Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmynd/Tom Lawlor
DRAKÚLA, Viðar Eggertsson, sýgur blóð úr hálsi Minu, Töru Quirk.
Hínn frónskí Drakúla
Tónleikar til styrktar
skólabyggingu
TÓNLEIKAR verða í Kirkjuhvoli í
Garðabæ í dag, sunnudag, kl. 16.
Þar verða leikin verk frá barokktím-
anum eftir Charpentier, Purcell,
Krebs, Vivaldi og J.S. Bach. Fljdj-
endur eru Marta Guðrún Halldórs-
dóttir söngkona, Sigurður Halldórs-
son sellóleikari, Peter Tompkins
óbóleikari og Anna Margrét Magn-
úsdóttir semballeikari.
Þetta verða fyrstu tónleikarnir í
röð tónleika sem kennarar Tónlist-
arskóla Garðabæjar standa fyrir á
þessu skólaári. Þeim er ætlað að
vekja athygli á starfi skólans og
með þeim vilja kennarar skólans
jafnframt safna fé til kaupa á bún-'
aði í nýtt húsnæði sem byggt verð-
ur sérstaklega fyrir skólann og ráð-
gert er að taka í notkun á næsta ári.
Þau Anna Margrét og Sigurður
eru bæði kennarar við skólann og
Peter hefur kennt þar. Marta Guð-
rún er fyrrverandi nemandi skólans
og lauk þaðan burtfararprófi í
píanóleik 1987. Öll hafa þau komið
mikið við sögu í íslensku tónlistar-
lífi á undanförnum árum.
Eftir tónleikana gefst kostur á
að sjá teikningar af skólanum og
rabba saman yfir kaffibolla og smá
meðlæti.
Leikkonan Ghita Nörby
í Þjóðleikhúsinu
Viðar Eggertsson hefur fengið góða dóma í írskum
fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína í hlutverki Drak-
úla greifa í Dublin. Katrín Oddsdóttir, fréttarit-
ari Morgunblaðsins, fór að sjá sýninguna - og
hitta Drakúla sjálfan!
ÞAÐ var af einlægum vampíru-
áhuga okkar feðgina að við ákváð-
um að bregða okkur á Drakúla-leik-
sýningu í Dublin. Ekki minnkaði
eftirvæntingin þegar við fréttum að
höfundur verksins, Bram Stoker,
væri írskur og hefði búið skammt
frá heimili okkar hér í Dyflinni.
Þegar við fórum að sækja miðana
um klukkustund fyrir sýningu kárn-
aði þó gamanið. „Nú svo þið eruð
íslendingar," sagði stúlkan í miða-
sölunni. „Drakúla vill gjaman hitta
ykkur." Þetta fannst okkur pabba
hið besta grín og hlógum mikið.
Hlátur okkar hljóðnaði þó fljótt og
varð að vandræðalegum stunum
þegar við sáum að miðasölustúlk-
unni var fúlasta alvara. Pabbi reyndi
að bjarga okkur úr klípunni með
því að spytja hvort Drakúla væri
áhugamaður um ísland. Stúlkan
horfði djúpfrystu augnaráði á hann
og sagði síðan milli samanbitinna
tanna „Drakúla er íslendingur".
Svona komumst við faðir minn
að því að Viðar Eggertsson er Drak-
úla sjálfur.
Sýningin reyndist vera frábær
skemmtun. Við sátum ekki í númer-
uðum sætum fyrir framan stórt svið
eins og við höfum gert áður fyrr.
Við vorum þvert á móti leidd á milli
ólíkra leiksviða í dimmum og
drungalegum kjallara, sem skapaði
mjög sérstaka stemmningu. Allur
leikur var skemmtilega ýktur, í anda
samtíðar höfundarins. Viðar var í
alla staði frábær Drakúla. Með ein-
stakri raddbeitingu og íslenskum
hreim var hann ótrúlega sannfaér-
andi rúmensk vampíra. Ekki síst
kom það okkur feðginum þægilega
á óvart þegar Drakúla sagðist eiga
ættir sínar að rekja til íslenskra
berserkja, en þessi staðreynd er
komin frá höfundi sjálfum en ekki
Viðari eins og ætla mætti.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Viðar leikur Drakúla, því árið 1995
var verkið flutt af Leikfélagi Akur-
eyrar með hann i fararbroddi. Einn
af fremstu leikstjórum íra, Michael
Scott, leikstýrði sýningunni á Akur-
eyri. Michael leikstýrir einnig um-
ræddri sýningu í Dublin og er það
að hans ósk að Viðar fer aftur með
hlutverk Drakúla.
100 ár frá útkomu sögunnar
Það er engin tilviljun að Drakúla
er á hinum írsku fjölum um þessar
mundir, því í ár eru Iiðin 100 ár
frá útkomu þessarar frægu skáld-
sögu og 150 ár frá fæðingu höfund-
arins. Sagan um greifann blóð-
þyrsta og þær frábæru viðtökur
sem hún fékk olli því að fleiri
skrímsli á borð við Frankenstein
urðu til. Til að halda upp á aldaraf-
mæli þessa brautryðjendaverks
voru meðal annars gerð hryllings-
frímerki, sem gefin voru út á al-
þjóðamarkaði á frumsýningardegi
leiksýningarinnar 1. október.
Þegar við hittum Viðar að sýn-
ingu lokinni, sagðist hann vera
hæstánægður með írana og að það
opnar
kosningaskr{fstofu
vegna prófkjörs Sjálfstœðisjlokksins
í dag, sunnudag, kl. 15:00
í Austurstrœti 10
Stuðning smenn
www.neykjavik. corn
Kosningamiðstöðin Austurstræti 10
Símar: 561 9599/561 9526/561 9527
væri gaman að vinna með þeim.
Hann sagði okkur einnig frá kynn-
ingarfundi sem haldinn hefði verið
í listagalleríinu fyrir ofan leiksviðið.
Þar voru saman komnir til hádegis-
verðar sendiherrar ýmissa_ landa og
fleiri boðsgestir. Þar sem íslendign-
ar eiga ekki sendiherra á írlandi
sagðist Viðar strax hafa litið á þann
rúmenska sem sinn fulltrúa. Hádeg-
isverðarborðið var skreytt blóðrauð-
um blómum, krossmörkum og hvít-
laukum. Eftir glæsilegan hádegis-
verðinn var svo haldið niður í kjall-
ara þar sem fyrsta atriði leikritsins
var leikið við ákafan fögnuð við-
staddra. Að lokum var svo borinn
fram eftirréttur sem var blóðrautt
ávaxtafrauð, hjúpað hvítum ís með
skærrauðri sósu. Hjá hverjum diski
hafði verið komið fyrir litlum gos-
hver sem gaus undarlegri gufu.
Þetta mun hafa fyllt boðsgesti
nokkrum hryllingi, nema hvað einn
fylltist heimþrá.
Áætlað er að sýningin standi til
18. október, en þó er möguleiki að
lengt verði um viku. Sýningin hefur
heimasíðu á Veraldarvefnum og er
slóð hennar:_ www http://home-
page.rinet.ie/~sfa.
Sú árstíð sem stór partur íslensku
þjóðarinnar leggur leið sína til Dubl-
in er runnin upp og ég ráðlegg öllum
sem hingað koma að bregða sér í
kjallarann á „RHG Gallagher Gall-
ery“ og fylgjast með hinum frónska
Drakúla fara á kostum.
EIN ástsælasta leik-
kona Dana, Ghita
Nörby, verður með
dagskrá á Stóra sviði
Þjóðleikhússins mánu-
daginn 20. október kl.
20 ásamt eiginmanni
sínum Svend Skipper
og tríói hans. Tríóið
skipa, auk Skippers;
Mads Vinding, bassa-
leikari og saxafón- og
flautuleikarinn Jan
Zum Vohrde.
í dagskránni er
tvinnað saman upp-
lestri leikkonunnar á
nokkrum perlum H.C.
Andersen og tónlist,
allt frá klassískri tónlist til nútíma
tónlistar. Leikkonan flytur sögu-
brot og ljóð, sérstaklega valin með
það í huga að fólk eigi auðvelt með
að halda athyglinni vakandi og að
•SKÁLHOLTSÚTGÁFAN, út-
gáfufélag þjóðkirkjunnar, og Kór
Akureyrarkirkju hafa gefið út
geisladisk er nefnist Dýrð-vald-
virðing-kórsöngur í kirkjunni.
Flytjendur ásamt Kór Akureyrar-
kirkju eru einsöngvararnir Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Oskar Pétursson
og Sigrún Arna Arngrímsdóttir.
Antonia Hevesi leikur á orgel og
á trompet leika þeir Sveinn og
Hjálmar Sigurbjörnssynir. Stjórn-
tungumálaörðugleikar
komi ekki í veg fyrir
að menn njóti kvöld-
ins.
Ghita Nörby hefur
tengst Konunglega
leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn allan sinn
listamannsferil. Hún
hefur verið burðarás-
inn í mörgum stórum
leikhúsuppfærslum, en
í öðrum löndum er hún
sennilega þekktust fyr-
ir kvikmyndaleik sinn.
Má þar nefna myndir
eins og Hærværk,
Dansen om Regitze,
Den gode vilje og
Hamsun auk sjónvarsþáttanna
Matador og Riget.
Ghita Nörby hefur hlotið margar
virtar viðurkenningar bæði sem
Ieikhús- og kvikmyndleikkona.
andi er Björn Steinar Sólbergsson.
Á þessum diski er flutt úrval
af söngvum úr kórbókinni Dýrð-
vald-virðing - 50 kirkjulegir
söngvar fyrir blandaða kóra sem
Skállholtsútgáfan gaf út haustið
1996.
Upptökustjórn var í höndum
Halldórs Víkingssonar en hann sá
einnig um hljóðvinnslu. Hönnun
og umbrot var í höndum Skerplu.
Diskurinn kostar 1.990 kr.
Ghita Nörby
leikkona
Nýjar plötur
ÞORGEIR Baldursson, forsljóri Odda, Pétur Már Ólafsson, útgáfustjóri Vöku-Helgafells og Ólafur 1
Ragnarsson, framkvæmdastjóri Vöku-Helgafells.
Sögufræg útgáfa Njálssögu í endurgerð
ÚT er komin hjá Vöku-Helgafelli
Brennunjálssaga í útgáfu Halldórs
Laxness. Hér er um að ræða ná-
kvæma endurgerð af mynd-
skreyttri glæsiútgáfu bókaforlags-
ins Helgafells frá árinu 1945. Þá
var Njála fyrst gefin út með nú-
tímastafsetningu og annaðist Hall-
dór Laxness útgáfuna auk þess að
rita eftirmála. Bókin er í stóru
broti og prýða hana teikningar
eftir þijá af kunnustu listamönnum
þjóðarinnar, Gunnlaug Scheving,
Snorra Arinbjamar og Þorvald
Skúlason, en myndirnar teiknuðu
þeir sérstaklega af þessu tilefni.
Hin sögufræga útgáfa Helga-
fells, sem hefur verið ófáanleg um
áratuga skeið, kemur nú á mark-
aðinn að nýju.
Þeim Halldóri Laxness, Ragnari
í Smára útgefanda og Stefáni
Ögmundssyni prentara var hótað
fangelsisvist vegna stafsetningar
sögunnar og lög vom sett sem i
bönnuðu þeim að gefa út fomrit .
með nútímastafsetningu. En þeir
létu ekki deigan síga og Hæstirétt- |
ur sýknaði þá að lokum af kær-
unni í nafni prentfrelsis.