Morgunblaðið - 12.10.1997, Page 4

Morgunblaðið - 12.10.1997, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ 4 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 VIKAN 5/10-11/10. ►Samtök um þjóðareign voru stofnuð á miðvikudag og hafa þau á stefnuskrá sinni að tryggja að þjóðin öll njóti réttláts arðs af sameign sinni, íslandsmið- um. Formaður samtak- anna var kjörinn Jón Ara- son skipstjóri. Fjöldi manns mætti á stofnfund- inn og hafði á sjötta hundr- að manna skráð sig í sam- tökin á föstudag. ► Ahöfnin á namibíska rannsóknaskipinu Welw- itchia, sem mannað er ís- lenskum yfirmönnum, bjargaði 23 namibískum sjómönnum, sem komist höfðu í lítinn gúmbjörgun- arbát eftir að 75 tonna línubátur, sem þeir voru á, sökk í aftakaveðri í vik- unni. ►Grunnskólakennarar samþykktu með 94,2% at- kvæða að boða til verkfalls 27. október nk. hafi samn- ingar ekki tekist. Eiríkur Jónsson, formaður Kenn- arasambands íslands, seg- ir að þessi niðurstaða end- urspegli þá reiði sem sé meðal kennara vegna stöð- unnar í kjaramálum þeirra. ►Barnarásin heitir ný sjónvarpsstöð sem hefur útsendingar í desember. Um er að ræða stöð með * barna- og unglingaefni sem sendir út á breiðbandi Pósts og síma. Að sögn forsvarsmanna Barnarás- arinnar er ætlunin að allt efni stöðvarinnar verði of- beldislaust. Allt erlent efni verður talsett og textað en einnig verður framleitt innlent efni. Kínverjar hóta vegna heimsóknar KÍNVERSK stjórnvöld sögðu það geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir ísland, að Lien Chan, varaforseta Tævans, var leyft að koma til íslands. Davíð Odds- son forsætisráðherra, sem neytti kvöld- verðar með Chan þrátt fyrir áköf mót- mæli Kínverja, sagðist telja ástæðu til að óttast að Kínverska alþýðulýðveldið stæði _við yfirlýsingar sínar, en þáð væru íslendingar sjálfir sem ákvæðu hverja þeir vildu hitta. Kínveijar af- lýstu í vikunni tveimur viðskiptafund- um, sem halda átti í Peking, vegna heimsóknar Liens. Feðgar létust í bílslysi TVEGGJA ára drengur og faðir hans létust í hörðum árekstri á Vesturlands- vegi við Leirvogsá á fímmtudagskvöld. Móðir bamsins er einnig mikið slösuð, sem og ökumaður hins bílsins, sem í árekstrinum lenti. Tildrög slysSins eru óljós. í hlut áttu Ford Econoline-sendi- bíll, þar sem ökumaður var einn á ferð, og fólksbíll, sem í vora litli drengurinn og foreldrar hans. Þriðji bíllinn ók inn á slysavettvanginn en ökumaður hans var ekki talinn alvarlega slasaður. Heildarverðmæti síldarkvóta um 20 milljarðar ÚTSÉÐ er með að allur kvóti íslend- inga úr norsk-íslenska síldarstofninum náist á þessari vertíð. íslensk skip hafa veitt um 220 þúsund tonn af síld frá Íiví í vor en sá hluti sem kom í hlut slendinga við skiptingu veiða úr stofn- inum í ár nam 233 þúsund tonnum. Sé verðmæti íslenska síldarkvótans framreiknað á hlut íslands í norsk- íslensku síldinni er verðmæti kvótans um 20 milljarðar. Einar Oddur Krist- jánsson alþingismaður sagði á Alþingi í vikunni, að ef menn tryðu því að auðlindaskattur væri góður í hagfræði- legu tilliti væri kannski rétt að prófa hann á norsk-íslenska síldarstofninum. Fjárlagadeila verður stjórn Ítalíu að falli ROMANO Prodi, forsætisráðherra ítal- íu, baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á fímmtudag eftir árangurslausar tilraunir til að fá þingmenn marxista- flokksins Kommúnískrar endurreisnar til að samþykkja fjárlagaframvarp stjórnarinnar. Fram að þessu hafði flokkurinn stutt minnihlutastjórn Prod- is en lagðist gegn áformum hennar um spamað í lífeyriskerfinu. Forsætisráð- herrann kom í veg fyrir að stjómin byði lægri hlut í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið í neðri deild þings- ins með því að bjóða afsögn sína. Búist er við að boða þurfí til nýrra kosninga. Fundi Arafats og Netanyahus fagnað YASSER Arafat, forseti heimastjórnar Palestínumanna, og Benjamin Net- anyahu, forsætisráðherra ísraels, komu saman á miðvikudagsmorgun og var það fyrsti fundur þeirra frá því í febr- úar. Friðarviðræðurnar höfðu legið niðri vegna deilu um byggingarfram- kvæmdir ísraela í Austur-Jerúsalem. Bandaríkjastjóm sagði að fundurinn hefði verið mikilvægt lóð á vogarskál- amar í friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs og gæfí tilefni til bjart- sýni. Jórdanir staðfestu á mánudag að þeir hefðu sleppt tveim ísraelskum til- ræðismönnum, sem vora teknir hönd- um fyrir misheppnaða tilraun til að ráða stjómmálaleiðtoga Hamas-sam: takanna af dögum í liðnum mánuði. í skiptum fyrir mennina tvo hafa ísrael- ar látið lausan Ahmed Yassin, stofn- anda Hamas, sem hafði verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í ísrael. ► FULLTRÚAR norður- írskra sambandssinna, sem eru mótmælendatrúar, og þjóðernissinnaðra kaþól- ikka settust að samninga- borði í Belfast á þriðjudag. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir svörnu andstæðingar efna til samningaviðræðna frá því írlandi var skipt 1921 og vonir standa til að þetta sé fyrsta skrefið til að binda enda á 28 ára átök á Norður-írlandi. ► RÉTTARHÖLD hófust á miðvikudag í máli Maurice Papons, fyrrverandi fjár- lagaráðherra Frakklands, sem hefur verið ákærður fyrir aðild að stríðsglæpum þýskra nasista í síðari heimsstyrjöld þegar hann sat í Vichy-stjórninni. Pap- on er 87 áira og verjandi hans óskaði eftir því að hon- um yrði ekki haldið í fang- elsi meðan réttað væri í málinu, sagði að hann gæti dáið þar af völdum hjarta- sjúkdóms. ►ÁRLEGT flokksþing breskra íhaldsmanna hófst í Blackpooi á þriðjudag og sjálfsgagnrýnin sem ein- kenndi umræðurnar þar þótti minna á fjölmennan meðferðarfund. Tæp 80% flokksmanna studdu áform Williams Hague, leiðtoga flokksins, um mestu umbæt- ur á starfsemi flokksins í 120 ár í atkvæðagreiðslu fyrir þingið. FRÉTTIR Morgunblaðið/Sig. Fannar KÁLFAR frá Ferðamannafjósinu á Laugarbökkum voru viðstaddir opnunina á mjólkurtorginu í KÁ á Selfossi. Mjólkurtorg á Selfossi Selfossi. Morgunblaðið. FYRSTA mjólkurtorgið á ísiandi var opnað á Selfossi á föstudag. _ Mjólkurtorgið er í húsnæði KÁ á Selfossi og er það samvinnu- verkefni KÁ og Mjólkurbús Flóa- manna. Mjólkurtorgið er sér- byg&ður kælir sem er þannig úr garði gerður að viðskiptavinir verslunarinnar geta gengið um hann. Þorsteinn Pálsson, fram- kvæmdastjóri KÁ, sagði að á nyólkurtorginu leiddu framleið- endur og söluaðilar saman hesta sína í þeim tilgangi að bæta þjón- ustu við neytendur. Þorsteinn sagði að það væri viðeigandi að fyrsta mjólkurtorgið væri opnað á Suðurlandi og þá sérstaklega í mjólkurbænum Selfossi. Hugmyndin að mjólkurtorginu er fengin að láni frá Svíþjóð en þar hafa rannsóknir leitt í ljós að tilkoma mjólkurtorga hefur í sumum verslunum aukið sölu á mjólkurvörum um allt að 40%, sem verður að teljast góður árangur. Könnun Gallup Meira en 7 5% stuðningur við sölu hlutabréfa í bönkunum ÞRÍR fjórðu hlutar fólks vilja að hlutabréf í Landsbankanum og Búnaðarbankanum verði seld á frjálsum markaði ef marka má könnun sem Gallup hefur gert. Svipað hlutfall er andvígt því að þrír bankastjórar stýri hvorum 73,3% kváðust andvíg þremur mlisbankastjórum, 13,2% voru hlynnt því fyrirkomulagi en 13,5% höfðu ekki á því skoðun. 75,5% vildu selja hlutabréf í Landsbanka á frjálsum markaði, 12,5% voru á móti og 12% hlutlaus. 77,1% vill selja hlutabréf í Búnað- arbankanum á almennum markaði en 11,1% er því andvígt og 11,8% hafa ekki skoðun á málinu. 73,2% þeirra sem lentu í 1.119 manna tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá tóku þátt í könnun Gallup. Gallup kannaði einnig afstöðu fólks til stjórnmála. Ekki mældist marktækur munur á fylgi Sjálfstæðisflokks og R-listans í skoðanakönnun vegna borgar- stjórnarkosninga sem Gallup gerði 26. september til 6. október. 51% svarenda kvaðst ætla að kjósa R-listann en 49% D-listann. I tveimur könnunum, sem gerðar voru í júlí og ágúst, mældist heldur ekki marktækur munur, þá sögðust 50,6% og 50,9% ætla að kjósa R- lista en 49% D-lista. í sömu könnun var fylgi þeirra flokka sem eiga þingmenn á Alþingi og stuðningur við ríkisstjórnina kann- að. 61% kvaðst styðja ríkisstjómina. 41,4% kváðust mundu kjósa Sjálf- stæðisflokkinn. Fylgi hans mældist 39% í ágúst og 48,4% í júlí. 20,8% kváðust mundu kjósa Framsóknarflokkinn í þingkosning- um. Fylgi hans mældist 19,1% í ágúst og 16,8% í júlí. 16,4% gáfu upp stuðning við Al- þýðubandalag. 16,8% studdu flokk- inn í ágúst en 14,8% í júlí. 15,7% kváðust kjósa Alþýðuflokkinn. Hann hlaut um 18% fylgi í ágúst og 16,8% fylgi í júlí. Fylgi Kvenna- lista mældist 3% líkt og í ágúst. Um 18% voru óákveðin eða neit- uðu að svara og rúm 9% kváðust ekki mundu kjósa eða skila auðu. Könnunin var gerð i síma hjá 1.119 manna tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá. Svarhlutfall var 72,3%. Skekkjumörk eru 1-4%. Morgunblaðið/Jón Stefánsson Ný stöð um áramót AÐ undanförnu hefur verið unn- ið að jarðvegsskiptum á lóð Olís hf. við Snorrabraut þar sem fyr- irhugað er að setja niður tvær dælur og sjálfsala og í gær var tankurinn settur niður á lóðina. „Við stefnum að opnun um ára- mót,“ sagði Thomas Möller, framkvæmdastjóri markaðsde- ildar þjónustusviðs OIís. „Ingi- mundur Sveinsson arkitekt hann- aði stöðina sem er mjög látlaus. Þarna verður settur niður rnikill gróður auk þess sem gert er ráð fyrir rúmlega 30 bílastæðum fyr- ir viðskiptavini fyrirtækjanna í nágrenninu.“ Yfír stöðinni verður gagnsætt plastþak og grindin verður úr plasti og áli. Vandað verður til lýsingar, að sögn Thom- asar, og séð til þess að stöðin falli vel að umhverfínu. „Þetta verður nýög einfalt," sagði hann, „tvær dælur og sjálfsali. Leigubílsljórar og sendibílsljórar, sem lengi hafa haft aðstöðu þarna hafa fagnað því sérstaklega að fá stöðina þaraa. Þetta er mikið þjónustu- hora.“ Thomas sagði að á stríðs- árunum hefðu Bretar verið með bækistöð þarna skammt frá og . þegar farið var að hreyfa við jarðvegi á lóðinni komu í ljós S gamlir öskuhaugar og ýmislegt | smádót sem rekja má til stríðsár- anna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.