Morgunblaðið - 12.10.1997, Page 14

Morgunblaðið - 12.10.1997, Page 14
14 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Hugræktanámskeið Guðspekifélagsins HEFST ÞRIÐJUDAGINN 14. OKTÓBER KL. 20. Um er að ræða sjö vikna námskeið í hugrækt fyrir byrjendur, sem fram fcr í hási félagsins í Ingólfsstræti 22. Námskeiðið er í umsjón Einars Aðalsteinssonar og fjallar um grundvallaratriði hugræktar og hugleiðingar, einingarviðhorf dulhyggjunnar, undir- meðvitundina og völundarhús hins ómeðvitaða, frumþætti sálarlífsins, tilfmnga og ianganaeðlið, viðhorf, vilja, þekkingu, skilning, ást og kærleika. Þá verður ijallað um mannrækt, yoga, karma og cndurholdgun, fæðuval í hugrækt, heilun, hina innri leit og heimspeki andlegs þroska. Yfir 500 manns hafit sótt þcssi námskeið undanfarin ár. Skráning við innganginn. Námskeiðið, sem ætlað er almenningi, er ókcypis og öllum opið meðan húsrúm leyfir. Námskeiðsgögn seld á kostnaðarverði. Hættið að bogra við þrifin! 25% léttara að vinda úr moppunni. Tvær 15 Itr. fötur fyrir hreint og óhreint vatn. Ein 8 Itr. og tvær 6 Itr fötur uppi fyrir skolvatn klúta og hreinsiefni. Hendurnar tm aldrei í vatn! Moppuna þarf hvorki að brjóta saman né taka af festiplötunni - einfaldlega vindið beint í pressunni. Að skipta um moppu er leikur einn - hún smellist af festiplötunni með fætinum og nýrri er smellt á án þess að snerta með höndunum! símanúmerið 510-0000 Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001 Útibú Suðurnesjum: Brekkustígur 39 • 260 Njarðvík Sími: 421 -4313 • Fax 421 -4336 Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞEIR sem koma fram í Listaklúbbnum annað kvöld: Sigurður Pálsson, Anna Valdimarsdóttir, Krist- ín Jóna Þorsteinsdóttir, Guðný Yr Jónsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Jóhann Hjálmarsson, Kristján Þórður Hrafnsson, Guðbergur Bergsson og Sigrún Guðmundsdóttir. Á myndina vantar Árna Ibsen, Sólveigu Hauksdóttur og Úlf Eldjárn. Norræn bóka- safnsvika Skemmtun helguð ljóðlistinni NORRÆN bókasafnsvika stendur yfir í Bókasafni Kópavogs til 16. nóvember. Þar verður dagskrá öll kvöldin, m.a. verða félagar í Hana- nú með upplestur og færeyska dag- skrá, þáttur úr Egils sögu um dauða Böðvars og samtalstækni Þorgerðar, finnskur skáldahópur, sögustund með Múmínfjölskyldu og Sögusvunt- an í gervi Hailveigar Thorlacius, Ritlistarhópur Kópavogs, Tónlistar- skólinn í Kópavogi, vinabær Kópa- vogs á Norðurlöndum kynntur, opið hús og fyrirlestur um íslenska tungu. í bókasafninu verða Kópavogs- dagar 17.-19 október. Safnið verður opið eins og venjulega. Sunnudaginn 19. október verður opið kl. 13-17 og verður sektafrí aðeins þennan eina dag. Þann dag gefst fólki kost- ur á að skila gögnum frá safninu án þess að greiða dagsektir. Feður, afar og bræður fá lánsskírteini (gild- ir í eitt ár) án endurgjalds, með því skilyrði að þeir fái að láni minnst eina barnabók og lofí að lesa fyrir börnin. Alla dagana þijá verður út- sala á bókum. DAGSKRÁ Listaklúbbs Leikhús- kjaliarans á mánudagskvöldið verður helguð ljóðlistinni og er nefnd ljóðaskemmtun í kynningu. Þar les Krislján Þórður Hrafns- son úr Ijóðabók sinni Jóhann vill öllum íhúsinu vel og fleiri son- nettur, Sigurður Pálsson les úr bók sinni Ljóðlinuspil, Anna Valdimarsdóttir úr bók sinni Úlfa- bros, Kristín Jóna Þorsteinsdóttir (Stína Bongó) úr bók sinni Dag- bók, Sigrún Guðmundsdóttir úr bók sinni Handan orða og Sig- mundur Ernir Rúnarsson úr bók sinni Sjaldgæft fólk. Þetta eru allt nýjustu verk höf- undanna og komu út eða munu koma út á þessum vetri. Einnig lesa skáldin Jóhann Hjálmarsson og Guðbergur Bergsson óbirt (jóð og Guðný Yr Jónsdóttir les úr síð- ustu ljóðabók Sigfúsar Daðasonar Oghugleiða steina en hann lést í desember í fyrra. Sólveig Hauks- dóttir les svo úr ljóðabókinni Nei eftir Ara Jósefsson sem lést langt um aldur fram, árið 1964. Nei er fyrsta og eina ljóðabók Ara og hefur nú verið endurútgefin. I hléi leikur Úifur skemmtari fyrir gesti. Úlfúr skemmtari er Úlfúr Eldjárn, einn af liðsmönnum unglingahljómsveitarinnar Kósí. Umsjón með dagskránni hefur Sigríður Margrét Guðmundsdóttir en kynnir er Ami Ibsen. Sigríður Margrét sagði að þetta væri ekki fyrsta ljóðadagskráin í Leikhúskjallaranum. Listaklúb- burinn væri í raun sprottinn upp úr Ljóðaleikhúsinu sem Arni Ibsen og fleiri hefðu staðið að. Dagskrár þess voru líka á mánudagskvöld- um og þóttu takast vel. Hún sagði að með ljóðaskemmtuninni væri lögð áhersla á samtímaskáld. Ljóðaskemmtunin í Lista- klúbbnum hefst kl. 20.30 á morg- un. Næstum Þránd- heimur NÆSTUM þar (hvar?) / almost there (where?) er gerningur með tölvutengdum mynd- og hljóð- varpa sem fer fram samhliða í tíma og rúmi í Nýlistasafninu og á sýn- ingunni Screens í Þrándheimi sunnudaginn 12. október frá kl. 15-18 í Svarta sal í Nýlistasafn- inu, Vatnsstíg 3b í Reykjavík. Screens sýningin stendur til 2. nóvember og hefur yfirskriftina „with art, for, on, through and beyond the screen“. Screens er verkefni sem sett hefur verið á laggirnar fyrir Þrándheim í tilefni 1000 ára afmælis borgarinnar. Markmiðið með sýningunni er að varpa ljósi á hlutverk borgar í samtímanum, þar sem skjárinn hefur vaxandi vægi. Þátttakendur eru alþjóðlegir og innlendir lista- menn; Bill Viola (USA), Graham Budgett (GB - USA), Fredrik Wretman (S), Marty St. James & Anne Wilson (GB), Robert Cahen (F), A.K. Dolven (N), Tecla Scip- horst (CA) o.fl. Mismunandi gerningar munu eiga sér stað í Nýlistasafninu, framdir af íslenskum listarmönn- um og norræna listhópnum tar- GET sem dvelur hér á landi. Lista- mennirnir munu fremja og flytja, gerninga, ljóð, tónlist og fleira. Þeir eru: Pétur Örn Friðriksson, Gunnar Andrésson, Birgitta Jóns- dóttir, Marteinn Bjarnar Þórðar- son, Birgitta Silfverhielm, Áse Hilde Brekke, Maria Friberg og John 0vind Eggesbo, Sólveig Birna Stefánsdóttir og Magnea Ásmundsdóttir m.a. Gerningunum verður varpað með ISDN, tölvutengdum mynd- og hljóðvarpa til Þrándheims og verða þeir aðgengilegur á Verald- arvefnum. Skipuleggjendur eru: John 0vind Eggesbo og Birgitta Jónsdóttir í samráði við x.net, Apple-umboðið hf. og ISDN frá Pósti og síma hf. Netfang Screens í Þrándheimi er: http://kit.trdkunst.no/screens ERLENDAR BÆKUR Slefberar og slúðurdrottningar BANDARISKI spennusöguhöfund- urinn Stuart Woods skrifar um slúðurheiminn í New York í nýrri spennusögu sem heitir „Dirt“. Stuart Woods: Slúður „Dirt“. Har- perPaperbacks 1997. 417 síður. SLÚÐUR er ein tegund frétta- mennsku sem mjög er iðkuð í hin- um vestræna heimi. Mest er hún áberandi í Bretlandi auðvitað þar sem konungsfjölskyldan sér slúð- ursnápunum fyrir endalausu efni, og í Bandaríkjunum þar sem kvik- myndaheimurinn er hreinasta gullnáma slúðrara. Lifnaður ríka og fræga fólksins, skilnaðir og framhjáhöld, selur blöð og tímarit og sjónvarpsþætti og virðist stund- um svo komið að alvöru fréttir eigi undir högg að sækja fyrir skemmti- og slúðurfréttum. Slúðurdrottningin Þeir, sem mest verða fyrir barð- inu á slúðri, hafa jafnvel í hyggju að snúa dæminu við og grafa eitt- hvað misjafnt upp um slúðurber- ana, einkum hina ágengu ljósmynd- ara, og ata þá auri. Bandaríski spennusöguhöfundurinn Stuart Woods notar að einhveiju leyti þá hugmynd í nýrri spennusögu þar sem hann gerir slúðurheiminum í New York skil. Söguna kallar hann einfaldlega „Dirt“ eða Slúður og segir hún af mikilli slúðurdrottn- ingu sem fær að finna til tevatnsins þegar hún sjálf verður fyrir barðinu á fremur ókræsilegum sögusögnum og innrás í einkalíf sitt. Hún heitir Amanda Dart og skrifar slúðurdálk í bandarískt stórblað og er skiljan- lega talsvert illa þokkuð af mörg- um. Dag einn er ruðst með mynda- vél inn á leynilegan ástarfund henn- ar á hótelherbergi þar sem hún er í fremur óþægilegri stöðu til þess að taka á móti gestum og brátt er myndefnið ásamt skýringartexta sent á faxtæki um alla New York borg. Og það er aðeins byijunin. Faxtækin spýta útúr sér ýmislegum hroða um hennar einkalíf og síðan yfirmanns hennar, blaðaeigandans Dick Hickock. Til þess að bjarga því sem bjargað verður ráða þau sér vaskan einkaspæjara og lög- fræðing og elskhuga mikinn í einum og sama manninum, Stone Barring- ton að nafni. Hann reynir að kom- ast á snoðir um hveijir standi á bak við róginn. Barrington eignast brátt kærustu. Hún heitir Arrington. Þegar þau verða hjón, sem allt stefnir í, mun hún altso heita Arr- ington Barrington! Eitthvað munu femínistar sjálf- sagt hafa við þessa sögu Stuart Woods að athuga. Ef kemur fyrir kvenmaður í henni er hann með brókarsótt og gott ef hann er ekki morðkvendi í ofanálag. Og ef kven- fólkið er ekki að plotta morð og meiðingar er það lítið annað en hjásvæfur eða viljalaus verkfæri í höndum karlmanna. Slúðurdrottn- ingin Amanda er kannski dæmigerð kvenpersóna Woods. Hún er kyn- ferðislega óseðjandi kona um fimm- tugt sem hefur unnið sig upp í hina eftirsóknarverðu stöðu slefberans með því að sofa hjá áhrifamönnum. Karlmennimir em mikið öðru- vísi, klókir valdamenn, áræðn- ar löggur eða atgervismenn eins og Stone Barrington, sem ekkert fær stöðvað í leit að sannleikanum. Persónusköp- unin er þannig talsvert ein- feldningsleg og klisjukennd og minnir að mörgu leyti á bíó- myndir sem handritshöfundur- inn Joe Eszterhas er frægur fyrir. Woods leggur talsvert uppúr því að skrifa erótík inní spennusöguna og krydda hana með uppáferðum og kynferðis- legu hjali hvenær sem færi gefst. Hann reynir einnig að gera slúðurheiminum í New York nokkur skil og tekst það ágætlega. Líklega var orðið sjoppu- bókmenntir búið til fyrir sögu eins- og „Dirt“. Það er ekki leiðinlegt að lesa hana, hún hefur ákveðið afþreyingar- gildi en ekki er hún merkileg lesn- ing. Hún er úthugsuð söluvara þar sem lögð er áhersla á aðlaðandi neytendaumbúðir sem innihalda allan pakkann; glamúrlíf ríka og fræga liðsins, bersöglislegar kyn- lífslýsingar, spennu, sem verður aldrei sérlega mikil, og ráðgátu, sem lesandinn fær að glíma við. Stuart Woods hefur skrifað meira en fimmtán skáldsögur, ferðabæk- ur og endurminningar og nýkomin er út eftir hann sagan „Dead in the Water“ með téðum Stone Barr- ington enn í aðalhlutverki. Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.