Morgunblaðið - 12.10.1997, Side 2

Morgunblaðið - 12.10.1997, Side 2
2 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Danmerk- urheimsókn hefst í dag OPINBER heimsókn Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra og frú Ástríðar Thorarensen til Danmerkur hefst í dag. Heimsóknin stendur fram á þriðjudag. í dag fara forsætisráðherrahjónin ásamt fylgdarliði að Stórabeltis- brúnni og skoða auk þess gamla endurreisnarhöll í Egeskov. Á morg- un verður haldið til Kolding og skoð- aðar minjar frá miðöldum í safni bæjarins. Síðan verður farið til Skagen, þar sem meðal annars verða skoðaðar myndir eftir Skagen- málarana, sem gerðu garðinn fræg- an í kringum síðustu aldamót, og þaðan áfram til Hirtshals, þar sem rannsóknastofnunin Nordsocentret verður heimsótt. Annað kvöld bjóða Poul Nyrup Rasmussen forsætisráðherra Dana og frú Lene Dybkjær til opinbers kvöldverðar, íslenzku forsætisráð- herrahjónunum til heiðurs. Á þriðju- dag heimsækir forsætisráðherra Þjóðþingið og ræðir við danska starfsbróður sinn í forsætisráðu- neytinu. Þá verður snæddur hádeg- isverður með Margréti drottningu í F'redensborgarhöll. Síðdegis á þriðjudag verður farið í heimsókn í fyrirtæki og listasafnið Ordrupgárd skoðað. Forsætisráðherrahjónin fljúga heimleiðis á miðvikudags- morgun. BJÖRN Valberg Jónsson. MARINÓ Kristinn V. Björnsson. Konan ekki í lífshættu KONAN á fertugsaidri sem lenti í alvarlegu bílslysi sl. fimmtu- dag á Vesturlandsvegi er mikið slösuð en ekki talin í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur á laugardag. Sonur konunnar og faðir hans létust í slysinu en ökumað- ur hins bílsins er ekki í lífs- hættu. Konan er með fjöláverka og er haldið sofandi. Hún fékk ekki áverka á heila. Maðurinn sem lést hét Björn Valberg Jónsson, fæddur 22. ágúst 1959. Hann lætur eftir sig tvo syni úr fyrri sambúð. Drengurinn hét Marinó Kristinn V. Björnsson, fæddur 24. febr- úar 1995. FRÉTTIR Enn framið rán í versluninni Kjalfelli í Reykjavík Morgunblaðið/Ámi Sæberg VERSLUNIN Kjalfell hefur þrívegis orðið fyrir barðinu á misind- ismönnum á síðustu vikum. Ránsfeng- urinn var 9.500 kr. TVEIR hettuklæddir menn sem ot- uðu hnífí að starfsmanni verslunar- innar Kjalfells við Gnoðarvog í fyrrinótt höfðu 9.500 krónur í pen- ingum á brott með sér. Þetta er í þriðja sinn á skömmum tíma sem búðareigendurnir verða fyrir barð- inu á misindismönnum og eru öll málin óupplýst. Lögreglan vildi ekki láta hafa eftir sér hvort hún væri komin á slóð mannanna. Málið væri í rann- sókn. Hún vildi ekki heldur tjá sig um hvort til stæði að hafa sérstaka vakt við verslunina. í þriðja sinn Rán var framið með svipuðum hætti í sömu verslun í september- lok. Þá ógnuðu tveir hettuklæddir menn afgreiðslukonu með hnífi og neyddu hana til að afhenda sér peninga, um 60-70 þúsund krónur. Þá var um 70-80 þúsund krónum í reiðufé stolið úr söluturninum í byijun október. Þrír piltar, senni- lega 16-17 ára, komu þá inn í versl- unina og gáfu tveir þeirra sig á tal við afgreiðslukonuna. Á meðan laumaðist sá þriðji á bak við án þess að hans yrði vart. Það var ekki fyrr en um 20 mínútum síðar að afgreiðslukonan áttaði sig á þjófnaðinum og gerði lögreglu við- vart. . • ->" Morgunblaðið/Kristinn Ný einkennisföt í notkun NÝ einkennisföt flugliða og af- greiðslufólks Flugfélags íslands verða tekin í notkun eftir helg- ina. Fötin hannaði Maria Ólafs- dóttir en þau eru saumuð í Frakklandi. Alls munu 150 starfsmenn FI klæðast þessum einkennisfötum við störf sín. Þrír starfsmenn FÍ stilltu sér upp í nýju einkennisfötunum, sem eru dökkblá að lit. Frá vinstri: Be- verly Chase, sem er flugfreyja, Pétur Danielsson afgreiðslumað- ur er hér í einkennisfötum flug- manns og Kolbrún Guðmunds- dóttir er í einkennisfötum starfs- fólks í afgreiðslu en flugfreyjur nota einnig vesti eins og hún er í. Frumvarp um virðisaukaskatt íslendingar í útlöndum versli án skatts FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð- herra hefur kynnt ríkisstjórninni frumvarp sem felur í sér að íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru er- lendis fái sama rétt og erlendir ferða- menn til þess að fá virðisaukaskatt vegna innkaupa hérlendis endur- greiddan við brottför úr landi. Friðrik Sophusson segir þetta í samræmi við þá reglu, sem gildandi er ! nágrannalöndunum. í frumvarpinu er einnig að finna ákvæði um að gera undanþæga frá virðisaukaskatti þjónustu sem ís- lenskir sérfræðingar vinna fyrir er- lenda aðila. Samkvæmt gildandi lög- um hafa erlendir aðilar sem skipta við innlenda sérfræðinga getað feng- ið virðisaukaskatt endurgreiddan en í samræmi við reglur nágrannaland- anna verða þessi viðskipti undanþeg- in virðisaukaskatti nái frumvarpið fram að ganga. ATHYGLI skal vakin á, að sérblaði Morgunblaðsins um bíla, var dreift með blaðinu í gær, laugardag. Davíð Oddsson um leiðtogafundinn í Strassborg Mannréttindi og lýð- ræði ekki orðin tóm Strassborg. Morgunblaðið. PÓLITÍSKIR leiðtogar 40 aðildar- ríkja Evrópuráðsins luku í gær öðr- um fundi sínum í nær hálfrar aldar sögu ráðsins. Þeir lýstu yfir tryggð við þær hugsjónir sem þetta elsta ríkjasamband álfunnar var stofnað um: lýðræði, mannréttindi og rétt- arríki. í yfirlýsingu fundarins segir að breytingarnar frá 1989 kalli á nán- ari samvinnu landa og Evrópuráðið, sem langflest ríki álfunnar hafa fengið aðild að, marki stefnu á sviði mannréttinda og alþjóðaréttar, með sáttmálum sem ríkin skuldbinda sig til að halda. Samþykkt var ályktun um að- gerðir næstu missera í mannréttind- um, félagsmálum, öryggismálum og menningarefnum. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að mannréttindi og lýðræði væru ekki orðin tóm í Evrópuráðinu. Gildi fund- ar leiðtoganna fælist í að gengið yrði ákveðnar til verks; nýr mann- réttindadómstóll myndi afkasta meiru, umboðsmaður mannréttinda tæki til starfa, og eftirlit ráðsins með ríkjunum hefði þegar sannað gildi sitt. Efling og breyting Félags- málasjóðsins skipti máli svo og hert barátta gegn glæpum og eiturlyfja- smygli. Þetta væru nokkrar af þeim aðgerðum sem ákveðnar hefðu verið fram að afmæli Evrópuráðsins árið 1999. Ráðið gegndi nú einskonar uppeldishlutverki varðandi lýðræði í Austur-Evrópu og þar væri unnið starf sem einnig nýttist öðrum fjöl- þjóðastofnunum. „Það stóð aldrei til að gera bylt- ingarkenndar samþykktir á þessum fundi,“ sagði Davíð ennfremur. „Þeir sem bjuggust við því verða fyrir vonbrigðum, en sú staðreynd að leið- togar allra landanna koma saman, til að staðfesta vilja til ákveðinna verkefna, sýnir að Evrópuráðið hefur hlutverki að gegna og mun eflaust hafa það næstu ár og áratugi." Bankará biðilsbuxum ►Ýmsir möguleikar hafa opnast til frekari sameiningar banka eftir hlutafélagavæðingu ríkisbank- anna. /10 í ítölsku samfélagi ►Jónas Kristinsson verkfræðing- ur hefur alið mestallan sinn aldur á erlendri grund og nú býr hann á Ítalíu, kvæntur þarlendri konu. /22 Velferðarkerfið á ekki að vera hengirúm ► Poul Nyrup Rasmussen forsæt- isráðherra Dana tekur á móti Dav- íð Oddssyni forsætisráðherra í dag, er hann kemur í opinbera heim- sókn, og rætt við hann af því til- efni. /24 B ► 1-20 í algleymi söngsins ►Álftagerðisbræður í Skagafirði hafa á undanförnum árum hrifið landsmenn með sönggleði og létt- leika. Um helgina syngja þeir bræður kvöldlangt á Hótel íslandi. /1-4 Frá Savannatríóinu til Eltons Johns ►Þórir Baldursson, tónskáld, tón- listarmaður og tónlistarkennari, hefur mörg undanfarin ár verið í fremstu röð íslenskra hljómlistar- manna. /14 Næturmenning í dagsljósið ►Hommar og lesbíur á íslandi hafa lengst af verið umlukt múr þagnar og fordóma. /16 C FERÐALOG ► 1-4 Ratanakiri ►Með fiðrildum og skógarfólki. /2 Út af fyrirsig ífjallasal ► Monte Vuala í Sviss er sannkall- að kvennahótel. /4 D ATVINNA/ RAÐ/SMA 1-16 Aukin afköst í þjónustugreinum ► Hagfræðistofnun Háskólans kannaði framleiðniþróun í nokkr- um atvinnugreinum þjónustu. /1 E BILAR ► 1-4 Árgerð 1998 ►ítarlegt yfirlit yfir allar helstu gerðir fólksbíla og jeppa af árgerð- inni sem nú eru að koma á mark- að./l Hjólbarðar eru f lókið fyrirbæri ►Því hefur verið haldið fram að hjólbarðar séu tæknilega einn komnasti hluti bílsins. /21 FASTIR ÞÆTTIR full- Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 50 Leiðari 32 Brids 50 Helgispjall 32 Stjömuspá 50 Reykjavíkurbréf 32 Skák 50 Skoðun 34,36 Fólk (fréttum 54 Minningar 38 Útv./sjónv. 52,62 Myndasögur 48 Dagbók/veður 63 Bróf til blaðsins 48 Mannlifsstr. 12b Hugvekja 50 Dægurtónl. 13b INNLENDAIt FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.