Morgunblaðið - 12.10.1997, Side 40

Morgunblaðið - 12.10.1997, Side 40
40 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LÁRUS ÁGÚST LÁRUSSON -I- Lárus Ágúst I Lárusson sölu- síjóri var fæddur 19. maí 1961. Hann lést 2. október síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Neskirkju 10. októ- ber. Það er sár söknuður þegar einn besti æsku- vinur minn fellur svo brátt frá á svo hörmu- legan hátt. Við Lárus vorum samferða gegnum lífið í Voga- skóla. Hann var sessunautur minn og því sá sem manni þótti vænst um enda lágu leiðir okkar saman í flestu á þeim árum, við byijuðum í skátunum, svo kom fótboltinn, síðan handboltinn og alltaf lágu leiðir okkar saman enda tryggur vinur sem ég átti, hann Lalli. Lárus átti mjög auðvelt með allt sem hann tók sér fyrir hendur hvort sem var í skóla eða íþróttum, hann var góður námsmaður og það var gott að hafa hann sem sessunaut, og leita til hans. Lárus var sá sem leiddi vin sinn yfir þær hindranir sem urðu á vegi tveggja stráka sem voru að vaxa úr grasi. í seinni tíð hitti maður Lárus aldrei öðruvísi en með drengina sína í íþróttastarfinu en þar nutu hæfileikar hans sín vel. Það er svo sárt að minnast svo góðs vinar á þessari stundu og meðtaka það að sjá hann aldrei meir í þessu lífi en bros hans og góðvild fer aldrei úr huga mínum. En Lalli skilur eftir sig mikinn fjársjóð, drengina sína þijá og eig- inkonu sem stóð við hlið hans í gegnum lífið. Að lokum vil ég fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar votta Völu, drengjunum, og fjöl- skyldu Lárusar mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning hans. Svavar. handbolta og var ein- stakur í sinni röð hvað handboltann snerti. Síðar kenndi hann mér hvemig ætti að þjálfa aðra í handbolta. Við þjálfuðum saman í mörg ár og hann reyndist mér alltaf sami góði kennarinn og vinurinn. Hann var mér og mörgum öðrum góð fyrirmynd enda bárum við mikla virð- ingu fyrir honum. Lalli var þrautseigur, út- sjónarsamur og skiln- ingsríkur þjálfari. Ákveðinn og kappsamur - honum þótti vænt um okkur alla sem hann var að þjálfa - og hafði metnað fyrir okk- ar hönd. Við fundum það allir svo vel að honum var annt um okkur - hann var eins og einn af okkur. Lalli náði einstaklega vel til okkar enda var hann léttur í skapi og bjó yfir alveg magnaðri kímnigáfu sem hitti alltaf beint í mark. Ég er hon- um ævinlega þakklátur fyrir þá kennslu sem hefur skilað miklu og ég mun alltaf minnast hans þegar ég þjálfa. Þeir eru ófáir sem hann hefur kennt handbolta og þjálfað og sakna hans sárlega. Nú er Lalli farinn yfir móðuna miklu. Hann fór allt of snemma en hann skilur eftir sig góðar minning- ar og ég mun alltaf minnast hans þegar ég heyri góðs manns getið. Ég mun líka minnast hans í hvert skipti sem ég geng út til að þjálfa strákana og segja þeim frá því hvernig eigi að bera sig að í boltan- um - eins og Lalli kenndi. Ég sendi mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til konunnar hans, hennar Völu, og strákanna þeirra, Eiríks, Jakobs og Andra. Þeirra missir er mestur en þau eiga líka mestar og bestar minningarnar um Lalla. Það er þeirra fjársjóður. Þinn vinur, Ágúst Jóhannsson þjálfari. Það er undarlegt að missa einn sinn besta vin. Fráfall hans bar snögglega að og með hörmulegum hætti. Það mun taka langan tíma að átta sig á því að hann er ekki lengur hjá okkur. Eftir sitjum við og erum öll harmi slegin. Lárus var vinur minn, eða Lalli eins og hann var oftast kallaður. Allt í einu er hann horfínn og ég get ekki framar talað við hann. Við sem töluðum saman á hveijum degi, stundum tvisvar á dag, og oftar. Alltaf var nóg að spjalla um; umræðuefnin voru óþijótandi og oft slegið á létta strengi. Það var líka stutt til hans heiman frá mér en þangað kom ég oft og var alltaf tekið jafnvinsamlega af honum og konu hans. Strákana þeirra þekki ég líka mjög vel og ætla að styðja við bakið á þeim eins og hægt er. Ég þjálfaði Eirík ásamt Lalla og er nýbyijaður að þjálfa Jakob. Þó Lalli væri miklu eldri en ég, eða einum sextán árum, fann ég aldrei fyrir þessum aldursmun og ekki hann heldur að mér fannst. Það var eitthvað sem tengdi okkur svo vel saman þannig að aldur skipti ekki máli. Lalli kom alltaf vel fram við mig og lét mig aldrei finna að ég væri yngri. Ég leit upp til hans og reyndi að læra eins mikið af honum og ég gat. Ég vissi að hann var einstakur í sinni röð og mér fannst gott að leita til hans. Hann var alltaf ráðagóður, bjartsýnn og hvetjandi og því var hann öllum sem hann þekktu svo einstaklega dýrmætur. Þess vegna er missirinn líka svo átakanlegur fyrir alla. Alla sem þekktu hann og nutu starfs- krafta hans. Við vorum í KR - já, miklir KR-ingar og höfðum mikinn metn- að fyrir það gamla, góða og síunga félag. Lalli kenndi mér að spila Við, stelpurnar hans Lalla, vilj- um minnast hans með nokkrum orðum. Þegar Lalli tók við okkur sem handboltaþjálfari í KR vorum við ungar og ómótaðar. Þetta var ekki auðvelt verk en á sinn ein- staka hátt laðaði hann fram það besta í fari hverrar og einnar. Það var hans sérstaki eiginleiki að ná fram sérstakri samstöðu ólíkra ein- staklinga. Hann var okkur allt í öllu, þjálfari, kennari og vinur í raun. Hann kenndi okkur að bar- átta og keppnisskap getur nýst okkur víðar en á keppnisvellinum og sú varð raunin. Hann brást okk- ur aldrei. Lalli hafði geysilegan metnað fyrir okkar hönd. Það eru ófáar stundirnar sem við höfum eytt saman í íþróttahúsum víðsveg- ar um landið, að ógleymdum tveim- ur frábærum ferðum til Svíþjóðar og oftar en ekki var Eiríkur, sonur hans, með í för. Enn þann dag í dag hittumst við aldrei án þess að talið berist að þessum árum - ferðunum, leikjun- um, turneringunum, partíunum og síðast en ekki síst honum sjálfum. Það eru mýmargir fimmaurarnir sem Lalli lét frá sér fjúka og við notum enn í dag. Það er ekki að ástæðulausu sem Lalli var kallaður konungur fímmauranna. Hver okk- ar man ekki eftir því þegar við vorum í Gautaborg að kaupa gjöf handa Kristjáni Emi? Það stóð til að kaupa áritaðan platta. Lalli hafði orð fyrir okkur í búðunum og ávarpaði afgreiðslukonuna: „Do you speak english? Har du en platte som man kan skrive pá?“ Við spurð- um hann því í ósköpunum hann spyrði hana hvort hún talaði ensku. Hann svaraði til: „Þetta er ákveðin taktík." Eitt er víst að hann kunni svör við öllu. MINIMIIMGAR Við gripum hvert tækifæri til að gefa honum gjafir. Þær voru mis- gáfulegar, en upp úr stendur úrið sem við gáfum honum. Það átti að minna hann á stelpurnar hans. Megi Guð veita þeim Völu, Ei- ríki, Jakobi og Andra styrk í sorg- inni. Laufey, Rína, Selma, Sig- urlaug, Sigríður Fanney, Tinna, Valdís og Vigdis. Nú á haustmánuðum voru tvær handknattleiksdeildir vestur í bæ að ræða um samstarf. Þetta voru handknattleiksdeildir KR og Gróttu. Mikill áhugi var á sam- starfinu en ljóst var að þetta yrði þungur vagn að draga, en myndi takast ef margar hendur legðust á verkið. Það er nú einu sinni svo þegar leitað er eftir sjálfboðaliðum í tímafreka vinnu að þá eru fæstir tilbúnir að færa þá fórn sem starf- ið krefst. Einn maður tók þó af skarið, bauð sig fram, tilbúinn að taka forystuhlutverk í unglinga- starfi KR. Þetta kom KR-ingum ekki á óvart, þar sem viðkomandi hafði nánast einn síns liðs séð um yngri flokka KR til margra margra ára. Þrátt fyrir að við vissum að Lárus hafði nóg að starfa heima fyrir var hann tilbúinn að taka á sig þá vinnu sem samstarf þetta krafðist. Þannig var er og verður Lárus Ágúst Lárusson í okkar huga. Ein- staklingur sem var ávallt tilbúinn að gefa meira en að þiggja. Lárus var tré í lífsins garði sem veitti skjól öllum þeim sem leituðu til hans. KR-ingar og íþróttahreyfing- in öll mun syrgja þennan dreng sem nú hefur kvatt okkur í bili. Við í stjórn handknattleiksdeildar Gróttu og KR vottum fjölskyldu Lárusar okkar innilegustu samúð og vonum að Guð gefí þeim styrk í sorginni. Stjórn handknattleiks- deildar Gróttu og KR. Það er með sárum söknuði sem við kveðjum þennan dreng. Því hann, sem við öll köllum Lárus, er sá einstaklingur sem við vildum hafa í kringum okkur og þekkja. Ég minnist þess ekki að hafa séð hóp manna, ásamt Lárusi, nema með bros á vör. Öll þau gullkorn sem þessi drengur átti heyra nú sögunni til. Þegar ég hugsa til baka um þær stundir sem við áttum sam- an, hvort sem var í keppnisferð í Rannes eða stjórnarfundum hjá KR er það á einn veg; með bros á vör. Setningar eins og „hvar er Siggi“ mun gera hann ódauðlegan í mín- um huga, þó svo flestir líti á þetta sem einfalda atugasemd, var þetta eitt besta gullkorn sem ég hef heyrt þó að aðeins örfáir skilji kímni þess. Frá því að ég fór að taka þátt í starfí KR hefur Lárus borið höfuð og herðar hátt varðandi þekkingu og skilning á því hvernig reka ætti íþróttafélag. Það var alveg sama hvort það var vöfflusala eða skipu- lagnig stórmóta, alltaf var Lárus boðinn og búinn. Dugnaður og ná- kvæm skipulagning var honum í blóð borin, enda var allt það sem hann kom nálægt bæði vel og vand- lega gert. Ég minnist þó helst keppnisferðarinnar til Danmerkur þar sem ég átti að vera fararstjóri en varð farþegi. Jú, jú, Lárus var löngu búinn að skipuleggja ferðina, frá fjáröflun heima til lokaræðunn- ar sem hann og mótstjóri héldu fyrir framan hundruð manna, allt var þetta þaulskipulagt. Sú hugsun að sjá Lárus aldrei aftur er yfir- þyrmandi og ósanngjörn, en samt get ég glaðst, því mér hlotnaðist sá heiður að fá að kynnast og starfa með þessum einstaka dreng. Að lokum vill ég votta fjölskyld- unni, Völu, Eiríki, Jakopi og Andra, mína dýpstu samúð og megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Björgvin Barðdal. Föstudaginn 3. október sl. fékk ég símtal sem flutti mér þær frétt- ir að hann Lalli væri látinn. Mig setti hljóðan. Hvernig gat það gerst að jafnelskulegur maður félli frá með jafnhörmulegum hætti og raunin varð á. Við Lárus kynntumst í septem- ber árið 1991, er ég hóf störf hjá fyrirtæki sem hann vann hjá, og mér varð fljótlega ljóst að við ætt- um eftir að verða miklir vinir. Hann var einstaklega ljúfur og þægilegur í allri umgengni og gott var að leita til hans, hvort sem var innan vinnu eða utan. Þrátt fyrir mikið álag oft á tíðum var hann ætíð reiðubúinn að reyna að leysa þau mál sem upp komu hvetju sinni. Sérstaklega er mér minnisstætt hversu hjálplegur hann var við að setja mig inn í nýja starfið, þrátt fyrir að síminn léti óspart í sér heyra. Lárus var vinamargur og afar vinsæll meðal viðskiptavina sem og utan vinnu og þá ekki síst meðal íþróttamanna enda var hann sjálfur á kafí í íþróttum, en hann þjálfaði yngri flokka KR í hand- knattleik, og þegar talið barst að íþróttum var hann sannarlega á heimavelli. Það var svo á síðasta ári að leið- ir okkar skildi er ég fluttist til út- landa í leit að ævintýrum, en alltaf lánaðist okkur að halda samband- inu. Það urðu því fagnaðarfundir þegar við hittumst í tívolíinu í Árós- um, en þar var hann í keppnisferð með KR-ingana sína sem allir dýrk- uðu hann, og aðdáunin var gagn- kvæm. Siðan gerist það að ég sný aftur heim og fer að vinna á gamla vinnustaðnum, og viti menn, þar er Lárus að hefja sitt 10. starfsár hjá þessu fyrirtæki, og segir það meira en mörg orð um þennan mann, og enn verða fagnaðarfund- ir og var mikið hlegið og gert að gamni sínu. Það er því hörmuleg staðreynd að fyrir u.þ.b. 2 vikum er við áttum spjall saman og talað var um að hittast yfír kaffibollla, að það samtal skyldi verða okkar síðasta. Lárus var mikill íjölskyldumaður og hjá honum var fjölskyldan í fyrirrúmi og ég veit að hann lagði sig fram við að henni liði sem best. Ef ég man rétt eru tæp 2 ár síðan þau hjónin eignuðust sitt þriðja barn, enn einn drenginn, þá nýbúin að festa kaup á húsi í vesturbænum og virtist lífið brosa við þeim þegar áfallið dundi yfír. Að lokum vil ég senda Valgerði konu Lárusar og drengjum þeirra þremur mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ég kveð þig, kæri vinur, með söknuði og þakklæti fyrir samver- una, þess fullviss að við hittumst á ný. Haraldur O. Leonhardsson. Okkur strákana langar að skrifa nokkur orð í minníngu Lárusar Á. Lárussonar eða Lalla þjálfara eins og við vorum vanir að kalla hann. Þegar við byijuðum að æfa hand- bolta hjá KR sjö ára gamlir, var Lalli þjálfarinn okkar. Hjá honum tókum við fyrstu skrefin í hand- bolta. Þar lærðum við mikið og munum ekki gleyma því. Og alltaf var Lalli þolinmóður, sama hve erfiðir við vorum. Hann var mjög góður þjálfari. Við munum aldrei gleyma hversu góður Lalli var við okkur. Árgangur ’87 í handknatt- leik drengja KR. Kveðja frá íþróttafélaginu Gróttu Stórt skarð hefur myndast í litl- um hópi, er vann að undirbúningi samstarfs Gróttu-KR nú þegar þú ert farinn, kæri samstarfsfélagi. Með söknuði kveðjum við þig og viljum þakka þér samverustundirn- ar á liðnu sumri. Þú sást strax í upphafí viðræðn- anna milli íþróttafélaganna kostinn við samstarfíð, sérstaklega í eldri flokkunum. Við sáum líka strax hvar kraftar þínir yrðu best nýttir, það var í kringum unglingastarfið. Því varð þinn þáttur í samstarfínu Gróttu-KR að þú tækir að þér uppbyggingu unglingastarfsins hjá Handknattleiksdeild KR. Það var síðast á þriðjudags- kvöldið að við hjónin ræddum við þig á æfingu hjá 3. fl. ka, en þar eigum við bæði efnilega drengi sem æfa. Þú varst tilbúin að vera hópn- um innan handar og aðstoða við þjálfun, ef svo bæri við, ásamt Kristjáni. Kæri Eiríkur, hugur okk- ar hefur verið hjá þér síðustu daga. Við í Gróttu viljum þakka þér allt of stutt samstarf í samhentum hópi, þar sem allir unnu af heilind- um að samstarfi félaganna. Við vottum ykkur Valgerður, Eiríkur, Jakob og litla Andra Þór, ásamt öðrum aðstandendum, ein- lægar samúðarkveðjur og megi Guð veita ykkur styrk í sorg ykkar. Guð blessi minningu Lárusar Ágústs Lárussonar. F.h. íþróttafélagsins Gróttu, Ásgerður Halldórsdóttir. DAGNÝ ÓLAFSDÓTTIR + Dagný Ólafs- dóttir fæddist á Reykjavík 1. sept- ember 1976. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 29. september síðast- liðinn. Foreldrar hennar eru Ásdís Ásgeirsdóttir og Ólafur Egilsson. Systkini hennar eru Anna Heiða, Guðný og Egill. Dagný fluttist í Bræðratungu árið 1986 og bjó þar alla tíðsíðan. Útför Dagnýjar fór fram frá Sauðlauksdalskirkju í kyrrþey. Elsku Dagný! Það er með söknuði sem ég kveð þig og minnist þín. Það er margs að minnast frá þeim fímm árum sem liðin eru frá því ég kynntist þér fyrst. Hvemig þú heilsaðir fólki með glaðlegu „hæ, heyrðu!" og vild- ir spjalla; fótboltaiðkunar þinnar í garðinum og kjallaranum, spilanna sem þú skildir aldrei við þig, til- hlökkunarinnar fyrir ferðina á Laugarvatn í sumar, gleðinnar þeg- ar mamma og pabbi, Nanna eða aðrir hringdu í þig eða þú í þau til að spjalla. Dagný mín! Augun þín sögðu meira en þúsund orð og táknin þín bættu um betur. En stundum varstu hissa og stund- um sár þegar við skild- um ekki það sem þú varst að segja okkur. Það var aldrei nein lognmolla í kringum þig, oft var hurðum skellt og oft mátti heyra „ég er farin heim“ ef þér mislíkaði eitthvað en eftir augnablik var brosið þitt komið aftur og Kim Larsen í botn. Þegar ég hitti þig síðast hinn 14. september síðastliðinn óraði mig ekki fyrir því að það yrði okk- ar síðasta kveðja. Núna hefur stórt skarð verið höggvið í íbúahópinn á Bræðra- tungu sem ekki verður fyllt. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku Dagný. Ásdís, Ólafur og fjölskylda. Ég votta ykkur samúð mína og bið Guð að styrkja ykkur í sorginni. Sóley Veturliðadóttir, for- stöðumaður Bræðratungu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.