Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forseti ASÍ harðorður um lífeyrismál við setningu þings LÍV Fjármálaöfl vilja braska með lífeyrisspamað launafólks „ÞAÐ eru til þau öfl í landinu sem vilja rústa sjálfum grundvelli lífey- riskerfisins. Þessi öfl virðast beita fjármálafyrirtækjunum í landinu sem leyna sér á bak við einstakl- inga sem þau hafa fengið til verks- ins. Tilgangurinn er augljós. Hann á ekkert skylt við umhyggju fyrir velferð launafólks. Hann er sá einn að koma höndum.yfir sem stærstan hluta af lífeyrissparnaði lands- manna til að geta braskað með hann, til að auka hagnað hluthafa þessara fjármálafyrirtækja," Þetta sagði Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, í ávarpi við setningu 21. þings Landssambands íslenskra verslun- armanna á föstudag. Grétar fjallaði sérstaklega um fyrirhugaðar lagabreytingar á starfsemi iífeyrissjóða og störf nefndar fjármálaráðherra en Grétar á sæti í henni fyrir hönd ASÍ. Til stendur að halda lokafund í nefnd- inni næstkomandi miðvikudag. „Nú á næstu dögum og vikum reynir enn á ný á hvort okkur tekst að veijast atlögunni eða hvort Alþingi ætlar að vinna ill eða óbætanleg skemmdarverk á þessu sviði. Nú ríður á að við öll, heildarsamtök launafólks, landssamböndin, verka- lýðsfélögin í landinu og aðrir full- trúar launafólks sameinist í að hrinda þessari árás sem stefnt er gegn okkur,“ sagði Grétar. I ræðu sinni hvatti Grétar einnig verslunarmenn til samstöðu en harðar deilur milli Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, sem hef- ur hótað úrsögn úr LÍV, og lands- byggðarfélaga einkenna þingið. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður LÍV, fjallaði einnig um óvissuna í lífeyrismálum í setning- arræðu sinni. „Á næstu dögum mun ráðherraskipuð nefnd skila tillögum sínum að nýjum lögum um starf- semi lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði. Verði niðurstaðan sú, að lagðar verði til breytingar sem munu jafnvel vega að sjálfum grundvelli þess lífeyriskerfis sem íslenskt launafólk byggir á til fram- tíðar, stöndum við ef til vill frammi fyrir stærsta verkefni okkar árum saman,“ sagði hún. Ný bók um Vatnajökul og leyndardóma hans Sagt frá náttúrahamföran- um haustið 1996 HJÖRLEIFUR og Oddur afhentu Ólafi G. Einarssyni, forseta Alþingis, áritað eintak af bókinni í gær. NÁTTÚRUFRÆÐINGARNIR Hjörleifur Guttormsson og Odd- ur Sigurðsson hafa gefið út bókina Leyndardóma Vatnajök- uls. Bókin hefur m.a. að geyma lýsingu á náttúruhamförunum í Vatnajökli og á Skeiðarársandi haustið 1996. Hjörleifur og Oddur fylgdust báðir með atburðunum í Vatna- jökli og á Skeiðarársandi á síð- asta hausti og miðla í bókinni af reynslu sinni í máli og mynd- um. Þeir hafa haft náin kynni af miðhálendinu og umhverfi Vatnajökuls um áratuga skeið. Hjörleifur lauk prófi í líf- fræði frá háskólanum í Leipzig 1963. Oddur lauk prófi í jarð- fræði og efnafræði frá háskól- anum í Uppsölum 1969. Sagt frá eldsumbrotum liðinna alda í bókinni er sérstaklega fjall- að um jökulinn vestanverðan og aðliggjandi landsvæði og lýst eldgosinu í Gjálp og jökulhlaup- inu á Skeiðarársandi í fyrra- haust. í frétt frá útgefanda seg- ir að þetta sé fyrsta ritið sem veiti heildstætt yfirlit um þá atburði, sem vöktu heimsat- hygli, og sagt sé frá framvind- unni síðan og endurreisn mann- virkja. Þá eru eldsumbrot lið- inna alda í Bárðarbungu, Gríms- vötnum og Öræfajökli sett í samhengi við núverandi ásýnd landsins. f bókinni er lýst umgjörð Vatnajökuls frá Dyngjuhálsi í norðri vestur og suður um til Öræfa. Lítið hefur í seinni tíð verið ritað í samhengi um það svæði. Þar er einnig að finna myndskreytta lýsingu á Ieiðinni frá Kirkjubæjarklaustri austur um Síðu, Fljótshverfi, Skeið- arársand og Öræfasveit. Bókin er 280 blaðsíður í all- stóru broti. Hana prýða rúm- Iega 300 ljósmyndir, auk fjölda uppdrátta. Útgefandi er Fjöll og firnindi en Þjóðsaga ehf. hafði umsjón með útgáfunni og annast dreif- ingu. Sigfús HaiJdórsson, minningarlónlcikar. íjiáskólabíói sunnudaginn í9.okt. kl.í6:00 Miðasala er hafin í Háskólabíöi. Númeruð sæti. Öll tónlistin verður eftir Sigfús Halldórsson, m.a. þrjú óbirt lög og nýr texti eftir Ómar Ragnarsson, sem er kynnir tónleikanna. Dagskrá: / Einsöngvarar verða: Jóhanna Linnet, Signý Sæmundsdóttir, J Egill Óíafsson, Eiríkur Hreinn Helgason og Friðbjörn G. Jónsson. Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonár WT og léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur undir stjórn Jóhönnu Þorhallsdóttur syngja. Píanóleik annast Jónas Ingimundarsoh, Sigurður Marteinsson og Aðalheiður Þorsteinsdottir. I Strengjakvintet leikur ásamt flautu, óbói, klarinettu og horni. Tónleikarnir eru haldnir að frumkvæöi I.ionsklúbbsins Ægjs; en Sigfús var Lionsfélagi Ágóöi rennur til líknarmála m.a. til verkefna að Sólheimurh i Grímsnesi o. fl. Styrktaraðilar tónleikanna: Æ SJOV/ÆaPALMENNAR 8 • Slmi 533 2800 Landsbanki íslands Aðstandendur geðfatlaðra Fræðslukvöld á Hvíta bandinu AÐ KVÖLDI hins fimmtánda október nk. verður í húsnæði dagdeildar Hvíta bandsins á Skólavörðustíg 37 fyrsta fræðslukvöld af fimm fyrir aðstandendur geðfatlaðra á vegum geðsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þessum fræðslukvöldum er ætlað að veita aðstandendum fræðslu um hina ýmsu geðsjúkdóma og styðja þá í aðstoð þeirra við hina geðfötluðu. Guðrún Guðmundsdóttir hefur átt þátt í að koma þessum fræðslukvöldum á laggirnar, telur hún að mikil þörf sé fyrir svona þjónustu? „Erlendar rannsóknir sem taka til fjölskyldna geðklofa- sjúklinga hafa leitt í ijós að það að bjóða upp á vettvang þar sem fleiri en ein fjöl- skylda kemur saman í hóp og veitt er fræðsla og stuðningur reynist mjög vel og betur en þegar aðeins einni fjölskyldu er veitt sama þjónusta. Það kemur fram að verulega dregur úr endurinn- lögn sjúklinga, þeir halda betur lyfjameðferð og stöðugleiki er meiri. Það er hægt að leiða að því líkur að lífsgæði sjúklinga og fjöl- skyldna þeirra muni aukast. Einn- ig verður að taka með í reikning- inn, nú á dögum niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu, að þetta getur dregið verulega úr kostnaði samfé- lagsins." -Er fólk duglegt að nýta sér svona þjónustu? „Við vitum þáð ekki ennþá en þörfín virðist vera gífurleg, það finna starfsmenn í samtölum við aðstandendur. Vanlíðan nánustu ættingja geðfatlaðra hefur ekki aðeins áhrif á þá sjálfa heldur get- ur hún hægt á bata hins sjúka. Hinn geðfatlaði getur sýnt miklar geðsveiflur, neitað að þrífa sig, snúið sólarhringnum við og neitað að taka nauðsynleg lyf. Stundum sýnir hann ógnvekjandi hegðun, eða er áhugalaus um flesta hluti. Það gefur augaleið að það er erfitt fyrir aðstandendur að bregðast við svona hlutum og fræðsla og stuðn- ingur getur orðið mikii hjálp.“ - Eiga aðstandendur oft í mikl- um tilfinningavandræðum? „Fyrir ekki löngu blómstruðu ýmsar kenningar um orsakir og eðli geðsjúkdóma þar sem líkur voru leiddar að því að fjölskyldu- mynstrið og samskiptin innan fjöl- skyldunnar framkölluðu geðveik- ina. Þessi viðhorf kölluðu á mikla sektarkennd hjá aðstandendum, þeir fundu til hjálparleysis og fannst þeir vanræktir af geðheil- brigðisstarfsfólki." - Hefur þessi afstaða breyst? „Seint á áttunda áratugnum komu fram líffræðilegar og erfða- fræðilegar vísbendingar __________ um orsakir geðsjúk- dóma. Þá fyrst fór geð- heilbrigðisstarfsfólk að einhveiju marki að velta fyrir sér líðan og ■■ reynslu aðstandenda geðsjúkra og samskiptum innan fjölskyldunnar." - Eru aðstandendur yfirieitt viljugir að taka á þennan hátt þátt í meðferð sjúklingsins? „Komið hefur í ljós að aðstand- endur vilja vera þátttakendur í meðferð ástvina sinna og hafa reglulegt samband við meðferðar- aðila á sjúkrastofnunum. Einnig hefur komið í ljós að þegar fjöl- skylda sjúklings er með í ráðum varðandi meðferð vegnar viðkom- andi betur, nær að jafnaði iyrr bata og batinn varir lengur. I'jöl- skyldan er jú nánasta félagslega umhverfíð þar sem bæði er mesta uppspretta streitu svo og stuðn- Guðrún Guðmundsdóttir ► Guðrún Guðmundsdóttir er fædd á Húsavík árið 1955. Hún lauk verslunarprófi frá Versl- unarskóla Islands, sjúkraliða- prófi frá Sjúkraliðaskóla Is- íands, stúdentsprófi frá Fram- haldsskólanum á Húsavík og BSC prófi í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Islands. Hún hefur starfað við verslunarstörf, sem sjúkraliði og nú seinni árin á geðsviði Sjúkrahúss Reykjavík- ur, deild A2, Fossvogi, fyrst sem sem stoðhjúkrunarfræðingur og nú sem deildarstjóri. Hún hefur unnið að ýmsum þróunarverk- efnum á deildinni, nú síðastliðið ár ásamt öðru fagfólki að því að auka þjónustu við aðstand- endur deildarinnar. Guðrún er gift Viðari H. Eiríkssyni skrif- stofustjóra launadeildar Þjóð- leikhússins. Þau eiga tvö börn. ings ef svo má að orði komast." - Hvað gerist ef meðferð ber ekki tilætlaðan árangur? „Margir hafa áhyggjur af fram- tíðinni og verða fyrir vonbrigðum ef meðferðin bregst. Komið hefur í ljós að aðstandendur upplifa mikla sorg, jafnvel mörgum árum eftir greiningu ástvinar með geð- klofa eða geðhvarfasýki vegna mikilla persónuleikabreytinga hins sjúka. Astand hins geðsjúka geng- ur oft í bylgjum og sorgarferlið dregst á langinn vegna þess að hann verður stundum tímabundið eins og hann á að sér að vera en veikist svo aftur. Þetta dregur sorgarferlið á langinn.“ - Hvernig gengur aðstandend- um að tjá sig um þessi mái? „Aðstandendur eiga oft erfitt með að greina vanda sinn og tala opinskátt um hann og þann missi sem þeir hafa orðið fyrir. Foreldr- ar, makar og börn sakna þess sam- _________ bands sem þeir höfðu áður við hinn sjúka, einnig syrgja þau þær vonir og væntingar sem voru tengdar framtíð þeirra með sjúklingn- um.“ -Hvaða sjúkdóma munið þið taka fyrir á þessum fræðsiukvöld- um? „Fyrsta fræðsluröðin mun fjalla um geðklofasjúkdóm og þarfir aðstandenda, ef vel tekst til munu einnig verða settar upp fræðslu- raðir fyrir aðstandendur þeirra sem þjást af öðrum geðsjúkdóm- um, svo sem geðhvarfasýki, átr- ' öskunum, kvíða og kvíðasjúkdóm- um, umræður verða eftir fyrirlestr- ana. Fyrirhugað er að hafa fræðslukvöldin á miðvikudags- kvöldum klukkan 20 og getur fólk skráð sig til þátttöku hjá læknarit- urum á deild A2 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur." Þörfin virðist vera gífurleg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.