Morgunblaðið - 12.10.1997, Síða 38

Morgunblaðið - 12.10.1997, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ » + Pálína Bjarna- dóttir fæddist 7. febrúar 1925 á Bergþórugötu 12 í Reykjavík. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 2. október síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Elín Guðmundsdóttir, f. 1.10. 1897, d. 17.10. 1974, og Bjarni Bjarnason, f. 18.7. 1890, d. 15.4. 1945. Systkini Pálínu: Klara, f. 28.10. 1918, d. 14.9. 1997, Bjarni, f. 12.4. 1921, d. 25.10. 1983, Guð- mundur, f. 27.3. 1927, Steinvör, f. 2.8. 1930, Þórir, f. 6.10. 1931, og Már, f. 12.9. 1933. Pálína giftist 18. maí 1946 eftirlifandi eiginmanni sínum, Brynjólfi Karlssyni fv. eldvamareftirlitsmanni, f. Það var á miðjum sjöunda ára- tugnum sem ég kynntist henni tengdamóður minni sem seinna varð. Þau hjónin Palla og Binni eins og þau voru ævinlega kölluð bjuggu þá í kjallaranum á Sigtúni 47 hér í Reykjavík, þar sem þau höfðu búið allt frá upphafi sinna búskap- arára eða um 20 ár. Um þetta leyti voru þau um það bil að flytja í sína fyrstu eigin íbúð sem þau höfðu verið með í byggingu um nokkurt skeið. íbúð þessi er á Háaleitisbraut 56 en þar hafa þau hjón búið allan tímann síðan. Það er skammt stórra högga á milli í fjölskyldu Pálínu, því ekki eru nema rétt rúmar þrjár vikur síðan Klara systir hennar og mjög góð vinkona var jarðsett. Það væri ekki í anda Pálínu að viðhafa einhver hástemmd lýsingar- orð um hana á kveðjustundu jafn- vel þó að flest þeirra myndu eiga vel við. Pálína var alla tíð ákaflega prúð og hæglát kona, hógværð og nægjusemi voru hennar aðalsmerki. Henni fór það betur að gefa en þiggja og fólki leið ætíð mjög vel í návist hennar. Hún gaf mikið af sjálfri sér, veraldleg auðæfi voru hismi, heimilið, dóttirin og allt sem henni tengdist, tengdasonurinn, dóttursynirnir tveir og langömmu- barnið, vegferð þeirra og velgengni var það sem skipti hana mestu máli. Hún fylgdist jafnframt mjög vel með systkinum sínum og frænd- systkinum og fjölskyldum þeirra og var oft og tíðum mikilvægur tengi- liður sem viðhélt tengslum innan þessarar stóru fjölskyldu. Nú hefur maðurinn með ljáinn höggvið stíft og hópurinn látið á sjá. Eg sendi eftirlifandi systkinum Pöllu og Klöru sérstakar samúðarkveðjur og bið þeim styrks og blessunar á þess- um erfiðu tímum. Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Pálínu og njóta vináttu hennar og samfylgdar öll þessi ár. Ég leit ávallt á hana sem vin fyrst og fremst, tengdamömmutitillinn var uppbót. Þá get ég ekki látið hjá líða að þakka henni sérstaklega fyr- ir allt það sem hún var sonum okk- ar hjóna, en þeir nutu í ríkum mæli ástúðar hennar og umhyggju alla tíð og þegar við hjónin unnum bæði úti á okkar fyrstu hjúskaparárum áttu þeir ávallt skjólsælt athvarf hjá afa og ömmu og er mér ekki til efs að enn þann dag í dag njóta þeir þess í ríkum mæli sem til þeirra var lagt á þessum fyrstu uppvaxtará- rum. Það veganesti hefur orðið þeim happadijúgt á lífsleiðinni. Viðhorf Pálínu til lífsins og tilver- unnar, hógværð hennar og nægju- semi er okkur sem eftir erum til umhugsunar og eftirbreytni. Pálína hafði um nokkum tíma átt við nokkur veikindi að stríða en síðasta spítalalegan varð ekki löng, aðeins um þijár vikur. Ég vil hér með koma á framfæri 27.12.1925 á Lauga- vegi 24 í Reykjavík. Hann er sonur hjón- anna Steinunnar Unnar Guðmunds- dóttur og Karls N. Jónssonar, en þau eru bæði látin. Dóttir Pálínu og Brynjólfs er Elín Bjarney, f. 19.9. 1946. Maki hennar er Hjörtur Bene- diktsson innkaupa- stjóri, f. 14.12.1944. Synir þeirra eru Brynjólfur, f. 17.8. 1968, og Benedikt, f. 8.5. 1972, sambýliskona hans er Jóhanna María Vilhelmsdóttir, f. 9.4. 1973. Dóttir þeirra er Ásgerður Hörn, f. 29.10. 1996. Útför Pálínu fer fram frá Bústaðakirkju á morgun, mánudaginn 13. október, og hefst athöfnin klukkan 13.30. þakklæti til allra þeirra sem léttu Pálínu lífið síðustu dagana, sérstak- lega yndislegu starfsfólki hjarta- deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur svo og Brynhildi mágkonu hennar sem aðstoðaði okkur í fjölskyldunni við að veita henni félagsskap síðustu stundirnar. Þá þykir mér viðeigandi að koma á framfæri einnig sérstöku þakk- læti til Olgu Maríu sem oftlega leit til þeirra hjóna hin síðar ár réttandi vel þegna hjálparhönd á heimili þeirra. Að lokum votta ég tengdaföður mínum innilega samúð, en ég veit að það einstaka samband sem á milli þeirra hjóna var alla tíð og minningin um liðna sambúð með þeirri sérstöku persónu sem Palla var gerir þessar þungbæru stundir léttbærari. Það eru í raun forréttindi að fá á lífsleiðinni að kynnast slíkum samferðamanni sem Palla var. Hjörtur Benediktsson. Það er með sárum söknuði sem við bræðumir setjumst niður til að hripa á blað nokkur fátækleg minn- ingarorð um hana ömmu okkar. Þessi örfáu kveðjuorð geta þó aldr- ei orðið annað en veik þakkarskuld fyrir allt það sem hún veitti okkur á meðan hennar naut við. En þótt amma sé nú farin frá okkur getum við ornað okkur við minningamar um ókomin ár. Eitt það fyrsta sem við munum skýrt eftir úr ævi okkar em heim- sóknimar til ömmu og afa á Háa- leitisbrautinni, þangað sem við vöndum komur okkar frá því áður en við munum eftir okkur. Þar átt- um við margar gistinæturnar á okkar yngri ámm enda aldrei nema skotspölur að rölta yfir Safamýrina og heim til „ömmu og afa á Háó“. Þar fengum við ekki aðeins hlýju og umhyggju, heldur fundum við þar oft lausn á okkar margvíslegu vandamálum. Gilti þá einu hvort það þurfti að stoppa í buxur, þrengja eða víkka, eða sinna ýmsum öðrum lagfæringum af svipuðum toga. Allt þetta og margt fleira lék í höndunum á henni ömmu, og þær voru ófáar stundirnar sem hún eyddi við saumavélina. Hélst þetta óbreytt alla tíð, ef eitthvað þarfnað- ist slíkrar lagfæringar við var það sent til hennar ömmu. Þær voru einnig ófáar flíkurnar sem við bræð- urnir klæddumst, sem höfðu orðið til í höndunum á henni. Aldrei höf- um við bræður heldur svo komið á Háaleitisbrautina að hún amma okkar væri ekki búin að gauka að okkur einhveiju góðgæti. Þá var „nei takk“ ekki tekið sem gilt svar, henni fannst ómögulegt að við fær- um án þess að þiggja eitthvert lítil- ræði. Oft kom hún einnig færandi hendi til okkar, og var þá viðkvæð- ið oft: „Hérna strákar, skiptið þessu á milli ykkar.“ Við vorum ömmu- strákamir hennar, einu ömmubömin sem hún átti. En hún gaf okkur ávallt meira en það sem hún rétti okkur í lófann, hún gaf okkur alla sína ást, og af henni átti hún nóg. Ef okkur gekk eitthvað í haginn gladdist amma ávallt með okkur og í mótlæti stóð hún ávallt við hlið okkar og studdi með ráðum og dáð. Á stundu sem þessari hrannast upp í huga okkar bræðranna minn- ingarnar um hana ömmu okkar og allar þær ánægjustundir sem við áttum saman. Er okkur sérstaklega minnisstæð ferð sem við fómm ásamt foreldrum okkar og ömmu, ásamt bróður hennar og Qölskyldu hans, til Suður-Frakklands sumarið 1982. Þar áttum við saman stór- kostlegar stundir. Einnig heimsótt- um við Holland í þrígang, ásamt foreldrum okkar og ömmu og afa, og eyddum þar saman tveim vikum í senn í sumarhúsi. Var það ekki síður eftirminnilegur tími, að ógleymdum öllum ferðalögunum sem við fórum í með afa og ömmu héma heima, en slík ferðalög voru tíð á okkar yngri árum. Nú nálgast óðfluga sá tími ársins er hátíð fer í hönd. Allt frá því við bræður komum í heiminn, höfum við á aðfangadagskvöld setið saman við kvöldverðarborðið á Háaleitis- brautunni, ásamt ömmu og afa og foreldrum okkar, og snætt jólamat- inn. Við komum vonandi til með að gera það áfram um ókomin ár, þótt þar verði aldrei fullsetið eftir fráfall ömmu. Það var mikil gleðistund hjá henni ömmu okkar hinn 29. október sl. ár, eins og reyndar öllum öðrum í fjölskyldunni. Þann dag eignaðist hún fyrsta langömmubamið, Ás- gerði Höm. Var hún langömmu sinni mikill gleðigjafí, það var kom- ið lítið kríli sem hún amma okkar gat umvafíð örmum sínum líkt og hún gerði við okkur bræðuma í æsku. En nú, áður en sú litla verð- ur ársgömul, er langamma hennar horfín á braut. Hún mun ekki muna eftir langömmu sinni þegar hún kemst til vits og ára. En eitt er þó víst, að þegar sú stund rennur upp, munum við bræðurnir sjá til þess, að minningin um hana ömmu okkar verði greypt í huga Ásgerðar um aldur og ævi. Við biðjum góðan Guð að styrkja hann afa okkar, sem nú þarf að sjá á eftir konunni sem hann var giftur í yfír 50 ár. Hans missir er mikill. Við þökkum þér elsku amma fyrir þann tíma sem við fengum að hafa þig hjá okkur og fyrir allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman. Þú varst ekki bara einstök amma. Þú varst okkur bræðrunum miklu meira en það. Megir þú hvíla í friði. Þínir Brynjólfur (Binni) og Benedikt (Benni). í annað sinn á skömmum tíma kemur fjölskyldan saman til að kveðja ástfólginn ættingja. Pálína móðursystir mín eða Palla systir eins og við systkinin kölluðum hana er nú horfín yfír móðuna miklu. Við stöndum eftir á ströndinni, syrgjum yndislega konu og minn- ingar um liðna tíð leita á hugann. Oft hefur verið kátt í litla húsinu hennar ömmu á Bergþórugötunni, ekki voru þó auraráð mikil og stundum knúðu sjúkdómar dyra. Pálína fékk á unga aldri bletta- lungnabólgu, þurfti hún að læra að ganga á ný og nauðsynlegt var að hún fengi mikla umönnun. Þar sem barnahópur Elínar og Bjarna var stór, en börnin smá, var Pálína í fóstri hjá ísleifí móðurbróður sínum og Björgu konu hans í fáein ár. Elín amma sleppti þó aldrei hend- inni af stelpunni sinni og flutti Pál- ína aftur til föðurhúsa þegar hún hafði náð sér. Ung að árum kynntist Pálína eftirlifandi eiginmanni sínum Brynjólfí Karlssyni. Glæsilegt er unga parið á brúðkaupsmyndinni. Fljótlega fæddist þeim dóttirin Elín Bjamey ætíð kölluð Ella. Fjölskyld- an hefur alltaf verið ákaflega sam- rýnd og einstaklega sterk tengsl PÁLÍNA BJARNADÓTTIR milli þeirra mæðgnanna. Ég veit að Ella hefur ekki aðeins misst móður sína heldur einnig bestu vin- konu sína. Þær fylgdust hvor með annarri hvert fótmál, hvert skref. Glöddust saman yfír sigrum og styrktu hvor aðra í mótlæti. Gleði Pöllu var mikil þegar hún eignaðist tengdasoninn Hjört. Ég veit að hann hefur verið henni meir sem sonur en tengdasonur. Gimstein- amir vom þó dóttursynirnir Binni og Benni. Hvert örstutt spor þeirra var hennar gleðigjafí. Hún vakti yfír velferð þeirra, gladdist yfír velgengni þeirra. Palla var ein af þeim sem hugsa meir um aðra en sjálfa sig, vellíðan annarra skipti meira máli en eigin líðan. Síðasta árið var helsti gleðigjafínn langömmubarnið Ásgerður Hörn eða Skotta eins og þær mæðgur kölluðu hana. Þegar við Palla rædd- um saman á sjúkrahúsinu var helsta umræðuefnið hvemig Ásgerði liði með foreldmm sínum, Benna og Jóhönnu í Þýskalandi. Palla saknaði þeirra en gladdist að geta sagt fréttir af þeim. Veit ég að erfítt hefur verið fyrir Benna að vera svo fjarri, frétta af veikindum ömmu sinnar og geta ekki verið hjá henni síðustu dagana. Hún sem hafði allt- af verið svo mikill þátttakandi í lífí þeirra bræðra. Samgangur var mikill milli Berg- þómgötusystkina þegar við „krakk- amir“ vomm litlir. Bemskuminning- ar tengjast samverustundum með Pöllu, Binna og Ellu. Aðfangadags- kvöld komu þau í heimsókn, gaml- árskvöld einnig, fjölskyldan hittist á aftnælisdögum og sunnudögum. Palla er hluti af því fólki sem mót- aði okkur systkinin í bemsku. Hún var yndisleg kona, sem ég aldrei sá skipta skapi né heyrði skammaiyrði frá. Aldrei var hastað á okkur krakk- ana þó lætin væru stundum mikil. Kankvís var hún og ætíð stutt í brosið og kímnina. Palla systir var traust kona, málsvari smælingjans, ekkert aumt mátti hún sjá. Hún umbar en fordæmdi ekki. Við verð- um að taka fólki eins og það er, við getum ekki breytt því, var viðkvæði hennar. Palla systir hafði unun af að töfra fram góðgæti er gesti bar að garði enda þekkt fyrir framúr- skarandi matargerð. Ég naut þess vel eitt vorið er ég var að lesa und- ir próf, þá sá Palla til þess að ég borðaði hjá þeim Binna á Háaleitis- brautinni { hádeginu. Palla var ein af þeim sem rækt- uðu garðinn sinn, hlúði vel að því sem henni var trúað fyrir í þessu lífí, launin hennar vom hamingja annarra. Þegar Þórir bróðir hennar missti konu sína skyndilega frá ungum börnum, var Palla reiðubúin að opna faðm sinn og hlúa að þeim. Ég veit að Palli og Þóra hafa misst mikið við fráfall föðursystur sinnar og litlu bömin hennar Þóm einnig því þau misstu Pöllu ömmu. Milli Pöllu og móður minnar, Klöm, var einstakt samband. Þær fylgdust grannt hvor með annarri og vom í daglegu símasambandi. Umræðuefni þeirra var oftar en ekki bömin þeirra stór og smá. Þær trúðu hvor annarri fyrir gleði sinni, sorgum og leyndum hugsunum. Fimmtudaginn 11. september síð- astliðinn lagðist móðir mín inn á Sjúkrahús Reykjavíkur og átti að fara í aðgerð daginn eftir. Sama dag lagðist Palla systir inn á sjúkra- húsið vegna öndunarerfíðleika, en hjartasjúkdómur og sykursýki hrjáðu hana síðustu árin. Þennan fímmtudag áttu systumar sína síð- ustu samvemstund. Báðar höfðu áhyggjur hvor af annarri en minna af sjálfri sér. Pöllu systur var það síðan léttir að heyra að aðgerðin hefði gengið vel, því meira áfall varð það að frétta af skyndilegum dauðdaga Klöra systur hennar. Gott var þá að koma inn á sjúkra- stofuna til Pöllu og sameinast í sorginni. Fárra orða var þörf, hlýtt handtak, faðmlag, andvarp og svo orðin „þá er ég víst orðin elst.“ Síst grunaði mig þá að nokkmm dögum seinna myndi móðursystir mín lærbrotna á sjúkrahúsinu og heyja sitt dauðastríð upp frá því. Það er sársaukafullt fyrir pabba, okkur systkinin og fjölskyldur að horfa á eftir Pöllu systur, svo stuttu eftir að mamma er farin. Palla sem þekkti mömmu sennilega best allra. Systumar í beinu sambandi skrifaði faðir minn undir mynd af þeim systrum. Ef til er framhaldslíf eftir þetta líf er ömggt að þær eru þar í beinu sambandi. Ég sé þær fyrir mér í rósóttum kjólum með vel greitt hár, brosandi, fallegar og blíðar. Pálína og móðir mín vom börn síns tíma. Eflaust hefur hugur þeirra staðið til mennta, en slíkt var ekki til umræðu miðað við að- stæður þess tíma. Þær vom báðar vel gefnar og duglegar, hefðu getað átt sér starfsframa á ýmsum svið- um. Ég efa ekki að rekstur fyrir- tækis hefði gengið eins vel og heim- ilisreksturinn. Þær völdu að ævi- starfí að sinna eiginmönnum og afkomendum. Eftir að þær em farn- ar fínnum við sérstaklega hvað þær skiptu miklu máli. Þær vom tengi- liðir ættingja og fyrirmyndir um væntumþykju og alúðlega fram- komu. Þegar við verðum fyrir áfalli finnum við hvað fjölskyldan, ætt- ingjamir, skipta miklu máli. Það em samverustundirnar með þeim sem okkur þykir vænt um sem skipta mestu máli. í lífsgæðakapp- hlaupi og hraða nútímans ættum við að staldra oftar við og gefa hvert öðm meira af „dýrmætum" tíma okkar. Njóta augnabliksins, eins og þær gerðu. Elsku móðursystkini, ég veit að sorg ykkar er mikil, á rúmum hálf- um mánuði er stórt skarð höggvið í systkinahópinn. Elsku Steinka, þið systumar höfðuð ákveðið að fara saman að leiði ömmu á hundrað ára fæðingardegi hennar. Þú varst svo einmanaleg er þú stóðst þar ein með blóm og kerti. Það er mikið að missa báðar systur sínar á svo stuttum tíma, systur sem voru vin- konur þínar líka. Ellen frænka, ég veit þú syrgir líka mikið því þær voru þér frekar sem systur en frænkur. Mína samúð eigið þið öll. Elsku Binni minn, þá ertu búinn að missa draumadísina þína eins og pabbi. Fömnauturinn farinn eft- ir meir en fímmtíu ára samvera, sár er aðskilnaðurinn. Megi almætt- ið vera með þér í dag og alla daga. Ella mín, síðasta andvarpið var í örmum þínum. Hún bar þig við upphaf þíns lífs, þú hélst utan um hana við lok hennar lífs hér á jörð. Sárt er að missa, sárt er að sakna. Trú þín verði þinn styrkur. Megi minningamar um góða tengdamóð- ur og ömmu styrkja ykkur feðgana Hjört, Binna yngri og Benná í sorg ykkar og eftirsjá. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð og þökkum fyrir að hafa átt samfylgd með gæðakon- unni Pálínu Bjamadóttur, blessuð sé minning hennar. Elín Vilhelmsdóttir. Hún Palla, ömmusystir mín, er nú farin. Hún er farin þangað þar sem henni líður vel og þaðan sem hún getur fylgst með fjölskyldu sinni vaxa og dafna. Ég er viss um að Klara amma mín hefur tekið opnum örmum á móti systur sinni. Það er svo óskaplega stutt síðan að Klara amma mín, varð bráðkvödd og var það Pöllu mikið áfall að missa syst- ur sína svo skyndilega. Palla og Klara höfðu alltaf verið mjög nánar og höfðu þær þann sið að tala nán- ast daglega saman í síma og þá oft lengi í senn. Umræðuefni þeirra var iðulega börnin þeirra og fjölskyldur þeirra og síðan bám þær fréttirnar á milli. Þannig gátum við fylgst svo vel hvort með öðm. Palla helgaði sig fjölskyldu sinni líkt og amma mín. Því veit ég að stórt skarð hef- ur verið höggvið í fjölskyldu hennar en minningar um yndislega og góða konu sitja eftir. Þessar minningar em það dýrmætasta sem eftir situr og það er svo gott að geta leitað í þær þegar við höfum svo mikils að sakna. Ég hef iðulega kallað Pöllu, Pöllu systur og vakti það oft kátínu þeg- ar ég var lítil enda aldursmunurinn á milli okkar töluverður. Ég minn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.