28.
september sl. Hans er
óskaplega sárt saknað. Ef
einhver hefur orðið hans
var er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma
896 5894.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á Fontys
stórmótinu í Hollandi, sem
nú stendur hvað hæst.
Michael Adams (2.680),
Englandi, hafði hvítt og átti
leik gegn Alexander Oní-
sjúk (2.625), Úkraínu.
Svartur var að leika Kg8-
h7??, sem átti greinilega að
vera varúðarráðstöfun, en
reyndist tapleikurinn:
29. Rxh6! - Dxg4 (vegna
óheppilegrar staðsetningar
svarta kóngsins á h línunni,
getur svartur ekki
leikið 29. - Dxh6
vegna 30. Hh3 og
drottningin fellur)
30. Rxg4 - Bc5 31.
He2 og svartur
gafst upp, því hann
tapar öðru peði og
endataflið þá með
öllu vonlaust.
Onísjúk hresstist
þó í fjórðu umferð
er hann náði jafntefli
á svart gegn Gary
Kasparov og stöðv-
aði sigurgöngu hans.
Staðan á mótinu:
1. Kasparov 3'A v. af 4
mögulegum, 2. Kramnik 3
v., 3.-6. Adams, Shirov,
Svidler og Leko 2‘A v., 7.
Júdit Polgar 2 v., 8.-10.
Van Wely, Lautier og Oní-
sjúk 1‘A v., 11. Piket 1 v.
12. Tal Shaked 0 v.
HVÍTUR Ieikur og vinnur.
Víkveiji skrifar...
HIÐ sviplega fráfall Díönu
prinsessu hefur verið mikið
til umfjöllunar í úölm'ðlum sem
eðlilegt er. Strax morguninn eftir
slysið var viðtal ijölmiðla við for-
sætisráðherra Breta, Tony Blair,
þar sem hann sagði að Díana hefði
verið „the Peoples Princess", sem
eðlilegt er að þýða sem „prinsessa
fólksins" á íslenzku. Segja má að
forsætisráðherrann hafi hitt á hinn
rétta titil prinsessunnar, því að allir
ijölmiðlar heims gripu hann á lofti
og notuðu þennan titil í tíma og
ótíma. Forsætisráðherrann er þar
auðvitað að vitna til vinsælda prins-
essunnar meðal alþýðu í Bretlandi.
Sumir fréttamenn hafa hins veg-
ar þýtt þennan titil á annan veg
og talað um „alþýðuprinsessuna“.
Þessi þýðing er að mati Víkveija
alls ekki eins góð ef ekki röng.
Miðað við þessa þýðingu á titlinum
gætu menn haldið að prinsessan
væri eins konar öskubuska, sem
hafi fæðst af alþýðustéttum. En sú
er alls ekki raunin. Díana var sem
sé aðallborin í allar ættir, fædd í
Spencer-fjölskyldunni og því alls
ekki af alþýðu manna komin í Bret-
landi. Hún var t.d. frænka sir
Winston Spencer Churchill, sem
einnig var af aðalsættum, þótt hann
ætti að móður bandaríska auð-
mannsdóttur.
xxx
AÐ FER heldur í taugar Vík-
veija að sjá alla þá mörgu
svörtu ruslapoka, sem fólk hendir
út að götu í Fossvogshverfi. Þetta
eru pokar með garðaúrgangi, sem
fólk greinilega nennir ekki að fara
með á móttökustaði Sorpu. Þessir
pokar eða þeirra líkar eru búnir að
vera við götumar, sem liggja niður
í hverfið í svo til allt sumar, heldur
leiðinleg sjónmengun.
Um mörg ár hefur verið móttöku-
stöð fyrir garðaúrgang innst í
Kvistalandi, sem hefur verið bæði
þægilegt og gott fyrir íbúa hverfis-
ins að nota. Þangað hafa þeir farið
með garðaúrganginn og borgin hef-
ur síðan tekið hann og flutt til
Sorpu. En nú er þessi þjónusta ekki
lengur fyrir hendi. Enginn staður
virðist vera í hverfinu, þar sem
unnt er að losa sig við þennan úr-
gang og menn þurfa að fara langar
leiðir með garðaúrganginn. Engin
ástæða hefur verið gefin fyrir því
að hætt var móttöku garðaúrgangs
í Fossvogshverfi. Þetta ágæta fyrir-
komulag, sem á þessum málum
var, er greinilega lagt niður án allra
útskýringa.
Og afleiðing er, að pokarnir eru
bókstaflega út um allt hverfið. Er
ekki þörf á að þarna verði gerð ein-
hver bragarbót?
xxx
DAG rennur stóra stundin upp,
er bormennirnir í Hvalfjarðar-
göngum ná saman. Síðasta haftið
verður sprengt klukkan 15 að við-
stöddum fjölda fólks. Þar með er
mesta þrekvirkið í sambandi við
þessa vegarbót unnið og aðeins er
eftir að malbika og ganga frá
göngunum til notkunar.
Upphaflega var ráð fyrir því
gert að göngin yrðu tilbúin til notk-
unar næsta haust, en þar sem bor-
verkið hefur gengið vonum framar
gæti það að öllum líkindum orðið
fyrr.
Bormennirnir, sem boruðu að
sunnan munu hafa farið rúmlega
helming leiðarinnar undir fjörðinn.
Það er vegna þess, að þegar komið
er niður á dýpzta punkt ganganna
víkka þau og eru með þijár akrein-
ar í stað tveggja.
Brattinn er meiri þar og þriðja
akreinin er fyrir flutningabíla, sem
koma að sunnan og geta því ekki
ekið jafngreitt og aðrir upp í móti
hallanum, sem framkvæmdaaðilar
segja að sé svipaður og hallinn á
Bankastræti.
Það er ástæða til að óska verka-
mönnunum, sem að þessari fram-
kvæmd hafa unnið, til hamingju
með góðan gang og árangur.